Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 14
- ' %Míbk1tít^%:1^:Y6fei;á i^89.
Spumingin
Hvernig líst þér á
Borgarleikhúsið?
Arnar Gunnarsson: Ég hef cildrei
haft áhuga á leikhúsi.
Harpa Óskarsdóttir: Mér líst bara
æðislega vel á það.
Eyrún Jónsdóttir: Vel, það er ekki
hægt annað. —'
Guðrún Hálfdánardóttir: Mjög vel,
ég hef þó ekki hugsað mér að sjá þau
verk sem þar á að sýna.
Finnur Haraldsson: Borgarleikhúsið
er mjög falleg bygging og ég vona að
hún verði leiklistinni til góðs.
Lesendur
Verkalýðsfélögin eru óþörf
„Nú fer kannski aö flæöa undan mörgum þessara félaga", segir m.a. í bréfinu. - Frá fundi verkalýðsfélaganna á
Lækjartorgi 1. maí sl.
Helgi Kristjánsson skrifar:
Það er nú loksins komið að því sem
ég og margir aðrir hafa haldið fram,
að verkalýðsfélögin hér á landi brjóti
lög á Jandsmönnum með því að
slúkka svo að segja hvern einasta
vinnandi mann til þess aö vera með-
limur einhvers verkalýðsfélags. - Og
nú fer kannsld að flæöa undan mörg-
um þessara félaga. Það er sem sé
komið á daginn að íslensk stjómvöld
hafa fengið mjög alvarlegar athuga-
semdir frá sérfræðingum félags-
málasáttmála Evrópu en að honum
eru íslendingar aðilar. Þar segir að
íslendingar hafl brotið greinar þessa
sáttmála. Ein þeirra er einmitt um
það m.a. aö eJtki megi skerða frelsi
einstaklinga til að neita því að vera
í verkalýðsfélögum. Á lúnn bóginn
má ekki heldur skerða frelsi verka-
fólks og atvinnurekenda til að stofna
sín hagsmunafélög - kjósi þau að
gera það. Þetta á því að vera frjálst
á hvom veginn sem er.
Hér hafa menn á vinnumarkaði
veriö nánast hundeltir eftir að þeir
hafa ráðiö sig í vinnu til að fá þá (og
vinnuveitanda) til að greiða gjöld til
einhvers verkalýðsfélags. Enginn
hefur þorað að mótmæla þessu og
því látið undan þrýstingi talsmanna
verkalýðsfélaganna.
En það em fleiri en þessi grein fé-
lagsmálasáttmálans sem við íslend-
ingar höfum brotið. Eitt er það að
sérhver einstakJingur á rétt á at-
vinnuleysisbótum, án tilhts til þess
hvort hann er í verkalýðsfélagi eða
ekki. Þetta er sniðgengið gróflega hér
á landi með því aö neita um atvinnu-
leysisbætur til annarra en þeirra
sem eru í verkalýðsfélagi.
Vinnulöggjöf íslendinga er talin
orðin einkar. gamaldags og næsta
úrelt. Það er því ekki furða þótt lagt
sé hart að okkur við að komast út
úr miðaldaskipulaginu sem ríkir í
þessum efnum hér á landi. - En það
verður við ramman reip að draga ef
að líkum lætur. Verkalýðsforingjar
og stjómir stéttarfélaga munu nú líkt
og félagsmálaráðherra telja að þetta
mál þurfi nú „nánari skýringa" við,
„svo að fólk átti sig á um hvað málið
snýst“, eins og ráðherrann komst að
orði í svari sínu um athugasemdir
sérfræðinga félagsmálasáttmála
Evrópu!
Þessir sömu aðilar munu eflaust
reyna að malda í móinn og færa rök
fyrir því að þessar greinar félagssátt-
málans eigi ekki við hér á landi, eða
eitthvað í þá áttina. Það verða áreiö-
anlega m£u*gir fundir haldnir um
þetta og nefndarskipun þar á ofan,
síðan ferðalög nefndarmanna á ráð-
stefnur erlendis til að kanna hvort
ekki sé smuga til að losna undan
augljósum ákvæðum sem vemda
hinn almenna borgara á vinnumark-
aði í heimalandinu.
Þetta mætti hins vegar leysa með
þeim einfalda hætti að gefa út reglu-
gerð til að frelsa launþega og losa þá
undan skylduþátttöku í verkalýðs-
félögum sem era hvort eð er algjör-
lega óþörf. —
rrrr"
Frá sýningunni i Glaumbergi í Keflavik. - Einar Júl. með hljóönemann og
María Huldardóttir og Jóhannes Backmann i einu dansatriðanna.
Góð sýning í Glaumbergi
Skúli Sigurðsson skrifar:
Ég fór ásamt konu minni á fram-
sýningu á „Rokki, svita og pylsaþyt"
sem nú er verið að sýna í Glaum-
bergi í Keflavík. Þessi sýning er alveg
frábær í alla staði. Efnisþráðurinn
er einfaldur en kemur kunnuglega
fyrir sjónir. - Þetta er saga af sveita-
stráknum Lúðvik. Hann kemur til
höfuðborgarinnar, kynnist þar fólki
og verður hrifinn af stúlkunni Fríðu.
Misskilningurinn er á sínum stað,
hann verður aö lagfæra og Lúðvík
breytist skyndilega í „töffara“. í
þessu hlutverJd er JóJiannes Back-
mann og fer hann á kostum allan
tímann.
Þama era þekktir söngvarar, svo
sem þau Einar Júl., Anna Vilhjálms,
Bjami Ara og Haraldur Helgason.
Og ekld má gleyma „Rokkabillí"-
bandinu. - Kynnir er Gunnlaugur
Helgason.
Þarna var allt eins og best verður
á kosið; skemmtun, matur og dans-
leikur, ásamt góðri þjónstu í hví-
vetna. Fyrir þetta allt greiddum viö
5000 kr. fyrir okkur tvö. - Það var
góð tilbreyting að fara frá Reykjavík
út á landsbyggðina að þessu sinni,
þótt ekki væri lengra en til Keflavík-
ur.
Áróðursþættir gegn Austur-Evrópu
Vinstrisinni skrifar:
Stöð 2 hefur nýhafið sýningar á
erlendri þáttaröð í sex hlutum um
lönd Austur-Evrópu en þeir eru
sýndir seint á þriðjudagskvöldum. -
Hafði mér ekki dottið annað í hug
en hér væri um að ræða vandaða
heimildarþætti er myndu fjalla um
sögu og menningu þessara landa á
hlutlausan hátt og tækju ekki síður
fyrir hið jákvæða í stjómkerfi þeirra
en það sem miður hefur farið.
En það er nú ööra nær! Hér era
komnir á skjáinn hatursfullir áróð-
ursþættir þar sem veist er harkalega
að stjómvöldum Austur-Evrópuríkj-
anna og sósíalisminn, lífsskoðun
margra milljóna manna um heim
allan, troðinn í svaðið.
Til þess era notaðar útslitnar
hægriklisjur frá tímum póhtískra
ofsókna Mc Carty-tímabilsins í
Bandaríkjunum á hendur sósíahst-
um og marxistum, khsjur sem ég
hefði síst búist við að íslensk sjón-
varpsstöö teldi skyldu sína að út-
breiða.
Ekki veit ég af hvaða hvötum þeir
á Stöð 2 sýna þetta en með því hafa
þeir ekki aðeins flekkaö ímynd
stöðvarinnar, að mínu mati, og
móðgað íslenska vinstrimenn held-
ur einnig sett á sig póhtískan stimpil.
Llkamsrækt á kostakjönun:
Hrópandi óréttlæti
„Ein hress“ skrifar:
í síðustu viku bauð Eróbikk-stúdíó
Jónínu og Ágústu starfsfólki Borgar-
spítalans og Flugleiða 3 mánaða kort
í hkamsræktinni á kostakjöram -
fyrir 6000 krónur. Þar sem ég starfa
hjá hvoragu þessara fyrirtækja þarf
ég aö borga fyrir nákvæmlega sömu
þjónustu 10.450 krónur.
Það má að sjálfsögðu deila um rétt-
læti tilboðsins gagnvart okkur hin-
um en frá mínum bæjardyram séð
er hér um hrópandi óréttlæti að
ræða. Þetta er eins og sniðið eftir
ríkisgeiranum. - Það er sama hvort
þjónustan er í formi guðaveiga eða
leikfimi, ahtaf skal einhver hópur
greiða minna en aðrir.
Ég skora á Eróbikk-stúdíó Jónínu
og Ágústu að bjóða okkur hinum
sömu kjör og það bauð starfsfólki
Borgarspítalans og Flugleiða. Fyrir-
tæki Jónínu og Ágústu er mjög þarft
og um leið gott en svona fréttir geta
farið fyrir brjóstið á manni - og
hækkað blóðþrýstinginn! - Kær
kveðja og von um að allir verði settir
undir sama hatt.
Lesendasíða DV hafði samband við
ofangreint fyrirtæki og ræddi við
annan eiganda þess. Þar kom fram
að Eróbikk-stúdíó þeirra Jónínu og
Ágústu byði hverju því fyrirtæki,
sem hefði innan sinna vébanda 25
þátttakendur eða fleiri, svokahaðan
magnafslátt og til þess þyrfti einnig
að kaupa miðana eða kortin á sama
tíma.
Efbréfritari er þátttakandi í slíkum
hópi nýtur hann að sjálfsögðu sömu
kjara. - Verðið, sem bréfritari gefur
upp sem sitt gjald, er verð fyrir ein-
stakhnga og gildir fyrir alla jafnt.
Dúfnadrit og eftirlit
„Ein óhress“ skrifar:
Á þaki húss okkar sem er sambýl-
ishús í einu af nýrri hverfum borg-
arinnar hefur aðsetur mikið dúfna-
ger. í ljós kemur að dúfnahópur
þessi er búinn að helga sér pláss á
þakinu yfir svölunum hjá okkur
og gerir auðvitað öll sín stykki þar
þegar honum hentar. Dúfnadritið
er í hrúgum á þakinu, sest í renn-
uraar á húsinu og svo á svalirnar.
Dúfur þessar koma frá dúfnakofa
þarna í grenndinni og virðast þær
ekki vera undir neinu eftirhti. Það
er leitt til þess að vita að fólk tekur
ekki tillit til nágranna sinna eða
annarra og því tel ég að setja þurfi
strangar reglur um svona hluti til
þess að fólk geti varið sig óþægind-
um sem aörir valda.
Útigrih, sem viö voram búin aö
kaupa, var sett niður í geymslu.
Málning brennur undan skítnum
úr dúfunum, en mest erum við
hrædd við smápöddur sem virðast
fylgja í kjölfarið á þessum ófögn-
uði. - Við treystum því aö í þessari
borg Davíðs séu til reglur og einnig
eftirht sem geti létt af okkur þess-
um óþægindum.
Lesendasíða DV hafði samband við
Hreinsunardeild Reykjavíkurborg-
ar. Þar könnuðust menn við máhð,
einmitt úr því hverfi sem hér mun
átt við. Taldi viðmælandi að þetta
mál ætti að vera leyst nú þegar.
Nákvæmar reglur eru ekki til stað-
ar um dúfnahald í borginni en aö
sjálfsögðu ber þeim sem halda dúf-
ur að vernda umhverfið fyrir
ágangi þeirra. Þeir hjá hreinsunar-
dehdinni era cdlir af vilja gerðir til
að koma til aðstoðar ef um er beð-
ið. - Það ætti aö vera léttir fyrir
þá sem þessa plágu hafa þurft að
þola.