Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
21
Jkappar viðhafa jafnan stór orð fyrir keppni sín í milli en sjaldgæft verður að
aríkjamaðurinn Mike Tyson verji heimsmeistaratitil sinn í þungavigt á Wem-
Bruno og er hann ekki talinn eiga mikla möguleika gegn Tyson sem rotað
ustur og á blaðamannafundi sagði Bretinn: „Tyson verður myrtur, ekki ég.“
-SK/Símamynd/Reuter
fþróttir
Geysisterkt
Flugleiðamót
- flögur ólympíulið leika á mótinu
Flugleiðamótið í handknattleik
fer fram nú um helgina. Er það
einróma mál manna að aldrel
hafi veriö haldið eins sterkt mót
á íslandi en auk íslendinga taka
þátt á mótinu lið Sovétríkjanna,
Tékkóslóvakíu, Sviss og Spánar
auk þess sem íslendingar tefla
fram B-liöi.
Mótiö hefst á laugardag en þá
leikur A-liö íslands gegn Tékkum
í Laugardalshöll klukkan 17.
Sama dag leika hin liöin saman á
Akureyri og Selfossi. Leikjunum
er dreift niður á sex staöi og.er
það til að gefa íbúum úti á landi
tækifæri til þess að fylgiast með
þessum sterku handknattleiks-
þjóöum. Auk Reykjavíkur verður
keppt á Akureyri, Húsavík, í
Hafnarfirði, Kópavogi og á Akra-
nesi.
Á blaðamannafundi á Hótel
Loftleiðum í gær lýsti Jón Híalta-
lín Magnússon, formaður HSÍ,
því yfir að leikir þessir væru
einnig nokkurs konar prófraun á
íþróttahúsin utan Reykjavíkur
því ijóst er að öll þau hús, sem
leikið verður í, koma til með að
verða keppnisstaðir í heims-
meistarakeppninni ef íslendingar
halda hana 1993.
Geysisterkt mót
Flugleiðamótið í ár er án efa
langsterkasta handknattleiksmót
sem haldið hefur verið á íslandi.
Auk íslendinga leika á mótinu
þrjár þjóðir sem verða með á
ólympíuleikunum í Seoul í sept-
ember. Sovétmenn verða sem
kunnugt er með okkur í riðli þar
en Spánverjar og Tékkar leika í
hinum riölinum. Svisslendingar
eru hins vegar ekki með á leikun-
um en þeir munu leika í B-heims-
meistarakeppninni í Frakklandi.
Allar þjóðirnar munu að öllum
líkindum koma til íslands með
sína bestu menn enda er þetta
lokaundirbúníngur hðanna fyrir
sjálfa leikana í Seoul.
Sovétmenn verða að öllum lík-
indum meö sterkasta liðið - ef
dæma má af frammistöðu þeirra
á síðstu mánuðum. Þeir hafa
unnið h vert stórmótið á eftir öðru
og verða án efa illviðráðanlegir á
Flugleiðamótinu.
Lið Tékka og Spánveija eru
einnig firnasterk og í mjög svip-
uðum styrkleika og íslenska liöið.
íslendingum hefur gengið illa
með Spánverja en vonandi verð-
ur þar breyting á að þessu sinni.
Leikir íslendinga og Tékka hafa
ávallt verið mjög jafnir og spenn-
andi. Tveir síðustu leikir þjóð-
anna hafa verið gífurlega spenn-
andi. íslendingar lögðu þá tékk-
nesku í fyrra með eins marks
mun en þar á undan höfðu Tékk-
ar unnið eins marks sigur með
frægu marki markvarðarins
Barda á síðustu sekúndunúm.
Lið Svisslendinga er einnig sterkt
þó það hafi ekki komist á ólymp-
íuleikana. Svisslendingar leika
kannski ekki áferðarfallegan
handbolta en hann hefur reynst
þeim árangursríkur í gegnum
árin.
íslendingar tefla að sjálfsögðu
fram sínu sterkasta liði á mótinu
og það verður gaman að fylgjast
með liðinu glima við þessa sterku
andstæðinga. Nú erum við á
heimavelli og ætti það að reynast
íslenska liðinu vel og vonandi að
áhorfendur fjölmenni á leikina
og hvetji liðið af krafti. íslenska
B-liðið hefur enn ekki verið end-
anlega valið en ef að líkum lætur
mun það eiga á brattann að sækja
gegn hinum liðunum. Liöiö verð-
ur sennilega að mestu leyti skip-
að leikmönnum úr U21 árs lands-
liöinu og verður það endatflega
valið á morgun. -RR
Laudrup hrrfst af Eindhoven
„Beittur sálfræði-
legum þvingunum"
- segir danski leikmaðurinn. Juventus gefur ekki grænt ljós
Danski landshðsmaðurinn kunni,
Michael Laudrup, á þessa dagana í
viðræðum við forráðamenn Evrópu-
meistaranna PSV Eindhoven. Eins
og kunnugt er lýstu aðalráðamenn
ítalska stórliðsins Juventus því yfir
að ekki væri lengur þörf fyrir Laudr-
up og að hann mætti hafa sig á brott
frá félaginu. í staðinn ætlaði ítalska
liðið að reyna að fjárfesta í einhverj-
um öðrum leikmanni og var sovéski
landshðsmaðurinn Zavarov efstur á
óskalista Juventus.
Laudrup fastur hjá Juve
Eftir að Laudrup hafði staðið í við-
ræðum við forseta Eindhoven gripu
forráðamenn Juventus skyndilega í
taumana og vilja ekki gefa Laudrup
færi á að semja við hollenska liðið.
Forráðmenn Juventus hafa ekki géf-
ið neina skýringu á þessu en víst er
að þeir myndu fá háar fjárhæðir frá
PSV fyrir danska landsliðsmanninn.
Sjálfur hefur danski landshösmaður-
inn lýst því yfir að hann sé mjög
hrifinn af liði PSV og hann hafi mik-
inn áhuga á að leika með því.
Þótti orðið vænt um félagið
„Það virðist sem Juventus sé að
reyna einhverjar sálfræðilegar
þvinganir í minn garð,“ segir Laudr-
up.
„Ég var að sjálfsögðu ekki ánægður
þegar mér var hreinlega sagt upp í
síðustu viku. Ég hef mikinn metnað
og eftir öll þessi ár hjá Juventus var
mér farið að þykja vænt um félagiö.
Mér er hreint óskiljanlegt hvernig
þeir geta gert mér þetta. Það er alla
vega lágmark að þeir leyfi mér að
fara og reyna fyrir mér annars staðar
ef Juventus þarf ekki á mér að
halda.“
PSV hefur mikinn áhuga
Stjórnendur Eindhoven hafa alltaf
haft mikinn áhuga á Laudrup og
hafa nokkrum sinnum sett sig í sam-
band við hann en ítalska liðið aldrei
gefið kost á þessum snjalla leikmanni
fyrr en skyndilega núna. Forráða-
menn hollensku meistaranna vilja
hins vegar fá Laudrup yfir til Holl-
ands strax í vikunni til þess að hann
geti æft með liðinu. Hollendingarnir
vilja sem sagt fá endanlegt svar fyrir
helgi en allt strandar nú á ítalska hð-
inu sem fyrir nokkrum dögum vildi
losna við Danann sem fyrst.
-RR
DV-lið vikunnar
Þorsteinn Bjarnason
ÍBK (1)
Sigurbjörn Jakobsson
Leiftri (2)
Erlingur Kristjánsson
KA (4)
Júlíus Tryggvason
Þór (1)
Jón Kristjánsson
KA (1)
Oiafur Þórðarson
ÍA (2)
Atli Einarsson
Vikingi (2)
Ómar Torfason
Fram (1)
Arnljótur Davíðsson
Fram (4)
Sigursteinn Gíslason
ÍA (2)
Sigurjón Kristjánsson
Val (3)
íslandsmót ölduriga:
Jakobína og Þor-
bjöm unnu mötið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þorbjörn Kjærbo, Golfklúbbi Suð-
urnesja, og Jakobína Guðlaugsdóttir
unnu örugga sigra á íslandsmóti öld-
unga í golfi sem haldið var á Jaðars-
velli á Akureyri um helgina.
Þorbjörn lék 54 holur 142 höggum
og var fjórum höggum betri en næsti
maður sem var Knútur Björnsson,
Golfklúbbnum Keili. Þriðji varð Al-
freð Viktorsson, Golfklúbbnum
Leyni, Akranesi, á 247 höggum, Þor-
steinn Steingrímssón, Keili, fjórði á
248 og næstir og jafnir á 249 höggum
voru Eiríkur Smith, Keili, Gísli Sig-
urðsson, Keili, og Jón Árnason, Nes-
klúbbnum.
Með forgjöf sigraði Gísli Sigurðs-
son, GK, á 139 höggum, Alfreð Vikt-
orson, GL, var á 140 og Eiríkur
Smith, GK, og Þorbjörn Kjærbo, GS,
á 142 höggum.
í kvennaflokki hafði Jakobína
Guðlaugsdóttir, Golfklúbbi Vest-
mannaeyja, mikla yfirburði. Hún lék
36 holur á 175 höggum. Önnur varð
Steindóra Steinsdóttir, Nesklúbb-
num, á 187 og Guðrún Eiríksdóttir,
Golfklúbbi Reykjavíkur, þriðja á 191
höggi.
Með forgjöf sigraði Steindóra
Steinsdóttir, NK, á 133 höggum,
Patricia Jónsson, Golfklúbbi Akur-
eyrar, var á 141 höggi og Þóra Þór-
mundsdóttir, Golfklúbbi Húsavíkur,
þriðja á 141 höggi.
Rétt tæplega 100 kylfingar tóku
þátt í mótinu en aldurstakmark er
55 ár fyrir karla og 50 ár fyrir konur
og fór mótið mjög vel fram.
Nú stendur fyrir dyrum að velja
tvær sveitir karla til að keppa á móti
erlendis. Þorbjörn Kjærbo, sem velur
sveitina sem keppir án forgjafar,
mun varla geta annað en valið sjálfan
sig eftir frammistöðuna, en Lands-
samband eldri kylfinga velur sveit-
ina sem mun keppa með forgjöf.
KSfékkskil-
orðsbundinn dóm
- fær að leika á heimavelli gegn UBK
Guðmundur Davíðeson, DV. Siglufirði'
Siglfirðmgar fengu góða afmæl-
isgjöf fyrir vígsluleikinn á hinum
nýja grasvelli sínum í gær. Fyrir
leikinn tilkynnti Ellert B. Schram/
formaður KSÍ, að heimaleikur liös-
ins gegn Breiðabliki yrði ekki
dærndm- af liðinu eins og gera átti
eftir að kæra haíði borist KSÍ um
ólæti á leik gegn FH fyrir hálfum
mánuöi.
Dómstóll aganeftidar ákvað að
veita Siglfirðingum skilorðisbund-
inn dóm í málinu og þurfa þeir því
ekki að 'taka út refsingu sína sem
lá í að liðiö átti aö leika næsta hei-
maleik í 100 km flarlægð frá Siglu-
firöi.
Siglfirðingar fógnuðu í gær af-
mæh bæjarins og léku gegn ís-
landsmeisturum Vals í tilefiú af
því.