Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1988.
47
sem náöu stórmeistaraáfanga. Glek
tefldi byrjunarleikina hratt en í mið-
taflinu fór smám saman aö halla
undan fæti og Margeir vann sann-
færandi sigur.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: I. Glek
Kóngsindversk vörn.
1. d4 RfG 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Be2 0-0 6. Bg5 Ra6!?
í skák Margeirs viö Kasparov á
heimsbikarmótinu lék heimsmeist-
arinn 6. - Rbd7 sem er leikur sem
Glek mun einnig hafa haldið tryggð
við. Nú hefur hann undirbúið aðra
leið sem er allrar athygli verð.
7. Dd2 e5 8. d5 De8
Með því að hafa riddarann á a6 í
stað d7 hindrar svartur að hvítur
geti blásið til sóknar með g2-g4 sem
títt er í þfessu afbrigði.
9. Bf3 Rh5!
Hugmynd Fischers í nýjum bún-
ingi! Sovétmaðurinn lék þennan leik
án umhugsunar - greinilega sam-
kvæmt heimarannsóknum. Óneitan-
lega minnir þetta á leik Fischers í
þriöju einvígisskákinni viö Spassky
sem olli miklu fjaðrafoki í Laugar-
dalshöllinni: 1. d4 Rí6 2. c4 e6 3. Rí3
c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 g6 7.
Rd2 Rbd7 8. e4 Bg7 9. Be2 0-0 10. 0-0
He8 11. Dc2 Rh5!? o.s.frv.
10. Bxh5 gxh5 11. Rge2 f5 12. exfÖ Bxf5
13. Rg3 e4!
Leikið eftir langa umhugsun en
fram að þessu hafði svartur aðeins
notað stundarfjórðung á klukkunni.
Taflið er nú nokkurn veginn í jafn-
vægi en staðan er viðkvæm á báða
bóga.
14. 0-0 Dg6 15. Be3 Hae8 16. Khl Bd7
17. f3 exf3 18. gxf3 h4?
Eftir 18. - Rc5 virðist svartur síst
eiga lakari færi.
19. Rge4 Dh5 20. Bd4 Bxd4 21. Dxd4
Skák og bridge
Nú á hvítur sterka stöðu á mið-
borðinu, fallega bækistöð fyrir ridd-
ara á e4 en riddari svarts er úr leik.
Auk þess hótar hann 22. Hgl + og 22.
Rf6 + .
21. - De5 22. Df'2 Df4 23. Re2 De5
Eftir 23. - Dh6 verður svartur að
reikna með 24. Hgl + með óþægind-
um. Hann gefur peð en fær lítið í
staðinn.
24. Dxh4 Kh8 25. R2c3 Hf4 26. Dh6 Hg8?
Betra er 26. - Hef8 sem hvítur svar-
ar með 27. Rg5 og á betra tafl.
27. Hgl Be8?! 28. Rg5 Dg7 29. Dh3 Bd7
30. Re6 Bxe6 31. dxe6 De5 32. Hxg8+
Kxg8 33. Dg3+ Kh8 34. e7!
Og svartur gafst upp.
Stysta vinningsskák mótsins mér
vitanlega var eftirfarandi sigur Ve-
limirovic á Júgóslava nokkrum sem
ég kann ekki að nefna:
Hvítt: Velimirovic
Svart: N.N.
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 Db6 7. Rdb5 a6 8.
Be3 Dd8 9. Rd4 Rg4 10. 0-0 Rce5 11.
Bb3 Rxe3 12. fxe3 g6? 13. Rf3 Rxf3 14.
Dxf3 Be6?
Eftir 14. - f6 15. Hadl og síðan 16.
e5 á hvítur mun betra tafl en þetta
var þó skárri kostur.
I I
Á ii 1
1 ii i
A
ááá & &
s H*
ABCDEFGH
15. Ba4 + !
Og svartur gaf. Eftir 15. - b5 16.
Rxb5! axb5 17. Bxb5+ veröur hann
mát eða tapar drottningunni.
-JLÁ
Bridgefélag Selfoss
og nágrennis
Urslit í Höskuldarmótinu sem lauk
1. des. 1988. Stig
1. Sigurður Hjáltason-
Haraldur Gestsson 1189
2. Brynjólfur Gestsson -
Þráinn Ó. Svansson 1140
3. Daníel Gunnarsson -
Steinberg Ríkharðsson 1133
4. Kristján Gunnarsson -
Vilhjálmur Þ. Pálsson 1112
5. Kjartan Jóhannsson -
Óskar Pálsson 1097
6. Helgi Grétar Helgason -
Anton Hartmannsson 1090
7. Sveinbjörn Guðjónsson -
Runólfur Þ. Jónsson 1068
8. Eygló Gránz -
Valey Guðmundsdóttir 1052
9. Sigfús Þórðarson -
Gunnar Þórðarson 1029
10. Garðar Garðarsson -
Guðmundur Sæmundsson 1016
11. Ólafur Steinason -
Grímur Arnarson 1009
12. Leif Österby -
Valdimar Bragason 1000
13. Valtýr Pálsson -
Leifur Leifsson 996
14. Þröstur Árnason o.fl. 972
15. Eiríkur Guömundsson -
Gunnar Gunnarsson 848
Einmenningskeppni, tvö kvöld, hefst
flmmtudaginn 15. des. 1988 og er hún
jafnframt firmakeppni félagsins.
Þátttaka tilkynnist til Sigfúsar í síma
21406 og 21400 og Valdimars í síma
21434.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 5. desember komu
9 sveitir frá Bridgefélagi kvenna i
Reykjavík í heimsókn og kepptu við
heimamenn. Úrslit urðu sem hér seg-
ir:
1. borð Þorgeröur - Þórarinn 12-18
2. borð Júlíana - Einar S. 8-22
3. borð Sigrún - Kristófer 3-25
4. borð Anna L. - Kjartan M. 6-24
5. borð Aldís - Kristmundur 8-22
6. borð Lovísa - Ólafur T. 9-21
7. borð Björg - Þröstur 9-21
8. borð Freyja - Sigurður L. 11-19
9. borð Brynhildur - Jón G. 0-25
Veitt voru sérstök aukaverðlaun
fyrir stærstan sigur, en það er orðin
venja að kaflisjóður félagsins standi
straum af aukaverðlaunum og alls
kyns séruppákomum. Verðlaunin
voru að þessu sinni í formi fjögurra
rauövínsflaskna og komu í hlut
sveitar Jóns Gíslasonar, en með hon-
um í sveitinni spiluðu Árni Hálf-
dánarson, Ólafur Ingimundarson og
Sverrir Jónsson.
Næsta mánudagskvöld verður svo
haldið áfram með s.veitakeppnina
þar sem baráttan er í algleymingi.
fþróttapistiU
Haukur Gunnarsson, fatlaöur iþróttamaður úr Reykjavík, er einn þeirra íþróttamanna sem hafa skarað fram úr
á þessu ári sem nú er að líða. Hér fagnar hann glæstum sigri i 100 metra hlaupi á ólympiuleikum fatlaðra.
í Seoul. Simamynd Reuter
Er erfitt að leggja
mat á afrek
íþróttamanns?
Valsmenn sitja nú einir á toppi
fyrstu deildarinnar í handknattleik
í kjölfar sigurs á reginkeppinaut-
unum, vesturbæingum. Sá leikur
var ekki jafnrismikill og margir
vonuðust eftir en sýndi þó svo ekki
verður um villst hver staða beggja
liða er í íslenskum handknattleik.
Ljóst má vera að Valsmenn eiga
nú skæðasta félagslið íslendinga í
handknattleik en margt kann að
breytast fram til vors.
Famganga íslandsmeistaranna
gegn svissneska félaginu Amicitia,
sem er seinni viðureign aðilanna í
Evrópukeppni, er sá kvarði sem
næst verður lagður á Valsliðiö.
Þessi félög mætast annað kvöld,
sunnudag, í Laugardalshöll.
Sóknarlið Vals
skoraði aðeins 15 mörk
Valur, þetta mikla sóknarlið, setti
aðeins 15 mörk á útivelli gegn
svissnesku meisturunum en náði
þó þeim árangri að tapa meö aðeins
einu marki. Svisslendingar heyra
til hópi b-þjóða, á sama hátt og viö
íslendingar, en hafa þó átt ágætu
gengi að fagna með félagslið sín á
Evrópumótum síðasta kastið.
Menn skyldu því varast að ætla
Svisslendinga gefna veiði en hand-
knattleikur þeirra, sem markast af
mjög yfirveguðu sóknarspili og
þéttri vörn, er árangursríkur þótt
hann gleðji lítt augað.
Valsmenn eru hins vegar með
ótrúlega breitt og harðskeytt lið.
Þeir tefla fram skemmtilegum og
kvikum hornamönnum, flinkum
og sterkum línumanni, sem styður
vel við aðgerðir í sókninni, frábær-
um skyttum og einum efnilegasta
leikstjórnanda á íslandi.
Þá er vörn liðsins gjarnan þétt
og markvarslan ágæt að baki
henni.
Fari félagið því ekki áfram í
meistarakeppninni verður að líta á
það sem nokkurt áfall í íslenskum
handknattleik. Framganga okkar í
íþróttum á erlendum vettvangi er
nefnilega á margan hátt sú ásjóna
íþróttamanna okkar sem snýr að
heiminum.
íþróttamaður ársins
Nú fer að líða að kosningu íþrótta-
manns ársins og er niöurstöðu i
kjöri íþróttafréttamanna gjarnan
beðið með nokkurri eftirvæntingu.
Nú ber svo undir í ár aö ófáir virð-
ast á bandi íþróttamannsins Hauks
Gunnarssonar og er það ekki í
fyrsta sinn sem einhver hluti þjóð-
arinnar hefur valið sér fulltrúa til
að gegna heitinu áður en sjálf kosn-
ingin hefur farið fram. Oft hefur
kjöriö speglað almannaróm en
einnig hefur það komið á óvart á
stundum.
Mörgum er til að mynda enn í
minni sá styr sem reis um kosning-
una á ólympíuárinu 1984 en þá var
aö sumra dómi gengið hjá júdó-
manninum Bjarna Friðrikssyni
sem vann til bronsverðlauna á leik-
unum í Los Angeles.
Er erfitt að meta
árangur íþróttamanna?
Þessi orð eru nýverið höfö eftir
Samúel Emi Erlingssyni, formanni
samtaka íþróttafréttamanna, í við-
tah við DV:
„Ég vil ekki á nokkurn hátt gera
lítið úr afrekum fatlaðra íþrótta-
manna. En þegar á að bera árangur
þeirra saman við árangur annarra
íþróttamanna er okkur vandi á
höndum."
Formaðurinn segir einnig í við-
talinu aö fatlaðir íþróttamenn búi
„einfaldlega við allt aðra sam-
keppnisaðstöðu en aðrir íþrótta-
menn.“
Vel má vera að mikill sannleikur
sé í þessum orðum formannsins en
hitt er ekki síður satt að alhr ís-
lenskir íþróttamenn hljóta að vera
kjörgengir þegar að valinu kemur,
eins og formaðurinn bendir raunar
sjálfur á í títtnefndu viðtali. Sýnist
mér það skipta meiru en lútt aö
mönnum kunni að vera vandi á
höndum við að meta eitt afrek í
ljósi annars.
Þá má ekki horfa fram hjá þeirri
staðreynd að Haukur Gunnarsson,
sem er fatlaður íþróttamaður úr
Reykjavík, stendur í fremstu röð í
heiminum í sínum flokki í 100
metra hlaupi. Þótt við íslendingar
séum mjög stoltir af mörgum frá-
bærum íþróttamönnum okkar tel
ég að fáir, eða jafnvel engir, standi
framar en þessi kappi sem vann
hug og hjarta íslensku þjóðarinnar
með afrekum sínum í SeouL
Mér þykir því þessi spurning
kreíjandi:
Er erfitt að leggja mat á afrek
iþróttamanns sem hefur vaxið að
styrk, nær besta árangri í heimin-
um í sínum flokki, leggur hart að
sér, er reglusamur og þekktur að
prúðmennsku ofan í kaupið?
Jón Örn Gudbjartsson