Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Qupperneq 22
Deildarstjóri
á sviði hugbúnaðar
Ratsjárstofnun óskar eftir að ráða deildarstjóra á sviði
hugbúnaðar. Umsækjandi skal hafa háskólapróf í
verkfræði eða tölvufræði og reynslu í að hanna og
koma upp tölvukerfum fyrir rauntímavinnslu. Jafn-
framt þarf viðkomandi að hafa reynslu í forritun og
verkefnisstjórnun og geta unnið sjálfstætt að skipu-
lagningu verkefna. Mjög góð enskukunnátta er áskil-
in. Starfið hefst með u.þ.b. þriggja ára dvöl við störf
erlendis til þess að taka þátt i verkefnisstjórnun við
uppbyggingu nýs ratsjárkerfis.
Umsóknir berist í síðasta lagi 6. janúar 1989 til:
Ratsjárstofnunar
Laugavegi116
Pósthólf 5374
125 Reykjavík
b.t. Jóns E. Böðvarssonar.
eru best þar sem þjónustan er mest!
EITT TÆKNILEGASTA
ÚR í HEIMI, DBC-610
Staðartími og dagsetning. 50 símanúmera
minni, 9 bókstafir, 12 tölustafir.
Dagsetningarvekjari. Daglegur
vekjari. Reiknivél.
Verð kr. 3.600,-
í fíberkassa.
Verð kr. 4.500,-
í króm/stáli.
Allar gerðir
af úrum.
Verð frá
kr. 400,-
heimstímar.
i'liðurteljari.
Skeiðklukka.
Microljós.
12 eða 24
tíma kerfi. 24
Rafhlöðuverk.
HANDSTURTUSETT
Stillanlegur handdreifari,
sturtustöng, barki og sápuskál.
NYTSAMLEG JÓLAGJÖF
VERÐ AÐEINS 1.990,-
w VATNSVIRKINN HF..
~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Fjölmiðlar
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1988.
i' • ú fi'Jíu.ai: rnij i\-
Löggu-ljós í
skammdeginu
Jólin og undirbúningur þeirra
yfirgnæfa nú aöra hluti í fjölmiðlun.
Sjónvarpsstöðvarnar sýna misjafn-
lega misheppnaða þætti til þess að
stytta yngstu áhorfendunum stund-
irnar fram til jóla og alls kyns uppá-
komur eru settar á svið til þess að
draga athygli fjölmiðla að „réttum"
hlutum. Þetta, ásamt hefðbundnu
brasi við Austurvöilinn, er að venju
aðalfjölmiðlaefnið í desember.
Lögga
stelur senunni
Um daginn gerðist svo allt í einu
dálítið sem ekki tilheyrir venjulegri
desemberfjölmiðlun. Lögreglumenn
í Reykjavík tóku til máls og sögðu
borgurunum að þeir gætu ekki leng-
ur ábyrgst öryggi þeirra á sama hátt
og áður vegna þess að ekki væri tek-
ið tillit til fjölmargra þátta í starfs-
umhverfi þeirra, svo sem margfaldr-
ar bílaeignar, stóraukins ofbeldis og
vímuefnaneyslu, þegar styrkur lög-
reglunnar er ákveðinn af fram-
kvæmdavaldinu.
Nú má segja að ekkert af upplýs-
ingum lögreglumannanna hafi þurft
að koma fólki á óvart, að minnsta
kosti ekki þeim sem fylgst hafa með
þessum málum. Samt virðist það
hafa gerst og alveg sérstaklega hafa
menn orðiö hissa á því að lögreglu-
menn skyldu sjálfir hafa einurð til
þess að leggja spilin á borðið.
Það hefur verið mjög fróðlegt að
fylgjast með viðbrögðum manna við
þessari svörtu skýrslu lögreglu-
mannanna. Þau sýna meðal annars
að menn í háum stólum veröa á
stundum hálfringlaðir þegar undirs-
átar þeirra bregða út af gamalli og
troðinni leið og eru ekki tilbúnir að
taka skynsamlega afstöðu í fjölmiöl-
um.
Fyrstu viðbrögð dómsmálaráðu-
neytisins voru fálm og nöldur. Látið
var í það skína að lögreglumenn
hefðu rofið trúnað og sagt frá hlutum
sem hefðu átt að liggja í þagnargildi.
Að vísu er skiljanlegt að þessi
skýrsla hafi komið illa við ráðuneyt-
ið og önnur skrifstofuveldi sem enn
starfa í anda kanselístílsins og miða
flestar ákvarðanir við skrifborðs-
rendurnar en hafa rótgróna og inn-
hyggða andúð á viðhorfum þeirra
sem verkin vinna. En á dögum op-
innar fjölmiölunar verða menn að
gæta að því sem þeir láta frá sér fara,
jafnvel þótt í svefnrofunum sé.
Því er farið svo mörgum orðum um
þetta hér aö hér er enn eitt dæmiö
um þaö hvernig nútímaíjölmiðlun
kemur róti á mál sem helst hefur
ekki mátt minnast á áratugum sam-
an. En hvemig standast rök vald-
hafanna?
Trúnaður
við hvern
- af hverju þögn?
Ekki verður hjá því komist að spyija
við hvern lögreglumenn eigi að halda
trúnað - yfirmenn sem þeir telja að
taki rangar ákvarðanir eða fólkið
sem þeir eiga að vemda? Eru þeir í
störfum vegna ríkisvaldsins eða
borgaranna? Auðvitað hvort tveggja,
það er ljóst. Þeir era m.a. eina aflið
sem hið veika framkvæmdavald okk-
ar hefur til þess að halda uppi lögum
og rétti á hugsanlegum óróleikatím-
um. Ef þeir færu t.d. að bera á torg
í fjölmiðlum skipulag, sem grípa ætti
Fjölmiðlar
Magnús Bjamfreðsson
til á neyðarstundum í þjóðfélaginu,
væra þeir að mínum dómi að fremja
alvarlegt trúnaðarbrot, sem jafnvel
gæti talist landráð.
En ef þeir telja að þeir séu búnir
að þrautreyna hefðbundnar leiðir án
árangurs til þess að tryggja hag borg-
aranna og séu farnir að veita þeim
falskt öryggi þá er mikill ábyrgðar-
hluti fyrir þá að þegja. Þeir sem til
þekkja segja að það sé aðeins tíma-
spursmál hvenær einhver voðaat-
buröur af áður óþekktri stærð hér-
lendis verði í miðbæ Reykjavíkur,
vegna eftirlitsleysis löggæslunnar
þar að næturlagi. Hvað myndu borg-
ararnir segja ef ÞÁ allt í einu kæmu
lögreglumenn fram í fjölmiðlum og
segðu: „Það er langt síðan við vissum
að þetta gæti gerst vegna þess að við
erum svo fáir en við vildum bara
ekki segja frá því!“ Hræddur er ég
um að þá myndi einhver hreyta
ýmsu í þá - og það með réttu.
Ef lögreglumennirnir hafa talið
þrautreynt að ekki fengist skilningur
framkvæmdavaldsins á þeirri aukn-
ingu löggæslu sem þeir telja nauð-
synlega þá gerðu þeir rétt í því að
fara í fjölmiðla. Eg skilyrði þessa
fullyrðingu því auðvitað get ég ekki
um það dæmt. En viðbrögð ráðuneyt-
is við kynningu lögreglumanna á
skýrslu sinni benda vissulega til þess
að þar hafi menn hrokkið upp af
notalegum hlundi og orðið fúlir yfir
ónæðinu.
Raunar ér líklegt aö margt í þess-
ari skýrslu verði fjölmiðlum við-
fangsefni á næstunni enda er í henni
aragrúi upplýsinga. Þá hefur þaö
gerst að lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur tekiö afstööu með sínum
mönnum í flestum þeim atriðum sem
snerta mest almennt öryggi borgar-
anna svo ljóst má vera að þarna er
ekki um að ræða ástæðulaust mold-
viðri óánægðra undirmanna.
Viðhorf
til löggæslu
í framhaldi af þessu er fróðlegt að
virða fyrir sér afstöðu íjölmiðla al-
mennt til löggæslu og löggæslu-
manna og þær breytingar sem á
henni hafa orðiö.
Ekki þarf að fara nema svo sem
aldarfjórðung aftur í tímann til þess
að flnna það viðhorf í flestum fjöl-
miðlum að frásögn lögreglu og
skyldra yfirvalda af viðskiptum við
borgarana sé í flestum tilfellum hin
rétta og endanlega, nema sérstakar
aðstæður væru fyrir hendi. Ekki er
vafi á því aö á stundum hafa þá legið
í þagnargildi útskýringar og jafnvel
ásakanir fólks sem taldi sig með rök-
um órétti beitt.
Með opnari ijölmiðlun hefur orðið
á þessu breyting. Frásagnir löggæslu
eru ekki lengur taldar hinn endan-
legi sannleikur og þeir sem eiga í
útistöðum við lögregluna fá að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri.
Hins vegar flnnst mér þarna á
stundum veröa „slys“ í fjölmiðlun
undir yflrskini frelsisins. Enda þótt
löggæslumönnum geti vissulega orö-
ið á eins og öllum öðrum verður að
hafa í huga að í langflestum tilfellum
hefur lögregla afskipti af fólki vegna
þess að það hefur brotið lög og mál
þess bíður dóms. Margt af þessu fólki
á ljótan feril að baki og hefur mis-
þyrmt saklausu fólki eða ógnað ör-
yggi þess með gáleysi, t.d. vítaverð-
um akstri. Oft er þetta fólk viti sínu
íjær af ölvun eða neyslu annarra
vímuefna og stofnar eigin öryggi og
annarra í hættu, þegar lögreglan
kemur til skjalanna. Samt virðast
sUmir íjölmiðlar ávallt taka afstöðu
með þessu fólki, hvernig sem ástatt
er. Lögreglan er gerð að vondu
mönnunum, skálkarnir heiöraðir.
Þetta held ég að sé býsna háskaieg
stefna, ef öryggi borgaranna er haft
að leiðarljósi. Lögreglan á aö hafa
aðhald frá fjölmiðlum en það má
ekki snúast upp í andhverfu sína,
ekki verða til þess að hvetja skálk-
inn, ekki verða til þess að hvaða
þrjótur sem er geti logið að vild sinni
í íjölmiðlum til þess að ná sér niðri
á lögreglumönnum sem voru að gera
skyldu sína.
Skylt er að taka fram að hér eiga
ekki allir Ijölmiðlar skammir skild-
ar. Óþarft er að nafngreina þá er
betur standa sig, sem betur fer ná
þeir til flestra íjölmiðlaneytenda.
Ég held að á jiessu sviði eins og
raunar mörgum öörum sé kominn
tími fyrir fjölmiðlamenn að hugsa
sinn gang^og gera sér grein fyrir því
að hvað sem allri sölu líður þá er
þeirra hlutverk það að veita neytend-
um sínum sannar og réttar fréttir en
ekki að hreykja sjálfum sér á ann-
arra kostnað í misskilinni sjálfum-
gleði.
Eru þeir í störfum vegna rikisvaldsins eða borgaranna?