Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Page 36
36
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
Heimilið og garðurinn
Hringið á morgun
Frá klukkan 19.30-21.00 annaö hringja. Hafið þiö hins vegar
kvöld geta lesendur hringt og feng- spumingar sem íagmennirnir geta
iö leiðbeiningar um heimiliö og ekki svaraö veröur leitast við aö
garðinn. Arkitekt og skrúögarö- benda á aöila sem geta leyst vand-
yrkjumeistari verða á staðnum og ann.
leysa úr spumingum. Spumingarogsvörverðasvobirt
Ef þiö þurliö aö vita eitthvað um á heimilissíöum DV miövikudag-
frágang, viðhald eða viðgerðir við inn 24. ágúst. Síminn er 27022.
híbýli ykkar - jafnt aö innan sem -ÓTT
utan - er ykkur velkomiö aö
Föstudagskvöld í Iðnó:
Tveir af bestu
leikurum Dana
- túlka ástir Tsjekovs
Oftast þarf maður aö fara til
Kaupmannahafnar til að sjá bestu
leikara Dana. En á föstudagskvöld-
ið næsta er nóg aö bregöa sér niður
í Iðnó. Þar munu þau Jesper Lang-
berg og Ann-Mari Max Hansen,
bæöi í hópi fremstu leikara í Dan-
mörku, flytja franskan tvíleik,
„Tími til ásta“ eftir FYancois Noc-
her, um rússneska leikritaskáldið
Anton Tsjekov og konuna sem
hann elskaði, Olgu Leonandovnu
Knipper.
Þau giftust 1901 en þrem ámm
seinna lést Tsjekov úr berklum.
Hann dvaldi mikið á heilsuhælum
við Svartahaf meðan kona hans lék
aðalhlutverkin í leikritum hans í
Moskvu og bar þau fram til frægð-
ar.
Danirnir em á leikferð um Evr-
ópu og sýna aðeins í Reykjavík
þetta eina kvöld. ihh
Ann Mari-Max Hansen og Jesper
Langberg sem leikkonan og skáld-
ið.
Andlát
Rúna Guðmundsdóttir, Fjölnisvegi
8, Reykjavík, andaðist í Borgarspítal-
anum mánudaginn 15. ágúst.
ögmundur Pálsson, Skálanesgötu 7,
Vopnafiröi, andaðist á heimili sínu
15. ágúst.
Haraldur Sigurður Sigurmundsson,
Fossá, lést á Sjúkrahúsi Patreks-
fjaröar mánudaginn 15. ágúst.
Jarðarfarir
Ari Páll Vilbergsson fiskmatsmaður
veröur jarðsunginn frá Bústaöa-
kirkju fimmtudaginn 18. ágúst kl. 15.
Brynjólfur J. Brynjólfsson lést 2.
ágúst sl. Hann fæddist í Reykjavík
10. apríl 1907, sonur hjónanna Guð-
rúnar Jósepsdóttur og Jóns Brynj-
ólfssonar. Brynjólfur lauk námi í
matargeröarlist árið 1930. Hann
starfaði lengi sem bryti hjá Eim-
skipafélagi íslands. Áriö 1943 opnaði
hann veitingahúsiö Café Höll í Aust-
urstræti 3, sem hann rak allt til árs-
ins 1970. Auk þess átti hann m.a. hlut
aö rekstri Hressingarskálans fram á
það síðasta og Valhallar á Þingvöll-
um um árabil. Hann kvæntist Klöru
Alexandersdóttur, en hún lést áriö
1967. Þau hjónin eignuöust þrjár
dætur. Útför Brynjólfs verður gerð
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl.
13.30.
Tilkyrinmgar
Breyting á „Laugavegs-ferð-
um“ Ferðafélagsins
í vikunni sem leið tók göngubrúna ai' a
Fremri-Emstruá, én Ferðafélag íslands
lét setja hana á ána árið 1979. „Laugaveg-
urinn", eins og leiðin er oft kölluð frá
Landmannalaugum til Þórsmerkur, er
nú ein vinsælasta gönguleið hjá Ferðafé-
lagi íslands. Gönguleiðinni er skipt í fjór-
ar þægilegar dagleiðir og er venjulega
gengið úr Landmannalaugum (600 m) og
suður til Þórsmerkur (200 m), enda er
auðveldara að ganga niður „Laugaveg-
inn". Þótt göngubrúin yftr Fremri-
Emstruá sé farin, er ekki ástæða fyrir
Tónleikar
Gildran í Duushúsi
Hljómsveitin Gildran heldur tvenna tón-
leika í Duushúsi í þessari viku, fyrri tón-
leikamir verða í kvöld, 17. ágúst, og þeir
seinni fimmtudaginn 18. ágúst. Mun
hljómsveitin kynna efni af nýrri plötu
sem kemur út í september. Tónleikamir
hefjast kl. 22 bæði kvöldin.
fólk að hætta við sínar ferðir, en að sjálf-
sögðu verður að enda gönguferðina við
Emstmr og fellur því niður síðasti göngu-
dagurinn til Þórsmerkur. Þær „Lauga-
vegs-ferðir" sem fyrirhugáðar em hjá
Ferðafélaginu (samkvæmt ferðaáætlun
1988) breytast þyí þannig að gist verður
tvær nætur við Álftavatn og síðan gengiö
í Emstrar. Frá Emstrum verður svo
gengið á Einhyrningsílatir og þangað
sækir bíll hópinn og flytur til Þórsmerk-
ur.
Skáldakvöld í Norræna
húsinu
Besti vinur ljóðsins heldur skáldakvöld
í Norræna húsinu í kvöld, 17. ágúst, kl.
21. Megináhersla er lögð á að kynna skáld
sem hafa kveðið sér hljóðs á þessu ári.
Eldri skáld og reyndari koma einnig fram
og Ólafs Jóhanns Sigurðssonar vprður
minnst. Fimm skáld, sem eiga það sam-
eiginlegt að hafa sent frá sér sína fyrstu
bók á árinu, lesa á skáldakvöldinu. Adolf
Sturla (Hungurjazz), Ari Gísli Bragason
(Orð þagnarinnar, Anna S. Björnsdóttir
(Ömgglega þú), Björn Garðarson (Hlust-
ir) og Jón Gnarr (Börn ævintýranna). Þá
mun Valgarður Egilsson lesa úr nýút-
kominni bók sinni, Dúnhárs kvæði. Aðr-
ir sem lesa upp em Þórarinn Eldjám,
Ingibjörg Haraldsdóttir og Hrafn Gunn-
laugsson sem ekki hefur lesið frumort
þóð opinberlega um árabil. Besti vinur
ljóðsins mun einnig kynna kveðskap
Bertels Þorleifssonar. Kristján Þórður
Hrafnsson segir frá Bertel og les ljóð
hans. Kynnir á skáldakvöldinu verður
Hrafn Jökulsson. Fólk er hvatt til að
mæta tímanlega, enda er aðsókn að
skáldakvöldum Besta vinar ljóðsins jafn-
an góð. Kaffistofa Norræna hússins verð-
ur opin af þessu tilefni. Miðaverð á
skáldakvöldið er kr. 300.
Fuglaverndarfélag Islands
Þessa dagana em 18 arnarungar að verða
fleygir úr 12 hreiðrum. Auk þess er vitað
með vissu um 32 arnarpör sem annað
hvort urpu ekki eða varpið misfórst af
einhverjum orsökum. Tveir dauðir ernir
fundust. Stakir emir hafa sést nokkuð,
meðal annars tveir undir Eyjafjöllum.
Stærð íslenska amarstofnsins gæti verið
dálítið á annað hundrað. Sl. 10 ár hafa
þtjár sýslur bæst við útbreiðslusvæðið.
Ungar' era reknir burt af óðali foreldr-
anna og helga sér óðal við 4-6 ára aldur.
Öminn er mjög viðkvæmur varpfugl.
Verði hann fyrir styggð, t.d. af völdum
hávaða, vill varpið eyðileggjast. Það er
eingöngu þeim ágætu amarbændum að
þakka, sem haldið hafa hlifiskildi yflr
verpandi örnum, að ennþá em haferrúr
á íslandi.
Fyrirlestur um áhrif
námsmats á skólastarf
Hér á landi em staddir tveir bandarískir
uppeldisfræðingar, dr. Robert Stake,
prófessor við University of fllionis, og dr.
Bemadine Stake sem kennir við sama
skóla. Undanfarið hefur dr. Robert Stake
staðið fyrir rannsóknum á áhrifum
námsmats á skólastarf. Hann mun flytja
opinn fyrirlestur, sem tengist þeim rann-
sóknum, í Kennaraháskóla íslands (stofu
B 201) fimmtudaginn 18. ágúst kl. 16.30.
Fyriríesturinn, sem fluttur verður á
ensku, nefnir hann „Implications of Ass-
essment of Schooling". Efni fyrirlestrar-
ins á erindi til þeirra sem hafa áhuga á
áhrifum námsmats á skólastarf, t.d.
áhrifum samræmdu prófanna við lok
grunnskólans. Dr. Bemadine Stake mun
halda tveggja daga námskeið fyrir kenn-
ara um kennslu stærðfræði og raun-
greina á vegum Kennaraháskóla íslands
17. og 18. ágúst.
Laugarásbíó:
Sá illgjami
Menning
í mánudagsblaði DV birtist röng mynd með umsögn Ólafs Engilbertssonar
um málverkasýningu Guðlaugs Þórs á Kjarvalsstöðum. Hér kemur rétta
myndin, nr. 29: í Landmannalaugum. Listamaðurinn er beðinn velvirðingar
á mistökunum.
Leikstjóri: Wes Craven
Aðalhlutverk: Bill Pullman, Cathy Ty-
son, Paul Winfield og Zakes Mokae
Hin einkennilega blanda, sem er
þjóðtrú Haitibúa, hefur verið hryll-
ingsmyndaframleiöendum í Holly-
wood mikil uppspretta efnis í gegn-
um tíðina. Voodoo og zombies hafa
trónað þar svo áratugum skiptir,
enda vel til þess fallið að vekja
mönnum óhug.
Kvikmyndin Sá illgjami, sem
sýnd er um þessar mundir í Laug-
arásbíói, gerist að mestu leyti á
Haiti. Bandarískt lyfjafyrirtæki tel-
ur sig hafa fulla vissu fyrir því að
uppvakningar, zombies, séu engin
þjóðsaga, þeir séu raunveruleiki og
sé lyf þar með í spilinu. Þeir afráða
að senda mann á staðinn og koma
höndum yfir uppskriftina.
Til fararinnar velst ungur lækn-
ir, dr. Dennis Alan (Bill Pullman).
Hann á að baki frægðarför um
Amasonsvæöið í svipuðum erinda-
gjörðum. Honum er gert að fara og
hitta geölækni á Haiti, Mariella
Céline (Cathy Tyson).
Er dr. Alan kemur til Haiti kemst
hann fljótlega í kast við leynilög-
reglu Duvaliers, Tonton Macoutes.
Yfirmaður lögreglunnar er al-
ræmdur kuklari og er honum lítið
um það gefið að leyndarmál Ha-
itibúa breiðist út um heimsbyggð-
ina. Að auki er róstusamt á eynni
og Duvalier orðinn valtur á veldis-
stóli.
Wes Craven hefur valið sér þægi-
lega og örugga leið viö gerð þessar-
ar myndar. I stað þess að nýta sér
Haiti og þjóðtrú hennar á frumleg-
an og spennandi hátt hefur hann
valið að gera hefðbundna hryll-
ingsmynd með póstkortatökum.
Þannig er myndin full af vel þekkt-
um klisjum úr öörum svipuðum.
Ménn eru grafnir lifandi, hendur
leita fálmandi milh rimla fanga-
klefa og rotnandi lík lifna viö og
eru full af pöddum. í bland við þetta
er heldur klén lýsing á stjórn-
málaástandi á Haiti.
Myndin hefst í Amasonfrum-
skóginum óg er því atriði algerlega
ofaukiö. Leikur er einnig heldur
klénn, sérstaklega er Bill Pullman
ósannfærandi í hlutverki sínu sem
dr. Alan. Zakes Mokae fer hins veg-
ar vel með sinn hlut sem hinn
rammgöldrótti yfirmaður Tonton
Macoute, Peytraud. -PLP
Paul Winfield og Bill Pullman í hlutverkum sínum.