Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
9
Fréttir
linda Pétursdóttir sem
hertekin í London
Linda Pétursdóttir, ungfrú heimur, varði lunganum úr gærdeginum i að veita eiginhandaráritanir i Top Shop i
Oxfordstræti i Lundúnum. Hún hefur verið sem hertekin allt frá því hún vann til titilsins eftirsótta. DV-mynd VAJ
Valgerður A. Jóhannsdóttir, DV, London:
Það er ekki tómur dans á rósum
að vera fegursta kona heims. Það
hefur Linda Pétursdóttir, nýkjörin
ungfrú heimur, svo sannarlega feng-
ið að reyna. Fyrsti dagurinn í nýja
starfmu var svo þétt skipulagður að
Lindu gafst ekki einu sinni færi á að
hitta foreldra sína.
Straumur aðdáenda
Snemma í gærmorgun mætti hún
í sjónvarpsviðtal á ITV-stöðinni.
Klukkan tíu hófst blaðamannafund-
ur þar sem yflr 40 ljósmyndarar
mynduðu Lindu í bak og fyrir. Þá tók
við fundur með skipuleggjendum
keppninnar og eftir hádegið var
Linda mætt í verslunina Top Shop í
Oxfordstræti en hún styrkir keppn-
ina. Þar sat hún í tvo tíma og gaf
æstun aðdáendum eiginhandarárit-
anir. Mikið annríki var í versluninni
og múgur og margmenni sem safnað-
ist saman i kringum Lindu og allir
vildu fá eiginhandaráritun.
„Hún er vissulega mjög falleg,“
sagði Tom Ames sem sagðist hafa
komið til að kaupa sér skyrtu en
ekki til að hitta Lindu. „Það var hins
vegar ekki verra og sannarlega
óvaent ánægja.“
„Ég kom til að sjá ungfrú heim og
fá hjá henni eiginhandaráritun,"
sagði Joanna Lawley sem beið þolin-
móð eftir að röðin kæmi að sér. „Ég
fylgdist með keppninni í sjónvarp-
inu. Mér fannst að ungfrú Spánn
ætti að sigra en skipti um skoðun
þegar ég sá Lindu augliti til auglitis.
Hún er alveg yndisleg."
Foreldrarnir komust ekki að
En það voru ekki bara óskyldir
útlendingar seml mættu í verslunina
til að ná sambandi við Lindu. Það
gerðu einnig foreldrar hennar, þau
Pétur Olgeirsson og Ása Hólmgeirs-
dóttir. Þeim gafst hins vegar ekki
færi á að tala viö Lindu en tókst að
koma til hennar smáorðsendingu.
„Við höfum ekkert hitt hana eða
heyrt frá henni síðan á fimmtudags-
kvöldið, utan hvaö hún hringdi einu
sinn í morgun og spjallaði við okkur
smástund,“ sagöi Ása þegar DV
spjallaði við hana seinnipartinn í
gær.
„Eftir krýninguna gat hún talað við
okkur í tíu mínútur en svo var hún
hertekin af blaðamönnum og ljós-
myndurum þannig að við höfum ekki
mikið séð af henni. Vonandi fáum
við þó að sjá hana í kvöld. Eins og
er vitum viö ekkert hvernig þetta
kemur til með að vera. Fyrir keppn-
ina var okkur sagt aö hún fengi viku
frí en síðan aö Linda kæmi ef til vill
ekkert heim fyrir jól.“
Milljónir í tekjur
Öll fjölskyidan á pantað far heim á
mánudag en í gærkvöldi var ekki
vitaö hvort Linda gæti fylgt foreldr-
um sínum heim. En þótt líf fegurðar-
drottningar sé á köflum erfitt þá er
til mikils að vinna því fyrir utan þrjú
þúsund pund í verðlaun eru henni
tryggð 25 þúsund pund í tekjur yfir
árið sem hún þarf að koma fram í
nafni keppninnar. í íslenskum krón-
um eru þetta um 22 milljónir.
Eldvík, Hvalvík og Keflavik:
Landsbankinn
keypti tvö
skipanna og
Saltsalan eitt
Landsbanki Islands hefur greitt
um sextán milljónir króna vegna
kaupa bankans á flutningaskipunum
Hvalvík og Eldvík. Á nauðungarupp-
boði sem haldið var á skipunum átti
Finnbogi Kjeld útgerðarmaður
hæsta tilboðið, eöa samtals 64,5 millj-
ónir. Landsbankinn bauð 63,5 millj-
ónir í bæði skipin. Finnboga Kjeld
var gert að greiða fyrir hádegi í gær
fjórðung upphæðarinnar. Við það
stóð Finnbogi ekki og því voru skipin
seld Landsbankanum. Bankinn hef-
ur þegar greitt fjórðung af þeirri
upphæð sem hann bauð.
Þriðja skip fyrirtækis Finnboga,
Keflavík, var selt á nauðungarupp-
boði í Vík í Mýrdal í gær. Hæsta til-
boðið í skipiö kom frá Saltsölunni,
eða 161 milljón. Finnbogi Kjeld er
aðaleigandi þess fyrirtækis. Eim-
skipafélagið átti annað hæsta boð,
160,5 milljónir, og Landsbankinn
þriðja hæsta, 159 milljónir. Uppboðs-
haldarinn tók sér tveggja vikna frest
til að meta tilboðin.
„Ég fékk ekki frest til að inna
greiðsluna af hendi og því voru
Landsbankanum seld skipin. Ég ætl-
aði að fjármagna kaupin með samn-
ingum sem ég hef gert við þýska aö-
ila. Þeirra samningamaður lenti í
bílslysi og því urðu ófyrirsjáanlegar
tafir á þvf að þeir samningar gengju
í gegn. Ég eygi samt von um að geta
samið við Landsbankann og keypt
skipin á því verði sem ég bauð í þau.
Þá á ég alla möguleika á að gera
samninga við Þjóðveijana, samninga
sem tryggja mér leigu á skipunum,“
sagði Finnbogi Kjeld.
Finnbogi sagði að hann ætlaði að
fjármagna kaupin á Keflavík á sama
hátt og til stóð að gera við kaupin á
hinum tveimur. Ef Finnboga tekst
að halda einu eða öllum skipunum
verða þau flutt undir annan þjóð-
fána. -sme
' Knattspyrna:
Guðni til Tottenham
Guðni Bergsson, landsliösmaöur sterkan varnarmann og Guðni
í knattspyrnu úr Val, fer á mánu- verður til reynslu hjá félaginu í
dag til hins fræga enska félags, viku til tíu daga, aö minnsta kosti
Tottenham Hotspur. til aö byrja með.
Tottenham vantar tilfinnanlega -VS
NISSAN MICRA
SPARIBAUKUR Á SPES VERÐI
ht
sýningarsalurinn.
Rauöageröi
(3) 91-3 35 60
Gott úrval
og nú eínnig sjálfskíptor. 3 ára
ábyrgð og umfram allt ótrúlegt
verð.
Littu inn. Við erum komin i jólaskap og til
alls vís.
Sýningarsalurinn V/Rauðagerði. Opinn frá kl. 14-17 laugardag og sunnudag.
BAÐINNRÉTTINGAR - ALLAR STÆRÐIR'
Sjáirðu
aðra betri
þá kaupirðu
hanaf!
STÍLHREIN
DUGGUVOGI23
S35609
TIGULEG