Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
35
Afmæli
Stefán Gunnlaugsson
Stefán Gunnlaugsson eftirlits-
maöur, til heimilis að Vesturbergi
6, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Stefán fæddist aö Búðum viö Fá-
skrúðsfjörð og ólst þar upp í for-
eldrahúsum til tíu ára aldurs en
flutti þá með foreldrum sínum til
Reykjavíkur. Þar læröi hann skó-
smíði hjá fóður sínum sem rak skó-
smíðastofu á Bergstaðastræti 19.
Stefán lauk námi í skósmíði og hóf
vörubílaakstur 1942 en hann ók vö-
rubíl, lengst af hjá Þrótti, til ársins
1968. Hann hóf þá störf hjá Reykja-
víkurborg sem eftirlitsmaður en þar
starfarhann enn.
Kona Stefáns var Hulda Andrés-
dóttir, f. í Reykjavík 27.2.1915, d.
13.10.1975. Foreldrar hennar voru
Andrés Ólafsson, fiskmatsmaður í
Reykjavík, og Sigríður Sigurðar-
dóttir.
Böm Stefáns og Huldu eru: Björg
Lilja, húsmóðir í Reykjavík, f. 1.5.
1939, ekkja eftir Halldór Runólfsson
verslunarmann sem er nýlátinn, en
þau eignuðust tvö böm; Gunnlaug-
ur Karl, verkamaður í Reykjavík,
f. 5.2.1943; Sigurður Andrés, verk-
taki í Reykjavík, f. 11.12.1944,
kvæntur Auði Konráðsdóttur en
þau eiga þrjú böm; Sigríður, hús-
móöir í Reykjavík, f. 6.7.1952, gift
Guðmundi Guðmundssyni verslun-
armanni en þau eiga tvö böm; Snæ-
björn, verkstjóri í Reykjavík, f.
18.11.1954, kvæntur Onnu Helga-
dóttur en þau eiga tvo syni.
Stefán á tvö systkini og uppeldis-
systur. Systkini hans: Guðmundur
Halldór, gjaldkeri hjá Flugumferð-
arstjórn í Keflavík; Þóra Gyða, hús-
móðir í Reykjavík, og uppeldissyst-
ir, Sigríðu” Guðný Guðjónsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Stefáns voru Gunnlaug-
ur Jóhann Guðmundsson, skósmið-
ur í Reykjavík, og kona hans, Karó-
lína Guðrún Stefánsdóttir húsmóð-
ir.
Föðurforeldrar Stefáns voru Guð-
mundur Guðmundsson, trésmiöur í
Reykjavík, og seinni kona hans, Sig-
urlaug Þórðardóttir.
Foreldrar Karólínu Guðrúnar voru
Stefán Samúelsson og Þóra Odds-
dóttir.
Stefán tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn frá klukkan 20 aö
Skipholti 3, Reykjavík, í sal Verk-
stjórafélags Reykjavíkurr
Fjóla SlgurðardótGr
Fjóla Sigurðardóttir, Kambaseli
31, Reykjavík, er sextug í dag. Fjóla
fæddist í Vestmannaeyjum og ólst
upp í foreldrahúsum til fimmtán ára
aldurs er hún fór í vist til Rvíkur.
Hún hefur unnið hjá Flugleiðum
undanfarin ár. Fjóla giftist Guðlaugi
Jónasi Guðlaugssyni bifvélasmíða-
meistara en hann vinnur nú hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga. For-
eldrar hans voru Guðlaugur Þor-
leifsson skipstjóri og kona hans,
Andrea K. Bessadóttir. Börn Fjólu
og Guðlaugs eru: Sigríður, er við
nám í listaháskóla í Bandaríkjun-
um, og á hún tvö börn, Guðlaugur,
markaðsstjóri hjá Sanitas, kvæntur
Guðrúnu Pétursdóttur og eiga þau
þijúbörn, Gunnar húsasmiður,
sambýliskona hans er Anna Guö-
jónsdóttir og eiga þau einn son,
Sveinbjörn bifreiðastjóri, kvæntur
Sigurrós Magnúsdóttur og eiga þau
eina dóttur og Sveinbjörn á eina
dóttur frá fyrri sambúð.
Systkini Fjólu eru: Gunnlaugur,
f. 20. maí 1921, d. 29. apríl 1963, var
kvæntur Jóhönnu Jensdóttur, Sig-
ríður, f. 22. júni 1922, gift Óskari
Bjömssyni, Una, f. 6. ágúst 1923, d.
1978, var gift Sigurvin Jenssyni,
Margrét, f. 6. febrúar 1925, gíft Guð-
bergi Þorsteinssyni, Pálína, f. 25.
október 1929, gift Reyni Kristjáns-
syni skipstjóra, d. 4. desember 1962,
Eiríkur, f. 31. janúar 1931, kvæntur
Sigríði Sigurðardóttur, Oddný Sig-
urrós, f. 1. október 1933, gift Jóhanni
Guöbrandssyni, og Einara, f. 17. jan-
úar 1936, gift Ársæli Karlssyni.
Foreldrar Fjólu voru Sigurður
Þorleifsson, f. 16. ágúst 1886, d. 15.
maí 1969, sjómaður í Vestmannaeyj-
um, og kona hans, Margrét Vigdís
Gunnlaugsdóttir, f. 6. janúar 1898,
d. 19. júlí 1965. Sigurður var sonur
Þorleifs, b. á Á á Síðu, Guðmunds-
sonar. Móðir Þorleifs var Margrét
Þorsteinsdóttir, b. á Hlunkubökk-
um, Salómonssonar, bróður Sigríð-
ar, langömmu Jóhannesar Kjarvals.
Móðir Sigurðar var Sigríður Sigurð-
ardóttir í Hvammi í Skaftártungum,
Einarssonar, ogKristínar Sigurðar-
Fjóla Sigurðardóttir.
dóttur, b. í Hvammi, Ámasonar.
Margrét var dóttir Gunnlaugs, b.
í Uppsalakoti í Svarfaðardal, Páls-
sonar. Móðir Gunnlaugs var Sigur-
björg Þorsteinsdóttir, b. á Sveins-
stöðum í Svarfaðardal, Vigfússonar,
og konu hans, Sigurbjargar Sigurð-
ardóttur, b. i Sælu, Jónssonar. Móð-
ir Margrétar var Una Jóhannes-
dóttir, húsmanns á Kvíslarhóli á
Tjörnesi, Tómassonar, ogkonu
hans, Hallfríðar Kristjánsdóttur.
Baldur Líndal
Tryggvi Baldur Líndal efnaverk-
fræðingur, Hlíðarvegi 63, Kópavogi,
ersjötugurídag.
Baldur fæddist á Lækjamóti í
Víðidal í Húnavatnssýslu og ólst þar
upp í foreldrahúsum. Hann lauk
stúdentsprófum frá MA1939, BS-
prófi í efnaverkfræði frá MIT í Cam-
bridge í Massachussets í Bandaríkj-
unum 1949 og lauk framhaldsnámi
við samaskólal955.
Baldur starfaði hjá Sindra hf. á
Akureyri 1942-1945, vann að rann-
sóknum fyrir iðnaðarsamvinnu-
deild MIT1948-1949 og var verk-
fræðingur hjá raforkumálastjóra,
jarðhitadeild, 1949-1961 og deildar-
verkfræðingur 1956-1961. Hann hef-
ur verið ráðgjafarverkfræðingur og
rekið eigin efnaverkfræðistofu í
Rvik frá 1961. Kona Baldurs er Ás-
dís Hafliðadóttir, f. 19. febrúar 1940.
Foreldrar hennar em Hafliði Helga-
son, prentsmiðjustjóri í Rvík, og
kona hans, Halldóra Sveinbjarnar-
dóttir.
Foreldrar Baldurs voru Jakob
Líndal, b. og jarðfræðingur á Lækja-
móti í Víðidal, og kona hans, Jónína
Sigurðardóttir. Jakob var sonur
Hans, b. á Hrólfsstööum í Blöndu-
hlíð, Baldvinssonar. Móðir Hans var
Guðný Natansdóttir, b. og læknis á
Illugastöðum á Vatnsnesi, Ketils-
sonar, b. á Strjúgi, Eyjólfssonar.
Móðir Ketils var Helga Oddsdóttir,
b. á Úfagih, Bessasonar, b. í Mána-
skál, Oddssonar. Móðir Bessa var
Þóra Bessadóttir, Björnssonar,
annálaritara og fræðimanns á
Skarðsá, Jónssonar.
Jónína var dóttir Sigurðar, b. á
Lækjamóti Jónssonar. Móðir Sig-
urðar var Steinvör, systir Önnu,
langömmu Hólmfríðar, langömmu
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar. Steinvör var dóttir Skúla, stúd-
ents á Stóru-Borg, Þórðarsonar,
bróður Sesselju, langömmu Ragn-
heiðar, móður Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi. Móðir Jónínu var
Margrét Eiríksdóttir, smiðs í Laug-
arnesi í Rvík, Jakobssonar, smiðs á
Húsafelli, Snorrasonar, prests og
Tryggvi Baldur Líndal.
skálds á Húsafelli, Björnssonar.
Móðir Eiríks var Kristín Guð-
mundsdóttir, systirRagnheiðar,
langömmu Guðlaugar, ömmu Pét-
urs Sigurgeirssonar biskups. Móðir
Margrétar var Guðrún, systir Jóns,
langafa Auðar Auðuns, fyrrv. ráð-
herra. Guðrún var dóttir Jóns, próf-
asts á Auðkúlu Jónssonar, biskups
á Hólum, Teitssonar. Móöir Jóns á
Auðkúlu var Margrét Finnsdóttir,
biskups í Skálholti .lónssonar, for-
fóður Finsensættarinnar.
Til hamingju með daginn
------ ---------------------- Fjaröarstræti 59, tsafirði.
85 ára 70 ára
Ingveldur Jónsdóttir, Jón Guðmundsson,
Böðvarsdal, Vopnáfirði. Hjallavegi 22, Reykjavfk.
_______ Þórey Jóhannsdóttir,
Helgafellsbraut 31, Vestmannaeyj-
_______ um.
Hrefha Magnúsdóttir, --------—:----------------------
Hlíðarvegi 30, ísafirði. RQ ára
Sigurður Eiríksson, ................................
Hamragerði 24, Akureyri. Einar Grétar Björnsson,
Jórunn Ólafsdóttir, Stafnesvegi 6, Miðneshreppi.
Klapparstíg 3, Keflavík. Siggeir Jóhannesson,
Eirika Jónsdóttir, Snæbýli II, Skaftártunguhreppi.
Valbraut 9, GerðahreppL
Amoddur Þórgeir Tyrfingsson,
Gunnar Jóhannsson, Suðurvöllum 6, Keflavík.
Langholtsvegi 88, Reykjavík. Þórdis Óðinsdóttir,
75 ára
50 ára
80 ára
Sigurður Georgsson,
Vörðustíg 5, Hafnarfirði.
Guðný Gunnþórsdóttir,
Sólbakka I, Breiödalshreppi.
Sveinn Gunnlaugsson,
Holtsgötu 18, Hafnarfirði.
40 ára
Sólveig Steingrímsdóttir,
Mýrarási 2, Reykjavík.'
Árni B. Ólafsson,
Uröarvegi 76, ísafirði.
Steinunn F. Friðriksdóttir,
Fellsbraut 9, Höfðahreppi.
Sigurður Rúnar Andrésson,
Haga, Gnúpveijahreppi.
Stefán BjerkU Jónsson,
Krummahólum 2, Reykjavík.
Sigurður Óskarsson,
Þingvölium, Akureyri.
Halldóra Jónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir saumakona,
Droplaugarstöðum, Snorrabraut58,
Reykjavik, er hundrað ára í dag.
HaÚdóra fæddist að Skeggjastöð-
um í Flóa og ólst þar upp. Halldóra
stundaði öll almenn sveitastörf og
bjó í foreldrahúsum að Skeggjastöð-
um til ársins 1919 en þá hættu for-
eldrar hennar búskap og bróðir
hennar tók við jörðinni. Halldóra
flutti þá til Reykjavíkur og hóf störf
við karlmannafatasaum hjá And-
ersen & Lauth, sem þá versluðu í
Aðalstræti, en Halldóra stundaði
saumaskap í Reykjavík í hálfa öld.
Halldóra hefur búið í Reykjavík
frá því hún flutti þangað 1919, lengst
af á Mánagötu, eða í tuttugu og tvö
ár, en hún flutti vestur yfir Snorra-
braut á Droplaugarstaði þegar þar
var opnað 1982 og hefur búið þar
síðan.
Foreldrar Halldóru voru Jón Guð-
mundsson, b. á Skeggjastöðum í
Flóa, og kona hans, Guðrún Bjarn-
héðinsdóttir. Systkini Halldóru
voru níu. Halldóra var næstyngst
og lifir ein eftir. Meðal systkina
Halldóru voru Bjarnhéðinn, járn-
smiður í Rvík, sem vélsmiðjan Héð-
inn var nefnd eftir. Systir Halldóru
var Ragnheiður, amma Unnar Stef-
ánsdóttur varaþingmanns og Sva-
vars Sigmundssonar, íslenskufræð-
ings og orðabókahöfundar. Jón var
sonur Guðmundar, b. á Skeggja-
stöðum, bróður Björns, langafa
Ágústs Þorvaldssonar, alþingis-
manns á Brúnastöðum. Guðmund-
ur var sonur Þorvalds, b. í Auðs-
Halldóra Jonsdottir.
holti, Björnssonar, bróður Knúts,
langafa Hannesar þjóðskjalavarðar,
Þorsteins hagstofustjóra og Jó-
hönnu, ömmu Ævars Kvaran og
Gísla Alfreðssonar þjóðleikhús-
stjóra. Annar bróðir Þorvalds var
Jón í Galtafelli, faðir Höllu,
langömmu handknattleiksmann-
anna Geirs, Arnar og Silvíu Hall-
steinsdóttur í Hafnarfirði.
Guðrún var dóttir Bjarnhéöins, b.
í Þjóðólfshaga í Holtum, Einarsson-
ar og konu hans, Guðrúnar Helga-
dóttur, b. á Markaskaröi, Þórðar-
sonar, bróður Tómasar, langafa
Tómasar, föður Þórðar, safnvaröar
að Skógum. Móðir Guðrúnar var
Ragnheiður Árnadóttir, b. í Garðs-
auka, Egilssonar, prests í Útskálum,
Eldjárnssonar, bróður Hallgríms,
langafa Jónasar Hallgrímssonar
skálds og Þórarins, langafa Kristj-
ánsEldjárnsforseta.
Stefanía Jónsdóttir
Stefanía Jónsdóttir, fv. húsfreyja
að Hrauni í Sléttulilíð í Skagafirði,
til heimilis að Hólavegi 15, Sauðár-
króki, verður níræð á morgun.
Stefanía fæddist að Hrauni og ólst
þar upp. Hún giftist 1917 Jóhanni
Jónssyni, f. 24.5.1892, d. 1.3.1969.
Stefanía og Jóhann hófu búskap að
Hrauni 1918 og þar bjuggu þau í
fjölda ára, eða þar til dóttir þeirra
og tengdasonur tóku við búinu.
Stefanía og Jóhann eignuðust þrjú
börn. Þau eru: Jón Þorgrímur, lög-
regluþjónn í Reykjavík, f. 16.6.1918,
d. 9.3.1971, en kona hans var Jó-
hanna Einarsdóttir og eignuðust
þau þrjú börn; Ragna, húsmóðir í
Reykjavík, f. 9.5.1919, gift Stefáni
Jónssyni verkamanni, en þau eign-
uðust eina dóttur; og Helga, hús-
freyja á Hrauni, f. 12.12.1922, gift
Pétri Guðjónssyni b. þar, en þau
eiga átta börn. Langömmubörn Ste-
faníu eru nú orðin tuttugu og sex.
Foreldrar Stefaníu eignuðust níu
börn en þrjú þeirra dóu á bams-
aldri. Þrjú systkina hennar eru nú
á lífi. Syskini Stefaníu: Bjarni Mar-
teinn, f. 24.10.1891, en hann dó í
barnæsku; Anna, f. 19.9.1893, en
hún dó einnig í barnæsku; Björn
Anton, f. 6.4.1896, d. 28.10.1969, b.
á Höfða; Pálmi, f. 3.12.1900, d. 30.6.
1968, lögregluvarðstjóri í Reykjavík;
Helga, f. 21.4.1903, húsmóðir í
Reykjavík; Bjarni Marteinn, f. 23.6.
1905, fangavörður í Reykjavík; Frið-
rikka Magnea, f. 15.10 1907, húsmóð-
ir í Reykjavík; og Sölvi, f. 1909, en
Stefanía Jónsdóttir.
hann dó í bamæsku.
Foreldrar Stefaníu voru Jón Zóph-
onías Eyjólfsson, b. að Hrauni, f.
. 10.9.1868, d. 1.6.1910, og seinni kona
hans, Rannveig Ingibjörg Bjarna-
dóttir, f. 10.9.1869, d. 21.2.1953.
Föðurforeldrar Stefaníu voru Ey-
jólfur Jónsson, b. á Hrauni, og kona
hans, Kristín, dóttir Jóns Jónsson-
ar, b. á Hrauni, og konu hans, Lilju
Jónsdóttur.
Foreldrar Rannveigar Ingibjargar
voru Bjarni Bjarnason, b. á
Mannskaðahóli, og kona hans,
Margrét Jónsdóttir.
Stefanía dvelur nú á æskuslóðum
sínum að Hrauni hjá dóttur sinni
og tengdasyni, en hún mun taka á
móti gestum á afmælisdaginn í Fé-
lagsheimilinu Höföaborg á Hofsósi,
fráklukkan 16-19.