Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Side 24
24
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Sæl og blessuð!... Sovétrikin
eiu að poppast upp smámsam-
an, ekki nóg með að vestrænir
popparar séu famir að vera
daglegir gestir austan við tjald
og sovéskir popparar vestan við
tjald. heldur er sovéskt popp-
timarit farið að birta banda-
ríska Billboard vinsaaldalist-
ann!... Bandaríska hljómsveitin
The Beastie Boys hefur yfirgefið
hljómplötufyrirtækiö Def Jam
Records og eru liðsmenn hljóm-
sveitarinnar byrjaðir að endur-
virma plötu sem þeir voru með
i vinnslu hjá fyrirtækinu. Def
Jam er dótturfyrirtæki CBS
hl jómplötufyrirtækisins og þar
á bæ segja menn að Beastie
Boys séu með þessu uppátæki
að stefna framtið sinni í voða
því langvinn málaferli séu i
uppsiglingu... Á næstunni kem-
ur út tvöfalt plötualbúm þar
sem ýmsir heimsfrægir lista-
menn leggja sitt af mörkum til
minningar um bandariska þjóð-
lagasöngvarann Woodie Gut-
hrie. Meðal stómafna á þessum
plötum má nefna U2. Bruce
Springsteen og Bob Dylan...
Breska tríóið Bros hefur höfðað
mál á hendur blaðinu The
Sunday People fyrir að bendla
hljómsveitina við glæpsamlegt
athæfi. Málavextir em þeir að
í sömu ibúðarblokk og einn
Bros bræðra býr komst upp
eiturlyfjasala. The Sunday Pe-
ople blés málið upp og fór ekk-
ert í launkofa með hver væri
nágranni dópsalans. Og til þess
að allir lesendur gætu betur
gert sér grein fyrir þessu öllu
var birt mynd af húsinu þar sem
ibúðir eitursalans og popparans
vom rækilega merktar... Hum-
an
League. sem eitt sinn sótti
okkur heim, er nú vöknuð til
lífsins eina ferðina enn. Ný
smáskifa er væntanleg frá
sveitinni með laginu Love Is
All That Matters.... Forsöngv-
ari irsku þjóðiagaponkaranna
The Pogues. Shane McGowan,
var lagður inn á spítala á
dögunum vegna taugaálags...
Gömlu brýnin i Greatful Dead
enduðu á dögunum mikla tón-
leikaröð i Madison Square
Garden i New York. Undir lok
niundu og siðustu tónleikanna
birtist mikill stjörnufans á
sviðinu og tók lagið með Jerry
Garcia og félögum. Mátti þar
sjá Hall & Oates, Suzanne
Vega og Bruce Hornsby & The
Range svo einhverjir séu
nefndir... bless...
-SþS-
Popp
DV
Frá Auchtermuchty til Leith
Það er ekki greindarlegri ásjónu fyr-
ir að fara hjá þeim bræðrum Craig
og Charlie Reid í Proclaimers en á
bak við hnausþykk gleraugu pilt-
anna býr hæfileiki sem þeir hafa tek-
ið inn með móðurmjólkinni og þróað
svo eftir þeim var tekið. Söngur og
hljóðfærasláttur fórst þeim betur úr
hendi en öðrum tvíburum í Auch-
termuchty og í lok árs 1986 var einum
aðdáanda bræðranna farið að leiðast
þófið. Honum fannst hlédrægni pilt-
anna helst til mikil þannig að hann
tók af skarið sjálfur og sendi Paul
Heaton, söngvara Housemartins,
hráa demoupptöku með tvíeykinu.
Þar með má segja að frægðarsól
dúettsins hafi kviknað því Paul bauð
bræðrunum að hita upp fyrir
Housemartins í stórum Bretlandstúr
í upphafi árs 1987. í kjölfarið var
þeim boðið að koma fram í sjón-
varpsþættinum Tube auk þess að
vera hampað í bresku tónlistarblöð-
unum.
This Is the Story
Vorið 1987 sendi Proclaimers frá
sér lagið Throw the ’R’ away, smell-
inn brag sem oft heyrðist á öldum
ljósvakans hér á landi þá um sumar-
ið. í kjölfarið fylgdi fyrsta breiðskífa
þeirra Reidbraeðra, This Is the Story.
Tónhstin var hressilegt kassagítar-
rokk, raddsett snilldarlega á einlæg-
an en húmorískan hátt. Fleiri hljóð-
færi en raddir og gítarar voru ekki
notuð á plötunni, sem endurspeglar
styrk tónlistar og flytjenda. Af lögum
This Is the Story bar mest á Letter
from America, sterkum ádeilubrag á
stjórn efnahagsmála í Skotlandi sem
vakti athygli á landflótta atvinnu-
leysingjum. Lagið varð á tímabih í
vetur almennur baráttusöngur lág-
stéttanna í Skotlandi og mikið sungið
á fótboltavöllum landsins.
Leith
Nýja plata Proclaimers, Sunshine
on Leith, er einkum óhk hinni fyrri
hvað hljóðfæraskipan áhrærir.
Trommur og ýmis hljóðfæri, sem
hægt er að stinga í samband við raf-
magn, eru notuð á nýju plötunni en
voru bræðrunum framandi og fjar-
læg á This Is the Story.
Lögin eru engu að síður gædd sama
ferskleika og áður, laglínur léttar og
skemmtílegar. Sunshine on Leith er
í hehd aðgengilegri en frumburður-
inn án þess að vera léttvæg og text-
arnir eru fjölbreyttari en áöur. Smá-
skífulagið I’m Gonna Be er t.d. ástar-
söngur með gamla laginu og lagið
Sean er theinkað ungum syni
Charlie. Hefur texti þess lags yfir sér
föðurlegt yfirbragð þar sem ekki eru
hafðar neinar vöflur á hlutunum,
heldur strax imprað á helstu stað-
reyndum lífsins: „The best one came
from Tupelo, Mississippi, I’ll teh you
now...“
Bræðurnir Craig og Charlie Reid í Proclaimers.
U2: Rattle and Hum
Frá árinu 1983 hefur það ávallt tahst
th tíðinda þegar rokkrisar 9. áratug-
arins, hljómsveitin U2 sendir frá sér
plötu. í vikunni var 6. stúdíoplata
hljómsveitarinnar gefin út og sú
fyrsta tvöfalda sem U2 lætur frá sér
fara.
Plötumar tvær (einn diskur) inni-
halda 72 mínútur af tónhst sem deh-
ist niður á 17 lög. Hér er ekki ætlun-
in aö setjast í Lögréttu og dæma grip-
inn heldur aðeins að renna yfir laga-
hsta Rattle and Hum og láta smá-
væghegar staðreyndir faha um hvert
lag plötunnar. Vonandi verður þetta
U2 aðdáendum th ánægju og yndis-
auka er þeir fá tónhst plötunnar í
eyru í fyrsta sinn.
Helter Skelter: Útgáfa U2 á þessum
Bítla-klassíker Lennons og McCart-
ney’s, hljóðritað í Denver síðasthð-
inn vetur.
Van Diemen’s Land: Eitt hinna
nýju U2 lága. Textinn eftir gítarleik-
arann The Edge sem einnig syngur
lagið. Theinkað írska skáldinu John
Boyle O’Rehly.
Desire: Nýtt lag og fyrsta smáskífu-
lag Rattle and Hum. Fór á topp
breska hstans strax í aqnarri viku,
en féh í annað sætið í þessari viku.
Hljóðritað í heimaborg hljómsveitar-
innar fyrr á árinu.
Hawkmoon 269: Nýtt U2 lag, hljóð-
ritað í Los Angeles. Bob Dylan pump-
ar aldinn Hammond garm í laginu.
Ah along the Watchtower: Utgáfa
U2 á þessu gamla Dylan klassíker.
Hljóðritað á Save the Yuppie tónleik-
unum í San Francisco 8. nóv. í fyrra.
I Sthl Have n’t Found ... : Gospel
útgáfa lagsins þar sem ýmsir gesta-
söngvarar stigu á sviö með U2 í Madi-
son Square Garden.
Freedom for my People: U2 kemur
ekkert nálægt þessu lagi. Þetta er 38
sek. verk tveggja götumúsíkanta frá
New York.
Shver and Gold: Bono samdi þetta
lag upphaflega fyrir Sun City plötuna
góðkunnu. Hljóðritað á tónleikum í
Colorado.
Pride: Þetta er orðið klassískt U2
lag. Hér í hljómleikaútgáfu.
Angel of Harlem: Nýtt U2 lag, hljóð-
ritaö í hinu fræga Sun stúdíói í
Memphis. Einkar óvenjulegt af U2
að vera, „soul“ andi svífur yfir vötn-
um, espaður af brass-bandi.
„Love Rescue Me: Nýtt U2 lag, sam-
ið í félagi við Bob Dylan sem og syng-
ur bakrödd.
When Love Comes to Town: Hressi-
legur blúsari þar sem B.B. King og
Bono fara á kostum.
Heartland: Nýtt frá U2. Brian Eno
heiðrar hljómsveitin með nærveru
sinni. Hann leikur á hljómborð.
God Part 11: Nýtt lag, hljóðritaö í
Los Angeles.
* The Star Sprangled Banner: Útgáfa
Jimi Hendrix á bandaríska þjóð-
söngnum. U2 notaði þennan stúf sem
forleik að Bullet the Blue Sky á tón-
leikum.
All I Want Is You: Nýtt frá U2.
Benmont Tench úr Hjartarbrjótum
Tom Pettys er á hljómborði í þessu
lagi.
Um útsetningar á Rattle and Hum
sá hinn frægi Jimmy Iovine og vekja
athygli htil afskipti Brian’s Eno.af
gerð hennar. Hvað um það Para-
mount Pictures frumsýna sam-
nefnda mynd um U2 seinna í þessum
mánuði og verður fróðlegt að sjá
hversu fljótt hún berst hingaö til
lands.
/