Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988 11 Breiðsíðan DV-myndbrot vikunnar Þetta er nýja þvottastöð Flug- leiða við Reykjavikurflugvöll. Hug- myndin er greinilega mjög snjöll og reyndar kominn tími til að gos- brunnurinn í Tiöminni fengi hlut- verk við hæfi. Það var Sveinn Þor- móösson sem festi þetta augnablik á filmu og ber að auki ábyrgð á hugmyndinni um þvottastöðina. DV-mynd S Kom mér þægilega á óvart segir Halldór Halldórsson sem fékk viðurkenningu fyrir skrif í DV „Jú, þetta kom mér þægilega á óvart. Það gleður mig mjög að finna að skrifm hafa þjónað einhvéijum tilgangi," segir Halldór Halldórsson sem síðustu sumur hefur skrifað um knattspyrnu unglinga í helgarblað- DV. Hann fékk viðurkenningu fyrir skrif sín frá Knattspyrnufélaginu Fylki á uppskeruhátíð félagsins um síðustu helgi. Halldór er gamalreyndur knatt- spymuþjálfari og hefur á undanförn- um árum einkum lagt sig eftir þjálf- un yngri'flokkanna ásamt því að flytja landsmönnum reglulega fréttir af unglingastarfmu. „Hvatinn að því að ég fór að skrifa um knattspyrnu unglinga var aö mér þótti mikið vanta á að unglingastarf- inu væru gerð verðug skil,“ segir Halldór. „Vonandi hefur þetta skilað sér í auknum áhuga og vonandi hafa einhverjir haft gaman af í leiðinni. Unglingarnir þurfa líka athygli. Hún mætti vera meiri og þetta er tilraun til að auka hana. Það er mjög gaman að fjalla um unga fólkið í knattspyrnunni. Það er hreinskilið og opinskátt. Leikgleðin er mikil og þar mættu þeir eldri læra meira af ungviöinu. Það er mikilvægt að varðveita barnið í íþróttamönn- unum. Knattspyrnan er jú leikur.“ Halldór hefur með störfum sínum haft tækifæri til að fylgjast náið með framfórum í knattspyrnu í landinu. „Mér finnst knattspyrnan vera að batna,“ segir hann. „Þótt hægt gangi stefnir allt í rétta átt. Aukin þekking þjálfara á viðfangsefni sínu veldur þar miklu og á vafalaust eftir að auka veg knattspyrnunnar enn meira. Við eigum marga efnilega unga knattspyrnumenn og ef stutt er við bakiö á þeim upp alla flokkana skilar það sér á endanum í betri árangri A-landsliðsins. Okkur tekst best upp í yngstu flokkunum en það vill verða mis- brestur á að unglingarnir skili sér upp í efri flokkana. Ef til vill skortir okkur mannafla. Þekkingin er til staöar. Ef til vill eru það félögin sem standa sig ekki. Hópurinn mætti vera breiðari sem skilar sér upp í efri flokkana en í þessu m^li er hægara um að tala en í að komast." Nú á haustdögum hefur Halldór fengið það erfiða verkefni að þjálfa knattspyrnulið DV eða fylgjast með því eins og hann kallaði það. „Þaö geta leynst efni á ótrúlegustu stöð- um,“ segir Halldór og hlær. Halldór hefur nú skrifað síöustu opnuna um knattspyrnu unglinga í DV á þessu ári. Hann þakkar öllum fyrir góða samvinnu og reiknar með að taka upp þráðinn á ný að vori. -GK ***&»£££ Halldór Halldórsson, umsjónarmaður knattspyrnu unglinga i DV, með viður- kenningarskjalið frá Fylki. DV-mynd BG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.