Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Side 21
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
21
Kvikmyndir
Smáfréttir
Hörð mótmæli hafa fylgt sýningum
á The Last Temptation of Christ hvar
sem hún hefur verið sýnd. Fréttir
um óeirðir hafa borist frá Bandaríkj-
unum, Kanada, Bretlandi og Ástralíu
og nú síðast frá Frakklandi þar sem
mótmælin hafa verið hörðust. Þrett-
án lögreglumenn særðust þegar hóp-
ar rómversk-kaþólskra manna
gengu um götur Parísar og höfðu
með sér mólótofkokkteila sem hent
var í lögreglu. Vegfarendur máttu
hafa sig alla við að flýja hina æstu
kaþólikka. Sams konar fréttir bárust
frá Lyons og Marseille. Prestar, sem
höfðu orð fyrir mótmælendum, voru
óragir að fordæma myndina í viður-
vist blaöamanna en eins og svo
margfr aðrir mótmælendur höfðu
þeir að sjálfsögðu ekki séð hana. Þess
má geta að Laugarásbíó mun sýna
The Last Temptation of Christ þegar
sýningmn á í skugga hrafnsins lýk-
ur.
★ ★ ★
James Caan, sem átti ágæta endur-
komu í kvikmynd Francis Coppola,
Gardens of Stone, er nýbyrjaður að
leika í Ahen Nation og hlutverkið er
lögreglumaður sem þykir kaldur og
ákveðinn. Þetta er framtíðarmynd
og gerist í nánustu framtíð. Félagi
hans hefur verið myrtur af nýju kyni
manna sem hefur verið búið til af
mannlegum verum. Eitthvað hefur
farið úrskeiðis og verður að grípa til
skjótra aðgerða. í fljótu bragöi
minnir söguþráðurinn á Blade
Runner. Mótieikarar Caans eru Ter-
ence Stamp og Mandy Patkinkin.
★ ★ ★
Sá ágæti leikstjóri Martin Ritt er
sjaldan aðgerðalaus. Hann hefur nú
fengið til hðs við sig tvær af skær-
ustu stjömum kvikmyndanna, Jane
Fonda og Robert De Niro, til að leika
í Union Street og eru tökur hafnar í
Kanada. Fonda leikur ekkju sem tek-
ur að sér að kenna fullorðnum manni
aðlesaogskrifa.
★ ★ ★
Albert Finney hefur þegið boð Bry-
ans Forbes um að leika aðalhlutverk-
ið í The Endless Game sem Forbes
leikstýrir og gerir handrit eftir eigin
skáldsögu. George Segal, Ian Holm,
Anthony Quayle, Jenny Linden og
Nenette Newman em meðal annarra
leikara.
★ ★ ★
Tuttugu ár em nú hðin frá því Wood-
stock var gerð. Leikstjórinn Michael
Wadleigh leikstýrði myndinni og er
nú að gera The Vihage at the End
of Universe sem fjallar um fólkið sem
stóð að hátíðinni og atburði er leiddu
til að hún var haldin.
Phil Collins þykir fara á kostum i
hlutverki lestarræningjans Busters
Edwards.
Buster:
Einn af lestarraehingjunum
Með lestarráninu fræga 8. ágúst 1963,
rétt fyrir dögun, skrifuðu fimmtán
smákrimmar kafla í söguna og urðu
forsíðuefni blaða um ahan heim þeg;
ar þeir frömdu „glæp aldarinnar". Á
fáum tímum frömdu þeir eitt djar-
fasta og árangursríkasta rán sem
sögur fara af.
I vel heppnaðri aðgerð höfðu þjóf-
amir á brott með sér 2,6 milljónir
punda sem í dag jafngildir yfir 19
mihjónum punda.
Einn í fimmtán manna hópnum var
Buster Edwards, lítill smákrimmi
sem talar með cockney-hreim og sel-
ur núna blóm fyrir utan Waterloo
járnbrautarstöðina. 1963 var hann,
sem fyrr segir, einn af ræningjunum.
Meðan lögreglan var að hirða ræn-
ingjana hvern á fætur öörum og
dæma þá í aht að þrjátíu ára fangelsi
slapp Buster ásamt félaga sínum,
Bruce Reynolds.
Með June eiginkonu sinni og ungri
dóttur flúði hann th Acapulco og
lifðu þau um skeiö í vehystingum.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Acapulco átti samt ekki við þau, sérs-
taklega var June pirruö og saknaði
London mikið. Að endingu flutti hún
ásamt dóttur þeirra til Englands.
Fyrir Buster var líf án eiginkonu og
dóttur ekkert líf og hann tók því þá
ákvörðun að snúa aftur th Englands
og taka afleiöingum gerða sinna.
Hann var að sjálfsögðu handtekinn
við komuna og var dæmdur th
fimmtán ára fangelsisvistar. Hann
þurfti þó aðeins að vera níu ár innan
múranna, fékk vægari dóm en flestir
félagar hans.
Leikstjórann David Green hafði
lengi langað th að kvikmynda ævi
Busters Edwards og hafði mikinn
hug á að ráða Phil Cohins í hlutverk-
ið en var hikandi enda Collins popp-
stjarna en ekki leikari.
Það var ekki fyrr en hann sá hann
í gestahlutverki í Miami Vice að
hann var öruggur um að þetta væri
rétt ákvörðun. Hann þarf heldur ekki
að iðrast þeirrar ákvörðunar því
Colhns slær eftirminnhega í gegn og
virðist þessum hæfileikamikla
manni ekkert vera ómögulegt á hsta-
sviðinu. Hin góða frammistaða Julie
Walters kemur minna á óvart. Hún
sló eftirminnhega í gegn í Educating
Rita og þótt ekki hafi farið mikið fyr-
ir henni síðan er þar á ferðinni góð
leikkona.
í hehd þykir Buster vel gerð kvik-'
mynd, skemmtheg og spennandi.
Sumum hefur fundist óviðeigandi að
gera úr alvörusakamanni hálfghd-
ings hetju sem áhorfendum hkar við
frá byrjun, en þær raddir heyrast
aðeins hjá íhaldssömum Bretum.
Almenningur kann svo sannarlega
að meta þessa ágætu skemmtun.
-HK
habitat,
LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK, S. 91-625870.
Vönduð og falleg
gjáfavara í eldhúsið.
Hringið og pantið
vörulista Habitat 1988.
Póstverslun
um land allt.
91-625870
eldhúsið
VISA
EURQCARD
Vínglös - kristall, verd frá kr. 150.
Ofnpottur, leir, f/kjúklinga o.fl., kr. 585.
24 st. hnífapör m/upphengi, kr. 1.960.
MUNID AFSLATTARKORTID
SEM VEITIR VIÐSKIPTAVINUM
HABITAT GÓÐAN AFSlATTI
Teflon álpönnur, veró frá kr. 680.
Sósuhitari, leir, kr. 695. BARTON matar- og
kaffistell, dæmi: 6 manna (30 stk.) kr. 9.306.
STÖBIN SEM HLUSTMD SR 'R /
...29 TOPPNUMi
Ók>f María Úlfarsdóttir
■■
á laugardögum frá 16-18. Ölöf María feryfir stöðu 40 vinsælustu
laga landsins í hverri viku. Hér er ekki þurr upptalning á númerum
heldur margþætturfróðleikur um listamennina sem flytja lögin. Hlust-
endum íslenska listans er þoðið I ævintýraferð um tónlistarheiminn
á laugardögum.