Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Síða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
Klndur á flæðiskeri:
Stefndu til hafs
á undan
,> björgunarmanni
Níu kindur komust í hann krappan
á flæðiskeri undan Helgafellsíjöru á
Snæfellsnesi í gær. Litlu munaði að
flætt hefði að þeim er björgunar-
menn komu á vettvang á gúmmíbát.
Ekki gekk áfallalaust að ná öllum
kindunum þvi að fjórar þeirra lögð-
ust til sunds í átt til hafs er björgun-
arsveitarmaður var kominn á skerið.
„Bóndinn á Helgafelli tók eftir
kindunum er þær voru á skeri um
100 metra frá ströndinni. Þær höfðu
verið í þaranum og endað uppi á
skeri. Það mátti litlu muna að flæddi
alveg að þeim er viö komum og þær
hefðu drukknað - þetta var mjög
tæpt,“ sagöi Geir Sigurðsson í björg-
S^unarsveitinni Berserkjum í samtah
viðDV.
„Við náðum fyrst að setja fjórar í
bátinn og var ég þá skilinn eftir með
þeim sem eftir voru á meðan bátur-
inn skilaði hinum í land. Þegar bát-
urinn fór skipti engum togum að þær
sem voru enn á skerinu skelltu sér
í sjóinn og í átt til hafs á móti sól-
inni. Báturinn var fljótur með hinar
kindumar og náðust þær sem voru
í sjónum því bráðlega. Þegar komið
var í land voru þær mjög lerkaðar
og ein lá bara eftir volkið. Kindurnar
■náðu sér svo fljótlega og bóndinn
sleppti þeim upp á tún,“ sagði Geir
sem er formaður björgunarsveitar-
innarBerserkjaí Stykkishólmi. -ÓTT
Skagaflöröur:
Þrír hreppar
sameinast
Hofsóshreppur, Hofshreppur og
Fellshreppur verða sameinaöir við
sveitarstjómarkosningarnar næsta
vor. íbúar hreppanna samþykktu
sameininguna með miklum meiri-
hluta í kosningum sem fóru fram um
helgina. Þegar kosið verður til sveit-
--•arstjórna vorið 1990 verður því kosið
til einnar sveitarstjórnar í stað
þriggja.
íbúar hins nýja sveitarfélags verða
um 450. Flestir eru íbúarnir á Hofs-
ósi eöa um 250. í Hofshreppi eru um
160 íbúar og í Fellshreppi em um 50
íbúar.
„Það hefur ekkert verið rætt um
nafn á sveitarfélagið. Það verður
eflaust tílfinningamál. Við vildum sjá
hvort vilji væri til sameiningar áður
en farið var að ræða nafniðsagði
Jón Guðmundsson, oddviti í Hofs-
hreppi.
- Óttast minni hreppirnir ekki
slæman fjárhag Hofsóshrepps?
„Nei. Við hefðum ekki vfljað sam-
einingu ef við væmm hræddir. Stað-
an styrkist mikið við sameining-
una,“ sagði Jón Guðmundsson. -sme
LOKI
Stóri bróðir segir þetta
ekki flugráð heldur óráð!
Flugráð mælir með
samkeppni innanlands
„Niöurstaöa flugi-áðs era ótví- ingu sérleyfa í innanlandsflugi á í minnihluta flugráðs mótmæltu gert það. En aöalskylda stjómvalda
ræð skilaboð frá heimamönnum og næstu flmm áram. ákvörðun meirihlutans. er að stuðla að sem viðtækastri
bæjarstjórnum sem hijóta aö kalla Þrir fulltrúar flugráös mæltu Steingrímur J. Sigfússon sam- þjónustu án þess að missa sjónar á
á breytingar. Hugmyndir okkar með að auk Flugleiða skyldu Arn- gönguráðherra sagði í samtali við öryggi," sagði Steingrímur.
hafa greinilega fengið meirihluta- arflug innanlands og Valur And- DV í morgun að hann myndi halda Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
fylgi í flugráöi enda hafa Vest- erseníVestmannaeyjumfásérleyfi fund meö flugráði á næstu dögum Flugleiöa, segir að óvarlegt sé að
mannaeyingar og Húsvikingar milli VestmannaeyjaogReykjavík- og kynna sér betur rökstuðning skiptauppþeimsmáamarkaðisem
sýnt okkur stuöning. Fjöldi fólks ur. Einnig var mælt með sérleyfi flugráðsmanna. „Égætlasjálfurað er í innanlandsflugi. „Við teljum
hefur haft samand við okkur, til handa Amarflugi innanlands geyma að tala um mína afstöðu þar heppilegra að halda áfram upp-
meira að segja frá Akureyri þar ásamt Flugleiðum á milli Reykja- tfl leyfin verða afgreidd í lok vik- byggingu þess kerfis sem hefur
sem við sóttum ekki um. Þar virð- víkur og Húsavíkur. Auk þess unnar en það er ijóst að einhverjir verið gert á undanfómum árum
ist vera uppsöfnuð gremja vegna mælir meirihlutinn með veitingu verða óánægðir með lokaniður- með þvi að fljúga vélum með jafn-
langvarandi einokunarfyrirkomu- sérleyfa fyrir smáu flugfélögin til stöðuna. Afstaða flugráðs kemur þrýstiklefa á langleiðum ofan veð-
lags - fólk vill breytingar," sagði ísafiarðar, Akureyrar og Egils- mér ekki á óvart enda hef ég orðið urs,“ sagöi Einar.
Ami Ingvason, framkvæmdasfióri staða í flugi til Reykjavíkur þrátt var viö mismunandi sjónarmið. -ÓTT
Araarflugs innanlands hf„ um af- fyrir að umsóknir félaganna um Það þarf aö horfa til margra þátta
stöðu meirihiuta Flugráös um veit- slikt liggi ekki fyrir. Tveir fulltrúar og ég reikna með að flugráð hafi
Háhyrningar í Sædýrasaf ninu
Fjórir háhyrningar eru nú í Sædýrasafninu í Hafnarfirði. Voru þeir allir veiddir í síðustu viku út af Hornafirði, þrjú
kvendýr og eitt karldýr. Að sögn forráðamanna Sædýrasafnsins verða háhyrningarnir i sóttkvi i tvær til þrjár vikur
og vildu þeir sérstaklega leggja áherslu á aö á meðan háhyrningarnir væru í sóttkví væru þeir ekki til sýnis.
Háhyrningarnir eru allir seldir fyrirfram en ekki var hægt að fá uppgefið hvert þeir færu. Á myndinni sjáum við
„konurnar" sem virtust una sér vel og voru strax farnar að aðlagast breyttum aðstæðum. „Karlinn" var aftur á móti
í fýlu að sögn umsjónarmanna og hélt sig í einu horninu. -HK/DV-mynd GVA
Innbrotsþjófar
gómaðir ölvað-
ir á stolnum bil
Tveir menn voru teknir á stolnum
bíl eftir að þeir höfðu brotist inn í
gærmorgun hjá fyrirtæki sem til-
heyrir Hagvirki í Bólstaðarhlíð 20.
Bflnum stálu mennirnir við Austur-
gerði með því að tengja beint og
héldu þeir að því loknu að Bólstaðar-
hlíð þar sem þeir brutust inn og stálu
símtækjum.
Mennirnir náðust er lögreglan í
Reykjavík tilkynnti um ökumann,
grunaðan um ölvun við akstur. Lög-
reglan í Kópavogi náði síðan mönn-
unum á bílnum stolna og innbrotið
komst upp er nánar var farið aö
kanna það sem þeir höfðu meðferðis
í bílnum.
Játning mannanna lá fyrir eftir
yfirheyrslur í gær. ÓTT
Mannbjörg er
trilla sökk
Mannbjörg varð þegar trillan
Frami frá Skagaströnd fylltist af sjó
og sökk á Húnaflóa snemma á laug-
ardagsmorgun.
Einn maður var um borð. Hann
kom sér strax í björgunarbát en
trillan sökk á augabragði. Maðurinn
sendi upp neyöarblys og nokkru síð-
ar var bátur björgunarsveitarinnar
á Skagaströnd kominn á staðinn.
-hlh
Veðrið á morgun:
Allhvasst
og skúrir
Á morgun veröur suðaustanátt
á landinu, allhvöss við suður- og
suðvesturströndina en hægari í
öðram landshlutum. Skúrir á
Suður- og Suövesturlandi en
bjartviðri norðanlands. Hitinn
verður 5-6 stig.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
Kgntucky
Fried
Chicken
Hjallahrauni //, Hafnarfirði
Kjúklingarsem bragó erað.
Opið alla daga frá 11-22.