Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Kvikmyndir
Nýlega varfrum-
sýnd myndin
Blaze sem fjallar
um ástarævintýri
ríkisstjóra Louis-
iana- ríkis og nekt-
ardansmeyjarfrá
New Orleanssem
gerðist fyrirtæp-
um 30árum.
Eitt af því sem fylgir því aö vera
í stjórnmálum er að vera sífellt
undir smásjá fjölmiöla og þar meö
almennings. Fjölmiölar fylgjast
grannt með starfi stjórnmála-
manna og oft á tíðum einnig með
einkalífi þeirra. Sérstaklega hafa
bandarískir fjölmiðlar verið dug-
legir að draga fram fyrir sjónir al-
mennings öll feilspor þingmanna
sinna jafnt sem annarra aðila sem
gegna ábyrgðarstöðum innan
bandaríska þjóðfélagsins.
í Evrópu hafa fjölmiðlar verið
gætnari þótt oft komi upp slík mál
þar. Vinsælasta efnið er að draga
fram kvennafar stjómmálamanna
og reyna að tengja það einhverju
njósnamáli eða aö þjóðaröryggi
hafi verið stefnt í voða. Við þekkj-
um mál eins og þegar Gary Hart,
sem var einn af frambjóðendum
Atriði úr Blaze.
Hneykslismál í brennidepli
demókrata til embættis forseta, var
sleginn út í kosningunum þegar
fjölmiðlar birtu myndir af leyni-
fundum hans við unga stúlku.
Einnig má minnast hvemig tveir
af þekktustu prestum sértrúar-
safnaða Bandaríkjanna misstu ær-
una þegar blöð birtu fréttir af heim-
sóknum þeirra til vændiskvenna.
Gott myndefni
Eins og sjá má er hér um að ræða
krassandi efni sem fellur vel að
kvikmyndagerö. Hins vegar em
kvikmyndaframleiðendur ekki til-
búnir til að gera myndir um þessi
hneykslismál fyrr en löngu eftir að
þau gerðust, líklega af tilhtssemi
við þá sem Ientu í þessum leiðinda-
málum.
í fyrra var t.d. gerð myndin
Scandal. Hún fjallaði um hneyksli
sem gerðist 1963 þegar það fréttist
að þáverandi hermálaráðherra
Bretlands, John Profumo, og Eug-
ene Ivov, hernaðarsérfræðingur í
rússneska sendiráðinu, deildu
sama bólfélaga eða hinni 21 árs
gömlu Christine Keeler. Nú er
sama sagan uppi á teningnum því
nýlega var fmmdsýnd myndin
Blaze sem fjallar um atburöi sem
gerðust fyrir um 30 ámm.
Söguhetjurnar eru hinn 63 ára
Earl K. Long, ríkisstjóri Louisiana,
og hin 27 ára gamla nektardans-
mær, Blaze Starr.
Það senyjerir þessa sögu kannski
frábmgðna öðrum hneykslismál-
um er að þau virtust ástfangin og
Earl var ekkert að reyna að leyna
sambandi sínu við Starr þótt hann
væri giftur. Þau sáust því oft saman
og voru því eins og sending af
himnum ofan fyrir fjölmiðlana.
Baráttumaðurinn
Earl
Myndin er byggð á bókinni
„Blaze Starr: My Life as Told to
Huey Perry“. Þar segir Starr frá
lífi sínu. „Þessi bók hefur að geyma
efni í að minnsta kosti 50 kvik-
myndir,“ hefur verið haft eftir leik-
stjóra myndarinnar, Ron Shelton.
Um þessar persónur fjallar Blaze.
„Það væri hægt að gera framhalds-
þátt um þessa konu. Hún eignaðist
nýja vini á.næstum því vikufresti.
En það vora kaflamir um miðbik
bókarinnar um ástarævintýri
Starr við ríkistjórann Earl K. Long,
sem vora bitastæðastir."
Earl K. Long var þekktur stjóm-
málamaöur í sínu ríki. Eins og eldri
Umsjón:
Baldur Hjaltason
bróðir hans, Huey P. Long, var
hann mikill baráttumaður og var
vanur að ferðast víða til að kynn-
ast kjósendum og koma hugmynd-
um og sjónarmiðum sínum á fram-
færi. Hann var ákaflega aðlaðandi
persóna og vinsæll stjómmálamað-
ur enda hélt hann embætti ríkis-
sfjóra í ein þijú kjörtímabil.
En eins og margir stjómmála-
menn var hann veikur fyrir hinu
kyninu og virðist hafa heimsótt
einum of oft nektarbúllu í Bourbon
Street, New Orleans, þar sem hann
kynntist Blaze Starr árið 1959.
Fréttirnar um ástarævintýri
þeirra Earl og Starr komu eins og
þruma úr heiðskím lofti fyrir hina
íhaldssömu íbúa Louisiana. Þrátt
fyrir allt umtahð lagði Earl ekki
árar í bát og var ekkert að leyna
sambandi sínu við Starr. Hann hélt
áfram í stjórnmálum og hafði unn-
ið sigur í forkosningum demókrata
til þingsætis þegar hann lést óvænt
af hjartaslagi 1963.
Góður leikur
Blaze Starr er enn á lífi og kemur
raunar fram í stuttu atriði í mynd-
inni. Hún var leikstjóranum innan
handar við að leiðbeina hinni ungu
kanadísku leikkonu, Lolita
Davidovich, sem hreppti hlutverk
Starr eftir aö búiö var að fá 600 leik-
konur í viðtal.
Starr var orðin þjóðsagnaper-
sóna þegar hún dró sig í hlé og var
líkt við nektardansmeyjar eins og
Gypsy Rose, Sally Rand og Lili St.
Cyr. Raunar kallaði tímairitið Es-
quire hana „almenningseign“.
Starr dró sig í hlé áður en klám-
myndirnar héldu innreið sína í
Bandaríkin og hefur stundað hönn-
un og framleiðslu á skartgripum.
Eins og allar þekktar nektardans-
meyjar bauö Starr upp á mjög sér-
stakt atriði um tíma .
Hún hafði.sér til hjálpar tigrisdýr
sem aöstoðaði hana við að fella fót-
in. Það sem hún gerði var að festa
litla kjötbita við fótin þannig aö
þegar tígrisdýrið reyndi að losa um
kjötið losaði það líka um hnútana
sem héldu saman fótunum. „Þú
getur gert þetta, allir geta gert
þetta,“ hefur verið haft eftir Starr.
„Tígrisdýrið var svangt, svo ég festi
hrátt kjöt við fótin mín. Þetta var
mín hugmynd og til lengdar reynd-
ist hún ekki nógu góð. Tígrisdýrið
vildi stærri kjötbita og það boðaði
ekki gott.“
Paul Newman
Paul Newman var lengi mjög hik-
andi hvort hann ætti að taka að sér
hlutverk Earl Long. Hann var
hræddur um aö ímynd hans breytt-
ist í augum kvikmyndahúsagesta
ef hann léki ríkisstjóra sem væri á
kvennafari. Eftir að hafa hitt leik-
stjórann ákvað hann að taka
áhættuna og slá til.
„Þú færð strax á tilfmninguna
þegar þú hittir leikstjórann í fyrsta
sinn hvort þú getur unnið með
honum eða ekki,“ var einmitt haft
eftir Newman.
En rétt áöur en kvikmyndatakan
átti að hefjast fékk Newman bak-
þanka og afþakkaði hlutverkið.
Framleiðandi myndarinnar, Buena
Vista, sem er í Walt Disney sam-
steypunni, dró að sér hendumar
og allt benti til þess að ekkert yrði
úr gerð myndarinnar. Alhr vom
sendir heim og Disney fyrirtækið
vildi byrja upp á nýtt en með mun
íburðarminni mynd í huga.
Newman hafði á tilfmningunni
að áhorfendur myndu ekki sætta
sig við hann í svona hlutverki.
Hann var ekki viss um hve nálægt
hann kæmist persónuleika Earl í
túlkun sinni á honum ásamt því
að honum fannst aldursmunurinn
of mikill milli sín og leikkonunnar
sem lék Starr, enda á Newman
dætur sem em eldri en hún. En
skömmu seinna hringdi Newman
aftur í leikstjórann og sagðist hafa
skipt enn einu sinni um skoðun.
Hann hefði hringt í vin sinn, John
Malkovich, sem lék eitt aðalhlut-
verkið í Dangerous Liasons, og leit-
að hjá honum ráða. Hann fékk auð-
sýnilega góð ráð því gagnrýendur
hafa lofað Newman fyrir næman
leik og fyrir að gefa hlutverki Earl
þann kraft sem til þurfti.
Leikstjórinn
Buena Visna tók ákveöna áhættu
aö láta leikstjórnina í hendur hin-
um rúmlega fertuga leikstjóra, Ron
Shelton. Hann hafði aö vísu sýnt
hvað í honum bjó með gerð mynd-
arinnar um knattleikskappann Bill
Durham. En það var raunar ekki
fyrr en tölurnar um aðsókn tvær
fyrstu vikurnar að Bill Durham
lágu fyrir að Shelton fékk grænt
ljós. En málið hafði lengri undir-
búning. Á sínum yngri ámm hafði
Shelton unnið töluvert að hand-
ritagerð og endurskrifaði m.a.
handritið Under Fire sem Roger
Spottiswoode leikstýrði meö þeim
Nick Nolte og Gene Hackman.
Skömmu seinna skrifaöi hann
handritið að The Best of Times sem
Roger Spottiswoode leikstýrði
einnig með Robin Williams í aðal-
hlutverki.
Roger lét Shelton einnig vinna að
gerð myndanna sem aðstoðarmað-
ur. „Þessar myndir voru kvik-
myndaskóli minn,“ segir Shelton.
„Eg fylgdist vel með, hlustaði á
samræður og spurði mikið. Ég var
alltaf að angra einhvern með
spurningum mínum."
Þegar kvikmyndatökum lauk
hélt Shelton áfram að spyrja meðan
á klippingu stóð. Þegar upp var
staðiö var Shelton tilbúinn í slag-
inn. Handritið að Blaze var tilbúið
1983 og í fyrstu átti Herbert Ross
að leikstýra. 20th Century Fox tók
aö sér að framleiða myndina en
þegar mannabreytingar urðu þar
og Barry Diller tók við stjórnar-
taumunum var ákveðið að láta
Blaze sigla sinn sjó. Það var því
ekki fyrr en Shelton hafði slegið í
gegn með Bill Durham og Newman
hafði sagt já að kvikmyndaverin
fóm að sýna aftur áhuga á mynd-
inni. Og þegar upp var staðið var
það Disney kvikmyndaverið sem
hreppti hnossiö.
Hclstu hcimildir:
American Film Empirc Variet
-B.H.