Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Side 16
16 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1989. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SIMI (1 >27022 - FAX: (1)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Merki óstjórnar Merki óstjórnar eru hvarvetna. í því sambandi er rétt fyrst að rifja upp, hvernig forsætisráðherra málar ástandið björtum litum. Hann sagði, að ríkisstjórnin hefði unnið marga varnarsigra í erfiðu árferði undan- gengis árs. Þrátt fyrir háværar kröfur um stórfehdar gengisfelhngar, hefði ríkisstjórnin hafnað öllum koh- steypuleiðum með tilheyrandi óðaverðbólgu. Ríkis- stjórnin hefði beitt sér fyrir íjölþættum aðgerðum til styrktar undirstöðuatvinnuvegunum. Hrakspám stjórn- arandstöðunnar hefði verið hrundið, og þróun væri nú í átt til jafnvægis á flestum sviðum efnahagsmála. Þetta birti Tíminn með fyrirsögninni Kohsteypu hafnað, hrakspám hrundið. En almenningur í landinu þarf ekki að trúa forsætisráðherrra. Ekkert lát er á samdrættin- um í þjóðfélaginu. Gjaldþrot hrannast upp. Verðbólga er mikh, og enn stefnir í gengislækkun með nokkru mihibih. Erlendar lántökur aukast mikið. Þetta er slæm stjórn, og umræður forsætisráðherra í síðustu viku breyta þar engu. Þarna er bara á ferð slyngur stjórn- málamaður, sem viU láta stjórnina Uta betur út en hún á skihð. Almenningur veit sem sé betur. En lítum einnig á, hvað Þorvaldur Gylfason, prófessor á hagfræði, sagði í DV á föstudaginn. Undir það má taka. Ríkisstjómin ætlar að halda áfram að kynda undir verðbólgu. í fyrsta lagi er þegar fyrirhugaður þriggja miUjarða halh á A- hluta fjárlaga. En fyrst og fremst ber að Uta á fyrir- hugaðar lántökur ríkisms í heild og þensluáhrif þeirrra á þjóðarbúskapinn á næsta ári. Erlendar skuldir þjóðarinnar munu samkvæmt Uár- lagafrumvarpinu hækka upp í 53 prósent af þjóðartekj- um í lok næsta árs. Þær námu 41 prósenti af þjóðartekj- um um síðustu áramót. Þetta mun þýða, að hvert mannsbam í landinu skuldar 700 þúsund krónur erlend- is í lok næsta árs í stað 400 þúsund króna í lok síðasta árs. Erlendar skuldir hverrar gögurra manna fjölskyldu aukast þá um 1200 þúsund krónur á tveimur árum. Eða um 50 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. Þetta er hrikaleg efnahagsóstjórn, sem kallar á verðbólgu og gengisfellingar, hvað sem forsætisráðherra segir. Það væri unnt að ráðstafa opinberu fé miklu betur en fjárlagafrumvarið gerir ráð fyrir. Þrátt fyrir mikla skattpíningu ná endar engan veginn saman hjá ríkiiiu. Miklu af því veldur þjónkun ráðherra við gæðinga sína, útvalið lið, sem nánast fær það, sem það viil, þótt al- menningur þoli miklar búsifiar. Þetta er hið versta rang- læti. Eins og Þorvaldur Gylfason segir mætti, með því að ráðast gegn gífurlegri sóun á mörgum sviðum, ekki sízt í sjávarútvegi og landbúnaði og banka og sjóðakerf- inu, losa mjög mikið fé. Það mætti svo nýta til upp- byggingar um allt land og binda enda á eilífan halla- rekstur ríkisins. Þessi hallarekstur ríkisins hefur um margra ára skeið kynt undir verðbólgu og skuldasöfnun erlendis. Þetta getur hver maður séð. Það er deginum ljósara. Við komumst því að þeirri óhrekjanlegu niðurstöðu, að ummæli forsætisráðherra í síðustu viku, séu hjóm eitt. Ríkisstjórnin hefur farið illa að ráði sínu. Þetta er ein sú versta stjórn, sem við höfum haft. Því miður hefur þessi stjóm ekki unnið teljandi vamarsigra eða hmndið slæmum spám. Haukur Helgason Hver á þína peninga? FJöldi félaga og samtaka safnar peningum í því skyni að koma fram ákveðnum hugðarefnum sínum, íþróttafélög til byggingar íþrótta- húsa og leikvalla, líknarfélög til líknarmála margs konar og enn aðrir til annarra góðra málefna. Þegar fulltrúar þessara aðila banka á dyrnar hjá okkur tökum við þeim vel, kaupum happdrættis- miða, þó að við teljum næsta víst að við vinmnn aldrei á hann, enda tilgangurinn ekki sá með miða- kaupunum heldur að styrkja gott málefni. En það er ekki eins víst að við tækjum jafnvel í málin ef það gerðist að sá sem seldi okkur happdrættismiðann segði okkur það svo árið eftir að peningamir okkar hefðu verið notaðir í allt annað. Stjómina í félaginu heíði langað til að skreppa til Danmerkur til að hitta menn í sama félagi þar eða eitthvað álika. Ætli við mundum þá ekki segja viðkomandi að éta það sem úti frýs og halda sig sem lengst í burtu frá okkur meö happ- drættismiðana sína. Við mundum ekki Uða svona kónum aö svíkja út úr okkur. í þágu góðs málefnis Fyrir mörgum árum var hækkað- ur söluskattur til þess að þjóðin aðstoðaði Vestmannaeyinga vegna eldgossins í Heimaey. Öllum fannst eðlilegt að hjálpa Vestmannaeying- um. Sumir sögðu aö vísu aö hætt væri við því að skatturinn lækkaði ekki aftur þrátt fyrir það að allri aðstoð væri lokið við Vestmanna- eyinga. Það vom líka orð að sönnu. Sölu- skattsprósentunni, sem lögð var á vegna eldgoss í Heimaey, hefur ekki enn verið létt af. Söluskattm- hefur meira aö segja hækkað tölu- vert síöan en samt er ekkert gos í Heimaey eða aðrar náttúruham- farir eri íslenskir stjórnmálamenn. Þannig era peningamir okkar teknir fyrst í þágu góðs málefnis en svo' renna þeir beint í hítina. Báknið stækkar. Fyrir nokkrum árum gekk Sverr- ir Hermannsson menntamálaráð- herra ábúöarmikill um ganga Al- þingishússins. Hann hafði komið í gegn lagafrumvarpi um sérstakan eignarskattsauka en tekjum af eignarskattsaukanum átti að verja til byggingar þjóðarbókhlöðu. Vissulega var þetta vel meint hjá Sverri en ýmsir urðu til þess að benda á að líkur væra á því að eign- arskattsaukinn yrði varanlegur skattstofn. sú varð líka raunin. Hitt held ég að fáa hafi getað órað íyrir að skatturinn yrði innheimtur en tekjum hans varið í allt annað en Þjóðarbókhlöðuna. Mér er sagt að Þjóðarbókhlöðu- skatturinn nemi nú frá því að hann var lagöur á um 700 milljónum. Mér er líka sagt að af þessum tæp- um 700 milljónum hafi einungis 234 milljónir runnið til Þjóðarbókhlöð- unnar. Fjármálaráðherrar þeir sem setið hafa frá því aö skatturinn var lagður á hafa því stolið frá þessu góða málefhi hvorki meira né minna en um 460 milljónum. Dálagleg summa það ef kæmi sam- an á einn stað. Sýnu verstur er þó fjármálaráð- herrann sem núna situr. Hann reynir ekki að dylja ræningjahátt- inn og segir nú að ekkert sér eðli- legra en Háskóh íslands láti af hendi rakna af framkvæmdafé sínu til Þjóðarbókhlöðunnar af því að hann æth að stela peningunum sem til þeirra hluta vora ætlaðir. Miklir menn Fjármálaráðherra, Ólafur Ragn- Kjallariim Jón Magnússon lögmaður ar Grímsson, er formaður í flokki sem heitir Alþýðubandalag. Með honum í ríkisstjóm situr maður sem heitir Svavar Gestsson og var formaður í þessu sama Alþýðu- bandalagi á undan Ólafi. Svavar þessi er menntamálaráðherra og í vor kom hann fram fyrir þjóðina og miklaðist af lagasmíð nokkurri sem hann taldi sér til tekna að hafa staðið fyrir og fengið samþykkta. Manni skildist einna helst á menntamálaráðherranum að nú væri íslenskum menningarhúsum borgið og það væri honum að þakka. Lög Svavars hétu Lög um Þjóðar- bókhlöðu og endurbætur menning- arbygginga. Lög þessi fjalla um það að Þjóðarbókhlöðuskatturinn hans Sverris skuli renna til að klára Þjóðarbókhlöðuna en síðan skuh hann renna til endurbóta á húsa- kosti menningarstofnana og við- halds gamalla húsa í eigu ríkisins. Á meðan Svavar er þannig að fá þingmenn til að samþykkja menn- ingarskattinn siim situr formaður- inn hans í næsta stól við hhðina og leggur á ráöin með að stela öh- um skattinum með húð og hári á kostnað Háskóla íslands. Mér leik- ur mikil forvitni á að vita hvort æðsta manni menntamála finnst þetta allt í lagi. Siöferðið og valdið Menn hafa velt fyrir sér siðferði í stjómmálum. Mér finnst ekkert siðferði að plata peninga út úr fólki, eins og þeir hafa gert sem hafa lagt á gjöld sem áttu að renna til ákveð- inna hluta en hafa runnið eitthvað aht annað. Þannig Ðnnst mér hreint siðleysi að leggja á bflaeigendur skatt sem renna á tíl vegagerðar en er síðan notaður í eitthvað aUt annað. Mér finnst siðleysi að leggja skatt á þjóðina til að byggja Þjóðarbók- híöóu en stela honum síðart. Það er svo merkUegt að til sumra hluta era til nógir peningar en eng- ir til annarra. Þannig era tíl nógir peningar til að greiða tíldursferð fiármálaráðherra tíl Mexíkó. - TU að greiða fyrir aðstoðarmann Stef- áns Valgeirssonar. - TU að niður- greiða íslenskt lambakjöt ofan í Færeyinga þannig að þeir fái það helmingi ódýrara en við hér heima. Það era líka til milljarðar tU að henda í aumingjasjóð Stefáns Val- geirssonar sem í fæstum tflvikum verður tíl annars en lengja í heng- ingaról vonlausra fyrirtækja. En þessir peningar era ekki ein- hverjir einkafjármunir stjóm- málamanna þó að þeir virðist margir hverjir áhta að svo sé og láti þannig. Er ekki mál tíl komið að menn með smásjálfsvirðingu í póhtík rísi upp gegn þessari vit- leysu? Jón Magnússon „Mér leikur mikil forvitni á að vita hvort æðsta manni menntamála finnst þetta allt i lagi,“ segir greinarhöfundur. - Svavar Gestsson menntamála- ráðherra. „Þessir peningar eru ekki einhverjir einkaQármunir stjórnmálamanna þó aö þeir virðist margir hverjir álíta að svo sé og láti þannig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.