Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
3
Fréttir
Innsetningarbeiðni í Vemdardeilunni:
Verndarfólk frá fangelsunum
Innsetningarbeiönin afhent. Baldur Guölaugsson, lögmaöur Verndar, tekur
við kröfu af hálfu Jóns Oddssonar, lögmanns þeirrar stjórnar er Guðmund-
ur Jóhannsson stýrir en hann situr einmitt á milli þeirra lögmanna. Valtýr
Sigurðsson fógeti mun dæma í málinu. DV-mynd Brynjar Gauti
Dómsmálaráðuneytiö hefur sent
út bréf til fangelsisstofnana á landinu
þar sem er kveðið á um að starfs-
menn á vegum fangahjálparinnar
Verndar fái ekki að starfa í fangels-
unum. Á þetta að gilda á meðan á
deilum innan félagsins stendur.
Þá sagði Þorsteinn Jónsson, deild-
arstjóri i dómsmálaráðuneytinu, að
Jónu Gróu Sigurðardóttur, formanni
Verndar, hefði verið aflient bréf frá
ráðuneytinu. Hann vildi ekki tjá sig
um innihald bréfsins en sagði að
ráðuneytið hefði miklar áhyggjur af
því hvernig komið væri. Samkvæmt
heimildum DV munu í bréfinu vera
fyrirmæli um að starfsmönnum
Verndar sé óheimilt að koma nálægt
fangelsum. Munu fulltrúar hinnar
stjórnarinnar hafa fengið sams'kon-
ar bréf.
Þá var þingfest hjá borgarfógeta í
gær innsetningarbeiðni af hálfu lög-
manns andstæðinga Jónu Gróu um innsetningarbeiðnin tekin fyrir á
að þeir fái yfirráð í félaginu. Verður mánudaginn. -SMJ
Eldbakaðar
plzzur, Ijúffengar
og glrnllegar -
eins og pizzur
eiga ad vera.
Oplð öll kvöld og nætur frá kl. 18:00.
Ókeypis heimsendingar.
Sími 72177
Pizzu-smiðjan
Smiðjukaffi • Smiðjuvegi 14d • 200 Kópavogi
Borpallamiölumn:
Númerið
aftengt
Svo virðist sem atvinnumiðlun sú,
sem starfrækt hefur verið uppi á
Akranesi og bauð milligöngu um
störf á olíuborpöllum, samyrkjubú-
um, hótelum og fleiru, hafi lagt upp
laupana. Miðlanir af þessu tagi eru
ólöglegar og hafði félagsmálaráðu-
neytið sent aðvörunarbréf til eiganda
hennar. Hann hefur nú látið aftengja
símanúmer það sem miðlunin aug-
lýsti.
Þeir sem hugðust njóta aðstoðar
umræddrar atvinnumiðlunar urðu
að greiða 1400 krónur fyrir umsókn-
areyðublað og ýmsar upplýsingar
sem áttu að koma þeim til góða í
nýju starfi. Þá rak sami aðili at-
vinnumiðlun, sem hann nefndi
Vinnuafl, að Ármúla 36. Þar auglýsti
hann að hann hefði milligöngu um
að útvega ræstingastörf og mörg
störf önnur. Kostaði umsóknareyðu-
blaðið 200 krónur. Að sögn Óskars
Hallgrímssonar hjá Vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytisins var
einnig skrifað viðvörunarbréf þang-
að. Þar er ekki lengur svarað í síma.
„Það má alltaf búast við að þessir
aðilar stingi upp kollinum aftur,“
sagði Óskar. „Við munum því hafa
góðar gætur á öllum hræringum í
þessum efnum.“ -JSS
Gjaldþrot Nesco
Manufacturing:
Tveir
mánuðir
í dóm
Að sögn Gests Jónssonar, bústjóra
í gjaldþrotamáli Nesco Manufactur-
ing hf„ er dóms í málinu í fyrsta lagi
að vænta eftir tvo mánuði. Hann
hefur farið fram á riftun á samning-
um um ráðstöfun hlutafjár fyrirtæk-
isins í öðrum fyrirtækjum sem stofn-
uð hafa verið undir nafni Nesco. Það
eru Nesco Laugavegi hf. og Nesco
Kringlu hf. Málið hefur nýlega verið
dómtekið.
Með riftunarkröfunni er bústjóri
að vemda hagsmuni þrotabúsins og
ná inn þeim fjármunum sem hann
telurbúinu bera. Reyndar mun ekki
flýta fyrir niðurstöðu í málinu að
þetta þykir með flóknari riftunar-
málum sem hér hafa komið upp enda
Nesco-fyrirtækin mörg. Munu rift-
unarmálin, sem þarf að taka afstöðu
til, vera um 15-20. -SMJ
Þú finnur yfirburði
F-tiyggingarflesta
íveskinuþínu:
F-trygging nær ekki til bifreiöatrygginga - en hún tekur
myndarlegt tillit til þeirra! Þeir sem kaupa F-tryggingu, þ.e.
heimilis-, húseigenda-, ábyrgöar-, slysa- og sjúkratrygg-
ingu í einum pakka, fá 15% afslátt af venjulegum iðgjöld-
um þessara trygginga. Ef. keypt er ábyrgðartrygging fyrir
einn bíl fæst 10% viðbótarafsláttur af framangreindum
iðgjöldum og 15% viðbótarafsláttur ef bifreiðarnar eru
tvær. Heildarafsláttur af iðgjöldum í Kjarna er þá orðinn
30%. Það munarum minna!
Eitt símtal er allt sem þarf!
SAMVINNU
TRYGGINGAR
SÍMI 91 -68-14-11
\