Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 26
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBJiJft 1989. Iþróttir Vetraríþróttahátíð á Akureyri: Stef nt að komu heims- frægra skautadansara Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Heimsfrægt danspar Sovétmenn hafa geflö loforð fyrir því aö senda á hátíðina mjög gott verðlaunapar í listdansi á skaut- um, par í fremstu röð í heiminum. Margir aðilar hafa lagt þessu máli lið og Alexander A. Kozlovsky, sem er hátt skrifaður í sovésku íþrótta- lífi, hefur gefið loforð um komu þessara dansara til Akureyrar. Skautasvellið verður einnig vett- vangur íshokkíkeppni en stefnt er aö því að koma á fót keppni Akur- eyringa og Reykvíkinga. Á vél- frysta svellinu veröa einnig fleiri sýningar og uppákomur og trimm fyrir almenning. Undirbúningur er í fulium gangi fyrir þriðju vetraríþróttahátíð íþróttasambands íslands, sem haldin verður á Akureyri dagana 23. mars til 1. apríl í vetur, en sum- arhátíð verður síðan haldin í Reykjavík næsta sumar. Á hátíðinni á Akureyri verður boðið upp á mikinn fjölda atriða. Hæst ber komu heimsfrægs list- danspars frá Sovétríkjunum en einnig verður landskeppni í boð- göngu, alþjóðleg mót bæði í nor- rænum greinum og aipagreinum og segja má að Akureyrarbær og Hlíðarfjall verði undirlögð þá daga sem hátíðin stendur yflr. DV-mynd gk í frjálsu formi og í keppnisformi alla dagana sem hátíöin stendur yfir og áfram mætti telja. Mikill undirbúningur Vetraríþróttahátíðamefnd ÍSÍ hef- ur verið skipuð og hefur þegar unnið mikið starf við undirbúning hátíðarinnar. í nefndinni eiga sæti Þröstur Guðjónsson, Hermann Sig- tryggsson, Óðinn Ámason, Sigurð- ur Aðalsteinsson og Baldvin Þór Grétarsson. Þá starfa margar nefndir að undirbúningi, svo sem göngu- og skreytingamefnd, sem sjá mun um skreytingar í bænum, verðlaunaafhendingar og setning- ar- og lokahátíð. Skemmti- og dag- skrámefnd er starfandi og vöm- og sögusýningamefnd sem sjá mun um að koma á vöm- og sölusýningu á íþróttabúnaði auk þess að sjá um sögusýningu. Vetrarbúðanefnd starfar og móttökunefnd. Fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar er Þröstur Guöjónsson. Ýmsar aðrar uppákomur Þetta er þriðja vetraríþróttahátíð ÍSÍ en þær hafa verið haldnar á 10 ára fresti. Reiknað er með ýmsum uppákomum öðmm en hér hefur verið minnst á og stefnt að því að hátíðin verði hin glæsilegasta sem haldin hefur verið. Alpagreinar Eftir alþjóðlega skíðamótið, sem haldið var í Hlíðarfjalli síðastliðinn vetur, fékkst viðurkenning á að- stöðunni þar fyrir slíka keppni og sagði eftirlitsmaður mótsins þá að aðstaðan öll væri á heimsmæli- kvarða. Akure'yringar ráðast því óhræddir í það á hátíðinni að boða til alþjóðlegs móts í alpagreinum. Alls verður um 8 mót að ræða og fara fimm þeirra fram í Hlíðarfjalli en þrjú á Dalvík. Reiknað er með þátttöku góðra skíðamanna erlend- • Nokkrir forsvarsmanna vetrariþróttahátiðar ÍSÍ á Akureyri með auglýsingaspjald hátiðarinnar. is frá. Þá verður unglingamót í alpagreinum, sýningar eru fyrir- hugaðar og jafnvel stendur til að sýningarlið frá Volvo mæti til leiks. Sérstök dagskrá verður fyrir böm og skíðatrimm á svigskíðum og auk þess verða sérstakar æfingabúðir fyrir unglinga. K*\ • Það verður mlkið um að vera f Hlfðarfjalli þá daga sem hátfðin stendur yfir. Landskeppnií göngu Efnt verður til landskeppni í skíða- göngu karla og hefur landsliðum Englands og Danmerkur verið boð- ið til keppninnar. Þá hafa aðilar í Finnlandi og Austurríki sýnt áhuga á að senda keppendur. Einn- ig verður alþjóðleg^ mót bæði í karla- og kvennaflbkki, sérstakt unglingamót, skíðatrimm á göngu- skíðum fyrir böm sem áhuga hafa. Þá er verið að athuga með „ski- cross“-keppni en slík keppni fer fram í göngubrautum þar sem glímt er við ýmsar þrautir. Vetrar- búðir verða starfræktar og hugsan- legt er að keppt verði í skíöastökki. Margtfteira á dagskrá Margt annað er fyrirhugað þá daga sem hátíðin stendur yfir. Hesta- menn úr Létti munu sýna hesta sína á ís, kynnisferðir verða á hest- um um bæinn og almenningi gefst jafnvel kostur á að fara í ferðir um bæinn í vögnum sem dregnir verða af hestum. Landssamtök vélsleðamanna munu vera að skipuleggja sérstaka keppni eri einnig verður sýning á vélsleðum og ýmsar uppákomur sem tengjast vélsleðaíþróttinni. Sýning verður á vetraríþróttmn fyrir fatlaöa, skátar standa fyrir fjallgöngum, útilegu og fleira, fyrir- lestrar verða, skemmtanir í bæn- um, boðið verður upp á útiveru í hinum ýmsu vetraríþróttagreinum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.