Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
IHOI Frjálst.óháÖ dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Tæplega hálfur sigur
Þótt hreinsanirnar í æöstu stöðum Sovétríkjanna séu
hinar mestu þar eystra í þrjá áratugi, fer því fjarri, að
Gorbatsjov hafi unnið sigur í styrjöldinni innan komm-
únistaflokksins. Hann hefur í mesta lagi unnið hálfan
varnarsigur í einni orrustu af mörgum í þessu stríði.
Erkifjandinn Ligatsjev er ekki lengur opinber hug-
myndastjóri flokksins, en hann er orðinn landbúnaðar-
stjóri í staðinn. Hinn óvinurinn, Tsjebrikov, er ekki
lengur lögreglustjóri, en er orðinn dómsmálastjóri í
staðinn. Nýju störfin eru jafnvaldamikil og hin gömlu.
Athyglisvert er, að þessir tveir kunnustu andstæðing-
ar „perestrojka" og „glasnost“ bera nú ábyrgð á ein-
mitt þeim málaflokkum, þar sem einna mest reynir á,
að stefna Gorbatsjovs nái árangri sem fyrst, það er að
segja í matvælaframleiðslu og í lögmætu réttarfari.
Eftir hreinsanirnar getur Gorbatsjov reitt sig á fylgi
fimm af tólf miðstjórnarmönnum. Hann verður því sem
fyrr að gera bandalag við miðjumenn til að fá málum
sínum framgengt. Og þeir gera sér grein fyrir, að al-
menningur hefur hingað til ekki grætt á Gorbatsjov.
Hin nýja stefna hefur einkum komið fram í kröfum
um aukin afköst og meiri samvizkusemi, en ekki enn
skilað árangri í meira vöruúrvali eða betri lífskjörum.
Og líklegast er, að almenningur í Sovétríkjunum verði
enn um sinn að þreyja þorrann, áður en birta tekur.
Þetta veldur Gorbatsjov vandræðum, því að andstæð-
ingar hans kenna hinni nýju og tvíeggjúðu stefnu hans
um vandamálin, þótt þau séu í raun og veru afleiðing
hinnar langvinnu stöðnunar á tímum fyrirrennara
hans. Khrústjov féll á sínum tíma á svipuðu máli.
Ekki má vanmeta langvinna þjálfun skriffmna flokks-
ins á öllum valdastigum. Þeim hefur hingað til tekizt
að drepa flestum umbótum Gorbatsjovs á dreif. Þótt
sumir þeirra séu hreinsaðir á þessum staðnum, koma
þeir aftur fram í nýju hlutverki á hinum staðnum.
Aðgerðir Gorbatsjovs felast mest í hinni alkunnu
aðferð að leggja niður gamlar stofnanir og búa til nýjar.
í báðum tilvikum eru þær skipaðar gömlum flokks-
hundum, sem kunna afskiptasemi eina til verka. Þetta
fyrirbæri er meira að segja vel þekkt á íslandi.
Vandinn felst nefnilega í valdaeinokun flokksins í
Sovétríkjunum. Búast má við, að tilraunir til markáðs-
búskapar, svo sem frjálsrar verðmyndunar, gangi afar
stirðlega í harkalega miðstýrðu þjóðfélagi, enda hefur
flestum slíkum hugmyndum verið slegið á frest.
Hinn rússneski kjarni í flokknum hefur þungar
áhyggjur af áhrifum stefnu Gorbatsjovs á þjóðernis-
hyggju og trúarofstæki í ýmsum lýðveldum ríkisins.
Baltnesku ríkin eru farin að efla sjálfræði sitt, til dæm-
is á kostnað rússneskumælandi aðkomumanna.
Ennfremur veikir það Gorbatsjov, að öflugustú iðnað-
arríkin austantjalds láta umbætur hans eins og vind
um eyru þjóta. Austurþýzkir ráðamenn hafa skýrt tekið
fram, að þeir anzi ekki ábendingum hans. í Tékkó-
slóvakíu sitja eftir aðeins erkiíhaldssamir ráðamenn.
Kyndugt er, að hinn svokallaði „frjálslyndi“ Gor--
batsjov, sem segist vilja valddreifingu, tvöfaldaði emb-
ætti sín um daginn, þegar hann var kosinn forseti, án
umræðu á klukkustundar fundi, með 1.500 atkvæðum
gegn engu. Þetta er eins og hjá Stahn í gamla daga.
Hin „rússneska kosning“ Gorbatsjovs í embætti for-
seta varpar þó dulu á þá staðreynd, að hans bíður lang-
vinnur skotgrafahernaður gegn valdamiklum óvinum.
Jónas Kristjánsson
Þjóðarrígur ofan
á neyðarástand
í Júgóslavíu
Aður en Josip Tító féll frá 1980
beitti hann sér fyrir að setja Júgó-
slavíu stjórnskipan sem átti að
vera sniðin til að halda saman sam-
bandslýðveldi margra mismunandi
þjóöa. Meginatriði stjórnkerfisins
er tið mannaskipti í æðstu valda-
stofnunum þar sem fulltrúar sam-
bandslýöveldanna skiptast á að
gegna störfum forsætisráðherra
sambandsstjórnar og foringja í
valdaflokknum, Kommúnista-
bandalagi Júgóslavíu.
Þetta valdakerfi hefur reynst
herfilega. Miðstjórn ríkisins í
Belgrad hefur verið veik og stefnu-
mörkun hennar ómarkviss og van-
burða. Af hörðum efnahagsþreng-
ingum og þjóöernaríg er sprottin
kreppa í málefnum Júgóslavíu.
Þeir sem dýpst taka í árinni segja
að hún sé svo alvarleg að innan-
landsfriður og sjálf tilvera sam-
bandslýöveldisins séu í hættu.
Ástæða þess að nú keyrir um þver-
bak er að upp er risinn með fjöl-
mennustu þjóð Júgóslavíu, Serb-
um, stjórnmálaforingi sem gerir sig
liklegan til að notfæra sér ástandið
til að auka sem mest veg Serba og
eigin völd.
Slobodan Milosevic, foringi
Kommúnistabandalags lýðveldis-
ins Serbíu, hefur sett sér tvö mark-
mið. Annað er að koma undir beina
stjóm Serba tveim sjálfsstjórnar-
svæðum, sem að verulegu leyti er
byggð fólki af öðrum þjóðernum
og trúarbrögðum. Hitt er aö koma
til leiðar víðtækum mannaskiptum
eftir sínu höfði í æðstu stofnunum
Kommúnistabandalags Júgóslav-
íu, miðstjórninni og forsætisnefnd
hennar. Gert er ráð fyrir aö þau
eigi sér stað á fundi á mánudag.
Serbar eru rúmur þriðjungur af
23 milljónum íbúa Júgóslavíu.
Meðal þeirra hefur á undanfórnum
mánuðum veriö efnt til íjöldafunda
að undirlagi Milosevic þar sem
gerður hefur verið aðsúgur að
stjórnvöldum sem hann hefur talið
standa í vegi fyrir áformum sínum.
Á oddinn er sett krafan um stór-
aukin völd stjórnar lýðveldisins
Serbíu yfir sjálfsstjórnarsvæðun-
um Vojvodina norðan Dónár og
Kosovo í fjalllendinu viö landa-
mæri Albaníu. Vojvodina er aö
meirihluta byggð Serbum en þar á
líka heima fjölmennt þjóöarbrot
Ungverja sem eru rómverskka-
þólskrar trúar. í Kosovo eru aftur
á móti Albanir í miklum meiri-
hluta, 1,7 niilljónir á móti 200.000
af serbnesku og öðru slavnesku
þjóðerni.
Arið 1981 kom til mannskæðra
átaka milli þjóðarbrota í Kosovo
og reri þar undir aðskilnaðarhreyf-
ing sem vill sameina héraðið Al-
baníu. Viöbrögð þáverandi yfir-
valda í Belgrad voru aö auka mjög
fjárframlög til framkvæmda í
Kosovo, sem er fátækasta svæði
Júgóslavíu, og leiða fólk af al-
bönsku þjóðerni til aukinna áhrifa.
Albanir eru múslimar en Serbar
og aörir slavar á þessum slóðum
játa orþódoxa kristni.
Erlend tíöindi
Magnús Torfi Ólafsson
Milosevic og skoðanabræður
hans í Serbíu saka yfirvöld í
Kosovo um að hafa eytt fjármun-
um, sem þeim voru fengnir í hend-
ur, í fjárdrátt og vitleysu. Bent er
á að í höfuöstaðnum Pristina úir
og grúir af betlurum á strætum
innan um tómar og hrörnandi
byggingar sem verða skyldu
bankahalhr eða glæsihótel.
Mestri úlfúö veldur þó að Albanir
í Kosovo eru sakaðií um að neyta
fjölda síns til ofsókna gegn slövum
í því skyni að hrekja þá á brott úr
héraðinu svo það verði með tíð og
tíma hreinalbanskt. Sögur ganga
af nauögunum, drápi búpenings og
brennum. Er því haldið fram að
síöustu ár hafi 30.000 manns af
slavneskum þjóðernum, þaö er að
segja Serbar og Svartfellingar, flúið
Kosovo undan ofsóknum Albana.
Erjur þjóðerna eru ærið efni í
hættuástand í Balkanlandi en í
Júgóslavíu bætíst við ófremdar-
ástand í efnahagsmálum. Meðán
vestrænir bankar voru að koma
.innlánum olíufursta í lóg á síðasta
áratug voru þeir örlátir á lán við
Júgóslavíu eins og fleiri ríki á sömu
slóöum án þess að gera sér rellu
af hvort fjármagnið væri í raun lík-
legt til að skila aröi til frambúðar.
Júgóslavía skuldar nú erlendum
lánardrottnum 21 milljarð Banda-
ríkjadollara og á í greiðslukrögg-
um. Iðnfyrirtækin, sem áttu að
standa undir skuldabyrðinni, reyn-
ast ósamkeppnisfær á heimsmark-
aði.
Ríkisstjórn sambandsríkisins,
undir forsæti Branko Mikulic,
greip til strangra aöhaldsaðgerða í
maí í vor til að greiða fyrir sam-
komulagi við Alþjóða gjaldeyris-
sjóöinn og aöra lánardrottna um
skuldbreytingu. Verðlag, innflutn-
ingur og skráning á gengi dínarsins
voru gefin frjáls en hömlur lagðar
á kaupgjald og opinber útgjöld. Af
hefur hlotist aukið atvinnuleysi og
verðbólgualda, úr 147% í maí upp
í 217% í september. Hafa þá lífskjör
versnað um helming í Júgóslavíu
síðustu átta árin.
Afleiðingin er ókyrrð á vinnu-
markaði, komið hefur til 800 verk-
faha í ár. Fellur óánægja alþýðu
manna með versnandi iífskjör
saman við þjóðernisólguna út af
ástandi í Kosovo. í síðustu viku
settist manngrúi um aðsetur
flokksforystunnar í Novi Sad, höf-
uðstað Vojvodina, og létti ekki fyrr
en hún sagði öll af sér. Var þar
með rutt úr vegi einni hindrun fyr-
ir áformi Milosevics að sölsa sjálfs-
stjórnarsvæðin undir Serbíu.
Síðar í vikunni var sömu aðferö
beitt í Títógrad, höfuðstaö Svart-
fjallalands. Mannfjöldi gerði aðsúg
að stjórn þess lýðveldis sem ekki
hefur viljað taka undir kröfur
flokksforingjans í Serbíu þótt
Svartfellingar í Kosovo kvarti yflr
að sæta sömu kárínum og Serbar
þar um slóðir af hálfu Albana. í
Títógrad varð endirinn sá sami og
í Novi Sad, afsögn valdhafa sem
stóðu í vegi fyrir áformi Milosevics.
í vestustu rómverskkaþólsku
lýðveldunum, Slóveniu og Króatíu,
er hagsæld mun meiri en á svæði
Serba og þar hafa menn illan bifur
á valdabrölti serbneska flokksfor-
ingjans og þeirri aðferö hans að
beita fyrir sig æstum lýð. í ræðu á
miðvikudag sagði flokksforinginn
í Slóveníu að kominn væri tími til
að rynni af þeim sem væru í vímu
þjóðernisderrings áður en verra
hlytist af. Stöðva yrði þá sem not-
uöu sér bágindi fólks til að tefla
framtíð Júgóslavíu í hættu.
Áður hafði Stanislav Marinkovic,
ritstjóri Borba, aðalmálgagns
Kommúnistabandalags Júgóslav-
íu, látið svo um mælt að fjöldafund-
irnir minntu fólk á hörmungar hð-
inna tíma þegar þjóðir Júgóslavíu
böröust innbyrðis. „Fái þessi fyrir-
bæri að dafna' geta afleiðingamar
fyrir landið orðið ískyggilegar.
Sumt fólk er farið aö óttast borg-
arastyrjöld,“ sagði ritstjórinn.
Til úrslita hlýtur að draga á mið-
stjórnarfundinum sem boðaður
hefur verið á mánudag. Þar verður
fyrirsjáanlega skipt um menn í
miklum hluta af forustustöðum
Kommúnistabandalags Júgóslav-
íu. Gert er fyrirfram ráð fyrir að
aht aö þriöjungur 165 miðstjómar-
manna verði látinn víkja úr sæti.
Mestu varðar þó hvað gerist í for-
sætisnefndinni, framkvæmdaaðha
flokksins. Ráðgert er að breytt mið-
stjóm greiði atkvæði um hvern um
sig af 25 forsætisnefndarmönnum.
Haldi enginn sæti í forsætisnefnd-
inni nema hann fái yfir tvo þriðju
atkvæða miöstjómarmanna.
Milosevic skipulagði atlögur
múgsins að flokksstofnunum í Voj-
vodina og Svartfjallalandi til að
reyna að tryggja sér og banda-
mönnum sínum undirtökin á þess-
um fundi.
Serbneskir þjóðernissinnar með kröfuspjöld og mynd af Vuk Karadsic
sem geröi þjóðinni nútímalegt ritmál á siðustu öld. Áhrifin af burði ikóna-
mynda í skrúðgöngum orþódoxu kirkjunnar ieyna sér ekki.