Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST1988.
• SO
Lífsstfll
Orkugjafar við sumarbústaði
Sumarbirta hentug
fyrir sólarraíhlöður
í nokkur ár hafa sólarrafhlööur
veriö notaðar hér á landi. Aöallega
Eil orkugjafar í sumarbústööum. Þær
eru samsettar úr flögum úr ýmsum
efnum. Þetta eru litlar flatar og
þunnar plötur - þær minnstu eru
30x30 cm og þær stærstu eru 120x120
cm.
Þegar birta fellur á yfirborðið
myndast örlítill rafstraumur. Viö
þaö aö tengja þær saman má fá þá
spennu sem óskaö er eftir, t.d. 12
volt sem hentar fyrir sumarbústaði.
Góð skilyrði hér á landi
Því meiri birtu sem nýtur því meiri
orka safnast fyrir í rafhlöðunum.
Sumarbirtan hér á landi er mjög
mikil. Notagildi rafhlaðanna er því
ekki síðra hér en þar sem misturs
gætir.
Margar mismunandi stærðir eru
fáanlegar. Þær minnstu framleiöa
viö bestu skilyrði um 5 vött en þær
stærstu allt upp í 50 vött enda mun
nýtni þeirra vera mjög góö.
Það sem þarf til að setja upp sólar-
orkukerfi er aðallega rafgeymir sem
vistar orkuna þar til á þarf að halda.
Þannig er heppilegt aö hafa rafgeymi
sem getur geymt 150-200 ampertíma
(1800-2000 vött) - vörubílarafgeymi
sem kostar 8-10.000 krónur.
- /
fyrir alia fjölskylduna
POSTVERSLUN BÆJARHRAUN114, 220 HAFNARFJORÐUR
Pöntunarlistinn kostar 160 kr. + póstburöargjald SÍmÍ 53900
Hægt er að fá sólarrafhlöður fyrir um 10-38 þúsund krónur - allt eftir stærð og orkuþörf. Stjórntæki fylgir með.
Sólarrafhlöður kosta ...
Verðið er mismunandi og fer eftir
umfangi og stærð. Þannig má útvega
sér raíhlöður fyrir um 10 þúsund og
allt upp í 38 þúsund krónur. í þessu
verði er innifalinn stjórnbúnaður
sem upplýsir notandann um magn
raforkunnar á geyminum.
Rafhlöður sem gerðar eru fyrir
30-50 vött eiga að geta framleitt nægj-
anlegt rafmagn fyrir sumarbústað.
Þá er gert ráð fyrir veðurfari sem
hér ríkir á sumri til - jafnt á rigning-
ardögum sem sólardögum. Þannig
ætti þessi stærð að fullnægja orku-
þörf fyrir nokkuð mörg ljós, litasjón-
varp, farsíma og jafnvel ísskáp.
Fest á þak eða veggi
Heppilegast er að staðsetja sólar-
rafhlöður á suöurhlið, á þak bústað-
arins eða á vegg. Halli þeirra skal
vera 60 gráöur miðað við jörð. Fest-
ingar skulu vera traustar með tilliti
til vetrarveðra. Ekki þarf að taka
útbúnaðinn niður á veturna. Betra
er að láta hann standa og vera ávallt
fullhlaðinn. Þá er engin hætta á
frostskemmdum í rafgeymi.
í sólarraíhlöðum eru allir hlutir
fastir - engir hreyfanlegir hlutir. Á
stærstu tegundunum er sérstaklega
hert gler og þola þær því töluvert
hnjask. Endingartími mun vera tal-
inn í áratugi án þess að notagildi
rýrni.
Á stjórntækinu er hægt að sjá upplýsingar um hleðslu og rafmagnsbirgðir
rafgeymis. Hentugast er að útvega sér vcrubílarafgeymi sem kostar um
8-10 þúsund krónur. _
Sólarrafhlöður eru fýsilegur valkostur sem orkugjafi við sumarbústaði.
A síðasta ári var settur upp í heiminum sólarrafhlöðuútbúnaður sem getur
framleitt um 30 megavött rafmagns.
jafnt sem aðrir bátar eru gjarna lýst-
ir upp á þennan máta. í vanþróuðum
löndum, ef svo skyldi kalla, eru þær
samt algengastar.
Rafgeymar eru þá oft óþarfir.
Þannig er skólasjónvarp oft rafknúið
í sólríkum löndum. í Sviss og annars
Með meiri notkun og tækni mun
verðið eflaust lækka í'framtíöinni.
Nýting á eftir að verða betri. Á síð-
asta ári voru settar upp í heiminum
sólarrafhlöður sem geta framleitt um
30 megavött.
-ÓTT.
HA
staðar þar sem mikið er um jarðgöng
þjóna sólarrafhlöður einnig stóru
hlutverki. Þær lýsa upp enda jarð-
ganga til að aðlaga auga bílstjórans
sem best með tilliti til birtubreyting-
ar.
Auk þessa er einnig heppilegt að
rafvæða fjarskiptastöðvar þar sem
erfitt er að koma að rafmagni á ann-
an hátt. Sama má segja um vasa-
reiknivélar og meira að segja gervi-
tungl.
Nýtnin er 10-15%
Á næstu árum er talið að stórstígar
framfarir verði á þessu sviði. í dag
nýta venjuleg sólarrafhlöðutæki að-
eins um tíunda hluta þeirrar orku
sem á hana fellur. Um 90% orkunnar
nýtist ekki.
Hér mun vera um nokkuð ódýran
valkost til að rafvæða sumarbústaði.
Orkureikningur verður enginn og
ekki þarf að leggja langar leiðslur að
bústað. Vissulega þjónar þetta tæki
ekki hitaþörf. Til þess þarf miklu
meiri orku. Viðhald mun vera hverf-
andi. Aðeins þarf að þurrka ryk af
gleri endrum og sinnum.
Margvísleg not erlendis
Erlendis eru sólarrafhlöður notað-
ar til margvíslegra þarfa. Húsbátar
Heimilið