Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Erlendbóksjá
Homblower í
sjóhemum
Cecil Scott Forester, sem and-
aðist árið 1966, er einkum kunnur
fyrir skáldsögur sínar um Hor-
atio Homblower sem er einn
kunnasti sjóliðinn í vestrænum
skáldskap.
í fyrstu skáldsögunni hóf Horn-
blower feril sinn í enska flotanum
sem miðskipsmaður en endaði
mörgum bókum síðar í æðstu
valdastöðum innan sjóhersins.
Að sögn dregur sögupersónan
dám af mestu sjóhetju Englend-
inga, Horatio Nelson.
I þessari nýju bók birtast þrjár
fyrstu sögumar um Hornblower:
Mr. Midshipman Hornblower,
Lieutenant Hornblower og Horn-
blower and the Hotspur. Hér lær-
ir kappinn undirstöðuatriði sjó-
hernaðar og lendir hvað eftir
annaö í kröppum dansi jafnt í
viðureign við fjandmenn og veð-
urguðina. Hann stendur sig vel
og hlýtur nokkurn frama þótt
hann sé ekki af „finum" ættum.
Hornblowersögurnar eiga að
gerast á valdatíma Napóleons,
þegar enski sjóherinn vann
frækilega sigra, og er lífi um borð
í herskipunum og sjóorastunum
lýst ítarlega.
THE YOUNG HORNBLOWER OMNIBUS.
Höfundur: C. S. Forester.
Penguln Books, 1989.
Indverskur
landsfaðir
Tveir á margan hátt ólíkir
menn voru í fylkingarbrjósti í
sjálfstæðisbaráttu Indverja. Mat-
hama Gandhi, sem náði undir-
tökunum í Kongressflokknum
árið 1920, og Jawaharlal „Pandit“
Nehru sem varð formaður Kon-
gressflokksins árið 1928 og fyrsti
forsætisráðherra sjálfstæðs Ind-
lands árið 1947.
Þessi yfirgripsmikla ævisaga
Nehras er eftir kunnan indversk-
an blaðamann. Eins og nafn bókar-
innar gefur til kynna er frásögnin
jöfnum höndum ævisaga Nehras
og lýsing á því hvemig Indiand
varð til sem sjálfstætt ríki - en þar
hafði Nehra jafnvel enn meiri
áhrif á gang mála en Gandhi.
Nehru leit snemma á sig sem
Garibaldi Indveija og lagði allt í
sölurnar fyrir baráttuna. Hann
sat þannig í fangelsi Breta sam-
tals í 18 ár frá 1921 þar til sjálf-
stæðisbaráttan bar árangur.
Hann stýrði einnig landinu fyrstu
áratugina eftir sjálfstæðistökuna,
þ.e. frá 1947 til 1964 að hann lést.
Þetta er læsileg og ígranduð
frásögn af margbrotnum manni
sem fór með lykilhlutverk á ör-
lagatímum í sögu þjóðar sinnar.
NEHRU. THE MAKING OF INDIA.
Höfundur: J. Akbar.
Penguin Books, 1989.
Veraldarsagan
í fréttaformi
Frásagnir af viðburðum dagsins birt-
ast jarðarbúum um víða veröld á síð-
um dagblaða. Samkeppnin um tíma
og athygli fólks eykst sífellt. Það hef-
ur áhrif á efni og útlit blaðanna. Fyr-
irsagnir hafa stækkað. Myndskreyt-
ingar tekið stórstígum framfórum.
Textinn orðið styttri. Allt til að ná
og halda athygli lesandans.
Bækur sem endurspegla slíkt nú-
tímalegt dagblaðaform era kunnar
hér á landi. „Aldirnar" svonefndu
hafa notið mikilla vinsælda. Þar er
atburðum þessarar aldar, og reyndar
nokkurra síðustu alda, lýst eins og
um dagblaðsfréttir væri að ræða.
Mannkynssagan
sem fréttir
Síðustu árin hafa erlendir útgef-
endur farið inn á sömu braut með
góðum árangri.
Fyrir tveimur árum kom út á
ensku slík dagblaðsfréttabók eða
annáll um atburði tuttugustu aldar-
innar. Það viðamikla verk, sem hefur
fengist í bókaverslunum hérlendis,
hefur löngum verið á metsölulistum
í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Þegar er komin út hhðstæður
annáll um sögu Bandaríkjanna, ann-
ar um frönsku stjómarbyltinguna og
fréttaannáll um sögu Bretaveldis er
á leiðinni. Þá er einnig fariö að gefa
út slíkar bækur um atburði nýliðins
árs.
Útgefendur þessara annála hafa
hins vegar ekki látið staðar numið
við að taka fyrir atburði einstakra
ára, einnar aldar eða sögu tiltekinna
stórvelda. í Chronicle of the World
er viðfangsefnið einfaldlega öll saga
mannlífs á jörðinni, eins konar
fréttayfirht frá því um 3.500.000 fyrir
Krists burð fram á okkar daga.
Mikih fjöldi blaðamanna og sér-
fræðinga hefur lagt sitt af mörkum
við gerð þessarar þrettán hundruö
blaðsíðna bókar.
Farið er fljótt yflr sögu árdaganna.
Fyrstu 2.500.000 árin eru til dæmis
afgreidd á einni opnu. En mestan
hluta bókarinnar nær hver blaðsíða
yfir eitt eða fáein ár. Þó er atburðum
sem gerst hafa eftir lok síðari heims-
styijaldar þjappað mun meira sam-
an, enda þeim gerð ítarleg skil í áður-
nefndum annál tuttugustu aldar.
Auk fréttagreinanna eru inni á
milli ítarlegri skrif um merk tíma-
mót í veraldarsögunni eða atburði
sem höfðu umtalsverð áhrif á fram-
vindu sögunnar. Slíkar ritgerðir eru
um fimmtíu talsins. Loks fylgir í bó-
karlok sérkafli þar sem gefnar eru
helstu staðreyndir um öll þjóðríki
jarðar.
Ritstjóri bókarinnar, fyrram rit-
stjóri Time Out tímaritsins enska,
beitir vinnuaðferðum nútíma blaða-
mennsku við gerð hennar. Unnar er
upp úr fyrirliggjandi heimildum
stuttar og hnitmiðaðar fréttafrásagn-
ir þar sem gjarnan er lögð áhersla á
mannlega þáttinn. Fyrirsagnir eru
yfirleitt stuttar og oft hnyttnar. Notk-
un mynda og grafa er til fyrirmynd-
ar: margar myndir og/eða kort á
hverri síðu og meirihlutinn í litum.
Skemmtileg sögubók
Ég kann afar vel við þessa bók
bæði sem blaðamaður og áhugasam-
ur lesandi sögubóka. Hún er afar
aðgengileg og skemmtilega skrifuð
og hönnuð. Efnismagnið er auðvitað
slíkt að enginn kemst yfir að lesa
bókina í striklotu. Undirritaður hef-
ur hins vegar gripið til hennar flest
kvöld undanfamar vikur og alltaf
fundið eitthvað áhugavert. Og á
margt eftir ólesið enn.
Ekki skal dregið í efa að fræðimenn
kunni að hafa sitthvað við þessa bók
að athuga, til dæmis að hún fjalli á
yfirborðskenndan hátt um mikil-
væga atburöi. Slík gagnrýni á hins
vegar einnig við um ýmsar sögubæk-
ur sem hafa yfir sér fræöilegri svip
en eru um leið mun óaðgengilegri.
Höfundum bókarinnar tekst oft
mjög vel að draga fram það forvitni-
lega og mannlega og segja frá því á
auðskilinn máta. Bókin er einnig
aðgengileg sem uppflettirit því efn-
inu er raðað í rétta tímaröð og ítarleg
nafnaskrá fylgir í lokin.
CHRONICLE OF THE WORLD.
Ritstjóri: Jerome Burne.
Longman og Chronicle Communications
Ltd., 1989.
Metsölubækur
Bretland
Kiljur, Bkalduögur:
1. DlcK Francis:
THE EDGE.
2. Colln Forbes:
THE QREEK KEY.
3. Sldnoy Sholdon:
THE SANDS OF TiME.
4. Erlch Seoal:
OOCTORS.
5. Mary Stewari:
THORNYHOLD.
6. Rosamunde Pllcher:
THE SHELL SEEKERS.
7. Len Delghton:
SPY HOOK.
8. Jeanette Wlntorson:
ORANGES ARE NOT THE ONLY
FRUIT.
THE SOUL.
9. Janet Dalley:
RIVALS.
10. Stephen Klng:
THE TOMMYKNOCKÉRS.
Rlt almenns eðlis:
1. flosemary Conley:
INCH-LOSS PLAN.
2. Roscmary Conley:
COMPLETE HIP & Thlgh Diet.
3. Barry Lynch:
THE NEW BBC DIET.
4. Callan Plnckney:
CALLANETICS.
5. Allsdalr Atrd:
THE 1990 GOOD PUB GUIDE.
8. Tom Jalno:
THE GOOD FOOD GUIDE 1990.
7. Egon Roney:
GUIDE TO HOTELS & RESTAUR-
ANTS.
8. Betty Shlne:
MiND TO MIND.
9. AA HOTELS AND RESTAURANTS
IN BRITAIN 1990.
10. Gambaccini, Rice & Rlee;
GUINNESS BOOK OF BRITISH HIT
SINGLES.
<Byggt á The Sunday Tlmes)
Bandaríkin
Metsðluklt|ur:
1. Stephen King:
THE DRAWING OF THE THREE.
2. Sidney Sholdon:
THE SANDS OF TIME.
3. Tony Hillerman:
A THIEF OF TIME.
4. Rosamunde Pilcher:
THE SHELL SEEKERS.
5. Douglas Adams:
THE LONG DARK TEA-TIME OF
THE SOUL.
6. Len Deighton:
SPY HOOK.
7. Plers Anthony:
UNICORN POINT.
8. Jack Higglns:
A SEASON IN HELL.
9. Lawrence Sanders:
STOLEN BLESSINGS.
10. Margaret Atwood:
CATS EYE.
11. Kathryn Lynn Davls:
TOO DEEP FOR TEARS.
12. John Gardner:
SCORPIUS.
13. Peter Oavid:
A ROCK AND A HARD PLACE.
14. Anne Tyler:
BREATHtNG LESSONS.
18. Mary Stewart:
THORNYHOLD.
Rit almenns eðlis:
1. Robert Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW I
LEARNED IN KINDERGARTEN.
2. Cleveland Amory:
THE CAT WHO CAME FOR
CHRISTMAS.
3. Joseph Wambaugh:
THE BLOODING.
4. Grace Catalano:
NEW KIDS ON THE BLOCK.
5. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS TRAVELED.
6. Joseph Campbell/Bitl Moyers:
THE POWER OF MYTH.
7. Joe McGinniss:
BLIND FAITH.
8. James Glelck:
CHAOS.
9. George Burns:
GRACIE.
18. Bernie S. Siegel:
LOVE, MEDICINE & MIRACLES.
(Byggt é New York Tlmes Book Review)
Danmörk
Metsölukiljur:
1. Fay Weldon:
NEDE MELLEM KVINDER.
2. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
3. Martha Chrlstenson:
DANSEN MED REGITZE.
4. Jean M. Auel:
HESTENES DAL.
5. Jean M. Auel:
MAMMUTJÆGERENE.
6. Elisabeth Holden:
NATURDAGBOG AF EN ENGELSK
DAME.
7. Regine Déforges:
PIGEN MED DEN BLÁ CYKEL.
8. Emma Gad:
TAKT OG TONE.
9. Reglne Dólorges:
I KRIG OG KÆRUGHED.
10. Helle Stangerup:
CHRISTINE.
(Byggt A Polltlken Sendag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Þeódóra og
sonur hennar
Ekki er að undra að Þeódóra,
sem varð keisaraynja í Mikla-
garði árið 527 og þar með - ásamt
manni sínum, Jústíníusi keisara
- æðst allra í hinu rómverska ríki
í rúma tvo áratugi, hafi gegnum
tíðina leitað á huga skáldsagna-
höfunda.
Þótt margt sé á huldu um feril
Þeódóru, og ekki öllu trúandi sem
fullyrt hefur verið þar um, er Ijóst
að hún var af lágum stígum: faðir
hennar gætti öls í hringleikahúsi
í Miklagarði. Hún gerist á tán-
ingsaldri leikkona og kunn
vændiskona meðal hefðarmanna.
Hún varð ástmey Jústíníusar og
síðar hans ektakvinna. Hún tók
það hlutverk sitt alvarlega,
breytti um lífshætti og hafði að
sögn mest að segja um stjórn rík-
isins.
í þessari nýju skáldsögu er
einkum fjallað um valdatíma Þe-
ódóru og þá alveg sérstaklega um
samband hennar viö launson
sinn en honum kemur hún til
áhrifa við hirðina þar sem valda-
barátta er hörð og baráttuaö-
ferðir óprúttnar. Höfundurinn er
vel að sér um sögulegar stað-
reyndir og hefur innan ramma
þeirra skrifað bæði skemmtilega
og spennandi skáldsögu.
THE BEARKEEPER'S DAUGHTER.
Höfundur: Gillian Bradshaw.
Penguin Books, 1989.
'A( i.w i * >
HX'i íMÚiU'-'Úh W : 1 íV >! ■:
Leitað hefnda
Jack Higgins, sem er líklegast
kunnastur fyrir spennusöguna
The Eagle Has Landed (Örninn
er lentur), fjallar í nýjustu sögu
sinni um alþjóðlega eiturlyija-
smyglara og fer þar troðnar slóð-
ir í efnisvali.
Söguþráðurinn er þannig
kunnuglegur: eiturlyíjasmyglar-
ar koma ungu fólki fyrir kattar-
nef í þágu glæpastarfsemi sinnar.
Aðstandendur tveggja fórnar-
lambanna vilja leita hefnda og
hafa til þess bæði fjárráð, hæfni
og aðgang að opinberum aöilum
sem búa yfir vitneskju um starf-
semi glæpasamtaka og hryðju-
verkamanna. Leitin að höfuð-
paurnum leiðir til að byrja með
inn á nokkrar blindgötur þar sem
hart er barist en aö lokum er ljóti
kallinn aíhjúpaöur og fær makleg
málagjöld.
Higgins er einn þeirra spennu-
sagnahöfunda sem kemur sér
beint að efninu og forðast allar
málalengingar. Sögur hans, sem
sumar eru spennandi þótt at-
burðaás þessarar sé of gegnsæ frá
upphafi, eru því fljótlesnar.
A SEASON IN HELL.
Höfundur: Jack Higgins.
Pockel Books, 1989.