Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Side 14
14
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 >27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Mannréttindi eflast
Stjórn Ceausescus í Rúmeníu naut fram undir andlát-
iö sérstakrar velvildar stjórnar Bandaríkjanna, þar á
meðal svonefndra beztu kjara í viöskiptum. Þetta staf-
aöi af, að Ceausescu stóö oft uppi í hárinu á ráöamönn-
um Sovétríkjanna, Bandaríkjamönnum til ánægjuauka.
Ráðamenn vestra hafa lengi metiö fólk eftir, hvort
það segist vera á móti „Rússum“ og „kommum“. Þetta
hefur sett svip á utanríkisstefnu Bandaríkjanna, sér-
staklega gagnvart þriöja heiminum, þar sem dólgum af
ýmsu tagi hefur verið lyft á kostnað lýðræðissinna.
Með hruni Sovétríkjanna og Varsjárbandalagsins
minnka líkurnar á, að ógeðfelldar ríkisstjórnir og stjórn-
málamenn í þriðja heiminum geti spilað á Bandaríkin
í skjóh Rússa- og kommagrýlunnar. Þetta mun smám
saman bæta ástandið í þriðja heiminum.
Hjöðnun spennunnar milh póla austurs og vesturs
hefur líka áhrif á hinn veginn. Fidel Castro mun veitast
örðugar að sníkja hjá Sovétríkjunum fé til viðhalds
harðstjórn sinni á Kúbu. Ýmsir aðrir ógeðfelldir skjól-
stæðingar Sovétríkjanna sjá fram á erfiða tíma.
Breytingin gerist ekki á svipstundu. George Bush
Bandaríkjaforseti er enn að reyna að halda á floti hinu
vanheilaga bandalagi Bandaríkjanna og Kína, til dæmis
með því að ofsækja kínverska námsmenn, er vilja fá
að vera áfram vestra af ótta við kínverska ráðamenn.
Skömmu fyrir áramótin laug James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, að desemberferð ráðherranna
Scowcrofts og Eagleburgers til Kína væri sú fyrsta eftir
Úöldamorðin á Torgi hins himneska friðar. í ljós hefur
komið, að þeir voru þar líka rétt eftir morðin.
Bush virðist ímynda sér, að hann hafi sem sendi-
herra í Kína í gamla daga öðlazt skhning á, hvernig
beri að umgangast ráðamenn þar eystra. Ekki hefur
blásið byrlega fyrir þeirri ímyndun í vetur, en Banda-
ríkjaforseti hefur enn ekki lært af þeirri bitru reynslu.
Þetta lagast vonandi fljótlega, sem og viðhorf stjórn-
valda í Bandaríkjunum til ýmissa stjórnvalda, sem hafa
of lengi skákað í skjóli kalda stríðsins. Þíðan rýrir svæð-
isbundið mikilvægi stjórnvalda í vandræðaríkjum á
borð við ísrael, Suður-Afríku og E1 Salvador.
Erfiðara verðui' fyrir ríkisstjórn Turgut Özals í Tyrk-
landi að halda áfram ógeðfelldum mannréttindabrotum
í skjóli þess, að ríkið hefur landamæri að Sovétríkjunum
og er öflug brjóstvörn Atlantshafsbandalagsins í suðri.
Þannig munu Tyrkir græða á þíðunni eins og fleiri.
Hingað til hafa hin vondu áhrif kalda stríðsins verið
eins og vítahringur. Stuðningur Sovétríkjanna við Víet-
nam, hemámsríki Kambódíu, og tilhugalíf Bandaríkj-
anna og Kína, óvinar Víetnams, leiddi til óbeins stuðn-
ings Vesturlanda við Rauðu khmerana í Kambódíu.
Nú má á hinn bóginn vænta uppsöfnunaráhrifa þíð-
unnar. Þegar ráðamenn í Bandaríkjunum sjá, að ekki
hentar Vesturlöndum að halda uppi hryðjuverkastjórn
í ísrael, má búast við, að auðveldara verði að einangra
þær stjómir í heimi íslams, sem verst haga sér.
Þegar mannréttindabrj ótar geta ekki lengur hallað
sér að heimsveldi, hafa Vesturlönd fengið tækifæri til
að ryðja braut hinum raunverulegu hagsmunum Vest-
urlanda, sem felast í, að vestrænar hugmyndir um
mannréttindi nái fram að ganga í þriðja heiminum.
Þannig verða aukin mannréttindi í þriðja heiminum
eitt af stærstu framfaramálum mannkyns á næstu árum,
einmitt vegna hmns sovézka heimsveldisins í vetur.
Jónas Kristjánsson
Hagsmunir allra
að halda
Aserum niðri
George Bush Bandaríkjaforseti
kvaöst á þriðjudag óska og vona
að Mikhail Gorbatsjof Sovétleiðtogi
kæmi tvíefldur úr þeirri raun að
fela hernum að bæla niður vísi aö
ófriði milli tveggja sovétlýövelda
handan Kákasusfjalla, Armeníu og
Aserbadsjan. Ætti úr þessu ekki
að þurfa frekari vitna við að kalda
stríðinu er lokið. Forseti Banda-
ríkjanna heitir Sovétstjóminni því
pólitíska liðsinni sem hann megnar
að veita við að afstýra þvi að um-
myndun sovétveldisins í fijáls-
ræðisátt veröi til þess að jaðar-
svæði þess breytist í ormagryfjur,
blóði drifnar af þjóðemaríg og
trúarofsóknum.
Framvindan veltur þó að sjálf-
sögðu fyrst og fremst á viðbrögðum
sovétstjómarinnar og þá einkum á
hæfni herstjómarinnar til að beita
vopnavaldi sínu þannig að ekki
geri það illt verra. Atlagan að götu-
vígjum herskárra Asera í Bakú
sýnir það sem vita mátti, að sovét-
herinn er ekki þjált verkfæri til að
kveða niöur uppreisnarástand í
stórborg. Hermennirnir era ekki
þjálfaðir til að gera greinarmun á
vopnuðum andspymumönnum og
friðsömu fólki sem á vegi þeirra
verður.
Ekki bætir úr skák að herstjómin
hefur stöðvað starfsemi íjölmiðla,
útvarp, sjónvarp og blaðaútgáfu,
með þeim aíleiðingum að orðrómur
og skotspónafréttir fá ákjósanleg
vaxtarskilyrði. Ein afleiðingin var
að olíuskipaflotanum var beitt til
að loka Bakú-höfn þegar sá kvittur
komst á kreik að herinn væri að
flytja lík á brott sjóleiöis til að leyna
því hve margir heíðu falhð af borg-
arbúum við töku hennar. Kostaði
40 mínútna skothríð herskipa
Kaspíahafsflotans og stórskotaliðs
í landi á skipagirðinguna að rjúfa
hafnbannið.
Upphaf átakanna í Bakú var að
morðsveitir Asera lögðu í einelti
þá Armena sem eftir voru í borg-
inni eftir brottflutninginn á síðustu
tveim ámm, aðallega gamalmenni.
Fyrir íjöldamoröin á Armenum í
nágrannaborginni Sumgait í febrú-
ar 1988 er tahð að 200.000 Armenar
hafi verið búsettir í Bakú.
Eftir hertöku borgarinnar sneru
dólgarnir sér að því að vinna á
konum og börnum setuliðsmanna
sovéthersins. Þegar tvær her-
mannakonur höfðu verið myrtar
og margar orðið fyrir árásum var
ákveöið að flytja á brott skyldulið
hermanna setuhðanna í Bakú og
Kírovabad og sjóliða í aöalstöðvum
Kaspiahafsflotans, 15.000 manns
Erlendtíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
alls. Sú ráöstöfun er skýrastm-
vottur um að herstjómin sér ekki
fram á að sér takist að friða As-
erbadsjan í bráð.
Og ekki verður hægara fyrir sov-
étstjórnina að ná tökum á ástand-
inu með pólitískum ráðum. Mið-
stjórn kommúnistaflokks Aserbad-
sjan kom saman til skyndifundar í
Bakú á miðvikudag. Fregnir herma
að flokksforustan í Moskvu hafi
sent á fundinn Égor Lígatsjof
stjórnmálanefndarmann og Dmitri
Jasof landvamaráðherra. Þar var
fyrri flokksleiðtogi settur af fyrir
að láta undir höfuð leggjast að
halda uppi lögum og reglu og í hans
stað kjörinn sá sem hingað til hefur
gegnt embætti forsætisráðherra.
En vandséð er hverju flokkur
sem í ríkjandi ástandi er nafnið
eitt fær til vegar komið. Aserar
koma unnvörpum saman til að
brenna flokksskírteini sín á al-
mannafæri, helst í augsýn her-
varða sovéthersins. Alþýðufylking
Aserbadsjana er sú hreyfing sem
Aserar líta til um forustu.
Alþýðufylkingin er tvískipt.
Stofnendur hennar og fyrstu for-
ustumenn vora einkum úr röðum
menntamanna og lögöu meginá-
herslu á breytingar á stjórnarhátt-
um í lýðræðisátt og aukið sjálfs-
forræði Aserbadsjan. Þessir menn
reyndu að koma í veg fyrir ofsókn-
irnar á hendur Armenum í Bakú.
En þeir fengu ekki ráðið viö þann
arm fylkingarinnar sem myndaður
er af Aserum landflótta frá byggð-
um sínum í Armeníu og Nagorno-
Karabak. Þeir krefjast ófriðar við
Armena og að Aserbadsjan segi sig
úr lögum við Sovétríkin og gerist
sjálfstætt.
Sovétherinn hefur síðustu daga
handtekið þá sem til hefur náðst
af fomstumönnumm hins herskáa
arms Alþýðufylkingarinnar en lá-
tið menn úr upphaflegri forustu-
sveit að mestu óáreitta. Haft hefur
verið eftir sovéskum hershöfðingja
að til greina komi að taka upp við-
ræður við fylkingarmenn um að
koma á eðlilegu ástandi í landinu.
Allsherjarverkfall ríkir í Bakú
þegar þetta er ritað og raddir uppi
á þingi landsins um að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um úrsögn úr
Sovétríkjunum. Haft er við orö í
vestrænum fjölmiðlum að búast
megi við skæruhemaöi gegn sovét-
hemum í fjöllum og borgum As-
erbadsjan og rætt um að þar geti
verið framundan stríð svipað og
háð var í Afganistan.
Þar er þó sá grundvaUarmunur
að Aserar, sem í sUkt vilja leggja,
eiga ekkert öraggt bakland eins og
Mujahedin frá Afganistan fengu í
Pakistan og íran. Aserar eru skipt-
ir milli þriggja ríkja, Sovétríkj-
anna, írans og Tyrklands. Fjöl-
mennastir munu þeir vera í Iran.
En þeir eru ekki Persar heldur
sérstök þjóö og tala mál af tyrk-
neskum stofni. Draumur her-
skárra Asera í sovéska hlutanum
er ekki að sameinast íran heldur
aö losa þjóðina alla undan erlend-
um yfirráðum, ekki bara sovéskum
heldur einnig írönskum og tyrk-
neskum, og stofna eitt, sjálfstætt
Aseraríki sem verulega kveði aö.
Fyrstu átökin sem klerkastjórn
Khomeinis í íran lenti í voru viö
aðskilnaðarhreyfingu Asera. Því er
svo um hnúta búið að þótt núver-
andi stjómvöld í íran lýsi yfir um-
hyggju sinni fyrir trúfrelsi trúar-
systkinanna handan við landa-
mærih að Sovétríkjunum er þeim
umhugað um að styðja í engu þjóð-
ernis- og sjálfstæðishreyfingu As-
era sem að verulegu leyti beinist
gegn þeim sjálfum. Við bætist að
Hashemi Rafsanjani, forseti írans,
hefur unnið kappsamlega að því
að efla viðskipta- og stjórnmála-
tengsl við Sovétríkin til að afla Uö-
sinnis viö endurreisnarstarfið eftir
Persaflóastríðið.
Sama máli gegnir um afstööu
Tyrklandsstjómar. Hún er önnum
kafin að bæta sambúðina við Sovét-
ríkin. Þar að auki veldur þjóöa-
fjöldi á tyrknesku landi og harka-
leg viðleitni stjórnvalda til að gera
þær aUar aö Tyrkjum því að stjóm-
in í Ankara skelfist mjög áfleiðing-
ar allrar þjóöaólgu á svæðinu þar
sem tyrkneskt, íranskt og sovéskt
land koma saman.
Magnús Torfi Ólafsson
Sovéthermaður i Bakú réttir særðum félaga tekrús á þriðja degi eftir hertöku borgarinnar (Simamynd Reuter).