Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Qupperneq 25
' MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1989.
25
kings gegn Stjörnunni á laugardaginn og reynir hér aö brjótast framhjá Gylfa
i skell gegn Garðbæingum sem eru áfram meö fullt hús stiga i 1. deildinni.
DV-mynd Brynjar Gauti
Iþróttir
Tíu marka
sigur og
W ll
Stjarnan
m j
___ m m
enn gysi
„Eg er mjög ánægður nicö þenn-
an leik hjá okkur, þaö ermikilstig-
andi í liðinu og menn lögðu sig alla-
í leikirm. Næstu tveir leikir hjá
okkur eru mikilvægir því þá mæt-
mn við Val og FH og við ætlum aö
selja okkur dýrt í þeim leikjum og
halda toppsætinu í deildinni,“
sagði Gylfx Birgisson, stórskytta
þeirra Stjörnumanna, eftír stórsig-
ur Stjörnumanna á liði Víkings,
28-18.
Stjarnan tók leikinn strax í sínar
hendur og þegar fimm mínútur
voru liðnar af honum var staöan
orðin, 4-0, Stjörnumönnum í vil.
Víkingar náði ekki að skora sitt
fyrsta mark fyrr en sjö mínútur
voru liðnar af leiknum. Vörn
Stjörnunnar var mjög sterk og
Brynjar Kvaran raarkvörður i
miklum ham. Stjarnan hafði þetta
ijögur til fimm mörk yfjr aiiahfyrri
hálfieikinn og í leikhléi haíði
Stjarnan gert 13 mörk en Víkingai-
9.
Stiaman geröi síðan fyrstu þtjú
mörkin í síðari háifleik og var þá
staðan orðin 16-9 fyrir Stjörnuna.
Meö þessari góðu byrjun í síðari
hálfleik má segja að úrslitin hafi
verið ráðin. Víkingar réðu ekkert
við fríska Stjörnumenn og komust
lítt áleiðis gegn þeim í vörninni.
Síðustu minúturnar var aðeins
spurning hvort Stjörnumönnum
tækist að sigra með tiu marka mun
og það tókst þeim þegar Axel
Björnsson skoraði úr vinstra horn-
inu á síðustu sekúndum leiksins
og innsiglaði stórsigur Stjömunn-
ar, 28-18.
Fjórði sfgurinn í
jafnmörgum leikjum
Stjaman vann þama sinn flórða
sigur í jafnmörgum leikjum og er
efst í 1. deild. Stjarnan lék mjög vel
i þessum leik, vömin fimasterk og
markvarslan hjá Brynjari Kvaran
mjög góð. Hann varði alls 15 skot
í leiknum, þar af tvö víti og mörg
mm
a
linuskót Víkinga. Þetta var sigur
liðsheildarinnar hjá Stjörnunni því
allt liðið átti góðan leik, í vöm og
sókn.
Þetta var ekki dagur Víkinga,
sóknarleikuritm gekk ekki upp,
vömin frekar slök og markvarslan
eftir því. Homamennimir í hði
Víkings, þeir Guömundur Guð-
mundsson og Bjarki Sigurðsson,
vom skástir í siöku liði Vikings.
Ðómarar voru þeír Óli Ólsen og
Gunnar Kjartansson og dæmdu
þeir frekar ilia.
• Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birg-
isson 7/1. Sigurður Bjaraason 5,
Einar Einarsson 4, Skúli Gunn-
steinsson 4, Hafsteiim Bragason 4,
Axel Björnsson 2 og Sigurjón Guð-
mundsson 1 mark.
• Mörk Víkings: Bjarki Sigurðs-
son 6/1, Árni Friðleifsson 5/1, Guð-
mundur Guðmundsson 4, Einar
Jóhannesson 2, og Birgir Sigurös-
son 1 mark.
-GH
Markvarslan ein
gladdi augað
- þegar FH vann stórsigur, 19-28, á KA á Akureyri
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Ég skil varla hvað er að en þetta
lítur einna helst út eins og menn
hafi ekki taugar í þetta enda hrynur
allt hjá okkur í leik eftir leik. Mót-
herjar okkar í þeim leikjum sem
búnir eru hafa eldd veriðsvo sterkir
en hjá okkur eru reyndir menn að
gera byrjendamistök hvað eftir ann-
að,“ sagði Þorleifur Ananíasson, liðs-
stjóri KA, eftir að lið hans hefði beð-
ið stóran ósigur fyrir FH á Akureyri
um helgina. Úrslitin 19-28 eftir að
FH hafði leitt í hálfleik, 8-12.
Þessi leikur var ekki mikið fyrir
augað og markvarslan nánast það
eina sem gladdi í leiknum. Guð-
mundur Hrafnkelsson varði 20 skot
í marki FH og Bergsveinn Berg-
sveinsson 2 vítaköst og hjá KA var
Axel Stefánsson markvörður í ham,
varði 21 skot. KA hefði því fengið enn
verri útreið hefði hann ekki átt svo
góðan dag.
FH-ingar voru alltaf yfir nema þeg-
ar staðan var 1-0 fyrir KA. Þeir kom-
ust í 1-4 og 6-11 og leiddu í hálfleik
8-12 sem fyrr sagði. í síðari hálfleik
náði KA að minnka muninn í 2 mörk,
13-15, en síðan ekki söguna meir.
Óskar Ármannsson og Guðjón Áma-
son skoruðu grimmt á lokamínútun-
um þegar ekki stóð steinn yfir steini
hjá KA og þurftu ekki að hafa mikið
fyrir því.
Héðinn í banni
FH lék án Héðins Giissonar sem var
í leikbanni en það kom ekki að sök.
Liðið lék ekki neitt sérstaklega vel
og það sýnir hvað KA-liðið var slakt.
Guðmundur var feikigóður í mark-
inu og Guðjón Óskar, Þorgils Óttar
og Gunnar Beinteinsson geröu það
sem þurfti að þessu sinni.
KA-liðið á í miklu basli. Sumir leik-
manna liðsins virðast hreinlega vera
hræddir í sókninni og glopra boltan-
um hvað eftir annað, og vörnin var
lengst af eins og gatasigti. Axel Stef-
ánsson var yfirburðamaður í liðinu,
varði 21 skot og þar af 4 vítaköst, og
það var helst að Karl Karlsson, ung-
ur piltur sem er að stíga sín fyrstu
skref með liðinu, sýndi eitthvað í síð-
ari hálfleik.
Mörk FH: Óskar Ármannsson 8(3),
Guöjón Ámason 7(1), Þorgiis Óttar
og Gunnar Beinteinsson 6 hvor,
Magnús Einarsson 1.
Mörk KA: Erlingur Kristjánsson
5, Karl Karlsson 4, Jóhannes Bjarna-
son 3, Sigurpáll Aðalsteinsson 3(2),
Pétur Bjamason 2 og Guðmundur
Guðmundsson 2.
Úrslitum breytt eftir
minnisblöðum blaðamanna
Dómarar vom Kjartan Steinbach og
Einar Sveinsson. Þeir voru í sama
gæðaflokki og flestir leikmenn KA
og gerðu mikið af mistökum. Þeir
kórónuðu svo allt eftir leikinn með
því að breyta úrslitum leiksins úr,
19-27 í 19-28 eftir minnisblöðum
blaðamanna! - Svo mikið er víst að
Einar Sveinsson hefur átt margar
betri ferðir til Akureyrar en að þessu
sinni.