Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
Fréttir
Helgi Þór Jónsson og nauðasamningarnir:
Samningar tókust ekki
þegar tilboðið var lækkað
- hafði boðið 25% en lækkaði tilboðið í 15%
Helgi Þór Jónsson, hótelhaldari
í Hverageröi, mun ekki gera nauöa-
samninga við þá kröfuhafa sem
hann haföi gert samkomulag við.
Alls voru 157 kröfur, samtals að
upphæð 184 milljónir, tengdar
nauðasamningunum. Þeir aðilar
sem gengiö höfðu að nauðasamn-
ingunum við Helga Þór eiga ekki
lögveð í byggingu Hótel Arkar.
Á fundi, sem haldinn var hjá
sýslumanni Árnessýslu, féll Helgi
Þór frá írumvarpi að nauðasamn-
ingum sem hann hafði áöur lagt
fram. Þess í staö kynriti hann nýtt
frumvarp með þeim breytingum að
hann treysti sér aðeins til að greiða
15 prósentþeirra krafíia sem tengd-
ust nauðasamningunum í stað 25
prósenta sem voru í fyrra frum-
varpmu.
Nýja frumvarpiö kom aldrei til
atkvæða vegna óánægju kröfuhafa
og þar með eru nauöasamningarn-
ir ekki lengur raunhæfir. Kunnug-
ir telja að engin önnúr leiö en gjald-
þrot á búi Helga Þórs Jónssonar sé
óreynd. Hótelið var slegiö Fram-
kvæmdasjóði á 200 milljónir króna
á nauðungaruppboði fyrr í haust.
Hótel Örk h/f átti hærra boö en því
var ekki tekið. Helgi Þór Jónsson
áfrýjaði þeirri ákvöröun uppboös-
haldara til Hæstaréttar. Þar sem
uppboðsmálinu er ekki lokið,
vegna áfrýjunarinnar, tengdust
þeir sem eiga veö í byggingunni
ekki nauðasamningunum.
Nú lætur nærri aö heildarskuldir
vegna Hótel Arkar séu nærri 450
milljónum króna. Óvíst er hversu
mikið fæst upp i þær kröfur að
undanskildum þeim 200 milljónum
sem Framkvæmdasjóður greiöir
þegar uppboðsmálinu lýkur - fari
svo að Hæstiréttur staðfesti úr-
skurð uppboðsréttar.
-sme
Jón Baldvin Hannibalsson á flokksþingi krata:
Það er mikið þingað á fundi framsóknarmanna á Hótel Sögu eins og þessi mynd ber með sér. Hér má sjá með-
al annarra Guðmund Bjarnason, Finn Ingólfsson, Halldór Ásgrímsson og Steingrím Hermannsson.
DV-mynd Brynjar Gauti
Flokksþing framsóknarmanna:
íhaldið höfuðóvinurinn
„Ég á von á harðri stjórnarand-
stöðu frá Þorsteini Pálssyni en það
liggur vel fyrir honum að stýra
stjórnarandstöðu enda þarf hann þá
ekki að tala viö nokkurn mann,“
sagöi Páll Pétursson í ræðu sinni á
flokksþingi framsóknarmanna sem
nú fer fram á Hótel Sögu. Þessi ræð-
ustúfur er dæmigerður fyrir þá
áherslu sem flestir fundarmenn
lögöu á andstöðuna við Sjálfstæðis-
flokkinn. Mátti ráöa að þar væri
helsti óvinur framsóknarmanna.
Einnig gerðu menn harða hríð aö
nýbirtri skýrslu OECD og fundu
henni flest til foráttu.
Páll vék reyndar að annarri stjórn-
arandstöðu en þeirri er kæmi frá
hinum pólitísku flokkum því hann
gagnrýndi það sem hann kallaði
„frjálshyggjumenn í lykilstöðum í
stjórnkeríinu". Sagði Páll að þessir
menn tefðu það mjög aö unnt væri
aö ná niður fjármagnskostnaðinum.
Þá sagði hann að nauðsynlegt væri
að losna við lánskjaravísitöluna.
Um ástandið nú sagði Páll að for-
sætisráöherra hefði síöur en svo
málað það dökkum litum þegar hann
nefndi þjóðargjaldþrot. Sagði hann
að ástandið væri jafnvel verra nú en
1968 vegna þess að við gætum ekki
gengið í sömu auölindir og þá.
Ólafur Þ. Þóröarson, þingmaður
framsóknarmanna, sagði í ræðu
sinni að harðar deilur hefðu verið
innan þingflokksins um hvenær
heföi átt aö fara út úr síðustu ríkis-
stjórn. Sagði hann aö fram undan
væru deilur um það hvernig ætti að
skila aftur út til atvinnuveganna því
fjármagni sem fjármagnseigendur
heföu náð til sín. Varaði hann við
þvi að enn væri hætta af frjálshyggj-
unni innan ríkisstjórnarinnar og
setti hann þaö í samband við Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Þingið heldur áfram í dag og mun
þá Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýöuflokksins, ávarpa
framsóknarmenn. -SMJ
Mikill reiðilestur yfir
fyrirtækjum og heimilum
í ræðu sinni á flokksþingi Alþýðu-
flokksins í gærkvöldi lét Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra og
formaður flokksins, reiðilestur dynja
yfir atvinnufyrirtækjum og heimil-
um landsins fyrir hvernig góðæri
undanfarinna ára glutraðist niður.
„Atvinnurekndur fylltust fram-
kvæmdagleði, tvíefldir í hagnaðar-
von. Rækjuverksmiðjum var fjölgað
úr 20 í 50. Þrátt fyrir aflatakmarkan-
ir kvótakerfisins var fjárfest í nýjum
skipum eða endurbótum á gömlum
fyrir marga milljarða á ári hveiju.
Fiskvinnslufyrirtækjum fjölgaði og
fjárfest var í nýjum og dýrum tækja-
búnaði. Lán voru tekin - og ekkert
spurt um fjármagnskostnað. En hvað
var.gert til að lækka tilkostnað, hag-
ræða í rekstri, þróa nýjar vörur, afla
nýrra markaða? Var fé lagt til hliðar
með góðum ávöxtunarkjörum? Er
það nógu gott þegar atvinnurekend-
ur ranka við sér eftir íjárfestingar-
æðið og ytri skilyrði hafa snúist til
hins verra - eins og allir vissu fyrir-
fram að þau myndu gera - að fram-
vísa reikningnum til ríksins, skatt-
borgaranna, og heimta gengisfell-
ingu - svikna mynt?“ spurði Jón.
„Og hver er hlutur heimilanna. 150
þúsund sólarlandaferðir. Veltuaukn-
ing í verslun um 67 prósent milli
áranna 1986 til 1987. Ef aukningin
hefði aðeins verið um 10 prósent -
eins og hjá venjulegum þjóðum -
hefði þaö sparað 4,5 milljarða í gjald-
eyri, ámóta upphæð og nú er til
ávöxtunar á gráa markaðinum. Hvað
hefði það fé boriö mikla vexti? Bara
þessi veltuaukning í sólund og bruðl
samsvarar því að allur síldar-, loðnu-
og humarstofninn hefði horfið eins
og dögg fyrir sólu í einu vetfangi.
Heimilin keyptu leikfóng sem sam-
svara verðmæti alls útflutnings
loðnuflotans. Fyrr má nú vera bam-
gæskan. Heimilin keyptu 70 þúsund
bíla á þessum árum. Þau keyptu bíla,
fatnaö, húsgögn, heimilistæki og
leikfóng fyrir erlendan gjaldeyri sem
að viðbættri fragt, aðflutningsgjöld-
um og söluskatti samsvarar rúmlega
helmingi af fjárlögum ríkisins 1989,“
sagði Jón.
„Þá á eftir að tíunda ósýnilegan
innflutning 150 þúsund ferðalanga',
sem hafa farið í innkaupaleiðangra
í útlöndum eins og engisprettufar-
aldur. Hvað með videofaraldurinn?
Hvað með myndlyklafaraldurinn?
Hvað með farsímafaraldurinn?"
spuröi Jón.
Hann rakti síðan þátt fyrri ríkis-
stjómar Steingríms Hermannssonar
í því að snúa góðærinu í þenslu. Um
þátttöku Alþýðuflokksins í ríkis-
stjórn Þorsteins Pálssonar sagði Jón
að alþýöuflokksmenn þyrftu ekki að
kvíða dómi sögunnar.
-gse
Jón Baldvin Hannibalsson formaður
og Bryndis Schram koma til flokks-
þingsins. Birgir Árnason, formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna,
horfir á.
DV-mynd Brynjar Gaufi
Skýrsla OECD:
Villandi upplýsingar um stöðu útff lutningsgreina
í skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu um ástand efna-
hagsmála á íslandi 1988 til 1989 er
afkomu útflutningsgreinanna lýst
þannig að þrátt fyrir að arðsemi
greinanna hafi að mestu leyti verið
endurreist eftir tvær gengisfelling-
ar sé tímabil ört vaxandi gjaldey-
ristekna rannið á enda vegna
minnkandi afla og lækkandi verös
á erlendum mörkuðum. Þeir ís-
lendingar sem sáu þær upplýsingar
sem lágu fyrir um stöðu útflutn-
ingsgreinanna f byrjun september,
þegar lokið var við skýrsluna, eiga
sjálfsagt eríitt meö að lesa þann
bata út úr þeim sem sérfræðingar
OECD virðast hafa gert.
í skýrslu um afkomu sjávarút-
vegs, sem Þjóðhagsstofnun lagði
fram í byijun september, kemur
fram að botnfískveiöar og -vinnsla
var í júlí rekin með 6 prósent tapi
að meðaltali. Mjölvinnsla var rekin
með 6 prósent hagnaöi, söltun með
2 prósent hagnaði, rækjuvinnsla
og botnfiskveiðar með 3 prósent
tapi og frystirigin með 8 prósent
hagnaði. Þessi staöa gefur á engan
hátt tilefni til að segja aö arðsemi
jreinanna hafi að mestu leyti verið
endurreist.
Skýrslur OECD eru unnar upp
úr skýrslum sem Seðlabankinn,
Þjóöhagsstofnun og fjármálaráðu-
neytið vinna fyrir stofnunina. Þær
eru þýddar á ensku. Niðurstöður
OECD eru síðan aftur þýddar yfir
á íslensku.
í ljósi greiningar sérfræðinga
OECD á afkomu útflutningsgrein-
anna er engu líkara en þeir hafi
haft gamlar og úreltar upplýsingar
í höndunum eða beinlinis rangar.
í íslenskri þýðingu viöskipta-
ráðuneytisins hljóðar setningin
sem vitnað er til hér að ofan svo:
„Þótt afkoma útflutningsgreina
hafi veriö bætt með tveimur geng-
isfellingum...“
í skýrslu OECD hljóðar hún hins
vegar á þessa leið:
„Although the profitability of the
export sectors has been largely re-
stored following the two depreciati-
ons...“
Það er engu líkara en þýðandan-
um hafi blöskrað hversu björtum
augum skýrsluhöfundar litu á
ástand útflutningsgreina. í skýrsl-
unni segir í raun að útflutnings-
greinar séu aö mestu reknar með
hagnaði. I þýöingunni segir aðeins
aö afkoma þeirra hafi verið bætt.
-gse