Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Page 24
24
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1989.
íþróttir
• Kristján Arason - fimm mörk.
Stjáni
sterkur
- enn sigrar Teka
Kristján Arason áttí mjög góö-
an leik með Teka í gær þegar liö-
iö sigraöi Palardera, 21-28, á úti-
velli í spænsku úrvalsdeildinni í
handknattleik. Kristján skoraði
íimm mörk í leiknum og þetta var
ijóröi sigur Teka í jafnmörgum
leikjum.
Granoilers fór á kostum gegn
Malaga og sigraði stórt, 36-19.
Atli Hilmarsson skoraöi 4 mörk
og Geir Sveinsson 2 fyrir Granoll-
ers. „Viö komumst í 13-2 og síðan
19-7 i hálfleik þannig að eftír það
var lífínu tekiö létt og allir fengu
að spila,“ sagði Geir í spjalli við
DV i gær.
Alfreð skoraði sjö
Aifreð Gíslason var í aðalhlut-
verki hjá Bidasoa sem tapaöi fyr-
ir Arrate á útivelii, 28-24. Alíreð
skoraði 7 mörk, 3 þeirra úr víta-
köstum, Þetta var sætur sigur hjá
Arrate sem er aö miklu leyti skip-
aö leikmönnum sem Bidasoalos-
aöi sig við eftir síðasta keppnis-
timabil.
Vujovic geröi 14
Júgóslavinn Vujovic var í mikl-
um ham þegar Barcelona vann
stórsigur á hinu öfluga liöi Caja
Madrid, 30-19. Hann skoraði heil
14 mörk i leiknum.
Barcelona og Teka eru efst með
8 stig eftír 4 umferðir. Arrate er
næst með 7 stig, Bidasoa er með
6 en Granollers er í 7. sætinu með
5 stíg.
-VS
T l.deild
á V Úl’slit J"
Stjaman - Víkingur..28-18
Grótta - Valur......18-28
ÍR-ÍBV..............26-26
KA-FH...............19-28
KR-HK...............25-20
Vamarleikur Vals
vann á Gróttunni
- tíu marka sigur Vals á Seltjamamesi, 18-28
„Þetta var okkar besti leikur til
þessa og vamarleikurinn er allur að
koma til. Ef sterk 6/0 vöm gengur
gegn einhverju liði þá er það gegn
Gróttu sem vantar hávaxnar skyttur
en spilar vel saman. Okkur tókst að
bremsa á línuspil þeirra og þar með
vorum við með undirtökin," sagði
Þorþjöm Jensson, þjálfari Vals-
manna, við DV eftir stórsigur Hlíðar-
endaiiösins á Seltirningum á Nesinu
á laugardaginn, 18-28.
Valsmenn léku mjög vel, með
geysilega öflugum varnarleik og
hraða í sóknarleiknum brutu þeir
Gróttuna niður strax í þyijun og
komust í 1-6. Eftir það var aldrei
spuming um úrslit, Valsmenn léku
agað allan tímann, í sókn og vöm,
og voru 9-14 yfir í hálfleik. Þegar tíu
mínútur vom liðnar af síðari hálfleik
var staðan orðin 12-20 og ljóst að
Grótta ætti sér ekki viðreisnar von.
Með þessu áframhaldi em Vals-
menn ekki búnir að segja sitt síðasta
orð í toppbaráttu deildarinnar. Vöm-
in er aö smella saman og sóknarleik-
urinn sömuleiðis. Þar er Brynjar
Harðarson farinn að leika meira fyr-
ir liðið en í fyrstu leikjunum og átti
margar glæsilegar línusendingar
auk þess sem hann var firnasterkur
í vöminni. Þar er á ferðinni litrík-
asti leikmaður 1. deildarinnar í dag.
Brynjar er að laga
sig að liðinu
„Brynjar er búinn aö vera fimm ár
í Svíþjóð, í liöi þar sem hann var allt
í öllu. Þess vegna hefur hann leikið
óagað með Val til aö byrja meö en
nú er hann kominn í sterka liðsheild
þar sem allir geta skorað og hann er
smám saman að laga sig að því,“
sagði Þorbjörn Jensson.
Einar varði þrjú
vítaköst frá Halldóri
Allt Valshðiö lék vel og Valdimar
Grímsson var sérstaklega skæður í
hraðaupphlaupum. Einar Þorvarð-
arson varði 13 skot, þar af fjögur víta-
köst, og þrjú þeirra frá Halldóri Irtg-
ólfssyni.
Grótta átti ekkert svar við varnar-
leik Vals og sóknarleikur liðsins var
fyrir vikið máttlítUl. Stefán Amar-
son gerði margt gott í fyrri hálfleikn-
um og Halldór Ingólfsson var drjúg-
ur í línusendingum og gegnumbrot-
um en kom sjaldan skotum í gegn.
Markvarslan brást alveg, Sigtryggur
Albertsson varði aðeins tvö skot og
Þorlákur Árnason síðan tvö undir
lokin.
• Mörk Gróttu: Stefári Amarson
5, Svavar Magnússon 4, Páll Björns-
son 3, Halldór Ingólfsson 3/1, Sverrir
Sverrisson 1, Davíð Gíslason 1, Will-
um Þórsson 1.
Mörk Vals: Brynjar Haröarson
10/6, Valdimar Grímsson 8, Jakob
Sigurösson 4, Júlíus Gunnarsson 3,
Finnur Jóhannesson 2/1, Jón Kristj-
ánsson 1.
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson dæmdu leikinn allþokka-
lega. -VS
KR við toppinn
eftir sigur á HK
- KR bar sigurorð af HK, 25-20
KR sigraði lið HK í Laugardals-
höll í gærkvöldi með 25 mörkum
gegn 20. í hálfleik var staðan 11-8,
KR-ingum í vil. KR er í þriðja sæti
eftir leikinn í gærkvöldi en HK er
nálægt botninum.
Leikurinn var jafn framan af og
þegar 5 mínútur vora liðnar af
leiknum var staðan 2-2. KR-ingar
tóku þá heldur betur við sér og
náðu að skora fimm mörk í röð og
breyttu stöðunni í 7-2. HK-menn
voru ekki af baki dottnir og náðu
að minnka muninn í 7-5. Eftir þaö
skiptust liðin á að skora og staöan
í leikhléi var 11-8 fyrir KR.
í síðari hálfleik var jafnræði með
liðunum og eftir 5 mínútna leik
hafði HK-mönnum tekist að
minnka muninn í 13-11. Þeir fengu
þá vítakast sem fór í súginn og
KR-ingar bmnuðu fram og skoruðu
og breyttu stöðunni í 14-11. Þegar
um 10 mínútur voru til leiksloka
var staðan orðin 20-16, KR í vil.
KR skoraði þá fimm mörk í röð og
komst i 23-16. Eftir þennan góða
leikkafla hjá KR-ingum voru úrslit-
in ráðin og lauk leiknum með sigri
þeirra 25-20. Leikurinn var frekar
slakur og gerðu leikmenn sig seka
um mörg mistök.
Liö KR á að geta gert betur. Þaö
spilaði ágætlega í vörninni en
meira líf vantaði í sóknarleikinn.
Leifur Dagfinnsson, markvörður,
var besti maður KR og varði hann
16 skot í leiknum. Stefán Kristjáns-
son og Þorsteinn Guðjónsson spil-
uðu einnig ágætlega
Lið HK spilaði ekki vel í leiknum
í gærkvöldi. Liðið gerði mikið af
mistökum í sókninni og leikmenn
vom of mikið aö puöa hver í sínu
horni. Baráttan er þó til staðar í I
liðinu en leikmenn of æstir í varn- [
arleiknum og bijóta oft illa af sér. I
Óskar Elvar Óskarsson, fyrirliðil
HK, lék best HK manna í gær og I
einnig var Róbert Haraldsson ógn- [
andi í hægra horninu.
• Dómarar í leiknum voru Egill I
Már Markússon og Kristján Þórl
Sveinsson og dæmdu þeir þokka- [
lega.
• Mörk KR: Stefán Kristjánsson I
8, Konráð Olavsson 5/2, Þorsteinn |
Guöjónsson 4, Einvarður Jóhanns-
son 3, Páll Ólafsson eldri 2, Sigurð- [
ur Sveinsson 2 og Bjarni Ólafsson |
1 mark.
• Mörk HK: Óskar Elvar 6/1,1
Magnús Sigurösson 5/5, Róbert I
Haraldsson 3, Ólafur Gunnar Már I
Gíslason 3, ólafur Pétursson 2 ogl
Páll Björgvinsson 1 mark. -GH |
Mistök á báða bóga
- þegar ÍR og ÍBV skildu jöfn í Seljaskóla, 26-26
Stjarnan,. 4 4 0 0 95-69 8
FH 4 3 1 0 108-86 7
KR ....4 3 0 1 89-90 6
Valur 4 3 0 1 104-86 6
Grótta ....4 1 1 2 74-85 3
Víkingur. ....4 1 1 2 83-93 3
ÍR .....4 1 1 2 99-97 3
HK 4 1 0 3 86-102 2
ÍBV ....4 0 2 2 90-97 2
KA ....4 0 0 4 Markahæstir: 78-101 0
Bryixjar Harðarson, Val....44/15
Stefán Kristjánsson, KR....27/6
Gylfi Birgisson, Stjöm.....26/5
Konráð Olavsson, KR........23/6
Óskar Armannsson, FH.......23/6
Erlingur Kristjánsson, KA..23/7
Magnús Sigurðsson, HK......23/10
Halldór Ingólfsson, Gróttu.23/14
Sigurður Bjamason, Stjöm ....22/1
Ólafur Gylfason, ÍR........22/8
Síðustu mínúturnar í leik IR og
ÍBV vom æsispennandi og skemmti-
legar. Liðin skiptust á um að skora
en gerðu sig sek um fjöldann allan
af mistökum í lokin. Leikurinn fór
fram á heimavelli ÍR í Seljaskólanum
og var í heild jafn og spennandi en
ÍR hafði þó fmmkvæðið lengst af í
leiknum. En jafntefli varð staðreynd
og geta bæöi liöin vel við unað eftir
atvikum.
Liðin skiptust á um að skora fyrstu
mínútumar en þá tóku ÍR-ingar mik-
inn fjörkipp - skomöu hvert markið
á fætur öðm og komust í 6-2. ÍBV fór
nú að koma meira inn í leikinn og náðu
Eyjamenn að jafna leikinn þegar um
fimm mínútur vom eftir af fyrri hálf-
leik. Það sem eftir lifði hálfleiksins
skiptust liðin á um að skora en ÍR
hafði eitt mark yfir í leikhléi, 13-12.
Eyjamenn byrjuðu á því að skora
tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik
og komust þar með í fyrsta sinn yfir
í leiknum. En ÍR jafnaöi og komst
yfir á nýjan leik. Eftir þetta skiptust
liðin á um að skora þangað til ÍR
náði sínum besta kafla í leiknum og
breytti stöðunni í 23-19. En þá tóku
leikmenn ÍBV það ráð að taka tvo
leikmenn ÍR úr umferð. Við þetta
riðlaðist leikur ÍR-inga mikið og
gerðu þeir sig seka um fjöldann allan
af mistökum sem sennilega hefur
kostað þá sigurinn. Eyjamenn ná að
jafna leikinn, 24-24, þegar um fimm
mínútur em eftir. Næstu mínútum-
ar fengu bæöi liðin fjölda dauðafæra
sem þau misnotuðu. Þegar ein mín-
úta var eftir fengu ÍR-ingar víti en
Viöar Einarsson varði glæsilega.
Björgvin Rúnarsson skoraöi svo fyr-
ir ÍBV þegar um 30 sekúndur vom
eftir. En Jóhann Ásgeirsson jafnaði
fyrir ÍR, 26-26, þegar örfáar sekúnd-
ur voru eftir af leiknum, við mikinn
fögnuð stuðningsmanna ÍR-inga.
Gunnlaugur Hjálmarsson og
Gunnar Viðarsson dæmdu leikinn
og stóðu þeir sig þokkalega.
Mörk ÍR skoruðu: Róbert Rafnsson
6, Ólafur Gylfason 5, Magnús Ólafs-
son 5, Orri Bollason 4/2, Matthías
Matthíasson 4, Frosti Guðlaugsson 1
og Jóhann Ásgeirsson 1.
Mörk ÍBV skoruðu: Sigurður
Gunnarsson 6/1, Hilmar Sigurgísla-
son 6, Björgvin Rúnarsson 3, Guð-
mundur Albertsson 3, Óskar Brynj-
arsson 2, Sigbjöm Óskarsson 1 og
Sigurður Friðriksson 1.
BS
• Bjarki Sigurðsson skoraði flest marka Ví
Birgissyni. En Víkingar máttu þola tiu marka