Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988. Erlendbóksjá GERMANY ANDTHE GERMANS Hvemig eru Þjóðverjar? GERMANY AND THE GERMANS. Höfundur: John Ardagh. Penguin Books, 1988. Breski blaöamaöurinn John Ardagh, sem hefur um árabil skrifað um evrópsk málefni í bresk dagblöð, gefur í þessari nýju bók sinni greinargott yfirlit um þýskt þjóðlíf í dag. Eftir stutta samantekt um sögu Vestur-Þýskalands frá rústum síðari heimsstyrjaldarinnar til velmegunar okkar daga fjallar Ardagh um ýmis megineinkenni daglegs lífs - bæði í margbreyti- legum stórborgunum og hinum dreifðu.byggðum. Þá rekur hann viðhorfm í stjórnmálum, efna- hagsmálum, umhverfismálum og menntamálum, gerir grein fyrir stööu mála í menningarstarfsemi og listsköpun, skýrir stöðu Tyrkja og annarra farandverka- manna og veltir fyrir sér í lokin hversu traustar undirstöður þýska lýðræðisins séu í reynd. Þá er í sérstökum kafla veitt nokkur innsýn í lífið handan múrsins undir stjórn kommún- ista í Austur-Þýskalandi. Ardagh skrifar léttan og læsi- legan texta. Hann er ófeiminn að varpa fram óþægilegum spurn- ingum og segja áht sittá mönnum og málefnum. Ýmislegt í þýsku þjóðlífi er honum ekki að skapi. Þó verður ekki annað séð en hann láti Þjóðverja njóta sannmæhs og í heildina er sú mynd, sem hann gefur af vestur-þýsku þjóðfélagi, fremur jákvæð. MARGARET DRABBLE tir.v rowf&iTT'MW Növf.i r«R thbkkhtu^ RMÍÍANT Tí *í Þijár vinkonur í hringiðimni THE RADIANT WAY. Höfundur: Margaret Drabble. Penguin Books, 1988. Liz, Alix og Esther eru þrjár konur sem komust gegnum há- skólann í Cambridge á sjötta ára- tuganum vegna gáfna sinna og þrátt fyrir bágan fjárhag. Þær kynntust þar og bundust vináttu- böndum sem haldast næstu ára- tugina þrátt fyrir afar ólíkan hfsstíl. Væntingar þeirra voru miklar á skólaárunum. En hvemig tókst til þegar út í lífs- baráttuna utan skólaveggjanna kom? Þeirri spumingu svarar Marg- aret Drabble í þessari nýju skáld- sögu sinni um drauma, sigra og vonbrigði „meðvitaðra" mennta- kvenna sem em að ná miðjum aldri í byijun þessa áratugar. Ahar verða þær að játa, í það minnsta fyrir sjálfum sér, að margir stærstu draumarnir hafi ekki ræst. Drabble tekst af gefa ljósa mynd af þessum ólíku vinkonum í blíðu og stríðu og því hvemig þær reyna að höndla sinn skerf ham- ingjunnar í síbreytilegri veröld. Metsöluhöfundur í óðs manns höndum MISERY. Höfundur: Stephen King. New English Library, 1988. Stephen King er óneitanlega hug- myndaríkur og fær um að gera fárán- legustu uppákomur trúverðugar. Það á við -um þessa nýju hryllings- sögu hans. Það er við hæfi að í þessari sögu er aðalpersónan metsöluhöfundur sem skrifar einkum spennubækur um sögupersónu sem Misery nefnist. Fyrir þetta fær hann mikið af pening- um en htið af sjálfsáhti sem alvöru rithöfundur. Hann ákvaö því að slátra þessari vinsælu persónu og er sú bók þar sem hún deyr í lokin ný- komin út. En höfundurinn er svo óheppinn aö bifreið hans veltur á afskekktum vegi og hann slasast alvarlega; getur meðan annars ekki hreyft fæturna. Þá kemur þar að kona nokkur sem býr þar ein á bæ. Hún dregur hann hálfdauðan heim th sín og tekst að halda í honum lífinu, meðal annars með því að dæla í hann sterkum deyfilyfjum gegn óbærhegum sárs- aukanum. Hún kemst að því hver hann er og ber þá vel í veiði því hún er ákafur aðdáandi hans sem rithöf- undar og hreinlega dýrkar söguper- sónuna Misery. Höfundurinn kemst þó fljótt að því að konan er meira en lítið geðbhuð. Hún tryhist gjörsamlega þegar hún kemst að því að rithöfundurinn hef- ur myrt hina ástkæru Misery. Hún lokar hann inni og krefst þess að hann skrifi nýja sögu þar sem hann veki Misery th lífsins á ný á sannfær- andi hátt. Þegar rithöfundurinn er með eitthvert múður tekur hún til við að fækka líkamspörtum hans á harla kvalafullan hátt. Lýsingar Kings á kerlu þessari og athöfnum hennar eru stórbrotnar. Þegar á líður söguna er svo spurn- ingin hvort rithöfundurinn, eða kannski öllu heldur hvað af honum, lifir af samneytið við ákafasta aðdá- andann. Eldfjallið undir ísjakanum GRACE. Höfundur: James Spada. Penguin Books, 1988. Á kvikmyndaferli sínum, og síðar sem prinsessa í Mónakó, hafði Grace Kelly ávallt yfir sér svip sakieysis og hreinlífis. Það var sú ímynd sem hún lagði ávallt afar mikla áherslu á sjálf. Aróðursmeistarar Hollyvood- verksmiðjunnar unnu ötuhega að því árum saman að treysta þá ímynd í sessi. Alfred Hitchcock, sem leikstýrði Grace Kelly í nokkrum bestu mynda sinna, líkti henni gjarnan við ísjaka þar sem eldfjall væri undir. Ef marka má frásögn James Spada í þessari bók um líf prinessunnar frá Fíladelf- íu, hafði gamli maðurinn rétt fyrir sér. Faöir Grace var kappsamur at- hafnamaður sem gerði miklar kröfur th barna sinna um árangur hvort sem var í íþróttum, námi eða starfi. Grace var sú eina barnanna sem ekki féh í þaö mynstur sem hann gerði kröfu til. Hún hiaut því aldrei þá ást og umhyggju föðurs síns, sem hún þráði allt sitt líf, að sögn Spada, og leitaði þess vegna ástar hjá öðrum karlmönnum. Hann segir að stúlkan, sem var opinberlega svo saklaus og siðprúð, hafi í reynd veriö afar sókndjörf á karlmenn. Þannig hafi hún nánast lagt metnað sinn í að eiga mök við mótleikara sína í flestum eða öhum þeim kvikmyndum sem hún lék í. í bókinni er einnig rakið líf Grace eftir að ævintýrið um prinsinn varð að veruleika og er svo að sjá að það hafi ekki verið dans á rósum. Nú er það lenska í Ameríku að róta í einkalífi frægs fólks og afhjúpa í bókum raunveruleikann á bak við frægðarímyndina. Þetta er ein shkra bóka. Hún virðist skrifuð af sann- girni og gefur mannlegri mynd af Grace Kehy en glansævintýri áróð- ursmeistaranna. En auðvitað er hætt við að höfundar slíkra bóka leggi of mikla áherslu á þau „nýju“ atriði sem þeir hafa fundið í leit sinni að „hressilegum“ leyndarmálum og gefi þannig ranga heildarmynd af þeim sem um er fiallað. Lesandinn þarf í það minnsta að hafa í huga að sumt af því sem höfundur þessarar bókar telur mikilvægast í lífi Grace Kehy, kann að hafa skipt hana sjálfa litlu máli. •Metsölubækur /vllRACLES USSCMSlrÁC-EDAKU SKr-l-tews fsoMÁ ScsgeosS t»e3e-cr ' WWH ECfFTiCVA: *JBfS___ BERNIES. ;í SlEGtL, M.D. Ástin læknar LOVE, MEDICINE & MIRACLES. Höfundur: Bernie S. Siegel. Perennial Library, 1988. Þar sem lyf og hefðbundnar læknisaöferðir duga ekki th að bjarga mannslífum getur ást og umhyggja gert kraftaverk. Þetta er boðskapur Siegels læknis í þessari bók. Hann er læknir með langa reynslu að baki og byggir fullyrðingar sínar á eig- in reynslu, sérstaklega í meðferð sjúklinga með krabbamein. Siegel telur að mannlega þátt- inn skorti ahtof oft í samskiptum læknis og sjúkhngs. Læknar forðist að komast í tilfinningalega snertingu við sjúklingana. Dæmi- gert sé að þeir tah um dauðvona sjúklinga eins og þeir séu hlutir en ekki menn, „áhugaverð dæmi“ en ekki einstaklingar sem séu aö dauða komnir. Siegel hefur einnig látið athafn- ir fylgja orðum. Fyrir nokkrum árum hóf hann að beita sér fyrir manneskjulegri meðferð krabba- meinssjúkUnga þar sem mikh áhersla er lögð á umhyggju og ástúð og mannlega samhygð. Hann rekur í bókinni mörg lýs- andi dæmi og segir árangurinn af ástríkri umönnun kraftaverki líkastan. Það hefur enda lengi verið ljóst að andlegt ástand sjúklings getur skipt sköpum um líkur hans á að lifa. Þetta er bók af því tagi sem ætti að vera skyldulesning lækna og hjúkrunarfólks. Bretland Söluhæstu kiljurnar: 1. Catherlne Cookson: BILL BAILEY’S LOT. 2. Clive Barker: WEAVEWORLD. 3. Shirley Conran: SAVAGES. 4. Mary Wesley: NOT THAT SORT OF GIRL. 5. Penelope Llvely: MOON TIGER. 6. Scott Turow: PRESUMED INNOCENT. 7. D.Adams: DIRK GENTLY’S HOLISTIC DETECTIVE AGENCY. 8. Margaret Drabble: THE RADIANT WAY. 9. Campbell Armstrong: JIG. 10. Lynda La Plante: THE LEGACY. Rit almenns eðlis: 1. Rosemary Conley: THE HIP AND THIGH DIET. 2. Elkington & Halles: THE GREEN CONSUMER GUIDE. 3. James Oram: NEIGHBOURS: BEHIND THE SCENES. 4. Richard Ellmann: OSCAR WILDE. 5. Eamon Dunphy: UNFORGETTABLE FIRE: THE STORY OF U2. 6. Keith Floyd: FLOYD ON BRITAIN & IRELAND. 7. Christopher Nolan: UNDER THE EYE OF THE CLOCK. 8. Bob Ogley: IN THE WAKE OF THE HURRIC- ANE. 9. Heathcote Williams: WHALE NATION. 10. John Tovey: EATING OUT WITH TOVEY. (Byggt á The Sunday Times) Bandaríkin Metsölukiljur: 1. Stephen Kfng: THE OARK TOWER: THE GUNSLINGER. 2. V. C. Andrews: FALLEN HEARTS. 3. Tom Clancy: PATRIOT GAMES. 4. Martha Grimes: THE FIVE BELLS AND BLADE- BONE. 5. Harold Coyle: TEAM YANKEE. 6. Margaret Truman: MURDER IN THE CIA. 7. James A. Michener: LEGACY. 8. Louis L’Amour: LONIGAN. 9. Scott Turow: PRESUMED INNOCENT. 10. Mlchael Crichton: SPHERE. 11. Robert Lawrence Holt: GOOD FRIDAY. 12. Barbara Raskin: HOT FLASHES. 13. Edward Rutherfurd: SARUM. 14. Jennlfer Wílde: THE SLIPPER. 15. Terry Brooks: THE BLACK UNICORN. Rit almenns eðlis: 1. Bob Woodward: VEIL. 2. Bernie S. Siegel: » LOVE, MEDICINE & MIRACLES. 3. Joseph Campbell, Blll Moyers: THE POWER OF MYTH. 04. Shirley MacLalne: irs ALL IN THE PLAYING. 5. M. Scotl Peck: THE ROAD LESS TRAVELED. 6. Peter WrightfPaul Greengrass: SPYCATCHER. 7. Pamela Des Barres: l’M WITH THE BAND. 8. Ann Rule: SMALL SACRIFICES. 9. Willlam Novak: MAN OF THE HOUSE. 10. Allan Bloom: THE CLOSING OFTHE AMERIC- AN MIND. (Byggl á New York Timos Book Revlaw) Danmörk: Metsölukiljur: 1. Isabel Allertde: ANDERNES HUS. (1). 2. Jean M. Auel: MAMMUTJÆGERENE. (8). 3. Jean M. Auel: HULEÐJORNENS KLAN. (3). 4. Isabelle Allende: KÆRLIGHED OG MÖRKE. (4). 5. Jean M. Auel: HESTENES DAL. (5). 6. Henrlk Stangerup: LÖGN OVER LÖGN. (2). 7. Milan Kundera: TILVÆRELSENS ULIDELIGE LETHED. (7). 8. Herman Bang: VED VEJEN. (6). 9. Henrlk Kruger: BOGEN OM PRUTTER. (9). 10. Helle Stangerup: CHRISTINE. (-). (Tölur innan svlga tðkna röó bókar vlkuna á undan. Byggt á Polltlken Sandag.) Umsjón: Elías Snæland Jónsson Einstaklingurinn og veraldarsagan MOON TIGER. Höfundur: Penelope Lively. Penguin Books, 1988. „Eg er að skrifa sögu heims- ins.“ Þetta segir Claudia Hamp- ton, frægur blaðamaöur og sagn- fræðingur, við hjúkrunarfólkið á spítalanum þar sem hún hggur fyrir dauðanum. Hún er að vísu ekki fær um aö skrifa eitt eða neitt framar en rótar upp í safni minninganna í eigin huga brotum úr lífi sínu, snertiflötum þess við líf annarra einstakhnga 'og sögulega atburði áöldinni. Húngerir sér grein fyr- ir því að saga heimsins, reyndar saga hvers einstaklings, fer eftir því hver segir hana. Þessa síðustu daga ævi sinnar htur hún þess vegna ekki aðeins á líf sitt með eigin augum heldur setur sig einnig í spor nánustu ættingja og samstarfsmanna. Sá vefur, sem Penelope Lively spinnur í þessari hreint frabæru skáldsögu, er máttugur í fiöl- breytileik sínum og margræði. Um lykilatriði sögunnar, sam- keppni Claudiu við bróður sinn og ástarævintýri hennar í Egypt- alandi á dögum eyðimerkurstríðs Breta og Þjóðveija, er fiallað af mikilh kunnáttu og næmleika.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.