Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1989. 13 Skallagrimsgarður verður sextugur á næsta ári og af því tilefni verður efnt til átaks í umhverfismálum í Borgarnesi. DV-mynd Garðar Borgames: Átak í umhverfismálum Garöar Guöjónsson, DV, Akranesú „Borgarnes er að vísu snyrtilegur bær nú þegar en því verður að halda við. Skallagrímsgarður verður sex- tugur á næsta ári og því var ákveðið að tileinka þaö ár fegrun umhverfis- ins,“ sagði Oli Jón Gunnarsson, bæj- arstjóri í Borgarnesi, í samtali við DV. Bæjarstjórn Borgarness samþykkti nýlega að gera árið 1990 aö ári um- hverfisins og verður af því tilefni gert átak í umhverfismálum í sam- vinnu við félög, stofnanir og fyrir- tæki í bænum. Óli Jón sagði í samtali við DV að stefnt væri að því að slá upp veislu í Skallagrímsgarði næsta sumar í til- efni af afmælinu og átakinu sem þá á að verða lokiö. Ólafsflörður: Einstakt að geta mal- bikað á þessum árstíma Gylfi Kristjáusson, DV, Akureyii: „Það hafa verið talsverðar fram- kvæmdir hér í sumar á vegum bæjar- ins,“ segir Bjarni Grímsson, bæjar- stjóri á Ólafsfirði. „Ætli það hafi ekki verið malbikað- ir hér á bilinu 10-12 þúsund fermetr- ar á götum og stæðum og einkaaðilar voru aö malbika nú nýlega stæði hjá sér. Það er einstakt að það sé hægt á þessum árstíma. Við erum byrjaðir af krafti á grunni fyrir nýtt íþróttahús sem verður mikið mannvirki. Við ætlum að ljúka viö að sprengja í vetur þann- ig að hægt verði að grafa fyrir sökkl- um og steypa næsta sumar. Þessi bygging verður heljarmikið mann- virki. Þar verður m.a. löglegur hand- boltavöllur svo það verður einnig hægt að æfa aðrar íþróttagreinar sem taka minna rými, eins og körfu- bolta og badminton, svo eitthvað sé nefnt. Þá höfum við einnig lokið við að þökuleggja nýjan grasvöll og setja í hann hitalagnir. Eftir er að ganga frá nánasta umhverfi vallarins og skipu- leggja íþróttasvæðið endanlega og girða það. „Þetta eru miklar fram- kvæmdir og taka í hjá okkur eins og hvað annað en vdð kvörtum ekki undan því. Við höfum að vísu ekki greitt mikið niður af skuldum upp á síðkastið en vdð höfum ekki heldur safnað þeim upp og aukum þær ekki mikið þrátt fyrir allar þessar fram- kvæmdir," sagði Bjarni. ^mmmmmmmmmmmm^ * AMC/JEEP ER BÍLLINN ÞINN TILBÚINN TIL VETRARAKSTURS? STARFSMENN OKKAR HAFA ÁRATUGAREYNSLU í VIÐHALDI AMC OG JEEP BIFREIÐA. Það er hagkvæmni og öryggi í að láta fagmenn, sem þekkja bílinn þinn, annast um hann. Tímapantanir í síma 77200 + 77395 EGILL VILHJÁLMSSON HF. SMIÐJUVEGI 4C ^ KÓPAVOGI Fréttir Landsbankinn lætur óháðan aðila gera úttekt á Sambandinu: Varðar um stöðu þeirra og styrk „Endurskoðun hf. hefur verið falið að meta efnahag og fjárhag Sam- bandsins og þær áætlanir sem það er að gera um rekstur sinn,“ sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans. Bankinn hefur falið Endurskoðun hf. meðal annars aö meta rekstrará- ætlanir Sambandsins. En er það ekki nýjung hjá bankanum að kalla til þriðja aðÚa til svona verka, Sverrir Hermannsson? „Ég býst vdð því. Við teljum ástæðu til að leita aðstoðar utanaðkomandi aðila. Við höfum að vísu ágætum mönnum á að skipa. Okkur þykir þetta auka hlutleysið. Sambandið er búið að vera stæsti viðskiptavinur bankans um áratuga skeið, eins og allir vita. Það getur verið að menn séu orðnir fastir í farinu með vdðhorf sín og mat og því vdljum vdð fá ný augu til að hta yfir þetta, annað er það nú ekki.“ - Segir þetta að staða Sambandsins sé verri en talið var? „Nei, alls ekki. Það vita allir að þeir hafa átt í erfiðleikum. Það ber alls ekki að meta þetta á þá vísu.“ - Þetta er gert vegna kaupa ykkar á Samvdnnubankanum, ekki rétt? „Vissulega er það. Þegar vdð erum að versla vdð aðila og ganga undir nýjar skuldbindingar við hann þá varðar okkur um stöðu hans og styrk.“ - Hefur gagnrýnin á kaupin á Sam- vdnnubankanum orðið til þess að þetta er gert? „í hverju hefur þessi gagnrýni ver- ið fólgin, með leyfi?“ - Meðal annars að kaupverðið sé of hátt. „Það eru rakalausar fullyrðingar og út í bláinn og ég hef hvergi séð eina einustu röksemd fyrir því. Ekki örla á henni. Þessir menn vita ekki um hvað þeir eru að tala. Þeir eru bara að fá sér skotfæri í pólitík." -sme n Ultra Hampers ■m M ■ BLEIUR Rakadrægur kjarni að framan Rakadrægur kjarni í miðju Stórkostleg nýjung fyrir litla Stráka og Stelpur Þægilegri - passa betur en nokkru sinni fyrr. þó bleian sé vot eru þau þurr Einkaumboð íslenJkUÍÍÍ Tunguháls 11. Sími 82700. FERÐATÆKI, GEISLADISKA, ÖRBYLGJUOFNA og margt fleira. Okkar annáluðu hagstæðu verð eru sínum stað og alltaf einhver sértilboð í gangi. Það borgar sig að líta við i OPUS. Verið velkomin, næg bílastæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.