Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Qupperneq 40
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1988.
I
4
4
Ávísanafalsarinn játaði:
300 þúsund
króna svik
Maöurinn, sem rannsóknarlög-
reglan handtók á mánudag, hefur
játaö aö hafa falsaö ávísanatékka
fyrir um 300 þúsund krónur. Ekki
þótti ástæöa tií aö óska eftir aö maö-
urinn, sem er 26 ára gamall, yröi
úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Maðurinn stal tékkheftinu á veit-
ingastaö í Reykjavík um helgina.
Hann náöi að falsa rúmlega tuttugu
tékka áöur en lögreglan á Akranesi
handtók hann. Fölsuðu tékkarnir
eru ekki allir komnir fram. Stolna
tékkheftiö er frá Höfðaútibúi Búnað-
arbankans.
-sme
Deilan um Jan
Mayen til Alþjóða-
dómstólsins
Danir ákváöu í gær að vísa þrætu
sinni við Norðmenn um lögsögu-
mörk við Jan Mayen til Alþjóðadóm-
stólsins í Haag.
Fyrir hönd Grænlendinga hafa
Danir deilt viö Norðmenn um hvar
fiskveiðilögsagan milli Grænlands og
Jan Mayen skuli skiptast. Norömenn
vilja aö miðlínan gildi, eins og skipt-
ingin er á milli íslands og Jan May-
en. Danir krefjast þess aö Grænland
fái 200 mílna landhelgi og vísa til
þess aö Jan Mayen sé lítiö byggö
eyja og afskekkt.
Ekkert samráö var haft viö íslend-
inga þrátt fyrir augljósa hagsmuni
okkar. í gildi er samningur frá 1980
milli Norömanna og íslendinga um
miölínuskiptingu á milli Jan Mayen
og íslands.
- Sjá nánari umfjöllun á bls. 12.
30 teknir fyrir
of hraðan akstur
Þrjátíu ökumenn voru teknir í
Reykjavík í gær fyrir of hraöan akst-
ur. Enginn þeirra var sviptur öku-
leyfi. Fimm ökumenn voru teknir
fyrir aö aka á móti rauðu ljósi.
Níu árekstrar uröu í Reykjavík í
gær. Engin slys urðu á fólki. -sme
Veðrið á morgun:
Austanátt
um allt land
Á morgun veröur austanátt um
allt land, víöast 4 til 5 vindstig og
skýjaö. Rigning eða skúrir víöa um
land, einkum þó á Noröur- og Aust-
urlandi. Hiti 6 til 11 stig.
TriUa sökk:
Manni bjargað
naumlega
Manni var bjargaö naumlega af
sökkvandi trillu, um sextán sjómílur
suövestur af Látrabjargi, í gær-
kvöldi. Slysavarnafélaginu barst
hjálparbeiðni frá Blæ, sem er sex
tonna trilla, laust fyrir klukkan tíu
í gærkvöldi. Þá haföi komiö mikill
leki að bátnum. Einn maður var á
Blæ. Tíu tonna bátur, Hildur RE,
heyrði kallið og hélt þegar í átt aö
Blæ. Hildur var aðeins í um tveggja
sjómílna íjarlægö frá Blæ er kallið
kom.
Vel gekk að ná manninum af
sökkvandi trillunni yfir í Hildi. Blær
sökk skömmu eftir aö maðurinn var
kominn um borö í Hildi. Eftir björg-
unina var haldiö til Rifs.
Suðaustangola og skýjaö var er
óhappið varð.
-sme
Gjaldheimtan í Reykjavik:
LOKI
Og ég á afmæli
í næstu viku.
Fagnar
tilkomu
‘gíróseðlanna
„Við viljum mjög gjarnan aö hægt
veröi aö staðgreiða skatta meö gíró-
seðlum. Álagið á starfsfólkinu á ein-
daga er gífurlegt og varla möguleiki
aö afgreiöa þann mikla fjölda, sem
kemur hvern eindaga, meö sóma-
samlegum hætti. Menn sem koma og
greiða skattana sína hjá okkur eiga
rétt á að fá afgreiöslu,“ sagöi Guð-
mundur Vignir, gjaldheimtustjóri í
Reykjavík, við DV.
„Ég vil vekja athygli á aö gjalddagi
er 1. hvers mánaðar, en þaö er ekki
hægt að skylda fólk til að greiða fyrr
en á eindaga. Þaö hefur einnig veriö
■-‘--fcægt að senda ávísun meö greiöslu-
seðlunum. Hún hefur þá þurft aö
berast til okkar ekki seinna en á
gjalddaga. En viö fögnum tilkomu
gíróseðla til staðgreiöslu skatta."
-hlh
SÍMAÞJÓNUSTA
GULA
62 42 42
Sjúkrabill 11100 Logreglan 11166
Slókkvillðlð 11100 Læknavakt 21230
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja verður að setja upp hreinsibúnað et hún á að fá starfsleyfi. Stöðin er sú eina sinnar
tegundar á landinu.
- sjá bls. 2 DV-mynd Brynjar Gauti
Öldungum flölgar:
Þrír íslendingar eiga
100 ára afmæli í vikunni
- elstur núlifandi íslendinga er karlmaður
Það er ekki á hverjum degi sem
tækifæri gefst til að halda upp á 100
ára afmæli en nú ber svo við að
þrír íslendingar verða 100 ára á
innan við viku eða á fjórum dögum.
{ dag verður Halldóra Jónsdóttir
100 ára, á fimmtudag verður Krist-
ín Hreiöarsdóttir 100 ára og á laug-
ardaginn nær síðan Magnús Ólafs-
son þessum merku tímamótum.
Þegar þessi stórafraæli hafa átt
sér stað verða 17 íslendingar komn-
ir yfir 100 ára aldur sem er óvenju
mikið. Það hafa þó fleiri íslending-
ar á þessum aldri verið á lífi i einu
því í byijun árs 1985 voru 24 eldri
en 100 ára á lífi. Það er þó ljóst aö
óvenju margir á þessum aldri eru
nú á lífi því t.d. 1970 voru aðeins
þrír á lífi.
Þá er forvitnilegt aö elstur núlif-
andi íslendinga er karlmaður en
það er Sigurður Þorvaldsson. Eins
og kemur fram í nýjasta hefti tíma-
ritsins Heilbrigðismála hefur Sig-
urður slegið aldursmet íslenskra
karlmanna en þaö gerði hann í
maí. Sigurður er fæddur 23. janúar
1884 og verður því 105 ára í janúar
á næsta ári. Hæsta aldri íslendinga
náði Halldóra Bjarnadóttir en hún
varð 108 ára og 43 daga.
Þá er bent á það í tímaritsgrein-
inni að óvenju margir þeirra sem
ná háum aldri séu fæddir á Suður-
landi. Tvö þeirra sem nú eiga 100
ára aftnæli, Halldóra og Magnús,
eru einmitt fædd í Árnessýslu.
Þá hefur háöldruöu fólki íjölgaö
mikið á síðustu árum. í árslok 1950
voru 248 níræðir eða eldri en voru
826 árið 1985. Samkvæmt spá Hag-
stofunnar verða 1100 íslendingar
níræðir eða eldri um næstu ára-
mót. -SMJ
Sigurður Þorvaldsson er elstur
núlifandi íslendinga, fæddur 23.
janúar 1884. Þess má geta að hann
lauk kennaraprófi fyrir 83 árum.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022