Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Side 13
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
13
T T-r>páhaldsmatur á suimudegi
Gamaldags
klassískur
Vestmanna-
eyjalundi
- frá Páli Magnússyni fréttastjóra
Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðv-
ar 2, leggur að þessu sinni til í sunnu-
dagsmatinn það sem hann kaliar
„klassíska, gamaldags Vestmanna-
eyjauppskrift aö lunda“. Nú er nóg
af lunda á markaðnum eftir gott
veiðisumar og krásimar á góðu
verði.
„Ég veiddi mikið af lunda í sum-
ar,“ sagði Páll. „Ég fór í Bjarnarey í
sumar eins og önnur sumur og það
gaf vel af sér. Það fylgir því líka allt-
af sérstök stemning að borða það sem
maöur hefur veitt sjálfur. Þá spillir
heldur ekki að matreiða bráðina
sjálfur."
Páll mælir með því aö aðeins bring-
urnar séu notaðar enda er nú að
mestu hætt að hamfletta lunda á
annan hátt en að henda öllu öðru en
bringunum.
Bringurnar eru brúnaðar vel á
pönnu með salti og pipar. Fullvöxn-
um mönnum þarf að ætla tvær til
þrjár bringur en börn borða ekki
fleiri en eina.
Brúnaðar bringumar eru settar í
pott og vatniö látið vera við það að
fljóta yfir þær. Vatnið má ekki vera
of mikið til að soðið verði gott. Bring-
umar eru soðnar í einn og hálfan til
tvo tíma eftir smekk. í vatnið er sett
smjörklípa eða svínaspekk til að gera
kjötið meyrara.
Eftir aö bringurnar hafa verið
færðar upp er soðið síað eða það
fleytt með fiskispaða. „Soðið er mjög
gott og hentar vel í sósuna sem er
aðalatriðið. í hana má bæta salti og
pipar eftir smekk og ég bragðbæti
hana oft með gráðaosti," segir Páll.
Sósan er þykkt með maisenamjöli og
bætt með rjóma áður er hún er borin
fram.
Páll mæhr með brúnuðum kartöfl-
um í meölæti og salati sem búíð er
til úr eplum, seUeríi og banana- og
appelsínujógúrt.
PáU segir að í Vestmannaeyjum
telji margir best að sjóða lundann
nokkru áður en hann er borinn fram.
Lundinn er þá látinn kólna í soðinu
og hitaður upp aftur þegar komið er
að matmálstíma. Með þessu móti á
lundinn að veröa bragömeiri.
Páll mæhr með kraftmiklu rauð-
víni með. Chateu Fonteres er efst á
óskaUstanum hjá Páli. „Þetta er með
betri rauðvínum sem fást í Ríkinu
núna og einnig eitt það ódýrasta,“
segir Páll.
I þessa uppskrift fara því:
lundabringur, 2-3 á mann
svínaspekk eða smjör
gráðaostur
rjómi
maisenamjöl
salt og pipar
í salatið:
epli
sellerí
banana- og appelsínujógúrt
ERTÞUIVANDA
VEGNA VÍMU ANNARRA?
Brengluð tjáskipti á heimilum geta skapað mikla vanlíðan.
Oft er orsök vandamálsins misnotkun áfengis eða annarra
vímuefna. Hér gæti verið um að ræða foreldri, maka, systk-
ini eða barnið þitt. Afleiðingarnar geta komið fram með
ýmsum hætti í líðan þinni:
• Erfitt að tjá tilfinningar
• Erfitt að taka sjálfstæðar ákvarðanir
• Skortur á sjálfstrausti
• Skömmustutiifinning og sektarkennd
• Kvíði og ótti
Við ætlum að benda þér á leiðir til betra lífs á námskeiðum
sem hefjast á næstu dögum í Þverholti 20, Reykjavík.
A. Næsta kynningarnámskeið laugard. 22. okt. kl. 9.00-17.00.
B. 10 vikna framhaldsnámskeið (einu sinni í viku) byrja í lok
okt. Skráning hafin.
Sigurlína Davíösdóttir
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
, Nafnleynd og algjör trúnaður.
Nánari upplýsingar í síma 623550.
A^KRýSUVfKURSAMljÍKIN
Páll Magnússon segir að best sé að hafa veitt iundann sjálfur.
DV-mynd GVA
Nýir íslenskir
skrautveggir
# ■
a syningu
20%
kynningarafsláttur
um helgina
ídag ogámorgun frá kl.
14—18 verður sýning á TH B
skilrúmum í Smiðsbúð 12 í
Garðabæ.
Hér er um að ræða hilluveggi, skápa-
veggi, glerveggi og skrifstofuveggi.
Þetta eru skilrúm sem ýmist halda eða
brjóta sjónlinu i vistarveru, opin eða
iokuð.
Framleiðslan hentar sem skilrúm eða
skrautveggir, t.d. á milli eldhúss og
stofu eða gangs, þar sem stóru rými
er skipt niður, einnig i skrifstofur o.il.