Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Síða 5
r
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990. 5
dv . Fréttir
Fallið frá útboði á símboðum til Ríkisspítalanna:
varðar fiskimjol, loðnumjöl og lysi
_ , Finnland
Utflutningur í Noregur 69.000^ ^ j
tonnum 1988
og 1989. ( ^ K^/Sviþjóð24M00
Bretland 105.000 HofölSÍ
32.000
PoÍmul69.C
TékKbslóvakía 7.500
Frakkland 28.000 Q
«»-
Útflutningur 1989
Fisk- og loðnumjöl ""
Lýsi
Bretland
Pólland
Finnland
Svíþjóð
Frakkland
Tékkóslóvakía
Danmörk
IVIoregur
Holland
Önnur lönd
I 2013
I 46073
32380
20083
7337
4300
27143
I 15824
5100
Samdráttur í mjól- og
lýsisframleiðslu í fyrra
- afspymu lélegri haustvertíð er um að kenna
Framleiðsla a mjöli og lýsi hér á
landi í fyrra var langt undir meðai-
framleiðslu síðustu ára. Samtals
voru framleidd 155 þúsund tonn af
mjöli sem er 28 þúsund tonnum
minna en árið 1988. Framleidd voru
52 þúsund tonn af lýsi sem er 38 þús-
und tonnum minna en árið áður.
Ástæðan fyrir þessum mikla sam-
drætti var að loðnuvertíðin í haust
| er leið brást svo til algerlega. Aðeins
var landað 54 þúsund lestum af loðnu
en yfir 300 þúsund tonnum var land-
að tvö næstu haust á undan. Ef svo
miklu magni hefði verið landað í
haust, hefði verið hægt að framleiða
45 þúsund tonnum meira af mjöh og
35 þúsund tonnum af lýsi, en gert
var. Söluverðmæti þess afla hefði
verið á þriðja milljarð króna.
Verðmæti útflutnings á mjöl- og
lýsisafurðum í fyrra var 5,1 milljarð-
ur króna. Fyrir mjölið fengust 4,3
milljarðar en 740 milljónir fyrir lýsið.
Það er sama verðmæti og fékkst fyr-
ir afurðirnar árið áður, reiknað á
verðlagi hvors árs. Aftur á móti hef-
ur meðalgengi gjaldmiðla helstu við-
skiptalanda okkar hækkað um 20 til
30 prósent miili ára.
Bretar keyptu mest allra af mjöli í
fyrra eða 46.073 lestir. Pólverjar
keyptu 32.380 lestir og Finnar 20.083
lestir. Aðrar þjóðir keyptu mun
minna.
Norðmenn keyptu 27.143 lestir af
lýsi og Hollendingar 15.824 lestir, en
aðrar þjóðir eru þar langt undan.
-S.dór
Tæki frá Pósti
og síma ein tekin
til reynslu
- rikið að semja við sjálft sig, segja keppinautamir
Akveðið hefur verið að kaupa til Rik-
isspítalanna 10 símboða af Pósti og
síma til reynslu eftir að faliið var frá
almennu útboði á tækjunura. Fjögur
fyrirtæki kepptu við Póst og síma um
sölu á tækjunum og sendu svör við
útboði á alls 60 tækjum. Eftir að út-
boðið var gert lækkaði Póstur og sími
sitt verð og var þá ákveðið hjá Ríkis-
spítuiunum að falla frá útboðinu og
ganga til samninga við Póst og síma.
„Við vorum með lægsta tilboðið en
eftir að það koma fram lækkaði Póst-
ur og sími verðið hjá sér niður fyrir
okkar verð. Eftir þetta var ákveðið
að hætta við útboðið. Við höfum
heyrt af baktjaldamakki en ekkert
verið tilkynnt um niðurstöðuna,“
sagði Stefán A. Stefánsson hjá inn-
ílutningsfyrirtækinu ístel sem átti
lægsta tilboðið í samvinnu við Radíó-
búðina.
ístel lækkaði tilboðið niður fyrir
síðari tilboð Pósts og síma en því var
ekki tekið. Guðmundur Ólafsson hjá
Símtækni var fenginn til ráðgjafar
um tilboðin og ráðlagði hann Ríkis-
spítulunum að falla frá öllum tilboð-
um. Hans mat var einnig að tækin
væru öll áþekk að gæðum en mælti
ekki með einu öðru fremur.
Fyrirtækin, sem kepptu við Póst
og síma, eru óánægð með að fá ekki
að selja Ríkisspítulunum tæki til
reynslu eins og Póstur og sími þann-
ig að eðlilegur samanburður fengist.
Ingólfur Þórisson hjá innkaupa-
deild Ríkisspítalanna vildi ekki
leggja mat á það. „Þetta er það sem
var ákveðið enda er allt okkar síma-
kerfi frá Pósti og síma. Það getur þó
vel verið að fleiri tæki verði reynd
síðar,“ sagði Ingólfur.
Stefán A. Stefánsson hjá ístel sagði
að allur gangur málsins væri óeðli-
legur. „Póstur og sími nýtur þess
þarna að vera að skipta við ríkis-
stofnun. Vegna eftirlits hefur Póstur
og sími aðgang að öllum innflutn-
ingsskýrslum frá okkur og getur
fylgst með því sem við kaupum um
leið og stofnunin er í beinni sam-
keppni við okkur í sölu á tækjum.
Þetta er eins og Rafmagnseftirlitið
færi að selja straujárn.
Við höfum hingað til haldið okkur
á mottunni vegna þess að við verðum
að sækja margt til Pósts og síma. Það
er þeirra að viðurkenna nýjan búnað
og þangað verðum við að sækja með
nýjar hnur. Það hefur verið haldinn
fundur með Steingrími Sigfússyni
samgönguráðherra um að fá þessu
breytt en hann lýsti því yfir að í engu
yrði hróflað við Pósti og síma,“ sagði
Stefán A. Stefánsson.
-GK
'=GfföNM
Ekki útlit fyrir framboð
„borgara“ á Akureyri
Gylfi Rristjánsson, DV, Akureyri:
„Maður á auðvitað aldrei að segja
aldrei en mér sýnist staðan vera
þannig að Borgaraflokkurinn muni
ekki bjóða fram við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri í vor,“ seg-
ir Matthías Gestsson, einn af tals-
mönnum flokksins í bænum.
Matthías sagði að Borgaraflokkur-
inn væri fyrst og fremst flokkur sem
starfaði í landsmálapólitík og sín
skoðun væri sú að þannig ætti hann
að starfa. Hann sagði þó að endanleg
ákvörðun varðandi kosningarnar á
Akureyri í vor hefði ekki verið tekin.
„Ég tel að við hefðum getað tekið
þátt í einhverju blönduðu framboði
en þar sem konurnar hafa ákveðið
að bjóða fram einar tel ég ólíklegt að
við förum fram með hsta,“ sagði
Matthías.
-ATTTTTFID-
Aldrei aftur i megrun!
helgina 3.-4. febrúar veröur haldið helg-
arnámskeiö fyrir ofætur - fólk sem borðar
of mikiö, of litið eöa bara of óreglulega.
Kynntar veröa nýjar áhrifamiklar leiðir sem
tugþúsundir manna um allan heim hafa
nýtt sér til heilbrigðis og hamingju.
námskeiöiö verður haldiö í RISINU, Hverfis-
götu 105, Reykjavik.
Upplýsingar og skráning í síma
625717 (Axel).
Hringdu núna - vilji er allt sem
þarf!
>
I
I
I
Kaffibrennsla Akureyrar hf.
Þú þekkir ekki Braga
fyrr en þú hefur prófað
Kóiumbíu-blönduna!