Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Blaðsíða 57
.88*
g;j69
Svidsljós
Tvíburar en hálfsystkini:
Faðerni annars barnsins
er hulin ráðgáta
Þau fæddust meö nokkurra mín-
útna millibili, Pétur og María, og eru
tvíburar. Samt eru þau hálfsystkini.
Það Irefur verið staðfest að tvíbur-
arnir eiga sinn föðurinn hvor.
Spurningin er bara hveijir séu feður
þeirra. Það eina sem menn vita fyrir
víst er að eiginmaður móður þeirra
er það ekki.
Þetta mál hefur vakið talsverða
athygli í Svíþjóð og menn hafa furðað
sig á því. Aðeins er vitað um íjögur
tilfelli í heiminum þar sem tvíburar
voru ekki samfeðra. Teknar hafa
verið blóðprufur bæði í Svíþjóð og
Danmörku og menn eru ráðþrota.
Allt frá því tvíburarnir voru tveggja
ára gamlir hafa félagsmálastofnanir
og önnur opinber fyrirtæki haft stöð-
ug afskipti af fjölskyldunni. Reyndar
er það orðið svo að fjölskyldan hefur
flutt sig um set og er ekki með síma
til að fá frið.
Eiginmaöurinn, Sten Háljeskog,
hefur tekið börnin sem sín eigin. Sten
og Irja, kona hans, giftu sig árið 1979
eftir að hafa þekkst í nokkur ár. Eft-
ir nokkurra mánaða hjónaband
komu upp hin ýmsu vandamál sem
urðu til þess að Sten flutti að heiman
í desember 1979. Þau voru skilin fram
í júlí árið 1980. í millitíðinni kynntist
Irja öðrum manni, Hans, og voru þau
saman í ljóra mánuði.
Þegar Irja uppgötvaöi að hún var
barnshafandi varð hún talsvert óró-
leg því báðir þessir menn gátu verið
faðirinn. Tvíburarnir fæddust níu
vikum fyrir tímann, í ágúst 1980.
Þeim voru gefin nöfnin Pétur og
María. Pétur fæddist fyrst og stuttu
seinna kom María í heiminn.
Hans vildi að Irja léti Sten vita af
því að hugsanlega væri hann faðir-
inn. Hans og Irja hættu saman og
Sten flutti til Irju. Sten og Hans vildu
báðir að börnin færu í blóðprufu til
að rannsaka faðernið. Rannsóknin
leiddi í ljós að Sten var ekki faðir að'
börnunum. Greinilega kom í ljós að
Hans er faðir Péturs en ekki Maríu.
Irja sver fyrir að hún hafl verið
með öðrum mönnum en þeim tveim-
ur. Hins vegar heldur Hans því fram
að þriðji maðurinn hljóti að vera til.
Hann segist hafa séð mann bíða í bíl
fyrir utan hús þeirra er hann var hjá
Irju. Enginn getur gefið skýringu á
því hver er faðir Maríu.
Sérfræðingar hafa velt einni skýr-
ingu fyrir sér og segja að hún geti
verið raunsönn. Hugsanlegt er að
maður beri með sér lifandi sæði frá
konu, sem hefur nýlega haft sam-
farir við annan mann, til annarrar
konu. Ef svo hefur verið í þessu til-
felli hefur Irja aíið barn manns sem
Hans er faðir Péturs en ekki Maríu.
Hjónin Sten og Irja ásamt fimm ára gömlum syni þeirra og tviburunum
Maríu og Pétri.
Tvíburarnir Pétur og Maria eru átta ára. Faðerni Péturs er vitað en sérfræðingum er faðerni Mariu hulin ráðgáta.
■*
hún hefur aldrei verið með. Ekki
hefur verið gert neitt til að styðja
þessa kenningu frekar en yfirvöld í
Svíþjóð telja að faðir barnsins verði
að finnast. Barnið á rétt á að vita um
faðerni sitt, segja þau.
Árið 1982 var óskað eftir því að
börnin, Sten, Hans og Irja kæmu til
blóðrannsóknar á nýjan leik. Rann-
sóknin tók þrjú ár og niðurstaðan
varð sú sama. Fremstu sérfræðingar
í Svíþjóð voru kallaðir til en þeir
gátu ekki heldur leyst gátuna.
Þá var ákveðiö að íjölskyldan og
Hans myndu mæta hjá Hans Gurtler,
prófessor við Kaupmannahafnar-
háskóla, til að gangast undir frekari
rannsóknir. Fyrir ári gerði danski
prófessorinn rannsóknir sínar. Hann
staðfesti að 99,8% líkur væru á að
Hans væri faðir Péturs. Hann gat
ekki frekar en aðrir gefið skýringar
á föður Maríu. Engin skýring og nú
er fjölskyldan orðin þreytt á enda-
lausum prófum sem öll sýna sömu
niðurstöðu. Sten og Irja telja að allar
þessar rannsóknir hafi slæm áhrif á
tvíburana.
María og Pétur, sem eru átta ára,
vita allan sannleikann í málinu. Þau
láta föðurgátuna ekki hafa áhrif á
daglegt líf sitt. Irja er hins vegar orð-
in þreytt á kerflnu sem nánast dæm-
ir hana lausláta. Hún vonast til að
einhvern tíma komi svar viö spurn-
ingunni um hvernig þetta gat gerst,
bæði sjálfrar sín vegna en ekki síður
vegna almennings.
John Huston á að vera svart-hvítur
Franskur dómstóll hefur lagt
bann við sýningum á endurgerð
kvikmyndarinnar Malbiksskógur-
inn sem John Huston gerði á sjötta
áratugnum. Huston skilaði mynd-
inni frá sér í sauðalitunum. Það
hefur mörgum þótt miður því þetta
er mikiö listaverk.
Til aö auka litadýrðina var mynd-
inni breytt i litmynd með aðstoö
tölvu. Dómstólhnn komst að þeirri
niðurstöðu að þetta væri ólöglegt
nema erfmgjar Hustons sam-
þykktu. Þaö vilja þeir ekki gera
frekar en gamU maðurinn meöan
hann var á Ufi þvi hann halði oft
hafnað óskum um aö gamlar
myndir eftir Iiann væru litaðar
með þessari tækni.
John Huston barðist alla tíð gegn litun mynda sinna.
Dukakis
úthýst
Vaxmyndasafn Madame Tussaud í
Lundúnum hefur ákveðið að taka
niður vaxmynd af Michael Dukakis
eftir að hún hafði verið þar til sýnis
í rúman mánuð. Þegar kosningabar-
áttan í Bandaríkjunum stóð sem
hæst var vaxmyndum af honum og
Bush komið fyrir í safninu.
í sögu safnsins hefur engin vax-
mynd verið höfð svo stuttan tíma til
sýnis. Frægðarsól Dukakis er því
hnigin til viðar eftir að hafa verið
skamma stund á lofti.
Þeir Bush og Dukakis eru fyrstu
bandarísku forsetaframbjóðend-
urnir sem fá myndir sínar á stalla
safnsins fyrir kosningar. Til þessa
hefur þótt nóg að hýsa vaxmynd for-
setans.
Michael Dukakis er ekki lengur i
náðinni hjá Tussauds í Lundúnum.