Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 2
e 2 Sd. Fréttir Mótmæli hundraða unglinga á Suðumesjum: Andvökunótt þúsunda íbúa er bílflautur voru þeyttar - óánægja með að lögreglan í Keflavík lokaði rúntinum „Það hvein og söng í bænum. Ég hef aldrei heyrt önnur eins yfir- þyrmandi læti. Þetta eru furðuleg- ustu aðgerðir sem ég hef séö þótt ég hafi verið í tengslum við umferðina í áratugi. Fyrst hélt ég að einhveijar stórframkvæmdir væru í gangi en komst svo aðþví að verið var að loka rúntinum. Eins og raun bar vitni þýddi nú lítið að beina umferð krakk- anna út í íbúðarhverfin. Krakkamir náðu sér heldur betur á strik og allt- af lengdist flautandi bílalestin,“ sagði Steindór Sigurðsson, bæjarfulltrúi í Njarðvík, í samtali við DV í gær eftir minnisstæða vökunótt flestra bæj- arbúa í Keflavík og Njarðvík aðfara- nótt sunnudagsins. Ungt fólk í hundraðatali, víða af Suðumesjum, þandi bílflautur og fylkti liði á tugum bíla fyrir utan lög- reglustöðina í Keflavík í mótmæla- skyni við þær aðgeröir lögregluyfir- valda að loka Hafnargötúnni í Kefla- vík - þar sem keyrður er rúnturinn. Mikill fjöldi bíla safnaðist einnig fyr- ir utan heimih bæjarstjóra og lög- reglustjóra í Keflavík og þeytti bíl- flautur í hálfa klukkustund. Talið var aö flestir íbúar Keflavíkur og Njarðvíkur hefðu ekki getað sofið þar til hamaganginum linnti um flög- urleytið í fyrrinótt. Stungin vom göt á hjólbarða tveggja lögreglubíla og bílalestir keyrðu m.a. um íbúðar- hverfi, - framhjá sjúkrahúsinu og dvalarheimili aldraðra með miklum óhljóðum og gauragangi. Að því loknu söfnuðust bílar og margir fót- gangandi að lögreglustöðinni og flautuðu óspart. Þegar lögreglan hafði talað við einn þeirra sem taldir vora forsprakkar aögerðanna fór ó- látunum brátt að linna. Rúntinum var lokað með steypu- tunnum strax á föstudagskvöldið og hafði lögreglan þá afskipti af fimm bílum sem virtu lokunaraögerðimar að vettugi. Að sögn lögreglunnar var heldur rólegt í miðbænúm þá þar sem háldið var skólaball Fjölbrauta- skólans í Festi í Grindavík það kvöld. A laugardagskvöldið var Hafnargöt- unni svo lokað aftur rétt fyrir mið- nætti og braust þá mikil óánægjualda út sem stóö yfir þar til klukkan að ganga fimm í fyrrinótt. Mikið hefur verið hringt til lögreglunnar og kvartað yfir þessum aðgerðum sem sköpuðu mikið ónæði fyrir íbúa svæðisins. -ÓTT Þrír slösuðust er bílar sem komu úr gagnstæðri átt skammt austan við Skíðaskálann í Hveradölum lentu í mjög hörðum árekstri á laugardaginn. Þar sem slysið varð eru þrjár akreinar og var ökumaður Citroen bifreiðar að fara fram úr er hann missti stjórn á bílnum i hálku. Lenti hann á sendibil sem kom á móti. ökumaður í Citroen- bílnum handleggsbrotnaöi og slasaðist i baki, farþegi skarst á höfði. Talið er að öryggisbelti hafi bjargað lífi þeirra. ökumaður sendibílsins siapp með minni háttarmeiösl. -ÓTT/DV-mynd S Samstaða EFTA-ríkjanna að aukast: i Fríverslunarsamningur við EB helst talinn koma til greina - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra „Það er ljóst að það hefur verið unnið gífurlega mikið starf og ég held aö alhr séu sammála um að okkar menn sem í þessu era hafa haldið vel á málum og það er almenn ánægja með það. Það hefur náðst miklu meiri samstaða milh EFTA- ríkjanna en áður var og öll viröast sætta sig við það aö ræða sem slík sameiginlega við EB,“ sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra en í gær var haldinn sérstakur fundur ríkisstjómarinnar um undir- búning viðræðna EFTA og Evrópu- bandalagsins. Sagði Steingrímur að á fundinum hefði verið farið yfir gang viðræðnanna. „Það er ljóst að það era íjöldamarg- ir fyrirvarar hjá einstökum ríkjum og þá sérstaklega okkur og Sviss- lendingum. Það er því alls ekki svo að EFTA-ríkin séu öll komin í eina sæng. Okkar fyrirvarar era að sjálfsögðu sterkastir varðandi fiskinn. Þó að þessu sé náð inn hjá EFTA þá er fisk- ur ennþá talinn með landbúnaðar- vörum hjá EB og býr sjávarútvegur þar við gífurlega styrki. Hvort sem við fáum fríverslun með fisk eða ekki þá er það alveg óviðunandi fyrir okk- ur.“ Þrýstingur vaxandi á íslensk fiskimið - Hafa orðið einhverjar breytingar á afstöðu til aðgangs að fiskimiðum okkar? „Við höfum staðið mjög ákveðið á því atriði og við höfum talið að það sé að aukast skilningur á því að það er ekki um að ræða að selja fiskveiði- heimildir fyrir fríverslun. Okkar iðn- aðarvamingur er fiskur og það verð- ur að vera frelsi fyrir hann gegn frelsi fyrir ffamleiðslu hinna þjóö- anna. Eg hefði talið vaxandi skilning á þessu en hitt er annað mál að þess- ar þjóðir era búnar að eyðileggja sín fiskimið nokkum veginn alveg. Þrýstingur er þess vegna vaxandi frá þeim sem þar hafa starfað við sjávar- útveg.“ - En verða fiskveiðamar sá að- göngumiði sem við verðum að greiða? „Þá er hann nú orðinn ansi dýr. Ég myndi nú bara spyija sjálfan mig að þvi hvort ekki séu fleiri og aðrir sem vilja fiskinn og þurfa ekki þenn- an aðgöngumiða. Japanir era að leita að fiski úti um allan heim.“ - En hver telur Steingrímur að verði líkleg niðurstaða viðræðna við EB? „Tollabandalag hefur nú eiginlega verið lagt til hliðar í þessum viðræð- um. Menn hafa rætt um ffíverslun en ekki tollabandalag sem er miklu auðveldcira í allri meðferð. Það væri þá jafnvel fríverslun eins og er innan EFTA núna.“ - Hvert er helsta áhyggjuefni íslend- inga? „Menn hafa áhyggjur af því að erf- itt muni reynast að ganga frá frí- verslun með fisk. Og menn hafa áhyggjur af því að innan EB era gíf- urlegir og vaxandi styrkir við sjávar- útveg í erfiðleikum. Þetta hefur breiðst út um allt Evrópubandalagið. Þannig aö þaö er ljóst að þetta verður erfitt því að þegar við flytjum út fisk til vinnslu þá fer hann í vinnslu í stórlega niðurgreiddum vinnslu- stöðvum Evrópubandalagsins. Sam- keppnisstaða okkar er erfið að þessu leyti og þetta velur vaxandi áhyggj- um án tillits til þess hvort samningar takast eða takast ekki.“ -SMJ Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarstjóri 1 Keflavík: Þýðir ekkert að fara í stríð „Mér skilst að fjöldi bíla hafi flaut- að fyrir utan heimili mitt í nótt. En það var enginn heima þannig að eng- inn var til að svara þeim,“ sagði Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarstjóri í Keflavík, í samtali við DV í gær. „Mér sýnist að það sé ekki sé hægt að leysa þetta mál nema skapa ein- hveija aðstöðu fyrir krakkana. Þetta era vel aldir og þróttmiklir krakkar af Suðumesjum og það þýðir ekkert að fara í stríð við þá. Að vísu er einn og einn unglingur sem sem verður til vandræða. T.d. vora rúöur brotn- ar fyrir þijú hundruð þúsund krónur fyrir tveimur vikum. Það varskipuð nefnd til að kanna hvað hægt væri að gera en þaö virðist vera erfitt að finna út hvað er best. Við þurfum að ræða viö krakkana, t.d. við nemend- aráð Fjölbrautaskólans og Holta- skóla,“ sagöi Guðfinnur. -ÓTT Einn úr hópi mótmælenda: Löggan læsti að sér og dró fyrir gluggana „Þeir réðu ekki við neitt enda viö við svo marga að kljást. Lögreglu- menn læstu bara að sér á lögreglu- stööinni og drógu fyrir gluggana á tímabili. Bflarnir keyröu bara eins og hver vildi, á móti einstefnu með blikkandi gulum viðvöranarljósum og litu ekki við stöðvunarskyldu. Öllum hindunarbúkkunum var bara ratt í burtu og nokkrir keyrðu svo upp eför,“ sagði 18 ára gamall dreng- ur úr Keflavík í samtali við DV. Hann tók þátt í mótmælaaðgerðum gegn lokunaraðgerðum lögregluyfirvalda í Keflavík í fyrrinótt. „Ég heföi ekki viljaö hafa alla þessa bíla flautandi fyrir utan gluggann hjá mér - það hefur varla nokkur getað sofiö í bænum á meðan á þessu stóð. Það vora öragglega hundrað bílar sem flautuðu. En þetta era undarleg- ar aðgerðir. Það voru brotnar rúður í bænum fyrir skömmu en ég get ekki skflið hvers vegna ökumenn eiga að gjalda þess. Þetta eru asnaleg- araðgerðir. -ÓTT Pétur Einarsson, flugmálstjóri er hér sestur við flugherminn og nýtur tilsagn- ar kennara. DV-mynd GVA Nýr flughermir Nýr flughermir var kynntur á laugardaginn - er hann til húsa í gamla flugtuminum á Reykjavíkur- flugvelli. Flughermirinn, sem er í eigu Flugtaks hf., þjónar bæði sem kennslutæki og þeim sem vilja halda sér í þjálfun. Eitt slíkt tæki hefur verið í notkun hér á landi lengi, er það flughermir sem er í eigu Flugleiða hf. Sá er aftur á móti kominn nokkuð til ára sinna og gefur ekki eins mikla möguleika og nýi flughermirinn. Útfærsla á flugherminum er í lík- ingu við stjómborð minni tveggja hreyfla flugvéla sem notaðar era til farþegaflutnings innanlands. Kemur flughermirinn til með aö nýtast flug- mönnumsemogflugnemum. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.