Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 36
52
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
LífsstHI DV
f verslimarhugleiðingum:
Meginlandið sækir á
íslendingar eru farnir aö horfa til
íleiri átta en áður þegar þeir halda
út í heim til að versla. Nú eru það
ekki bara vöruhúsin í Glasgow og
London sem lokka heldur líka Ham-
borg, Amsterdam, Frankfurt, Lúx-
emborg og Trier. Dublin er einnig
komin inn á kortið, eftir að farið var
> að bjóða upp á dagsferöir þangað í
haust.
Innkaupaferðavertíðin stendur nú
sem hæst. Yfirleitt byrjar fólk aö fara
í slíkar ferðir í október en eftir 1.
nóvember, þegar gisting í stórborg-
um Evrópu lækkar verulega í verði,
fjölgar farþegum allt fram undir
miöjan desember. Ásókn í þessar
ferðir er stöðug og mikil. Einkum
njóta styttri ferðir, svo sem helgar-
ferðir, mikilla vinsælda en minni
ásókn er í lengri ferðir. Það sannað-
ist áþreifanlega í síðustu viku þegar
ný ferðaskrifstofa, sem bauð upp á
vikuferðir til Skotlands, hætti starf-
semi áður en fyrsta ferðin var farin.
„Það er samdráttur í þessu eins og
öðru,“ sagði einn ferðaskrifstofu-
maður í samtali við blaðið.
London hefur lengi verið ofarlega,
ef ekki efst á lista yfir þær borgir þar
sem hvað hagstæðast hefur verið fyr-
ir íslendinga að versla. Glasgow
bættist i hópinn sem verslunarborg
fyrir áratug, eöa því sem næst, þegar
segja má að innkaupaferðaæðiö hafi
byrjað. Þar má finna svipaðar versl-
anir og í London, með sambærilegri
vöru, en yfirferð búðaráparans er
ekki eins mikil. Þessar tvær borgir
eru enn vinsælastar en borgir eins
og Amsterdam og Hamborg hafa
mjög sótt á aö undanförnu. Islend-
ingar eru líka farnir að heimsækja
aðrar borgir í Þýskalandi til að
versla, Frankfurt og Trier. í þýsku
borgunum er yfirleitt hægt að gera
góð kaup í fatnaði og ýmiss konar
rafmagnsvörum og þýsku vörurnar
þykja vera í mjög háum gæðaflokki.
Svipaða sögu er að segja af Amster-
dam þar sem gæðavara er mun ódýr-
ari en á íslandi. Þá er nokkuð um
að fólk fari til Lúxemborgar þar sem
verðlag er tiltölulega hagstætt, þó
ekki eins og í Þýskalandi.
En þótt styttri ferðir til útlanda
njóti mikilla vinsælda um þessar
mundir telja ferðaskrifstofumenn að
minna sé um hreinar verslunarferðir
en oft áður. Fólk fari í æ ríkari mæli
til þess að skemmta sér í leiðinni og
njóta þess að vera til, sækja leikhús
og aðra menningarviöburði. Og er
það ekki einmitt skemmtilegasta
blandan? -gb
Verslað í Hamborg:
„Búðimar svo fallegar að maður gleymir sér"
Sýnishorn af vörunum sem Ásta keypti í Hamborg. Þar er hægt að gera mjög góð kaup á vandaðri vöru ef maður veit hvert á að fara.
Leikstjorastoll, kr. 1.985,-
Sjónvarpsborð, kr. 6.600,-
Glerskápur, kr. 36.580,-
Sófaborö, 130x60 cm, kr. 14.900,-
w?w»Hffwr m
VISA
EUROCARD
AFSLA TTARKORT
Pöntunarlisti og póstverslun
um land allt. Hringdu strax!
©91-625870
Hljómtækjaborð, kr. 5.850,-
Innskotsborð, 3 stk., kr. 12.670,-
Glerborð, 75x75 cm, kr. 11.490,-
Hjónarúm, 140x200 cm, m/dýnu, kr. 26.875,
LAUGAVEGI 13, REYKJAVIK,
húsgögn
91-625870.
Vönduð og falleg húsgögn
í miklu úrvali.
Ásta er nýkomin úr fimm daga ferð
til Hamborgar þar sem hún verslaði
á sig og eiginmanninn.
En hvers vegna skyldi hún hafa
farið til Hamborgar eða útlanda yfir-
leitt til að versla en ekki bara niður
á Laugaveg eða í Kringluna? Svarið
er einfalt:
„Það er allt svo dýrt á íslandi,“
segir Ásta.
Hamborg getur líka verið dýr
verslunarborg, engu síður en
Reykjavík, og búðirnar eru flottar.
En þótt margt sé þar dýrt segir Ásta
að líka sé hægt að finna ódýra vöru.
En það þarf að leita vel. Og hún fann
það sem hún leitaði að.
„Núna fyrir jólin er mjög mikið um
tilboðsverð í verslunum en þar er
ekki um að ræða neitt rusl eins og
er svo oft hér. Það er hægt að gera
mjög góð kaup.“
Sérstaklega fannst Ástu það eiga
við um karlmannsfatnað enda segist
hún aðallega hafa keypt á manninn
sinn. Bestu kaupin voru í venjuleg-
um hversdagsfotum sem eru dýr á
íslandi. Sem dæmi nefndi hún flau-
elsbuxur sem hér kosta hátt í þijú
þúsund krónur. Fyrir sambærilegar
buxur borgaði hún ekki nema
800-1000 krónur í Hamborg. Áður en
hún fór utan hafði hún verið að
skoða staka jakka á manninn sinn
en ekki fundið neinn undir tíu þús-
und krónum. í Hamborg fann hún
aftur á móti jakka á 5-7 þúsund og
þannig mætti lengi telja.
Ásta segir að í Hamborg sé kven-
fatnaður aðeins dýrari en karl-
mannaföt en engu að síður miklu
ódýrari en hér heima. Sem dæmi
nefnir hún peysusett, jakkapeysu og
aðra til að vera í innan undir, mjög
vandaða og góða flík, sem kostaði
fimm þúsund krónur. „Maður fengi
hana aldrei fyrir sama verð hér,“
segir hún.
Ásta segist hafa keypt fyrir 40-50
þúsund krónur í ferðinni. Hún vissi
að hún mátti aðeins koma með varn-
ing fyrir tuttugu þúsund krónur inn
í landið án þess að greiða af honum
gjöld, og þess vegna var hún dálítið
óstyrk þegar hún fór í gegnum toll-
skoðun á Keflavíkurflugvelli. „En ég
lenti ekki í neinum vandræðum þar,
sem betur fer,“ ségir hún.
Hamborgarferðin kostaði Ástu um
80 þúsund krónur með öllu. Hún seg-
ir að leiðangurinn hafi ekki borgað
sig í þeim skilningi að mismunurinn
á verði þess sem hún keypti þar og
verðinu á sambærilegum varningi
hér heima var ekki nógu mikill til
að borga ferðina og uppihaldið í fimm
daga. Ferðin var líka öðrum þræði
hugsuð sem frí og skemmtun.
Og hún væri alveg til í að fara aftur
í svona ferð.
„Ég gæti vel hugsað mér það og þá
aö vera lengur. Þetta er allt of stuttur
tími. Ég myndi mæla með einni viku.
Þetta er svo geysilega stórt og búð-
irnar svo fallegar að maður gleymir
sér alveg yfir þessu,“ segir Asta.
-gb