Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Page 23
.88GI H3HM333Q .Ví HUOAQflAOUAJ LAUQARBA'ÖUft -Wr ÐESEMBfiR*lft68r En margt hefur gamli maöurinn heyrt og séð á langri göngu - og hugs- aö sitt: Maðurinn giftist eldri ekkju, efldi með því fjárhaginn, en tuttugu ára tímaskekkju tók ei með í reikninginn. 2. í streyma ótal gestir afmæli þessa manns. Áður formæltu flestir fæðingardegi hans. 3. Þó að ræða þín sé hlý, þú sért góður talinn, finnst mér hverju orði í eiturbroddur falinn. 4. Fátæklegur flíkar andi fræðigrein. Uppsprettan er óþrjótandi, en ekki hrein. Heldur penna höndin hvít, hæfa skrifborðsreglur. Það sest aldrei ögn af skít undir þessar neglur. GERÐU JÓLALEGT í GARÐINUM ÞÍNUM 40 LJÓSA KEÐJA Á AÐEINS KR. .680. 80 LJÓSA KEÐJAÁ AÐEINS KR. 2.500. (24 V straumbreytir fylgir.) Þessi keðja er viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins. Opið laugardag frá 10-18. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16, s. 68 07 80. Austfirskar stökur eftir Braga Bjömsson frá Surtsstöðum Áriö 1985 gáfu Menningarsamtök Héraðsbúa, undir forystu Siguröar Óskars Pálssonar, út ljóðakverið Agnir eftir gamlan austfirskan bónda, Braga Björnsson, frá Surts- stöðum í Jökulsárhlíð. Hann mun vera kominn á fallandi fót ef hann er enn ofar foldu sem ég þó ætla. Hann heilsar þar með þessari stöku: Stundum þegar einn ég er og ekkert kýs að heyra, þá er eins og þögnin mér þylji vísu í eyra. Vísurnar hér í þættinum eru ekki samstæðar, tíndar hér og þar úr bók- inni. Og svo má fara beint af augum, engin hætta á að maður vilhst í neinni þoku. Hér er ljóst, fallega og kunnáttusamlega kveðið: Lokkar heimur, þrýtur þrek, þorrin fullin sýnast. Okkar gleymast bernskubrek, barnagullin týnast. Til margra ráða er gripið þegar konur þurfa að bæta menn sína. Konan, góðlynd gæðasál, grasi borðin þekur. En þó hún beiti bónda á kál batna lítið tekur. Vísnaþáttur Jón úr Vör En þægur hefur hann þó verið, ekki alls varnað. Hér er önnur kven- lýsing. Birtist honum hér á ferð, hún þó máli kinnar, - óvönduö og illa gerð umgjörð sálarinnar. Og hér fær ónefndur sinn dóm: Hól þitt er helmingi um of, hræsni þín engu lík. Fánýtt er falsarans lof. Frá mér burt, Satan, vík. 6. Stundar sjóði, stundar rán, stundarveði beitir. Stundargróöi, stundarlán stundargleöi veitir. 7. Mér finnst í þér lítið lið, líka harðni brýna, - eitthvað bogið vera við vináttuna þína. 8. Varla mun lofuð sem vert er vinnan hans yfirleitt. Þess ber að geta sem gert er: Hann geröi ekki neitt. 9- Átti ei lok á andans sjóð orðaþokulopinn. Upp úr koki opnu stóð ættarhrokaropinn. 10. Ekki er von að vitsins rós ■ vaxi í slíkum skugga, ef að streymir ekkert ljós út um sálarglugga. 11. Lítilsviröi er líkamsstærð, lífið hærra metur, ef þú byrði axlað færð öðrum stærri betur. 12. Til aö öðlast álit, hrós, - og eignast góða vini ljúga ýmsir undir rós, - allt í gróöaskyni. Gripið niður á öðrum stað í bók- inni. Löng mér þykir þessi bið, það er standiö auma, að vera orðinn utanvið iðju lífs og drauma. Lítils arðs og yndis naut, erja garð í ströngu, veðurbarða vanga hlaut „Vonarskarðs" á göngu. En höfundur málar ekki allt með sama pensli og á marga liti í fórum sínum. Öll þó hún sé auðnarleg enn gefst ferðaleiði, meðan ennþá vísa veg vörðubrot á heiði. Verður tæpast vinafár vegferðar á göngum sá, er getur gleðitár glætt á annars vöngum. Burt frá sólu skarast ský skjótar en auga festi, þar sem vinir varpa í vonast eftir gesti. Kemur eftir vetur vor, vætur sjatna og þorna. Gengins tíma gróin spor geyma sögu forna. Jón úr Vör Fannborg 7 Kópavogi Jólaskreytinguna fær ð þú hjá okkur Einnig allt efni til jólaskreytinga Opið 9-21 alla daga til jóla GARÐSHORN við Fossvogskirkjugarð sími 40500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.