Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 32
48 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988. 5» Knattspyma unglinga Drengjalandsliðið: Þaö olli miidum vonbrigöum þegar íslenska drengjaiandsliðiö var slegið ut úr Evrópukeppninni. Þaö var með þeim hætti að íslend- ingar léku tvo Mki gegn Norö- mönnum, heima og heiman, og töp- uöu samanlagt 3-1. í fyrri leiknum áttu okkar strákar góðan leik og sýndu mikla yfirburði yfir þá norsku. Sá leikur endaöi meö l-ö sigri íslendinga. Ekki heiði veriö ósanngjarnt aö sigur okkar stráka heföi orðið stærri því að þeim mis- tókst að nýta færin. í leiknum úti uröu okkar menn aö þola 3-0 tap og að sögn manna átti dómarinn, sem var danskur, drjúgan þátt í þvf hve illa tókst til. Óréttmæt útvísun Bjarka Gunnlaugssonar réö mikiu um gang leiksins en þaö atvik átti sér stað á 20. mín. leiksins. Strák- arnir léku þvi 10 mestallan leikinn. Það sem vakti forvitni unglinga- - segir Lárus Loftsson, þjálfari dengjalandsliðsins síðu DV var hin slæma byrjun í fyrrnefndum leik því eftir 5 mín. leik vorum við strax einu marki undir þegar vítaspyrna var dæmd á okkar menn - og svo hiö misjafna gengi liösins séu tveir sfðustu leik- ir hafðir í huga. Unglingasíöan haföi því samband við Lárus Lofts- son, þjálfara iiösins, og spuröi hann hvort undirbúningurinn heföi ver- ið nógu góður fyrir leikinn ytra og hvort strákarnir hefðu farið inn á með réttu hugarfari, að hans mati. Svör Lárusar voru eftirfarandi: „Undirbúning fyrir leiki má að sjálfsögðu ailtaf bæta. Ég hef ávallt reynt að slá á réttu strengina hvað þaö áhrærir. Grundvallaratriðið hjá mér er að hver og einn geri sitt besta því meira er ekki hægt að fara fram á. Sigur kemur aðeins í kjölfar góðrar samvinnu innan liðsins. Ef leikmenn leggja sig alla fram má búast við góðum árangri. Séu ieikmenn aftur á móti kæru- lausir getur illa farið. 1 seinni leikn- um gegn Noregi voru leikmenn ís- lenska liösins siður en svo kæru- lausir. Mótlætið var einfaldlega of mikið fyrir þá. Strákamir voru staöráönir í aö gera sitt besta. Norðmenn byrjuðu aftur á móti sterkt og voru mjög heppnir aö ná eins marks forystu svo snemma leiks. Undirbúningur þessa leiks var svipaður og í öðrum leikjum sem hafa unnist. Eins og ég hef áöur sagt lentu strákamir í vissum erfiðleikum sem þeir réðu einfald- lega ekki viö. Geta borið höfuðið hátt Það er aldrei sjálfgefið að lið eigi að sigra. Við erum aö etja kappi við milljónaþjóðir og getum þar af leiðandi ekki krafist of mikils af drengjalandsliðinu. Vissulega eru allir ósáttir við að tapa en hlutirnir em bara svona. Að krefjast of mik- ils af drengjalandsliðinu í þeim efii- um er ekki réttlátt. Það var mjög nálægt því að komast í úrslita- keppnina aö þessu sinni og hefði átt þaö skiliö aö mínum dómi. Strákamir geta svo sannarlega boriö höfuöið hátt eftir leikinn gegn Norömönnum. Eg legg ffammistöðu þeirra nokkuð að jöfnu við þátttöku Vals í Evrópukeppni meistaraliða gegn Monaco. Valsmenn sigruöu í heimaleiknum, 1-0, en töpuðu síð- an úti, 2-0. Eftir á er talað um að Valur hafi fallið úr keppninni með sóma: Hið sama vil ég meina um- okkar stráka i drengjalandsliðinu. En það er víst ekki sama hver á i hlut,“ sagði Lárus Loftsson í lokin. -HH Lárus Loftsson, þjálfari drengja- landsliósins. 6. flokkur A-liös Breiðabliks vann UMSK-mótiö sem fram fór á Tungubökkum í Mosfellssveit á dögunum. Úrslit í leikjum strákanna urðu þessi: Þeir gerðu jafntefli, 3-3, gegn ÍK, sigruðu Aftureldingu, 6-1, og Stjörnuna, 4-1. Myndin er af 6. flokki Breiðabliks, B-liðinu, sem náði þeim frábæra árangri að sigra Stjörnuna, 2-1, í keppni um 3. sæti. - Gott hjá strákunum. Unglingasíðan hefur fregnir af því að einhverjir af þessum strákum hafi leikið i A-liðinu i UMSK-mótinu og er því upplagt að slá tvær flugur í einu höggi, eins og þar stendur. Þjálfari 6. flokks Breiðabliks er Sigurður Víðisson. DV-mynd HH Þetta eru UMSK-meistarar Breiðabliks i 5. flokki A-liða. Kapparnir sigruðu i öllum sínum leikjum. Þeir unnu Gróttu, 7-1, Aftureldingu, 14-1, ÍK, 4-0, og Stjörnuna, 5-2. Sannfærandi sigur hjá strákunum. 5. flokkur Breiða- bliks varð lika í 3. sæti í íslandsmótinu svo þessi sigur kemur kannski ekkert á óvart. Þjálfari strákanna er Kristj- án Halldórsson. DV-mynd HH Knattspymu unglinga lokið að sinni Umfjöllun á laugardögum um knattspyrnu unglinga er lokið aö þessu sinni. Handboltinn er genginn í garð og mun DV fjalla um hann að venju. Lokasprettur haustmótsins og grunnskólamótsins mun þó flytjast yfir á hinar dagbundnu íþróttasíður blaðsins. Þar munu og birtast mynd- ir af íslandsmeisturum hinna ýmsu flokka. Unglingasíðan þakkar bæði einstaklingum og félögum fyrir frá- bæra samvinnu á leiktímanum. -HH 3. ílokkur A: Fylkir og Fram spila á þiiöjudag Óhætt er að fullyrða að leikur Fram og Fylkis í 3. flokki (A) sé hreinn úrslitaleikur í haustmótinu. Þessi leikur átti að vera sl. laugardag en var frestað vegna unglingalands- leiks gegn írum. Fram hefur yfirleitt gengiö illa gegn Fylki á þessu leik- ári. Gaman verður því að sjá hvernig til tekst í leiknum á þriðjudag. Ljóst er þó að hér mætast tvö afbragðslið og er vel þess virði fyrir knatt- spyrnuáhugafólk að fylgjast með. Leikurinn verður á gervigrasinu og hefstkl. 18.10. -HH Skot________________tjj^) Eru gerðar of miklar kröfur til drengjalandsliðsins? íslensk unglingalið hafa yfirleitt staðið sig vel gegn erlendum jafn- öldrum sínum og af þeim sökum hafa kröfurnar um sigur ef til vill verið í hærri kantinum. Þessar kröf- ur eru náttúrulega til komnar vegna góðrar frammistöðu þeirra og ættu í sjálfu sér að vera upphefð fyrir drengina. Drengjalandsliðiö er fyrst ís- lenskra landsliða til að leggja Dani að velli og í kjölfarið fylgja auknar kröfur um betri frammistöðu. Betri frammistaða kemur aðeins til ef drengjunum er sinnt sem skyldi og þá allt árið. Það tímabil sem nú fer í hönd á að vera tímabil lagfæringar á tæknigöllum ásamt öðru sem lýtur að aukinni kennslu svo að þeir komi hæfari til leiks að ári. Aðeins með þannig vinnubrögðum getum við náð fram þvi sem er hvað nauðsynlegast hverjum leikmanni - það er aö hann verði var við auknar framfarir og læri aö þekkja sinn eigin styrk. Þannig vinnubrögð skila leikmönn- um með það sjálfstraust sem hverj- um afreksmanni er nauðsynlegt. Þessi atriði eiga í sjálfu sér ekkert skylt við andlegt ástand leikmanna fyrir leiki. En sá þáttur skiptir miklu máli í þessu öllu saman og getur, ef vel er á spilunum haldið, haft veruleg áhrif á framlag leikmanna til leiks- ins. -HH. Umsjón Halldór Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.