Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Page 8
LAUGARDAGUR 27, JANUAR 1990.
Psoriasis-sjúklingar
Ákveðin er ferð fyrir psoriasis-sjúklinga 10. apríl nk.
til eyjarinnar Lanzarote, á heilsugæslustöðina Panor-
ama.
Þeir sem hafa þörf fyrir slíka ferð snúi sér til húðsjúk-
dómalækna og fái vottorð hjá þeim. Sendið það
merkt nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri og síma til
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114, 3. hæð.
Umsóknir verða að berast fyrir 28. febrúar.
Tryggingastofnun ríkisins
INNANHÚSS-
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbuningsmenntuhar er krafíst til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólfíagnir, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o. fl.
Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ.
Heimilisfang....................J................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Postboks234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark DV 01 27 90
Styrkir til umhverfismáfa
Landvernd mun á næstunni úthluta styrkjum
úr pokasjóði Landverndar
1. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverfis-
mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun,
verndun, fegrun og snyrtingu lands, og til fræðslu
og rannsókna.
2. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera
vel afmörkuð og skilgreind. Styrkumsókninni þarf
að fylgja verk- og fjárhagsáætlun.
3. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum
mótframlag sem getur falist í fjárframlögum, vél-
um, tækjum, efni eða vinnu.
4. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um
framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok út-
hlutunarárs.
5. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land-
verndar fyrir 15. febr. 1990.
Landvernd,
Skólavörðustíg 25,
101 Rvík
IÐNAÐARVÉLAR
SAMBYGGÐAR TRÉSMÍÐAVÉLAR
frá kr. 231.500
LOFTPRESSUR
frá kr. 16.500
GEIRSKURÐARSAGIR
frá kr. 31.868
AFRÉTTARAR OG ÞYKKTARHEFLAR
frá kr. 61.500
HJÓLSAGIR
frá kr. 35.000
SPÓNSUGUR
frá kr. 21.160
RAKATÆKI, FYNBO
frá kr. 141.000
Verð án vsk.
I & T HF.
IÐNVÉLAR OG TÆKI
SMIÐSHÖFÐA 6
SÍMI 674800
Hinhliöin
í uppáhaldi
Kristján Sigmundsson, fyrrum
landsliðsmarkvörður, lagði skóna
á hilluna fyrir um það bil tveimur
árum óg þá á hátindi ferilsins. Um
síöustu helgi kom Kristján aftur
fram á völlinn með gamla liðinu
sínu, Víkingi, og sýndi aö hann
heftir engu gleymt. Kristján hóf
aeiingar rétt fyrir jól er markvörð-
ur Víkings, Hrafn Margeirsson,
varö fyrir alvariegu slysi á lands-
liðsæfingu og er því íjarri góðu
gamni Kristján hefur aðeins hug á
að standa markið í fjarveru Hrafns.
Hann var ánægður meö árangur
sinn í leiknum um síöustu helgi og
á næstunni verða miklar æfingar
en næsti leikur er þó ekki fyrr en
um rniðjan mars. Það er Kristján
sem sýnir okkur hina hliðina að
þessu sinni.
Fullt nafh: Kristján Sígfús Sig-
raundsson.
Fæðingardagur og án 9. júní 1957.
Maki: Guörún H. Guölaugsdóttir.
Börn: Þau eru tvö, Sigmundur 6 ára
og Magöalena ársgömul.
Bifreið: Toyota Corolla árgerö 1987.
Starf: Framkvæmdastjóri.
bolti.
Hvað hefúr þú fengið margar tölur
náö þremur tölum réttum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Spila handbolta.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Mér finnst leiðinlegt að vaska
upp þó ég geri þaö alltaf annaö slag-
iö.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri er
alltaf best upp á gamla móöinn.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólkin er góð.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati? Ég
myndi segja aö þaö væri Þorbergur
Aðalsteinsson sem spilar í Svíþjóö.
Uppáhaldstímarit: Nú setur þú mig
í vanda. Ég les nu tímarit en ég
veit ekki hvaö er í uppáhaldi. Lík-
legast er þaö þjóðlíf.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Æi, þarftu nú aö spyija aö þessu.
Eg veit þaö svei mér ekki. Það eru
svo margar fallegar stúlkur til.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Andvígur.
hitta? Migf langar mikiö að hitta
söngvarann og leikarann Phil Coll-
in8.
Uppáhaidsleikari: Þaö er Jack Nic-
holson.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep.
Uppáhaldssðngvari: Phil Collins.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Það
er Finnur Ingólfsson.
Uppáhaidsteiknimyndapersóna:
Hermann.
Uppáhaidssjónvarpsefni: Fréttir
horfi ég liklegast mest á.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Páll Þor-
steinsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég hugsa að ég horfi
nokkuð jalht á báöar stöðvamar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Hallur
Hallsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Hótel
Uppáhaldsfélag i iþróttum? Víking-
ur.
Stefnir þú aö einhverju sérstöku í
framtíðinni? Eg stefni alltaf að því
að gera betur.
Hvað geröir þú í sumarfriinu? Ég
fór meö fjölskylduna hringinn í
kringum landiö og þaö tók hálfan
mánuö meö stoppi, auövitað, og við
fengum ljómandi gott veður. Hvað
viö gerum næsta sumar ér hins
vegar alveg óráöiö.
-ELA