Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Blaðsíða 40
1 F R * (BÍ'SIT'I®':": r /\ s i K O T 1 Ð • 25
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988.
Meira af
loðnu, minna
* af þorski
Heildarfiskaíli landsmanna frá jan-
úar til nóvember í ár er ein og hálf
milljón tonn en það er 100 þúsund
tonnum meiri afli en í fyrra.
Það eru loðnuveiðar sem standa
undir auknum fiskafla en veiðarnar
í ár eru um 130 þúsund tonnum meiri
en í fyrra. Þorskafli er ívið minni í
ár, munar rúmlega 10 þúsund tonn-
um. en ýsuaflinn eykst að sama
skapi.
Síldveiðar eru nokkru meiri í ár
en í fyrra og er aukningin um 15
þúsund tonn. -pv
ÞVÖRUSLEIKIR
Fiú er komið að
, „ fjórða jólasueininum.
Sá karl er nefndur
ÞVÖRUSLEMIR
Veist þú huað orðið
þuara þýðir?
DAGAR
L TIL JÓLA
‘ I______
LOKI
Skyldi það vera Stalín gamli
sem er genginn aftur þarna?
Verbúð SMarvinnslimnar í Neskaupstað:
Presturinn beðinn um
hjálp vegna reimleika
Presturinn í Neskaupstað, séra
Svavar Stefánsson, var í gærmorg-
un kallaður í verbúð Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað vegna reim-
leika sem íbúi þar telur sig ekki fá
frið fyrir. Það er ensk stúlka, sem
þar dvelst, sem kveðst hafa orðið
vör við eitthvað óhreint á sveimi.
Segist stúlkan ekki hafa fengið frið
um nætur og átt bágt með svefn
vegna þessa.
„Hún hefur víst staðið í þeirri
meiningu að það væri einhver
draugur þarna,“ sagði Hjálraar
Kristinsson, verkstjöri í Síldar-
vinnslunni, er DV ræddi við hann.
„Þetta er í fyrsta skipti sem svona
mál kemur upp héma. Ég hef aldr-
ei heyrt talað um þetta fyrr. Það
hafa fjölmargir dvalið í þessu hús-
næði en ekki verið kvartað undan
neinum óróleika áður. Ég heyrði á
skotspónum að stúlkan hefði beðið
prestinn að koma svo að ég spurði
hana að því. Þaö reyndist rétt vera
en að öðru leyti vildi hún ekki tjá
sig um málið við mig. En hún telur
sig ekki hafa fengið frið á nótt-
unni. H vort þaö er imy ndun í henni
veit ég ekki, enda er þetta einka-
mál hennar."
„Það er enginn blaðamatur þótt
ég spjalli við fólk,“ sagði séra Sva-
var Stefánsson sóknarprestur er
DV ræddi við hann. Aðspurður
hvort hann hefði farið í verbúðina
vildi hann ekki neita því en sagði:
„Það kemur engum við hvert ég
fer. Ég er ekkert að gefa upp um
mínar ferðir. Ég ræddi við þessa
stúlku en það sem okkur fór á milli
er einkamál. Það er enginn drauga-
gangur þarna en ef hún heldur það
þá er það hennar mál og þú skalt
spyrja hana.“
Ekki tókst að ná tali af stúlkunni
í morgun. Samstarfskona hennar,
sem varð fyrir svöram í Síldar-
vinnslunni, sagði að hún yrði ekki
viðlátin fyrr en síðdegis. „Hún sef-
ur ekki mjög vel þessar næturn-
ar,“ sagði samstarfskonan sem
kvaðst ekki vilja tjá sig nánar um
málið.
-JSS
Árekstur varð á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar i morgun. Þar skullu saman Lada og Volvo. Báðir
bílarnir skemmdust töluvert - Volvoinn þó öllu meira. Alls urðu sextán árekstrar I Reykjavik á síðasta sólarhring.
DV-mynd S
Mikið slasaður efftir árekstur og veltu
Maður slasaöist mikið er hann
lenti í árekstri á mótum Nóatúns og
Laugavegar skömmu fyrir klukkan
tvö í nótt. Maðurinn hlaut höfuðá-
verka, fótbrotnaði á báðum fótum,
handleggsbrotnaði auk annarra
áverka. Ökumaöurinn var fastur í
bílnum. Klippa varð bílinn til að ná
ökumanninum út.
Bílarnir lentu í árekstri á gatna-
mótunum en bíll slasaða mannsins
stöðvaðist ekki fyrr en hann valt við
steinvegg framan við Heklu hf.
Alls urðu sextán árekstrar í
Reykjavík á síðasta sólarhring. Þar
af varð slys í þremur tilfellum. Tveir
ökumenn voru kærðir fyrir of hrað-
an akstur, þrír voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur, klippt var af
þremur bílum vegna vanrækslu á
skoðun og höfð voru afskipti af tutt-
ugu og sjö ökutækjum vegna stöðu-
brota.
-sme
Veðrið á morgun:
Víða bjart
veður
Á morgun verður norðan- og
norðvestangola eða kaldi á Norð-
ur- og Austurlandi en hæg breyti-
leg átt á Suður- og Vesturlandi.
Dálítil él verða við norður- og
austurströndina, annars staðar
þurrt og víða bjart veður. Hitinn
verður -1-3 stig.
Manndrápið í Kópavogi:
Búiðaðákæra
tilræðismanninn
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur Guðmundi Svein-
björnssyni, rúmlega tvítugum Reyk-
víkingi, þar sem honum er gefið að
sök að hafa árla morguns laugardag-
inn 3. september 1988 svipt tuttugu
og fimm ára gamla konu, Öldu Rafns-
dóttur, lífi.
Guðmundur er í gæsluvarðhaldi
og gildir úrskurðurinn til 1. mars á
næsta ári. Helgi I. Jónsson, sakadóm-
ari við Sakadóm Reykjavíkur, er
dómari í málinu. Hann sagðist stefna
að því að taka málið fyrir snemma á
næsta ári.
Guðmundur og Alda heitin hittust
við skemmtistað í Reykjavík og fóru
saman heim til Öldu. Heimili hennar
var við hlið heimilis foreldra hennar.
Þar varð enginn var við átök eða
annað óvejulegt þessa afdrifaríku
nótt.
GuðmundurSveinbjörnsson kom á
lögreglustöðína í Kópavogi um
klukkan 7.20 að morgni 3. september
og tilkynnti að hann hefði orðið konu
að bana. Þegar lögregla kom á heim-
ili Öldu var hún látin. Á likí hennar
voru áverkar , ; eftir hnífsstungur.
Alda var ógift en lét eftir sig sjö ára
barn.
Guðmundur Sveinbjörnsson hefur
ekki áður komið við sögu lögregl-
unnar. -sme
250 þúsundum
stolið úr bíl
Tvö hundruð og fimmtíu þúsund
krónum var stolið úr bíl í miðbænum
í nótt. Peningarnir voru aðgangseyr-
ir að dansleik sem nemendur
Menntaskólans við Hamrahlíð héldu
í skemmtistaðnum Tunglinu í gær-
kvöld. Peningarnir voru geymdir í.
hanskahólfi bíls sem stóð við
Menntaskólann í Reykjavík.
Rannsóknarlögreglan hefur málið
til rannsóknar. -sme
ÞRÚSTUR
68-50-60
VANIR MENN