Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Page 30
46
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Nunn fór í smiðju til Tals
- og Portisch tapaði tveimur skákum eins
Nú fer að síga á seinni hluta
heimsbikarmóts Stöðvar 2 í Borg-
arleikhúsinu og þá er hætt við að
leikurinn fari enn að æsast. Heims-
meistarinn, Garrí Kasparov, sem
flestir spáðu auðveldum sigri, hef-
ur ekki náð að sýna sitt rétta and-
lit og enginn stórmeistaranna hef-
ur náð öruggri forystu. Er átta
umferðir höfðu verið tefldar var
ógjömingur að spá um úrslit.
Stórmeistarajafnteflin hvim-
leiðu, sem eru óviðráðanlegir fylgi-
fiskar svo sterka móta, hafa verið
með minnsta móti. Hugsanlega
mun þeim fjölga eitthvað er líða
tekur á mótið og sumir meistar-
anna taka að þreytast. Aörir munu
reyna að sækja í sig veðrið. Einkum
þeir sem tefla um efstu sætin og svo
hinir sem óttast að missa skákstig-
in sín. Fram að þessu hafa áhorf-
endur svo sannarlega átt góðar
stundir. Jóhann teflir allra manna
skemmtilegast en Tal og Kasparov
eru næstvinsælastir.
Tíunda umferð, sem hefst í dag
kl. 17, býður upp á margar
skemmtilegar. skákir. Jóhann og
Margeir eiga í höggi við tvo fyrr-
verandi heimsmeistara. Jóhann
teflir með svörtu gegn Spassky og
Margeir hefur hvítt gegn fléttu-
meistaranum Tal. Þriðja skákin
sem vekur athygli er skák
Kortsnojs, sem hefur hvitt, og Ka-
sparovs. Er þeir mætast við skák-
borðið er jafnan allt lagt undir á
báða bóga.
Þá hefur sókndjarfi Eistlending-
urinn Ehlvest hvítt á Andersson
sem hann mátaði í 18 leikjum á
heimsbikarmótinu í Belfort, Timm-
an hefur hvítt gegn Ribli, Beljavsky
hvítt á Portisch, Sax hefur hvítt
gegn Speelman, Nunn hvítt á So-
kolov og Nikolic hvitt á Jusupov.
Ellefta umferð verður tefld á
sunnudag og þá mæta Jóhann og
Margeir sovésku stórmeisturunum
Beljavsky og Jusupov. Jóhann
stýrir hvítu mönnunum gegn
Beijavsky en Margeir hefur svart á
Jusupov. Viðureign stórreykinga-
mannanna, Tals og Kortsnojs, gæti
þó orðið skák kvöldsins, þ.e.a.s ef
eitthvað sést á skákborðið fyrir
reyk. Margir minnast fallegrar
fléttuskákar Tals gegn Kortsnoj á
IBM-mótinu í Reykjavík í fyrra.
Þess má geta til gamans að í 18
manna keppendahópi reykja þeir
einir.
Önnur skák á sunnudag sem
gæti orðið fjörug er milli heims-
meistarans Kasparovs og stærð-
ffæðidoktorsins Nunn. Þá teflir
Sokolov við Spassky, Portisch við
Timman, Speelman við Ehlvest og
Andersson við Nikolic. Það er hins
vegar vafamál hvort telja á skákina
Ribh - Sax með. Ég spái ung-
verskri hraðsuðu í 14 leikjum.
Tólfta og þrettánda umferð verða
tefldar á mánudag og þriðjudag og
hefjast kl. 17 að vanda en á mið-
vikudag verða einungis tefldar bið-
skákir. Síðan er teflt á fimmtudag,
fóstudag og laugardag; bioskákir
verða sunnudaginn 23. og lokaum-
ferð mótsins verður tefld mánudag-
inn 24. október.
Portisch leikinn grátt
Fáir stórmeistarar eru eins lærðir
í skákfræðum og Ungverjinn Lajos
Portisch. Sagnir herma að hann
sitji yfir taflborðinu a.m.k. í átta
stundir á dag og jafnvel lengur. Þau
afbrigði, sem þannig verða til, eru
hér uppi á Fróni gjaman nefnd
„eldhúsborðsafbrigði". Það er því
ekki að ósekju að Páll Magnússon
á Stöð 2 skuli kenna Ungveijana
þijá sem hér tefla við „ungverska
eldhúsið".
Stundum er Portisch líkt við fyrr-
verandi heimsmeistara, Mikhail
Botvinnik. Skákstíll þeirra er
áþekkur og vinnubrögðin álika
kerfisbundin. Ekki þótti Botvinnik
sérlega líflegur maður. í nýlegu
viðtali í hollenska skáktímaritinu
„New in Chess“ sagðist hann aldrei
hafa teflt skák sér til ánægju. Síð-
ast tefldi Botvinnik hraðskák árið
1929 í lest á leið á skákmót. Slegiö
var upp íjögurra manna hraðskák-
móti og fylgdi sögu Botvinniks að
hann hefði orðið hlutskarpastur.
Hann er nú 77 ára gamall - kominn
á raupsaldurinn.
Mörgum þykir Portisch einnig
fremur þurr á manninn en undir
yfirborðinu leynist listamaðurinn.
Þannig kom hann rækilega á óvart
í lokahófi IBM-skákmótsins í fyrra
er hann söng eina aríu, gestum til
óblandinnar ánægju. Hann er
söngmaður mikill, hefur djúpa og
sterka rödd. Stundum talar hann
um það að hann hefði frekar átt að
leggja sönglistina fyrir sig en skák-
ina.
Skák
Jón L. Árnason
Portisch var næstum hættur við
þátttöku á heimsbikarmótinu.
Hann tapaði þremur síðustu skák-
um sínum í Tilburg, rétt fyrir
heimsbikarmótið, og kvartaði yfir
lasleika. Kannski tekur hann mótið
ekki sérlega alvarlega. Á fyrstu
dögunum fékk hann fullan kassa
af videospólum upp á herbergi. Svo
má vera að ætlunin hafl verið að
hafa ofan af fyrir konunni á meðan
hann fæst við skákrannsóknir.
Portisch teflir gjaman ævafomt
afbrigði af spænska leiknum frá
dögum kolaeldavéla. Þetta afbrigði
er kennt við fyrsta heimsmeistar-
ann, Wilhelm Steinitz, en Emanuel
Lasker og Capablanca héldu einnig
tryggð við það. Svartur fær trausta
stöðu en óvirka og af þeim sökum
er afbrigðið nánast horíið af sjónar-
sviðinu. Nú vilja flestir eignast
virkari stöður með gagnsóknar-
möguleikum.
Þetta afbrigði var leynivopn Port-
isch í einvígi við Nunn í fyrra um
réttinn til að tefla í Saint John.
Portisch fékk 1,5 vinninga af tveim-
ur í afbrigðinu sem nægði til að
sigra í einvíginu.
Stund hefndarinnar var rannin
upp sl. miðvikudag. Nunn haföi þá
hvítt gegn Portisch og Steinitzaf-
brigðið var enn á dagskrá. Að þessu
sinni var Nunn betur með á nótun-
um. Hann þurfti svo sem ekki mik-
ið að hafa fyrir hlutunum sjálfur
því að Mikhail Tal var búinn að
sýna honum hvemig ætti að bijóta
vöm svarts á bak aftur. Skákir
Nunns og Tals gegn Portisch em
keimlíkar eins og sjá má hér á eft-
ir. Skyldi Portisch nú leggja af-
brigðið til hliðar eða freista gæf-
unnar í þriðja sinn?
Hvitt: Mikhail Tal
Svart: Lajos Portisch
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rffi
Steinitz lék oftast 3. - d6 strax en
leikjaröðin skiptir ekki öllu máli.
Hins vegar er leikiu* Portisch
nefndur Berlínarvöm ef svartur
drepur í næsta leik á e4 með ridd-
ara. Þannig tefldi Portisch reyndar
gegn Tal á fyrsta heimsbikarmót-
inu - hélt jafntefli eftir miklar
brengingar.
4. 0-0 Be7 5. Hel d6 6. d4 exd4 7.
Bxc6+ bxc6 8. Dxd4!?
Harla óvenjulegur leikur en það
mætti segja mér að hann ætti eftir
að verða vinsæll. Lög gera ráð fyr-
ir að hvítur drepi með riddara og
þá leikur svartur 8. - Bd7 en þann-
ig tefldust einvígisskákir Nunn og
Portisch.
8. - 0-0 9. Rc3 Bg4 10. Dd3 Bxf3
Portisch fækkar valdsmönnum
hvíts yfir e5-reitnum og reynir að
létta á stöðu sinni um leið. Á hinn
bóginn spfiar hann út einu helsta
trompi stöðunnar, biskupaparinu.
Ef dæma má af þessum tveimur
skákum nægir þessi áætlun ekki
tfi tafljöfnunar.
11. Dxf3 Rd7 12. b3 Bf6 13. Ba3 He8
14. Hadl He6 15. Re2 Be5 16. Dd3 c5
17. f4 Bffi 18. e5!
Lykfileikur í áætlun hvíts. Jafnvel
þótt þessi framrás kostaði peð væri
hún reynandi því að peðakeðja
svarts á drottningarvæng myndi
slitna í sundur. í þessu tilviki er
þó ekkert peðstap í sjónmáli. Svar-
ið við 18. - dxe5? yrði auðvitað 19.
Dxd7 og maður fyrir borð.
18. - Bh4 19. Hfl Be7 20. Bb2
Tal stefnir nú mönnum sínum yfir
á kóngsvænginn. Svartur virðist
ekki hafa nokkur tök á að losa um
sig.
20. - Bf8 21. Rg3 Db8 22. Re4 Db6 23.
c4 Be7 24. Hf3
ABCDE FGH
Stöðumyndin segir meira en
nokkur orð um yfirburði hvíts.
Svartur er í hræðfiegri klemmu.
24. - Hd8 25. exd6 Bxd6
Eftir 25. - cxd6 verður svartur að
reikna með 26. Hh3 og 27. Hxh7,27.
Rg5 og 27. f5 eru alvarlegar hótanir.
26. Rg5 Hg6 27. Df5 Rf6
Um annað er ekki aö velja. En nú
riðlaðst kóngsstaðan og hrókurinn
lokast inni á g6.
28. Bxf6 gxf6 29. Re4 Kg7 30. Hg3!
Be7 31. Hxd8 Bxd8 32. Hd3 Da5 33.
Hd2 Be7.34. h4 h5
Örvænting í tapaðri stöðu. Svarið
við 34. - Hg3 gæti t.d. verið 35. Kf2
og hrókurinn yrði að hrökklast til
baka.
35. Dxh5 f5 36. Dxf5 Bxh4 37. De5+
Bf6 38. Rxf6! Hxf6 39. Hg3 Db6 40. f5
Og Portisch gafst upp, enda getur
hann hvorki hreyft legg né lið.
Hvítt: John Nunn
Svart: Lajos Portisch
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
d6
Nú teflir Portisch Steinitz-afbrigðið
í eflítið breyttri mynd. Þetta hefur
veriö nefnt „endurbætt útgáfa af
Steinitz-vöm“ en endurbótin felst
ekki í öðm en því að svart peð er
ÓL í Feneyjum:
Von um sæti í úrslitum í opna flokknum
Góðar fréttir berast um þessar
mundir frá ólympíumótinu á Ítalíu
þar sem landslið okkar etja kappi við
allar bestu bridgeþjóðir heimsins.
Þegar þetta er skrifað er landslið
okkar í opna flokknum að blanda sér
í baráttuna um hin fjögur eftirsóttu
sæti í úrslitakeppninni. Hér skal-
engu spáð hvort það tekst en strák-
amir hafa staðið sig með sóma það
sem af er.
Danska landsliðið er einnig í bar-
áttunni eftir að hafa fengið fljúgandi
start fyrsta daginn þegar því tókst
að leggja að velli bæði ítali og Breta
og tapa síðan naumlega fyrir Brasil-
íumönnum. Þeir unnu ítali, 25-3,
Breta, 20-10, og töpuðu 12-18 fyrir
Brössunum. Góður dagur það.
Hér er góð alslemma sem Danir
tóku gegn Bretum.
A/Allir.
♦ Á
V K10987
♦ K7
♦ D10763
* KD108643
V 432
♦ 85
+ G
* G95
¥ 5
♦ DG10964
+ 942
V ÁDG6
♦ Á32
+ ÁK85
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Með Danina Villy Dam og Ame Mohr
í n-s gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass 1L 1S 2H
pass 4T pass 4G
pass 5S pass 5G
pass 6L pass 6T
pass 7H pass pass
pass
Fjögurra tígla sögnin sýndi tígul-
fyrirstöðu og hjartastuðning, fiögur
Bridgefelag Reykjavíkur
Nú er 29 umferðum lokið af 43 í
barómeterkeppni Bridgefélags
Reykjavíkur og staöa efstu manna
er þannig.
1. Aðalsteinn Jörgensen-Ragnar
Magnússon 369
2. Ásgeir Ásbjömsson-Hrólfur
Hjaltason 313
3. Einar Jónsson-Matthías Þorvalds-
son 312
4. Jakob Kristinsson-Magnús Ólafs-
son 277
5. Jón Þorvarðarson-Guðni Sigur-
bjamarson 272
6. Rúnar Magnússon-Páll Valdi-
marsson 266
7. Jacqui McGreal-Þorlákur Jónsson
261
Bridge
ísak Örn Sigurðsson
Bridgefélag
Breiðfirðinga
Nýhafin er aðalsveitakeppni félags-
ins með þátttöku 18 sveita og voru
spflaðar tvær fyrstu umferðirnar síð-
astliðinn fimmtudag. Staöa efstu
sveita:
1. Páll Valdimarsson 45
2. Albert Þorsteinsson 42
3. Guðmundur Kr. Sig. 41
4. Björn Svavarsson 40
5. Karen Vilhjálmsdóttir 36
Bridgefélag Breiðfirðinga vill að
gefnu tilefni benda spfiamönnum á
að ekki verður spilaður landství-
menningur næsta fimmtudag (20.
okt) heldur haldið áfram með sveita-
keppnina. Þeir félagar í B. Breið-
firðinga, sem hafa hug á að spila
landstvímenning, þurfa því að leita
til annarra félaga sem taka þátt.
-ÍS
grönd spurðu um ása og fimm grönd
buðu upp á alslemmu. Mohr sýndi
síðan laufakóng með sexlaufasögn-
inni og sex tíglar hjá Dam spurðu
um trompdrottningu. Þar með var
brautin rudd upp í alslemmuna.
Þetta voru 13 impar tfi Danmerkur
því Englendingarnir stoppuðu í sex
hjörtum á hinu borðinu. Nánar verð-
ur fiallað um ólympíumótið í næsta
þætti.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Síðasta mánudagskvöld var síðari hluti tveggja kvölda tvímennings spilaður. Úrslit kvöldsins urðu: 1. Björn Amarson - Guðlaugur Ell- ertsson 266 2. Árni Hálfdánarson - Jón Gíslason 246 3. Sverrir Jónsson - Ólafur Ingi- mundarson 245 Gunnar Birgisson-Jóngeir Hlina- son 228 Efstu pör samanlegt urðu því: 1. Bjöm Amarson - Guðlaugur Ell- ertsson 482 2. Sverrir Jónsson - Ólafur Ingi- mundarson 478 2. Baldvin Valdimarsson - Ólafur H. Ólafsson 464 4. Gunnar Birgisson - Jóngeir Hlina- son 458 5. Jón H. Elíasson - Sigurpáll Ingi- bergsson 445 Næsta mánudagskvöld verður lands- tvímenningur Bridgesambandsins spfiaður en þar á eftir hefst aðaltví- menningur félagsins.
Ársþing Cíiiníiaiirl Bridge- c Tclínirlc
j dlIlU cLI 111 Ársþing Bridgesambands fslands veröur haldið í Sigtúni9 laugardag- dagskrá era venjubundin aöal- fundarstörf. Rétt til setu á þinginu
inn 5. nóvember næstkomandi og hefst það klukkan 10 árdegis. A eiga fulltrúar yfir 50 félaga innan vébandaBSÍ. -ÍS