Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Fréttir
Jón Baldvin gefur Sj alfstæðisflokknum lága einkunn:
„Soiglegt slys“
- segir Þorsteinn Pálsson um ummæli Jóns
Þorsteinn Pálsson segir ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar í Alþýöu-
blaöinu fyrir skömmu stafa af ójafnvægi og vera sorglegt slys eins og öli
framganga Jóns við stjórnarslit síðustu stjórnar. Jón sagði Þorstein vera
sléttan og felldan mann en að honum hefði mistekist að uppfylla þær kröf-
ur sem hann gerði til forsætisráðherra.
„Með yfirlýsingum sínum að und-
anfömu hefur Jón Baldvin Hanni-
balsson verið aö draga pólitíska um-
ræðu áratugi aftur í timann þegar
hún snerist fyrst og fremst um per-
sónuníð og rógburð. Þetta viðtal í
Alþýðublaðinu er kannski hápunkt-
urinn á því af hans hálfu,“ sagði
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
í viðtali við Alþýðublaðið á
fimmtudag ræðir Jón Baldvin um
samstarfið í síðustu ríkisstjórn sem
Jón segir aö hafi veriö ríkisstjórn
Alþýðuflokksins. Hann segir ástæö-
una fyrir falli síðustu stjórnar hafa
verið tillögur Þorsteins og að þær
hafi lýst ótrúlegu dómgreindarleysi.
Jón lætur mörg þung orð falla um
Sjálfstæðisflokkinn sem hann lýsir
sem nánast ónýtum flokki.
Jón fellir einnig palladóma um
samstarfsráðherra sína og fær Þor-
steinn stærsta skammtinn.
„Þorsteinn Pálsson er vænn mað-
ur. Sléttur og felldur á yfirborðinu
en lokaður og dulur. Honum er ekki
sýnt um að laða að sér fólk - skapa
í kringum sig vinnuanda, áhuga fólks
eða kveikja starfslöngun og eldmóð
í samstarfsmönnum sínum,“ segir
Jón meðal annars um Þorstein. Síðar
segir hann að Þorsteinn sé:.ungur
maður og lítt lífsreyndur".
Jón Baldvin er
ekki í jafnvægi
„Ég held að þetta sé nú bara eitt-
hvert stundarupphlaup hjá Jóni.
Honum finnst þetta aðferð til aö rétt-
læta hringsnúning Alþýðuflokksins
og uppgjöfma að ráðast þannig á fyrr-
verandi samstarfsmenn. Ég ætla ekki
að elta ólar við slík ummæli. Ég er
viss um að Jón Baldvin kemst í jafn-
vægi á nýjan leik. Mér þykir trúlegt
að það sé einhver óstöðugleiki sem
veldur þessum ummælum," sagöi
Þorsteinn Pálsson um þessi ummæh.
„Svona persónuníð hefur maður
ekki séð í áratugi en ég er viss um
að hann jafnar sig á þessu aftur. Ég
á ekki von á því að þetta marki nein
þáttaskil og stjórnmálaumræðan fari
að einkennast af þessu á nýjan leik.
Ég held að allir hafi fagnað því þegar
þessi þáttur stjómmálaumræðu
dvínaði út. Ég á ekki von á því að
hún verði allsráðandi aftur og lít á
þetta sem sorglegt slys af hálfu Jóns
Baldvins hvernig hann hefur farið
hamfömm eftir stjómarslitin í þess-
um efnum. Mig tekur það sárt að
hann skuli fara út á þessa braut,
annars ágætur stjórnmálamaður,"
sagði Þorsteinn.
Bulleins ogannað
í viðtalinu
Jón Baldvin lýsir þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins sem eins konar mál-
fundarklúbbi. Segir hann ósamstæð-
an hóp, agalausan og tvistraðan.
„Þótt við Þorsteinn handsöluðum
lausn mála svo sem við afgreiðslu
fjárlaga, þá var reynslan sú aö menn
komu í bakið á honum, bæöi ráð-
herrar flokksins og einstakir upp-
vöðsluseggir í þingflokknum," segir
Jón.
Síðar segir: „Forysta flokksins er
farin aö líta á þessa menn sem vand-
ræðagripi, sem ekki er treystandi
fyrir málum.“
„Kaflinn í viötalinu sem fjallar um
þingflokk Sjálfstæðisflokksins er al-
veg sams konar bull og allt annað í
viðtalinu, hvort sem það em afrek
hans sjálfs í síðustu ríkisstjórn, sem
er ekkert annaö err upptalning á því
sem þegar var búið að gera, eða ein-
kunnir hans um samstarfsmenn
hans, fyrrverandi og núverandi,"
sagði Ólafur G. Einarsson, formaöur
þingflokks sjálfstæðismanna.
Jón Baldvin er líka
fyrirgreiðslupólitíkus
„Ég þekki Jón ekki í þessu við-
tali,“ sagði Halldór Blöndal en hann
fær einnig sneiö.
„Er Stefán Valgeirsson fyrir-,
greiðsluplottari? Hvað er þá Halldór
Blöndal - í bankaráði Búnaðarbank-
ans, í stjórn stofnlánadeildar land-
búnaðarins, í stjórn Byggðastofnun-
ar?“ spyr Jón.
„Auövitað er Jón Baldvin fyrir-
greiðslupólitíkus eins og hver annar
og Stefán Valgeirsson er týpískur
nýkrati eins og við sjáum þá mann-
gerð til dæmis hjá Jóhönnu Sigurð-
ardóttur. Jón sýndi það sinn síðasta
dag í fjármálaráðuneytinu að hann
veitti ýmsar aukafjárveitingar af
greiðasemi við þingmenn sína, til
dæmis til Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri. En auðvitað flokkast þetta
undir fyrirgreiðslupóhtík."
Jón Baldvin segir einnig að ein af
ástæðum þess að síðasta ríkisstjóm
sprakk hafi verið æðibunugangur
Halldórs.
„Ég er mjög ánægður með að Jón
Hin umdeilda kvikmynd „Síðasta
freisting Krists“ verður tekin th sýn-
inga í Laugarásbíói í nóvember, strax
og sýningum á „í skugga hrafnsins“
lýkur. Biskupinn yfir Islandi, fulltrúi
ríkissaksóknara og kvikmyndaeftir-
htið skoðuðu myndina í fyrradag. í
gær skýrði DV frá áliti herra Péturs
Sigurgeirssonar biskups. Egill
Stephensen, fuhtrúi saksóknara,
sagöist ekki hafa séð neitt í myndinni
sem telja mætti til guðlasts'ög kvik-
myndaeftirhtið telur ekkert því til
fyrirstöðu að myndin verði sýnd en
að hún verði bönnuö börnum innan
16 ára.
Baldvin þakkar mér það að þessar
tillögur komu fram. Það var forsætis-
ráöherra sem lagði þessar tillögur
fram en auðvitað bar hann þær und-
ir samstarfsmenn sína í þingflokkn-
um og aðra. Hann Jón Baldvin hefur
verið að þakka okkur Davíð Odds-
syni þessar thlögur og við erum að
sjálfsögðu þakklátir honum fyrir
það,“ sagði Halldór.
Matarskatturinn
það eina frumlega
Jón Baldvin kallar síðustu stjórn
„ríkisstjórn Alþýöuflokksins“ í við-
talinu og segir aö flest afrek henn-
ar megi rekja th ráðherra flokks-
ins.
„Sá sem lítur á málaskrá Alþingis,
eða flettir upp í umræðum á Alþingi,
gæti haldið að þetta hefði verið ríkis-
stjórn Alþýðuflokksins."
Um hlut sjálfstæðismanna segir
formaður Alþýðuflokksins: „Ég mah
th dæmis ekki eftir neinu máli sem
Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér fyrir
og tíðindum sætti.“
„Ég hafði dálítið gaman af þessu.
Það er rétt að þaö hefur orðið nánast
-bylting í fjáröflunarkerfi ríkissjóðs
en þá er nú fyrst th að taka að stað-
greiðslukerfi skatta var lögfest í tíð
ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar að frumkvæði og fyrir for-
göngu mína sem fjármálaráðherra,"
sagði Þorsteinn Pálsson.
„Endurskoöun tollalaganna hófst í
sömu ríkisstjórn undir forystu Al-
berts Guömundssonar og henni var
lokið undir minni verkstjórn í fjár-
málaráðuneytinu vorið 1987 og var
svo flutt á þingi þá um haustið af
Jóni Baldvdni.
Virðisaukaskattsfrumvarpiö var
endurflutt frumvarp sem ég háfði
hutt áður með litlum breytingum.
Það eina sem Alþýðuhokkurinn lagði
th frumlegt af sinni hálfu inn í þessa
umræðu var skattlagning á matvæh.
Ég er ekkert að gera lítiö úr störfum
Jóns Baldvdns. Hann tók þátt í að
framkvæma allt þetta og á vissulega
þakkir skildar fyrir það. En þessar
úthstanir sýna að upphrópanimar
einar og sér duga ekki ahtaf th að
auka hróður manna.“
Sjálfstæðismennirnir voru ekki
fúsir th að fella pahadóma yhr Jóni
Baldvdni.
„Ég held að Jón Baldvdn Hanni-
balsson sé miklu betri stjórnmála-
maður en ætla mætti af þessu vdð-
tah,“ var einkunn Hahdórs Blön-
dal.
Sæmundur Vigfússon, prestur ka-
þólskra á íslandi, sagðist að vísu ekki
hafa séð myndina en hann sagðist
hafa lesið lýsingar á henni og hafa
fylgst með vdðbrögðum manna vdð
hénni erlendis í gegnum fréttir.
Sagðist hann ekki telja að kaþólskir
menn á íslandi myndu gera athuga-
semdir við sýningu myndarinnar hér
á landi.
„Það er nú svo með skáldskap að
skáldaleyfi er alltaf nokkurt og mér
skilst að hér sé á ferðinni skáldlegur
hugarbtirður og að höfundurinn sé
að skrifa sig frá hugmyndum sín-
um,“ sagði Sæmundur. -S.dór
Banaslys á Reyðarfirði:
Ökumaður
dæmdur í
Hæstarétti
Hæstiréttur hefur kveðið upp
dóm yhr manni sem varð þess
valdandi að ungur drengur beiö
bana. Slysið varð nærri skóla,
íþróttahúsi og leikvelh á Reyðar-
hrði. I dómi Hæstaréttar segir
meðal annars:
„Hluti af starh ákærða var að
flytja skólaböm frá Hólmum til
Reyðarfjarðar. Var hann því
gagnkunnugur staðháttum og
mátti gera ráð fyrir bömum báð-
um megin vegarins þar sem
grunnskóli og íþróttahús voru á
aðra hönd en dagheimih hina.
Meö því að hta um stund til
vinstri hhðar þykir ákærði ekki
hafa fylgst nægilega með vegin-
um fram undan frá hægri og
þannig ekki hafa sýnt þá var-
kárni, er krafist er..
Ökumaðurinn segist hafa ör-
stutta stund htiö th vinstri th að
fylgjast með hópi barna þar og
ekki hafa orðið var við drenginn
fyrr en hann skah á bifreið hans.
Hann taldi sig hafa ekiö hægt og
varlega.
Leikfélagi drengsins kom fyrir
sakadóm, en hann er nú á ellefta
ári, og sagði aö þeir heföu verið
þrír saman uppi vdð íþróttahús
og að veröa of seinir í tíma. Heföu
þeir hlaupið eins hratt og þeir
gátu og ætlað yfir Heiöarveg.
Drengurinn, sem lést, fór fyrstur.
Leikfélagi lians segist ekki alveg
hafa séð hvaö geröist og ekki
hvemig drengurinn lenti á bif-
reiðinni. Leikfélaginn telur að
bifreiðinni hafi verið ekiö var-
lega.
Hæstiréttur kemst að þeirri
niðurstöðu að ökumaöurinn hafi
gerst sekur um manndráp af gá-
leysi og brotlegur á umferðarlög-
um. Hann var dæmdur til að
greiða 40 þúsund króna sekt í rik-
issjóð og th greiðslu alls sakar-
kostnaðar. Th vara var hann
dæmdur í fimmtán daga varð-
hald. Þá var hann sviptur öku-
réttindum í sex mánuði.
Hæstaréttardómaramir Magn-
ús Thoroddsen, Benedikt Blön-
dal, Bjami K. Bjamason og Guð-
mundur Jónsson og Haraldur
Henrysson, settur hæstaréttar-
dómari, dæmdu málið. . -sme
Svemn fékk Hrafnsstólinn:
Á mér mörg
óskaverkefni
„Þetta leggst vel í mig enda
mjög spennandi starf. Ég á mér
mörg óskaverkefhi og sé þau
raunar ahs staðar,“ sagði Sveinn
Einarsson sem í gær var ráðinn
í stöðu dagskrárstjóra innlendrar
dagskrárgeröar sjónvarpsins.
Hann fékk 5 atkvæði í atkvæða-
greiðslu útvarpsráðs, Bryndís
Schram fékk l en aðrir umsækj-
endur ekkert. Magdalena
Schram, systir Bryndísar, vék af
ftmdi meöan atkvæðagreiösla fór
fram. Sveinn er ráðinn í startið
til fjögurra ára en þá tekur Hrafn
Gunniaugsson aftur viö þvi.
„Mér finnst of snemmt að vera
með miklar yfirlýsingar enda tek
ég ekki við starfinu fýrr en um
áramót,“ sagði Sveinn. „Draum-
urinn er aö stórefla innlenda dag-
skrárgerð og það er raunar lífs-
nauðsynlegt. En eins og allir vdta
er sjónvarpið í Qársvelti svo þetta
er vafalaust gamah draumur en
ekki nýr.“
Sveinn starfar nú hjá mennta-
málaráðuneytinu. „Ég kann vel
við mig þar og vona að mér verði
ekki sparkaö þótt þetta hafl kom-
ið opp á,“ sagöi Sveinn og var þar
með þotinn enda i miðri upptöku
á bamaleikriti í sjónvarpinu þeg-
ar DV truflaði hann.
-JSS
Lögreglan á ísafiröi:
Lýsir eftir manni
og hvítri bifreið
- mannsins saknað síðan á miðvikudagskvöld
A Isafirði hefur staðið yfir mikh
leit aö Gfsla Jósepssyni, 46 ára
gönhum sjómanni. Gísla hefttr ver-
iö saknað frá þvi á miövikudags-
kvöldiö 12. október.
Gish sást um klukkan 21.30 á
raiðvikudagskvöld við togarann
Pál Pálsson sem lá vdð bryggju.
Lögregla hefur fengið eina vís-
bendingu um að Gísh hafi, ásamt
fleira fólki, komiö í Hnífsdal
skömmu fyrir miönætti. Sam-
kvæmt vísbendingunni var Gísh
og fólkið í hvítum japönskum bíl.
Mikh leit hefur farið fram á
ísafirði. Höfnin var lokuö í gær
vegna köfunar. Leit veröur haldið
áfram í dag.
Gísli Jósepsson er meðalmaður á
hæð. Hann var klæddur dökk-
brúnum kakíbuxum, köflóttri
skyrtu og í ljósbrúnni úlpu.
Lögreglan biður alla þá sem hafa
séð th feröa Gísla eöa japanska bíls-
ins að hafa samband viö lögreglu-
stöðina á ísafirði.
-sme
-SMJ/gse
„Síðasta freisting Kristsu
Ekki guðlast að
mati saksóknara
- engar athugasemdir, segja kaþólikkar