Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988. Séra Róbert Jack meö bikar böðulsins i kirkjunni á Tjörn á Vatnsnesi. Séra Róbert ræður mönnum frá því að taka bikarinn úr kirkjunni. DV-myndir GVA Á altari kirkjunnar á Tjörn á Vatnsnesi stendur silfurbikar með danskri áletrun og ártalinu 1853 og lætur lítið yflr sér. Það er þó trú margra norður þar að þessi bikar hafi kostað mörg mannslíf og fari hann út fyrir dyr kirkjunnar fylgi honum slík örlög að best sé láta hann standa um aldur og ævi á altarinu. í þjóðsögunni, sem enn lifir góðu lífi á Vatnsnesinu og víðar í Húna- vatnssýslu, fara álögin, sem hvíla á bikarnum, ekki milli mála. Þessi saga er það lífseig að það eru aðeins þrettán ár síðan bikarinn kom í kirkjuna í annað sinn og nú til að vera þar til frambúðar. Hann hafði þá verið utan kirkju í nokkra áratugi með ógnvænlegum afleiðingum. Seinasta fórnarlambið „Veturinn sem Sigurbjörn, sonur minn, lá banaleguna var komið að máli við mig og mér bent á að best væri að ég skilaði bikarnum í kirkj- una,“ sagði Auðbjörg Guðmunds- dóttir, húsfreyja á Syðri-Þverá í Vest- urhópi, í samtali við DV. Þetta var árið 1975 og sonur Auðbjargar á aö vera sá seinasti sem veröur fyrir álögum bikarsins. Þannig halda gamlar þjóðsögur áhrifum sínum því upphaf sögunnar má rekja 160 ár aftur í tímann. Þá voru hrottaleg morð framin á Vatns- nesinu og í kjölfarið fylgdu einhveij- ar sögufrægustu aftökur á íslandi. Húnvetningar hafa aldrei gleymt þessari sögu. Norður á Vatnsnesi í Húnavatns- sýslu þekkir hvert mannsbarn Guð- mund Ketilsson sem oft er kenndur við Illugastaði eins og ættin sem orð- ið hefur fyrir álögum bikarsins í kirkjunni á Tjörn. Það er ekki laust við að menn fyllist beyg við að heyra nafn hans, rétt eins og eitthvað ógn- vænlegt liggi í loftinu. Það er vissara aö tala um Guðmund Ketilsson í hálf- um hljóöum og þó er liðin meira en öld frá því hann lést og öllum ber ' saman um að hann hafi verið traust- ur maður og gegn bóndi í sinni sveit. Hann fékk meira að segja forláta bikar frá Konunglega danska búnað- arfélaginu fyrir árangur í ræktun æðarfugls. Og það er þessi bikar sem Vatnsnesingum stendur ekki á sama um - ekki frekar en Guðmund. Böðull Agnesar og Friðriks „Það er eins og þessi ætt ætli aldr- ei að losna undan því oki að maöur af henni hjó þau Agnesi og Friðrik,“ segir Auðbjörg á Syðri-Þverá. Þar er komin skýringin á því hvers vegna nafn Guðmundar Ketilssonar lifir enn þrátt fyrir aö hann lifði sín ár á síðustu öld. Hann reiddi öxi böðuls- ins yfir þeim Agnesi Magnúsdóttur Bikar böðulsins krafist mannslífa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.