Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR; 15, DESEMBER 1988. 15 DV Lesendur „Best að framleiða jólabækur eftirleiðis í kiljuformi." Slæmur frágangur jólabókanna: Ætti að koma fram í verði Torfi hringdi: Ég er fyllilega sammála þeim sem hafa verið að gagnrýna lélegan frá- gang á jólabókunum í ár. Flestar bækurnar eru illa bundnar, en verð- ið hefur lítið lækkað til samræmis við það. Þetta ófullkomna band sumra bókanna er það sama og notað er við kiljuframleiðslu. Eini munur- inn er sá að þessar nýju bækur eru með hörðum spjöldum i stað pappírs- kápu. Heiðarlegra hefði verið af útgef- endum að notast bara við kiljuformið og koma þá bókunum í það verð sem þeim hæfir. - Nú er meðalverð á þessum nýju bókum kr. 2.600 til 3.000 og þær sem eru með límdan kjöl en ekki heftan eru afar „lausblaða" svo ekki sé meira sagt. Ég leit t.d. á báð- ar þessar bækur sem nú eru einna mest í sviðsljósinu, Ein á forsetavakt og Bryndísarbókina, og gat ég ekki betur séð en báðar þessar bækur væru meö þessum hætti. Nú er ekkert að því að ganga þann- ig frá þessum bókum, bara að það sé ekki verið að láta fólk halda að þetta band sé jafngott og annað hefð- bundið bókband, en það er það alls ekki. - Þess vegna ættu bókaútgef- endur að lækka verðið á bókum með þessu handverki til jafns við kiljubækur eða hafa það kannski lít- ið eitt hærra vegna hörðu spjald- anna. Það sem verst er þó að þegar þéss- ar nýju bækur hafa verið lesnar og handfjallaðar af mörgum og blöðin fara að losna, og það gera þau alltaf, þá er ekki hægt að senda bækurnar til bókbindara og biðja um band að nýju vegna þess að þær hafa engar arkir til að hægt sé að sauma eins og áður var. Best væri að framleiða þessar jóla- gjafabækur eftirleiðis í kiljuformi, þær eru ekki merkilegari en þaö flestar. Síðan geta eigendur þá látið binda þær bækur inn sem þeim verða svo kærar að þeir telja þær þess virði að setja þær á til að skarta í bókahill- um um ókomna tíma. Dagur vonar - von- laus kvikmynd Hallgrímur hringdi: Ég var einn af þeim sem álpaðist til að horfa á kvikmyndina Dagur vonar í íslenska sjónvarpinu, sem ég kalla stundum ríkissjónvarpið. Þar gaf nú á að líta maður! Eins mikið svartnætti, hörmung og hrottaskapur, ásamt bölvi og ragni og maður gat í.sig látiö. En hætt er við að margir hafi ekki getað látið þetta ofan í sig og gengiö frá kassanum, lítið mettir af menning- unni. Fáir hafa þorað að íjalla um þessa sjónvarpskvikmynd, aðrir en þeir sem eru í skýjunum af hrifn- ingu! En þetta fellur kannski prýðilega að þjóðarsáhnni, sál ímyndaðrar skáldaþjóðar? En hvernig ríkis- sjónvarpið getur leyft sér að taka þetta leikrit til sýningar fyrir þá sem enn hafa geð til að greiða af- notagjöld til ríkisins er óskiljan- legt. Uppistaða verksins var þvílík eymd og ógeð að því verður vart trúað að þjóðin vilji í alvöru velta sér upp úr þessum sora. Það mátti ekki einu trufla verkið með fréttum kl. 23 eins og venjan er og engar seinni sjónvarpsfréttir það kvöldið fyrir bragðið. Það mega allir menningarvitar þjóðarinnar hæla svona leikverki, ef verk skyldi kalla, en ég fordæmi það harðlega. - En það er kannski eng- in furða þótt hér sé allt á afturfót- unum þegar þjóðin lætur bjóða sér þetta og svipað sjónvarpsefni. FÁST í NÆSTU VERSLUN POTTÞÉTTAR •.PFNÆMISPRÓFAÐAR ' ,EI TVÆR SfiymnifMHii i EWCW Vlkuverð frá kr. 19.900 * Allar náiiari upplýsingar faerdu á ■vöIuski-iÉ'f.toi'nin iijá iinihoásnuiinmiii og i'cráaskrii'sáoi'iini. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krínglunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100. Við ajúgum svo létt í hutdu FLUGLEIÐIR §kí<k- ot> áciiiiuiiMíi' íAlprn Beiut Stug tíl SAL/JtVRG íillíi laugardaga í vetur Jólamynd frá Getreidegasse í Salzburg, heimsfræg verslunargata. Skíða- eða skemmtiferö í Alpana er jafnframt heimsókn á nokkra af fallegstu og rómantískustu staði heimsins. í Salzburgerlandi má finna góð hótel, hlýlegar krár, diskóstaði, stórfenglega matsölu- staði og feikn öll af mjög góðum verslunum. Þið njótið góðs af íslenskumælandi starfsfólki Fiugleiða, hvort sem um skemmtiferð eða skíðaferó er að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.