Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Síldarsjómenn óánægðir:
Ólöglega
staðið að
stærðar-
flokkun
- málaferli íhuguð
„Við teljum að verið sé að svindla
á okkur í .jnál og vog“ með þeirri
aðferð sem notuð er hjá þeim sem
frysta síld hér á Austfjarðahöfnum.
Þeir taka allan farminn í hús. velja
þar það sem þeir ætla að frysta en
senda svo hitt í bræðslu og greiða
okkur samkvæmt þessu mati. Við
fáum 8,90 krónur fyrir kílóið af stór-
síld en 4.20 fyrir það sem fer í
bræðslu. Við teljum þetta vera ólög-
legt,“ sagði Þröstur Ólafsson. stýri-
maður á síldarbátnum Ágústi Guð-
mundssyni GK, í samtali við DV.
Samkvæmt ákvörðun Verðlagsr-
áðs sjávarútvegsins. sem ákveður
síldarverð, ber að taka sýni úr farm-
inum og greiða hann allan sam-
kvæmt þvi en ekki að velja það
stærsta úr og frysta en setja hitt í
gúanó á hálfvirði.
„Það er ekki hægt að standa öðru-
vísi aö þessu en að stærðarflokka
síldina eins og við gerum. Ef við
þyrftum að kaupa farminn sam-
kvæmt sýnum, eins og Verðlagsráð
gerir ráð fyrir, myndi það leiða til
botnlauss taps á frystingunni," sagði
Finnbogi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað, í samtali við DV.
„Þetta mál er komið til okkar og
raunar til LÍÚ líka því þetta snertir
ekki síður útgerðina en sjómennina.
Það fer ekkert á milli mála að taka
ber sýni úr farminum og greiða hann-
samkvæmt því. Verði það ekki gert
munum við lögsækja þau frystihús
sem brjóta þessa reglu og fara fram
á að þau greiöi til baka það sem sjó-
menn telja að á vanti," sagði Hólm-
geir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjó-
mannasambands íslands, í samtali
við DV í gær.
Fyrrnefnd flokkunaraðferð við síld
til frystingar mun tíðkast í flestum
frystihÚ9um á Austfjörðum sem fást
við síldarfrystingu. Mikil ólga er
meðal sjómanna vegna þessa máls,
enda er hér um laun þeirra að ræða.
-S.dór
LOKI
Verður sr. Gunnar
þá fangelsisprestur?
Bílstjórarnir
aðstoða
SEJIDIBÍLJISTOÐin
Hertar aðgerðir vegna smáfiskadráps:
beitt í eftirlitinu
- segir Halldór Ásgrímsson, dóms- og sjávarútvegsráðherra
„Það hefur verið ákveðið aö
heröa eftirlit meö smáfiskadrápi
togaranna og við munum í framtíð-
inni koma þeim meira á óvart en
verið hefur. í þvf skyni verður
bæði varðskipum og þyrlu gæsl-
unnar beitt. Til þessa hefur þaö
verið þannig að eftirlitsmennirnir
hafa farið út með togurunum en
nú er fyrirhuguð breyting þar á,“
sagði Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegs- og dómsmálaráðherra í
samtali við DV.
Halldór sagði í ræðu á aðalfundi
Landssambands íslenskra útvegs-
manna í fyrradag að það skyti
skökku við þegar sumir togarar
lönduðu aldrei neinum smáfiski á
meðan aðrir lönduðu hundruðum
tonna árlega. Þetta sagði hann að
fengist ekki staðist ogýrði.að herða
eftirlitið.
í samtali við DV sagöi Halldór að
verið gæti að þeir togárar sem ekki
sýna neinn smáfisk á botnfiskafla-
skýrslum lönduðu honum með öðr-
um fiski. Það mál þyrfti að skoöa.
Þótt smáfiskur sé að hluta til utan
kvóta er skylt að landa honum og
var sú ákvörðun tekin til að menn
gætu betur fylgst með smáfiska-
drápinu, en það virtist ekki ætla
að duga.
„Þar sem svo vill til að ég er
baeði sjávarútvegs- og dómsmála-
ráðherra hef ég ákveðið að teknar
verði upp viðræður á milli Land-
helgisgæslunnar, • Hafrannsókna-
stofnunar, dómsmádaráðuney tisins
og sjáyarútvegsráðuneytisins um
hvemig best verður aö þessu herta
eftirliti staðið og hvernig fram-
kvæmdin kemur best út,“ sagði
HalldórÁsgrímsson. -S.dór
Sér nú fyrir endann á Fríkirkjudeilunni? Er búið að setja sr. Gunnar á bak
við lás og slá? Nei, auðvitað ekki, það er bara rithötundurinn Gunnar
Björnsson sem er hér að stilla sér upp fyrir myndatöku vegna kápumyndar
á bók sem hann ætlar að gefa út fyrir jólin. Það er greinilegt af kápumynd-
inni að þetta ’verður spennandi lestur. DV-mynd Brynjar Gauti
Manndrápiö í vesturbænum:
60 daga gæslu-
varðhalds krafist
yfir þeim grunaða
Hjá Sakadómi Reykjavíkur liggur
fyrir krafa frá Rannsóknarlögreglu
ríkisins um 60 daga gæsluvarðhald
yfir manni sem handtekinn hefur
verið, grunaður um að vera valdur
að dauða Karls Jóhanns Júlíussonar.
Sakadómur mun kveða upp úrskurð
vegna kröfu RLR í dag.
Maðurinn, sem er 38 ára gamall,
var handtekinn síðdegis á fimmtu-
dag. Yfirheyrslur yfir manninum
hófust í Sakadómi í gærdag. Hann
hefur ekki hlotið dóm fyrir líkamsá-
rásir eða ámóta glæpi.
Sá látni hét Karl Jóhann Júlíusson,
til heimilis að Lynghaga 11 í Reykja-
vík. Karl Jóhann fæddist árið 1921. Á
líki hans voru mörg sár eftir egg-
vopn. Ekki er að fullu ljóst hversu
langt var liðið frá dauða hans þar til
líkið fannst á fimmtudagsmorgun.
Rannsókn málsins er enn á frum-
stigi.
-sme
Varamillilandaflugvöllur:
Húsavík ef Nato er með
- Egilsstaðir annars
Starfshópur um varamillilanda-
flugvöll hefur skilaö af sér skýrslu.
Starfshópurinn er samdóma um þá
niðurstöðu að ef flugvöllurinn á að
þjóna almennu farþegaflugi og Atl-
antshafsbandalaginu og ekki sé tekið
tillit til kostnaðar sé slíkum flugvelli
best fyrir komið í Aðaldal við Húsa-
vík.
Starfshópurinn telur hins vegar
Egilsstaði heppilegasta kostinn verði
flugvöllurinn einungis til að þjóna
íslensku millilandaflugi. Þá er tekið
tillit til kostnaöar. Á Egilsstöðum
dygði að lengja nýju flugbrautina um
400 metra yrði flugvöllurinn ekki
gerður með þarfir Atlantshafsbanda-
lagsins í huga.
Auk Húsavíkur og Egilsstaða' var
athugað um staðsetningu flugvallar-
ins á Blönduósi, Sauðárkróki, Akur-
eyriogHornafirði. -sme
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Hlýnar á
mánudag
Á sunnudag verður vestlæg eða
breytileg átt og frost um mestallt
landið og víða nokkuð bjart veður
en suðlæg átt og lítils háttar úr-
koma allra vestast. Heldur hlýn-
andi veður verður á mánudag og
vaxandi líkur á úrkomu vestan
til á landinu.
Ólympíumótið:
Tap gegn Sov-
étríkjunum
Jóhann Hjartarson gerði jafntefli
við heimsmeistarann Kasparov í 5.
umferð á ólympíuskákmótinu. Er
það fyrsta skákin sem Kasparov
vinnur ekki. Jón L. gerði jafntefli við
Jusupov en skák Margeirs og Ehlvest
fór í bið og var Margeir með lakari
stöðu enda peði undir. Hann hafnaði
jafnteflisboði rétt áður en skákin fór
í bið. Helgi Ólafsson tapaði fyrir
Ivantsjuk á 4. borði. Það leit því út
fyrir 3-1 tap gegn Sovétmönnum en
þrátt fyrir það verða íslendingar
áfram við toppinn. -SMJ