Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Breidsíðan
Fékk staríið í arf frá Jónínu Ben
- segir Halldóra Bjömsdóttir sem sér um morgunleikfimi útvarpsins
skllnaöi
Whoopi Goldberg hefur ákveðið
að skilja við sinn ástkæra eigin-
„Ég fékk þetta starf í arf
frá Jónínu Benediktsdótt-
ur,“ segir Halldóra Björns-
dóttir sem sér um þaö fyrir
Ríkisútvarpiö hvern virk-
an morgun 1 vikunni aö
rífa landsmenn fram úr
rúmunum til aö taka
nokkrar léttar æfmgar.
„Ég var að vinna fyrir
Jónínu þegar hún hætti og
hún benti á mig. Það varð
úr aö ég tók starfið,“ segir
Halldóra. Hún hefur nú
séð um morgunleikfimina
í nokkra mánuði án þess
að mikið fari fyrir. Fyrir-
rennarar hennar hafa látið
meira. „Ég er svo hóg-
vær,“ útskýrir Halldóra.
Fólk í salnum
„Mér líkar mjög vel 1 þessu starfi,"
segir hún. „Ég reyni alltaf að hafa
fólk með mér viö æfingarnar til að
gera þær eðlilegri. Það er reyndar
misjafnt hvernig mér gengur að
draga fólk með mér.
Ef fólk er-í salnum við upptökur
fmn ég að ég er að tala til einhvers
og æfingarnar verða eðlilegri. Það
er hægt að leiðrétta fólk og eins hætt-
ir stjórnandanum til að fara of hratt
í æfingarnar ef enginn gerir þær um
Halldóra Björnsdóttir, æfingameistari í morgunleikfiminni, og sonurinn,
Kjartan Þór. DV-mynd KAE
leið. Ég fæ starfsfólk hér í útvarpinu
og vini og vandamenn til að vera
með mér.“
Halldóra er íþróttafræðingur að
mennt. Hún lærði í Kanada eins og
margir aðrir íþróttafræðingar hér á
landi. „Þetta er tískufag," segir
Halldóra. „Fólk hugsar mikið um að
þjálfa líkamann þótt það sé reyndar
alls ekki ný bóla.“
Halldóra segist halda sjálfri sér í
formi heilsunnar vegna en ekki um-
fram það. Hún keppti áður fyrr á
skíðum en er hætt því núna. „Ég fékk
áhuga á skíðaíþróttinni þegar fóður-
bróðir minn bauð mér á námskeið í
Kerlingarfjöllum," segir hún. „Ég
var þá 10 ára. Eftir það æfði ég reglu-
lega og náði ágætlega langt þótt ég
yrði aldrei íslandsmeistari. Ég keppti
síðast árið 1981.“
Kennir þroskaheftum
Að jafnaði vinnur Halldóra sem
íþróttakennari í Öskjuhlíðarskólan-
um sem er sérskóli fyrir þroskaheft
börn. Hún byrjaði þar í haust. „Það
er mjög skemmtilegt að kenna- þess-
um börnum," segir Halldóra. „Ég hef
ekki kennt í skóla áður en ég geri ráð
fyrir að það þurfi að hafa meira fyrir
þeim en öðrum en þetta er samt mjög
gaman. Ég vann áður nokkur sumur
á Reykjalundi."
Halldóra er í sambúð meö Birgi Þór
Baldurssyni sem einnig er kennari.
Þau eiga einn son sem heitir Kjartan
Þór. -GK
Þú ert 2000 krónum ríkari
Stundum er ekki ástæða til að brosa við tilefni sem þetta. Hér var þó ekki alvara lífsins á ferðinni heldur aðeins æfing og svo virðist sem allt hafi
gengið að óskum. Því er ástæða til að verðlauna þá brosmildu lengst til hægri á myndinni. Hún getur komið hingað á ritstjórn helgarblaðs DV,
Þverholti 11, og vitjað peninganna sinna. DV-mynd S
mann. Sá heitír David Claessen
og er hollenskur kvikmynda-
tökumaður. Þau kynntust árið
1986 þegar þau unnu saman að
töku heimildarmyndar.
Goldberg er nú 38 ára gömul en
eiginmaður hennar tíu árum
yngri. Þau hafa ekki búið saman
nú um skeið og illar tungur segja
reyndar að hjónabandið hafi ver-
ið misheppnað frá upphafi. Gold-
berg býr nú með Eddie Gold sem
einnig er kvikmyndatökumaöur.
Goldberg hefúr hlotíð mesta
frægð fyrir leik sinn í Purpura-
litnum. Hún hefur einnig komið
fram í gamanmyndum ognú leik-
ur hún í mynd sem á að heita
Hjarta Klöru og verður senn til-
búin tíl frumsýningar.
Marilyn Monroe gefur mönnum
enn tilefni til að þræta
Málaferli vegna ástarbréfs eru nú
í uppsiglingu í Bandaríkjunum.
Þaö er kona að nafni Anna Stras-
berg sem hótar að kæra ef ástar-
bréf sem Marilyn Monroe skrif-
aði manni sínum, Joe DiMaggio,
veröur selt á uppboði.
Anna þessi er ekkja Lee Stras-
berg sem eitt sinn var eiginmaður
Marilyn Monroe. Anna heldur
því. ffam að Monroe hafi arfleitt
Lee að öllum eigum sínum og því
eigi hún sera ekkja hans kröfu til
þessara eigna.
Bréfið var skrifað árið 1962,
skömrau áður en Monroe lést,
Ekkert hefur verið vitað um það
áður. Ef svo fer fram sem horfir
verður bréfið boðið upp þann 25.
þessa mánaðar.
Elvis Presley er nú aftur kominn
í útlegð tii Þýskalands.
Bronsstytta af Elvis Presley var
hífö frá boröi í höfninni í Bremer-
haven í Vestur-Þýskalandi þann
fyrsta þessa mánaöar. Styttan er
í fullri hkamsstærð.
Þennan dag voru nákvæmlega
30 ár hðin frá því rokkgoöið gekk
niður landganginn á herflutn-
ingaskipi í þessari sömu höfn.
Hann var þá pð hefja þjónustu
sína í bandaríska hernum í
Þýskalandi en merkum kafla í
sögu rokksins að ljúka.
Stytfan var gerð í Lundúnum.
Henni veröur komið fyrir viö
herstöðina í Bad Nauheim þar
sem Presley hafði aösetur þann
tí ma sem hann var í Þýskalandi.