Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Blaðsíða 18
18
91.
Veiðivon
„Mikil hætta steðjar að nátt-
úrulegu laxastofnunum"
- segir Sigurður Guðjónsson, deildarstjóri Veiðimálastofmmar
„Vonandi verða laxar af uppruna-
lega stofninum áfram í Elliðaánum
þó hætturnar séu miklar sem steðja
að ánni og fleirum hér í næsta ná-
grenni Reykjavíkur," sagöi Sigurður
Guðjónsson, deildarstjóri hjá Veiði-
málastofnun, á opnu húsi hjá Stanga-
veiðifélagi Reykjavíkur fyrir fáum
dögum, en þar var rætt um hættuna
sem steðjar að villtum laxastofnum.
„Við hefðum mátt byrja tveimur
árum fyrr með rannsóknir í veiðián-
um, en við hófum þessar rannsóknir
fyrst 1988 og svo síðasta sumar. Það
hefur ýmislegt kpmið í ljós á þessum
tveimur árum. í Elliðaánum hefur
íjölgað mikið eldislaxi sem veiddist á
stöng og reyndist vera 30,1% 1989, á
móti 17% 1988. Á 20 árum væri hægt
að ganga frá náttúrulegu stofnum
Elliðaánna, ef við erum svartsýnir.
Það sem okkur vantar að vita er hve
mikið af laxinum hrygnir í ánni. Við
erum famir aö frysta svil úr nokkr-
um ám, ef ilia fer seinna meir," sagöi
Sigurður ennfremur.
Þessi tignarlegi hængur veiddist í Andakílsá í Borgarfirði og tók fluguna Gassa, þetta er enginn eldistittur.
DV-mynd G.Bender
Þær voru margar spumingamar
sem lagðar voru fyrir Sigurð á fund-
inum og greinilegt að veiðimenn eru
orönir áhyggjufullir yfir þessu.
Reyndar hafa „sumir“ bent á þetta
fyrir löngu en enginn hefur hlustaö
á þá. En það er kannski ekki of seint
að gera eitthvað í málinu. Það kom
fram í máli Sigurður að kví hér fyrir
utan sundin er of nálægt veiðiá. En
það er lítið hægt að gera.
Fiskeldisævintýrið stendur sem
hæst þessa dagana, en hver mun taka
afleiöingum af þessu ævintýri þegar
fram líða stundir? Þegar náttúrulegu
laxastofnamir verða horfnir úr
mörgum veiðiám og komnir ein-
hveijir „villingar“ í ámar? Það veit
ég ekki...
Armenn bjóða upp á
ýmislegtgóðgæti
Ármenn, með Daða Harðarson fót-
boltakappa í broddi fylkingar, sendu
félagsmönnum fyrir fáum dögum
glaðning. En Ármenn bjóöa upp á
margt gimilegt og þá helst í silungs-
veiðinni. Hlíðarvatn í Selvogi, Reyn-
isvatn, Amarvatnsheiði, Vatnsdalsá,
Laxá í Mývatnssveit, Svartá í
Bárðardal, Svartárvatn, Grenlæk
svæöi fjögur, Jónskvísl, Sýrlæk og
Grenlæk svæði sjö í silungsveiðinni.
Svo Grímsá, Þverá og Kjarrá í lax-
veiðinni. En Armenn veiða eingöngu
meö flugu. Félagsmenn hafa greini-
lega úr nokkm að moða og eitt vekur
athygli, Svartá í Bárðardal og Svart-
árvatn. Heimildir okkar segja að allt
aö níu punda urriðar hafði veiðst í
þessari á. Góðir flskar það á fluguna.
En Ármenn hnýta á fullu í félags-
heimilinu Árósum þessa dagana og
ræða málin því biðin styttist óöum í
veiðitímann.
Bjargvætturinn Orri
Er Orri bjargvættur Vigfússon
mætti á opið hús hjá Stangaveiðifé-
lagi Reykjavikur fyrir fáum dögum
var honum fagnað eins og bjargvætti
veiöimanna. En Orri hefur víða farið
og verið síðustu daga við saminga.
Eða eins og Stefán A. Magnússon,
formaður skemmtinefndar Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, sagði. „ Hér
er mættur bjargvætturinn Orri Vig-
fússon og hann mun verða á opnu
húsi hjá okkur í mars. Þar mun hann
skýra stöðu laxakvótamálsins,"
sagði Stefán í lokin.
-G.Bender
Finnur þú fimm breytingar? 39
- Mundirðu e«ir að fara með pakkann, sem ég lét þig hafa í morgun,
í póst.
Nafn:........
Heimilisfang:
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
JMAL TS aUÓAflflAJlUAJ
Þjóðarspaug
DV í skamm-
deginu
r
A
Sigríði
Sjómaður einn af Suðurnesjum
ákvað að skella sér í róður með
bát frá Vestmannaeyjum er Sig-
ríður hét. Óvíst var hvort úr yrði
nema einn róður en vel mun hon-
um þó hafa líkaö um borð og er
hann hafði ákveöið að fara í ann-
an róður sendi hann konu sinni
svohljóðandi skeyti:
„Verð áfram á Sigríði."
Húddið
á mér
Úr tjónskýrslu varöandi um-
ferðarslys:
„Hann hjólaði beint fyrir fram-
an húddið á mér svo að ég varð
að keyra beint á hann."
Allir
eins
Kunnur prestur komst eitt sinn
svo að oröi:
„Þaö er nóg að skipta bara um
nöfnin í líkræðunum því eigin-
leikamir og innrætið virðist alls
staðar það sama.“
Trúaður
Prestur einn í Hafnarfirði
spurði eitt sinn fermingardreng
að því hvort hann tryði á Jesú.
„Já, og marga fleiri,“ sváraði
stráksi.
Myndirnar tvær viröast viö
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáö kemur í ljós aö á
myndinni til hægri hefur
fimm atriöum veriö breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja viö þau meö
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegara.
Vinningar fyrir 39. getraun:
1. Vasadiskó með bassamögn-
un aö verðmæti kr. 5.900,-
2. Vekjaraklukka aö verð-
mæti kr. 1.900,-
Vinningar fyrir 37. getraun:
1. Elta stereoferðatæki með
tvöFóldu segulbandi að verð-
mæti kr. 8.900,-
2. Elta útvarpsvekjaraklukka
að verðmæti 3.500,-
Vinningarnir koma úr Ópus,
Skipholti 7, Reykjavík.
Merkið umslagið með lausn-
inni:
Finnur þú fimm breytingar? 39
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir þrítugustv
og sjöundu getraun reyndusi
vera:
1. Kolbrún Bergþórsdóttir,
Hringbraut 48,107 Reykajvík.
2. Ragnhiidur Haraldsdóttir,
Vesturbergi 78,111 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir heim.