Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 5
MÁ^nIjDAG'tIR 30/ ofefÓBeÍi' Í989. Fréttir Flying Tigers fækkar ferðum Viökoriíum Flying Tigers hefur fækkað úr tveimur ferðum á viku í eina vegna minna framboðs af fiskafurðum til Japans. Auk þess þykir ekki borga sig að lenda í Keflavík fyrir minna en tíu tonna vörusendingar. Fulltrúar Federal Express, sem eiga Flying Tigers, fóru þess á leit við utanríkisráðuneytið að það hefði milbgöngu um samninga umboðsaðilans Flugfax hf. og Flug- leiða vegna afgreiðslugjalda. Tals- menn félagsins sögðu afgreiðslu- gjöld á smáum formum vera ósann- gjörn. Nú hefur allvel þokast í sam- komulagsátt hjá Flugleiðum og umboðsaðilanum Flugfax vegna afgreiðslugjaldanna á breiðþotun- um. Ljóst er þó að viðkomum þotn- anna fækkar úr tveimur í eina því ekki þykir borga sig fyrir svo stóra þotu að stoppa fyrir minna en um 10 tonn. Afgreiöslugjald fyrir neðra þilfar verður 2.615 dollarar eins og verið hefur en óttast var aö Flugleiðir hækkuðu verðið í 6.250 dollara. Hins vegar á eftir að semja um gjaldtöku fyrir efra þilfar. Lyfta fyrir efra þilfar, sem kostaði Flug- leiðir um 7 milljónir króna, kemst væntanlega í notkun um miðjan nóvember. Guömundur Þór Þormóðsson, framkvæmdastjóri Flugfax, sagði í samtali við DV að hann væri nokk- uð ánægður með árangur viðræðn- anna. „Mér finnst að fulltrúar Flugleiða ræði málin nú af meiri sanngimi en í fyrri umræðum. Hins vegar á eftir að ræða ýmislegt ennþá, s.s. hleðslu á efra dekki. Ferðir breiðþotnanna verða aðeins einu sinni í viku á Japansmarkað en ég á von á að framboð eigi eftir að aukast verulega á næstu mánuð- um,“ sagði Guðmundur. -ÓTT Samgönguráðherra: Ekki hissa að útflytj- epdur vilji betri þjónustu „Ég hef nú reynt að vera já- kvæður gagnvart aukinni þjón- ustu og nýjum möguleikum fyr- ir okkur í flutningamálum. Hins vegar er æskilegt að þeir flutningar séu frekar í gegnum þjónustu íslenskra aðila. Yfir- leitt er ríkjandi umburðarlyndi fyrir frjálsri þjónustu sem ekki er fyrir hendi. En mér skilst að áform séu uppi hjá Flugleiöum um .að auka þá þjónustu sem er fyrir,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra um væntanlega umsókn Luft- hansa um flugrekstrarleyfi fyr- ir fiskflutningum frá íslandi til New York. Lufthansa hefur gefiö út vilja- yfirlýsingu til flutningamiðlun- arinnar Flugfax hf. um að taka að sér vöruflutninga til New York frá íslandi einu sinni í viku. Umsókn um flugréttindi er á leiðinni frá Lufthansa til samgönguráðuneytisins. - Islenskir útflutningsaðilar hafa hvatt Flugfaxmenn til þess að stuðla að því að traustur aðili bjóði flutninga til Banda- ríkjanna. „Ég er ekki hissa á því að út- flytjendur vilji að þeim séu opn- aðir möguleikar fyrir betri þjónustu í flutningum. Okkur ber aö standa sem best aö þeim málum. En þessi umsókn gæti orðið hvatning til þeirra sem þegar hafa þessi mál í sínum höndum." -ÓTT Enska er okkar mál NÁMSKEIÐIN HEFJAST1. NÓVEMBER INNRITUN STENDUR YFIR FYRIR NYTT FULLORÐNA 7 VIKNA ENSKUNAMSKEIÐ TVISVAR í VIKU, EINN OG HÁLFAN TÍMA í SENN 6 VIKNA VIÐSKIPTAENSKA í HÁDEGINU EÐA Á KVÖLDIN 7 VIKNA FRAMHALDS- NÁMSKEIÐ SAMTALSTÍMAR 7 VIKNA SKRIFLEG ENSKA 6 VIKNA ÍSLENSKUNÁMSKEIÐ FYRÍR ÚTLENDINGA FYRIR BORN 6-8 ÁRA NÁM OG LEIKIR 8-12 ÁRA ENSKUNÁMSKEIÐ 13-15 ÁRA UNGLINGANÁMSKEIÐ UNDIRBÚNINGUR FYRIR SAMRÆMD PRÓF UNDIRBUNINGUR FYRIR T.O.E.F.L. PRÓF UNDIRBÚNINGUR FYRIR P.E.T. PRÓF METIN í CAMBRIDGE OG ALÞJÖÐLEG VIÐURKENNING VEITT BÓKMENNTANÁMSKEIÐ UMRÆÐUTÍMAR - LESTUR LEIKSKÓLI FYRIR 3-5 ÁRA BÖRN FÖSTUDAGA E.H. EINKATÍMAR SÉRKENNSLA EFTIR ÓSKUM NEMENDA Ensku Skólinn TUNGATA 5, 101 REYKJAVIK HRINGDU í SÍMA 25330/25900 OG KANNAÐU MÁLIÐ Höflim opnaö glæsilega toppavershui að Fákafeni 9 Nýjar sendingar nýkomnar af vönduðum ullargólfteppum. Nýjar gerðir, nýjir litir. Mikið úrval til á lager. EURO samningar - VISA raðgreiðslur. Næg bílastæði. Velkoinin í giæsilega sérverslun með gólfteppi. TEPMERSIDN FRIDRIKS RERTELSEN FÁKAFENI 9 SÍMI 686266

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.