Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Side 7
JfifitWJteQVfi, 3pt QKTOgEfi 1989.
7
Fréttir
Framkvæmdir við byggingu parhúsa fyrir aldraða eru hafnar en auk þess
er verið að byggja alls þrettán íbúðir í kaupleigu- og verkamannabústaða-
kerfinu. DV-mynd Garðar Guðjónsson
Borgarnes:
Nítján félagslegar íbúðir
Níu milljónum
umbúða skilað
Um níu milljón einingum af öl- og
gosdrykkjaumbúðum hafði verið
skilað til Endurvinnslunnar 25. okt-
óber.
Það þýðir að um 45 milljónir hafi
verið greiddar fyrir umbúðir frá því
fyrirtækið hóf móttöku umbúða 8.
ágúst síðastliðinn. Hversu hátt skila-
hlutfall skyldi það vera?
„Það er ekki tímabært að segja til
um skilahlutfall á einnota umbúðum
eða hvað sé eðlilegt skilahlutfall.
Móttaka umbúða hefur verið í gangi
í tvo og hálfan mánuð og því hefur
ekki fengist nógu góð mynd af skil-
unum. Fólk var líka búið að safna
töluverðu af umbúðum áður en mót-
taka umbúða hófst og sú söfnun er
enn að skila sér. Það verður ekki
hægt að gefa út neinar ábyggilegar
tölur um skilahlutfallið fyrr en í árs-
lok,“ sagði Gunnar Bragason, fram-
kvæmdastjóri Éndurvinnslunnar, í
samtah við DV.
Gunnar sagði að menn hefðu það
hins vegar á tilfinningunni að skilin
lægju í kringum rúmlega 50 prósent.
Mættu þau varla vera meiri þar sem
töluverður kostnaður hefði verið við
upphaf reksturs fyrirtækisins og
væri enn. Þegar um hægðist og jafn-
vægi hefði náðst, eftir um fjögurra
mánaða starfsemi, væri gert ráð fyr-
ir að rekstur fyrirtækisins þyldi um
75 prósent skil. Væri þá miðað við
erlendar tölur. Væri eftir að sjá hver
endanlegur kostnaður og hvernig
söfnunarkerfið úti á landi yrði. Væru
peningar af sölu umbúöanna, þeirra
sem skila sér ekki, einu tekjur fyrir-
tækisins.
-hlh
Garðax Guðjónsson, DV, Akranesi:
Veruleg aukning verður á félagslegu
húsnæði í Borgarnesi á næstu árum.
Hafnar voru framkvæmdir við bygg-
ingu tíu félagslegra íbúða þar á síð-
asta ári og framkvæmdir við níu aðr-
ar hefjast á þessu ári.
Fyrirhugaö er aö byggja þrjú par-
hús fyrir aldraða en þar er um að
ræða bæði söluíbúðir og leiguíbúðir.
íbúðirnar eru litlar og standa við
Dvalarheimili aldraðra.
Verið er að byggja níu íbúða blokk
við Hrafnafell, þar sem verða bæði
kaupleigu- og verkamannaíbúðir, en
auk þess er verið að byggja fjórar
verkamannaíbúðir við Arnarfell.
Met slegin í slátursölunni
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Að sögn Péturs Hjaltasonar, skrif-
stofustjóra hjá Verslunarfélaginu
Höfn á Selfossi, var slátrað 14400 fiár
í sláturhúsi Hafnar í haust. Hæstu
meðalvigt átti Guðmundur Þorvalds-
son, Laugarbökkum í Ölfushreppi,
na einnicr átti hann bvnesta dilkinn,
26,4 kíló. Þess má geta að Guðmund-
ur er búinn að vera með þyngsta
dilkinn síðan ég fluttist hingað tO
Selfoss fyrir um átta árum.
Það voru öll met slegin í slátursölu
hjá Höfn að sögn Péturs en kjötsala
í lágmarki. Slátursalan var 6% meiri
en í fyrrahaust.
STANLEY bílskúrshurðaopnari með fjarstýringu er eins
og sívakandi dyravörður sem opnar og lokar þegar þrýst er
á hnapp. Aukið öryggi,
aukin þægindi.
r The one to consider first is the top-rated
V Stanley 3500. lt was fast; its auto-
reverse safety feature was the gentlest;
, and it can be had with a number of useful
/ accessories. We judged it a Best Buy.
I
Hið útbreidda
og virta neytendablað CONSUMER REPORTS (okt. 88)
gerði úttekt á bílskúrshurðaopnurum. STANLEY kom
út sem bestu kaupin.
STANLEY
Vörur sem eru viðurkenndar fyrir gæði
VETRARHJÓLBARÐAR
GREIÐSLUKJÖR:
TIL DÆMIS EKKERT ÚT íríJRÖ
OG 1 DEKK A MANUÐI
KRISPIT
(4RA MÁNAÐA VISA RAÐGREIÐSLUR
EÐA EUROKREDIT)
VERÐ
FRA
KR.
00
Ihvers
VEGNA
AÐ KAUPA
SÓLUÐ
DEKK ÞEGAR
ÞÚ GETUR
FENGIÐ
NÝJA
VETRAR-
HJÓLBARÐA
Á ÞESSU
VERÐI?
Þetta
er
eitthvað
fyrir þig
0
JÖFUR HF
HJÓLBARÐADEILD.
ÝBrtAVÉÖjtí:; SlMI'42600- OPIÐ 9-18 VIRKA
DAGA.