Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
Giftí
30 ár
leikur nú einkennilegasta hlut-
verk sem hún hefur tekiö að sér
hingað til. Hlutverkið er i sjón-
varpsmyndinni „Rock Momma"
og leikur hún móður frægs rokk-
ara. Móðirin er þó ekkert venju-
leg mamma því hún gengur í
hljómsveit sonar síns og á í ástar-
sambandi við mann sem er ekki
eldri en þaö aö hann gæti verið
sonur hennar. Það er enginn ann-
ar en David Lee Roth sem leikur
soninn.
Þaö er í sjálfu sér ekki í frásög-
ur færandi þó aö hjón séu búin
að vera gift í þrjá tugi ára enda
er ætlast til þess þegar maöur og
kona eru gefin saman að sam-
band þeirra vari um aldur og ævi
og aö aðeins dauöinn geti aðskiliö
þau.
Eitthvaö hefur þetta þó farið
fyrir ofan garð og neðan bjá
raörgum kvikmyndastjömum og
er mun algengara á þeim bæ að
fólk skilji heldur en hangi saman
gegnum súrt og sætt. Paul New-
man og Joanne Woodward em
þó undantekning því á þessu ári
halda þau upp á þrjátíu ára hjú-
skaparafmæli. Og geri aðrir bet-
ur.
Enn að faðmast eftir þrjátiu ár,
Paul Newman og Joanne Wood-
ward halda upp á perlubrúö-
kaupið á þessu árf.
Tom Selleck
Verður faðir í desember
Mel
Gibson
kom þremur ungum stúlkum
skemmtilega á óvart. Þær voru í
bíltúr og höfðu numið staðar á
rauðu ljósi. Vissu þær þá ekki
fyrr til en Mel var kominn að
bílnum og fór að dáðst að bleika r
kadillaknum. árgerð 55. Þær
buöu honum auðvitað að reyna
bílinn og Mel líkaöi svo vel við
hann að hann gat ekki slitið sig
frá honum fyrr en eftir rúmlega
klukkutíma.
Farrah
Fawcett
Madhav breytti lífi Jenny i algjöra
martröð.
Heillaðist af persónutöfrunum
Jenny og Madhav voru gift í sjö ár.
„Við hefðum aldrei átt að giftast en
ég varð heilluö af persónutöfrum
hans. Brúðkaup okkar var stórkost-
legt en það liðu ekki margir mánuðir
uns ég komst að raun um hvaða
mann hann hafði að geyma. Hann
hafði til dæmis logið um menntun
sína. Hann sagðist hafa lært í Oxford
en þaö var hrein og klár lygi,“ sagði
Jenny.
Leikkonan Jenny Seagrove er nú loksins laus úr járngreipum Indverjans
Madhav Sharma og býr nú með hinum 22 árum eldri Michael Winner.
Það var Michael sem fékk Jenny
til að losa sig úr viðjum hjónabands-
ins. Madhav var ekki viðstaddur þeg-
ar dómur var kveöinn upp enda hélt
hann að hann gæti haldið í Jenny
meö því hreinlega að læsa hana inni.
„Hann hefur ef til vill haldið að
dómarinn myndi segja: Gerðu svo
vel, hún er þín,“ sagöi Jenny að lok-
um.
Þess er að vænta að leikarinn Tom
Selleck, 43 ára, verði faðir í desemb-
er. Hann og hin enska eiginkona
hans, dansarinn Jillie Mack, verða
sem sagt foreldrar innan skamms.
Sögur hafa gengið um misklíð þeirra
á milli og jafnvel um hugsanlegan
skilnað en svo virðist að meöan kjaft-
að var sem mest hafi hjónakornin
verið aö skipuleggja komu erfingja í
þennan heim.
Tom varð ástfanginn af Jillie þegar
hann sá hana í söngleiknum Cats
fyrir flmm árum. Að sjálfsögðu gat
hún ekki annað en fallið kylliflöt fyr-
ir persónutöfrum Toms sem þykir
eitt helsta kyntákn heims. Vanda-
málið var bara að hún vildi ekki
hætta að vinna á Englandi, en að
lokum gaf hún sig þó. Tom fór því
með Jillie til Hawaii þar sem hann
lék í Magnum P.I. þáttunum.
Parið gifti sig fyrir um einu ári en
það var einmitt þá sem sögur um
aöskilnað risu sem hæst. Jillie varð
þreytt á því að sitja bará heima og
bíða eftir aö Tom kæmi heim úr vinn-
unni og vildi því reyna fyrir sér í Los
Angeles. Tom fór að eyða meiri tíma
með sínum gömlu félögum og hann
sást orðið æ sjaldnar með eiginkon-
unni. En svo lék Tom í Three Men
and a Baby og fór þá að hugsa um
að hann langaði til að eignast sjálfur
lítið barn. Krakkinn, sem lék í mynd-
inni, stal alveg hjarta hans.
Tom var áður giftur fyrirsætunni
Jacqueline Ray. Hann var þá stjúp-
faðir sonar hennar en missti allt
samband við stjúpson sinn þegar þau
skildu. Hann sá mikið eftir því að
hafa ekki haldið sambandinu og hef-
ur nú endurnýjað sambandið við
stjúpsoninn.
Jillie átti engri velgengni að fagna til Toms á Hawaii og hlakkar bara
í Los Angeles svo hún er flutt aftur til aö verða mamma.
Tom Selleck verður faðir I desember. Hann ætti aö vera I ágætis æfingu
eftir að hafa leikiö i myndinni Three Men and a Baby.
Sviðsljós
Loksins frjáls
„Loksins er ég frjáls,“-sagði leik-
konan Jenny Seagrove og andaði
léttar eftir að dómstólar í London
höfðu veitt henni skilnaö frá Indveij-
anum Madhav Sharma.
Madhav mun, eftir því sem Jenny
og önnur vitni sögðu, hafa breytt lífi
hennar í hreina martröð og reyndi í
lengstu lög að koma í veg fyrir skiln-
aöinn. Hann fór fram á það að Jenny
yrði dæmd fyrir að hafa verið honum
ótrú og að dóftiarinn myndi sjálfur
kreflast skilnaðar en það hefði seink-
að skilnaðinum um allavega þrjú ár.
„Hjónaband er ekki eins og einnota
pappí^svörur sem maður getur vööl-
að saman og hent,“ sagöi Madhav
sem varði sig sjálfur en Jenny naut
aðstoðar frægs lögfræðings
Jenny býr nú með hinum 52 ára
gamla leikara og margmilljónamær-
ingi, Michael Winner. Ekki mátti
tæpara standa með skilnaöinn því
Jenny er nú sokkin í mikið skuldafen
eftir að hinn fyrrverandi notaði
greiðslukort hennar til að taka út
vörur fyrir hundruð þúsunda.
Símtölin hleruð
„Hann hélt mér í járngreipum.
Hann sagði mér hvað ég ætti aö gera,
hveiju ég ætti að klæðast og hvað
ég ætti að hugsa. Hann þvingaði mig
til að segja sér allt sem ég gerði.
Hann hleraði jafnvel símtölin mín.
Ef ég ætlaði út í garð eða út til að
versla þá varö ég aö spyija hann fyrst
um leyfi. Það versta var að hann átti
það til að trufla mig í vinnunni og
vera meö uppistand,“ sagði Jenny
fyrir rétti.
Michael Winner er 22 árum eldri
en hin þrítuga Jenny en hún heldur
því fram að hann sé fullkominn fyrir
sig. Hún er líka ástfangin upp fyrir
haus af milljónamæringnum sem á
stórt hús í London, aö andvirði um
180 milljónir. Jenny vildi þó ekki
flytja.inn til hans fyrr en skilnaður-
inn væri kominn í höfn.
Að undanfómu hefur hún búiö í
íbúð ekki flarri Michael. Húsiö í Suf-
folk, sem þau Madhav áttu saman,
héfur hann haft til umráða. Hann
hefur meinað Jenny aðgang að hús-
inu þrátt fyrir þá staðreynd að hún
ætti innbúiö. Madhav þarf nú aö
borga fyrir þessa hegöan sína.
Ólyginn
sagöi . . .
Larry
Hagman
hefur ekki alltaf verið ríkur og
frægur. Áöur en hann varð fræg-
ur fyrir hlutverk sitt í sjónvarps-
myndaflokknum um Dísu í flösk-
unni, þá bjó hann ásarat Maj
konu sinni eins og hamingjusam-
ur hippi í gömlum skólabíl. Þó
að þau eigi allt til alls nú á tím-
um, söknuöu Maj og Larry svo
gamla bílsins að þau fóru að leita
hans um allt og gáfust ekki upp
fyrr en hann var fundinn. Hafa
þau nú látið gera hann upp og
ætla að nota hann þegar þau fara
í útilegur.