Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
31
Lífsstm
Málningarbakki hreinsaður
á svipstundu
Þegar bakki er notaöur við að
mála getur verið sóðalegt verk að
hreinsa hann á eftir. Þetta má forð-
ast með því að leggja plast í botninn
- plas(tpokar eru heppilegir. Plastið
er fest með límbandi. Að notkun
lokinni er pokanum hent og bakk-
inn er jafnhreinn og áður.
Furuborð hreinsað
Hver kannast ekki við bletti á
furuborðum sem erfitt er að losna
við? Rauðvín og kafíi t.d. situr fast
í furu. Ráð við þessu er að bera
blöndu af vatni og klórín á boröið.
Láta það vera á í hálftíma og þvo
svo af með sápuvatni. Þetta ætti að
duga í flestum tilvikum.
Slætti í görðum
lýkur þegar ....
Grasspretta í görðum er misjafn-
lega mikil. Vöxtur er mestur í vel
nærðum garði - þar sem gefinn
hefur verið áburður. Að öðru leyti
er vöxtur í minna lagi þetta árið
þegar á heildina er litið.
Nú fer senn að líða að vetri. Þá
er vert að hafa í huga að slá ekki
of snöggt. Verið viss um að grasið
sé a.m.k. 5 sentímetra hátt fyrir
veturinn. Þannig er flötin best und-
irbúin fyrir kulda.
Eggjaskurn sem
blómaáburður
Gamalt ráð um blómaáburð segir
að gott sé að blanda saman vatni
Strigi og plast getur verið gott skjói fyrir rósaplöntur á veturna.
Lumar þú á
heimilisráðum?
Ef þið hafið hugmyndir eða ráö
sem geta oröiö öðrum lesendum
til gagns eða gamans sendiö þá
Heimilissíðu DV. Hér getur veriö
um ýmsan fróöleik að raeða.
Þannig er vel þegiö að fá ráðgjöf
um heimilisstörf, garðinn,
pottaplöntur, viðhald og viðgerö-
ir og margt fleira.
Krumpaðar gardínur
og vatn
Stundum eru gardínur krumpað-
ar þegar þær eru hengdar upp. Það
má laga með því aö úöa á þær vatni
með úðunarkönnu. Þegar þær
þorna ætti efnið að vera orðið slétt.
í þessum tilfellum má gjarna
þyngja gardínuna að neðan með
þvottaklemmum eða öðru slíku.
Stærri gróður getur skemmt
Háar fjölærar plöntur skemma
oft minni gróður í beðum þegar
hvasst er. Fyrir veturinn getur því
verið heppilegt að klippa stöngul
þeirra af. Þrátt fyrir það'blómgást
plönturnar engu að síður næsta ár.
Dæmi um þetta eru lúpínur, venus-
vagn og riddarasporar.
Plaköt og tannkrem
Mesta vandamálið við plaköt er
að hreinsa límið þegar þau eru tek-
in niður. Tannkrem er í þessu sam-
bandi mjög heppilegt. Það heldur
myndunum vel uppi og auðvelt er
að hreinsa það á eftir - það gerist
með sjóðandi vatni.
Ef notað er milt lím má hreinsa
það meö hjálp klakapoka sem lagð-
ur er upp að. Þannig á límið að
detta af eftir um tvær mínútur.
-ÓTT
Plast yfir rósirnar á veturna
Sumar rósategundir eru við-
kvæmar fyrir kulda. Þetta á sér-
staklega viö um ágræddar rósir.
Plönturnar eru í mestri hættu
vegna.snjóa og rigningar. En það
er hægt að búa til „gróðurhús" fyr-
ir rósirnar á einfaldan hátt:
- Útvegið ykkur plastdúk. Gerið
síðan grind, t.d. úr trélistum, sem
hægt er að hefta plastiö við. Þannig
mætti festa vegglista með skástíf-
um til að foröast að þurfa að bora.
Við jörð mætti festa niður hæla
fyrir þverlista. Þess verður að gæta
að rósirnar fái loft - best er einfald-
lega að hafa „húsið“ oþið til end-
anna.
Gluggar sem myndarammar
Ertu að skipta um glugga eða
leynast einhverjir gamhr í kjallar- Til aö forðast það leiðindaverk að hreinsa málningarbakka má setja
anum eða í geymslunni? Þessa plast í botninn og festa með limbandi.
Þvi loðnari sem grasflötin er því betur er hún undirbúin fyrir veturinn. Þannig má miða við 5 cm hæð.
Séu plaköt limd upp með tannkremi er auðvelt að þrifa vegginn á eftir.
Fyrir veturinn er ráðlegt að athuga
vöxt sumarsins og aðgæta að
stærri plöntur lemji ekki þær minni
i hvassviðrum vetrarins.
og eggjaskurn. Einn lítri af vatni á
móti 15 eggjaskurnum í flösku.
Þetta skal geymast vel lokað með
tappa í einn mánuö. Aö þeim tíma
loknum er pottaplöntum gefinn um
einn bolli af „áburðinum". Blöðin
og rætur styrkjast við þetta. Svo
skal þetta endurtekið einu sinni í
mánuði.
Brún sápa á kopar
Að pússa kopar er ærið verkefni
á mörgum heimilum. Það verk
verður mjög létt ef fljótandi brún
sápa er borin á malminn. Látið
vökvann liggja á í klukkutíma. Að
því loknu veröur pússningin leikur
einn - málmurinn verður sem nýr.
Þó ankannalegur litur kunni að
myndast á yfirborðinu er ekkert
að óttast. Hann hverfur eftir að
búið er að strjúka yfir.
gripi er vel hægt að nota sem
myndaramma.
Þannig eru litlir gluggar (fransk-
ir) mjög heppilegir. Umgjörðina
má gjarna afsýra, slípa upp, mála
eða meðhöndla eftir hugmyndum
hvers og eins. Betra getur verið að
nota en ekki henda. Gamalt og nýtt
getur farið mjög skemmtilega sam-
an.