Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Skák
x>v
Margeir Pétursson stórmeistari
stendur sig vel á alþjóðlega skák-
mótinu í Wijk aan Zee í Hollandi
sem lýkur um helgina. Aö loknum
tíu umferðum af þrettán hafði hann
5,5 vinninga, einum minna en efsti
maður, Viktor Kortsnoj, og hálfum
minna en Bandaríkjamaðurinn
Maxim Dlugy, sem var einn í 2.
sæti.
Engum hefur enn tekist að leggja
Margeir að velh en hann er á góðri
leið með að hljóta nafnbótina vafa-
sömu,, jafntefliskóngur“. Eftir sex
jafntefli vann Margeir loks Hol-
lendinginn Nijboer í sjöundu um-
ferð. Síðan hafa jafnteflin orðið
þrjú, m.a. viö Kortsnoj í níundu
umferð, þar sem Margeir hafði
lengstum betri stöðu, og Short í tí-
undu umferð. Er þeir tefldu hafði
Short, sem framan af móti barðist
um efsta sætið við Kortsnoj, tapað
þremur skákum í röð, gegn landa
sínum Nunn, Dlugy og Van der
Wiel.
Þrátt fyrir jafnteflin hefur engin
lognmolla ráðið ríkjum í skákum
Margeirs. Peðsfómir eru ærið al-
gengar og stundum riðlast jafnvægi
Uðsaflans enn meir.
Ein skemmtilegasta skák hans til
þessa er við ungverska stórmeist-
arann Lajos Portisch. Brot úr
henni birtist í DV sl. fimmtudag.
Þá var sýnt hvemig Portisch tókst
með laglegri fléttu að blása til sókn-
ar og þvinga síðan fram jafntefli
með þráskák. Nú hefur komið í ljós
að fléttan hefði átt að sktia Ung-
verjanum meiri arði. í stöðunni
leyndist einfold vinningsleið sem
Friðrik Ólafsson stórmeistari kom
auga á.
Hvítt: Lajos Portisch
Svart: Margeir Pétursson
Enskur leikur
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. g3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. Bg2 Rb6 6. Rf3 Rc6 7. 0-0
Be7 8. a3 0-0 9. b4 He8
Þeir félagar Margeir og Jóhann
skoðuðu þetta afbrigði enska leiks-
rns gaumgæfilega fyrir einvígi Jó-
hanns við Karpov fyrir réttu ári.
Það er kaldhæðni örlaganna að
undirbúningur þeirra bar lítinn
árangur í einvíginu en hefur síðan
nýstMargeiri, aðstoðarmanninum,
þeim mun betur!
Síðasti leikur Margeirs er jafnvel
vinsælU en 9. - Be6 10. Hbl f6 með
sömu stöðu og í 2. einvigisskák
Karpovs viö Jóhann.
10. Hbl
Annar kostur er 10. d3 a5 11. b5
Rd4 12. Rd2 a4 13. Bb2 BfB 14. e3
Re6 með möguleikum á báöa bóga,
Jóhann Hjartarson - fvantsjúk,
Linares 1989.
10. - Bf8 11. d3 a5 12. b5 Rd4 13. Bb2
a4 14. Rd2 Ha5 15. Rc4 Rxc4 16. dxc4
Be6!
Fram að þessu hefur teflst eins
og í skák Ehlvest við Jóhann í Rott-
erdam 1989. Jóhann lék 16. - Bf5?!
en eftir 17. Bxb7! Bxbl 18. Dxbl
hafði Ehlvest rífleg færi fyrir
skiptamun og um síðir tókst hon-
um að vinna taflið. í skýringum við
skákina bendir Ehivest á leik Mar-
geirs og áfram 17. Bd5 Bxd5 18.
Rxd5 Bc5 og „staðan er jöfn“. Port-
isch endurbætir þetta afbrigði.
17. e3!? Bxc4!? 18. exd4 exd4 19. Re4
Bxfl 20. Dxfl Dd7
Margeir hefur látið tvo létta
menn fyrir hrók og tvö peð og stað-
an er óíjós. í næstu leikjum þrýstir
hann að peðinu á b5 en Portisch
að drottningarpeðinu.
21. Bal He5 22. Dc4
Annar möguleiki er 22. Hdl!? og
ná d-peðinu í skiptum fyrir b-peöið
og opna fyrir biskupnum um leið.
22. - Hexb5 23. Hdl
Hæpið er 23. Hxb5 Hxb5 vegna
veikleikans á a3 og á fyrstu reita-
röðinni.
23. - Hb3!
Nú strandar 24. Hxd4 á 24. -
Hbl + 25. Bfl Dh3 26. Bc3 Hh5 með
mátsókrt. Og ef 24. Bxd4, þá 24. -
c5. Hvítur þoUr heldur ekki enda-
tafl ef hann missir peðið á a3. Port-
isch lagar kóngsstööuna en þá fær
Margeir tækifæri tti að valda
drottningarpeðið.
24. h4 c5 25. Dcl Hb6 26. Bfl Dg4 27.
Dc2 h6 28. Bc4 Hg6?
Margeir Pétursson teflir vel í Wijk aan Zee og er með efstu mönnum.
Skákmótið 1 Wijk aan Zee:
Sviptingar í skák
Margeirs vid Portisch
Beinn afleikur, sem Portisch er
ekki seinn að færa sér í nyt. í DV
í vikunni mat ég stöðuna sem betri
á svart og hafði þá í huga 28. - Hc6
með b7-b5 bak við eyrað. Þetta var
ekki stutt vísindalegum rökum.
Hvítur hefur einnig sín færi og á
auövelt meö að spoma við út-
þenslustefnu svarts, t.d. með 29.
Hbl. Og biskupinn á c4 er stór-
veldi. Það er erfitt að meta stööuna
án þess aö rekja tafliö áfram með
ttiheyrandi afbrigðum. Líklega
kemst Friðrik Ólafsson eins nálægt
sannleikanum og unnt er með því
að segja að staðan sé í „dínamísku
jafnvægi“.
29. Rg5!! hxg5 30. Dxg6 Dxdl+ 31.
Kg2 Ha8 32. DxU+ Kh7
8 X Jl
7 Á 'W’
G B A 1 1
k ílá &
3 A &
2
ABCDEFGH
33. Be6?
Portisch fatast flugið og nú er
skákin einungis jafntefli. Kemur
lesandinn auga á vinningsleiðina?
Margeir taplaus eftir tíu umferðir
Skák
Jón L. Árnason
Skoðum nokkra möguleika:
a) Eftir 33. f3 (hótar 34. Dh5 mát)
bjargar svartur sér með 33. - Dd2 +
34. Kh3 gxh4 og getur skotið drottn-
ingunni til h6 ef hvítur skákar.
b) 33. h5!? er athygUsverð tilraun
en svartur virðist hanga á sínu eft-
ir 33. - Dbl 34. Be6 De4+ (ekki 34.
- Kh6 35. Bf5 Db6 36. Dg8 Kxh5 37.
g4+ Kh4 38. Be6! og vinnur) og nú
35. Í3 De2+ 36. Kh3 Bd6 37. Dg6+
Kh8 38. h6 De5, eða 35. Kgl Kh6 36.
Bf5 De8 37. Dh7 g4 og kóngurinn
reynir að sleppa tti f6.
c) 33. hxg5! er rétti leikurinn eins
og Friðrik Ólafsson hefur bent á.
Hvítur hótar 34. Df5+ g6 35. Dh3 +
Kg7 36. Dh6 mát. Þar eð 33. - Dc2
gengur ekki vegna 34. Dh5 mát, er
ekki að sjá aðra vamarmöguleika
en 33. - Dg4, en þá kemur 34. Bd3 +
Kh8 35. Dg6 Kg8 (þvingað) 36. f3!
Dd7 37. Bc4 + Kh8 38. Dh5 mát. Ein-
föld en snotur vinningsleið.
33. - gxh4 34. Bf5+ Kh8 35. Dg6 Kg8
36. Dh7 + Kf737. Dg6+ Kg838. Be6+
Kh8 39. Bf5 Kg8
Og jafntefli.
Skoðum einnig hvemig Kortsnoj
tók á móti kóngsindverskri vöm
enska stærðfræðidoktorsins Nunn
en refilstigu þeirrar byrjunar
þekkir Nunn flestum betur.
Kortsnoj lætur sér hins vegar ekki
allt fyrir brjósti brenna og eftir lag-
legar vendingar nær hann vinn-
ingsstöðu.
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: John Nunn
Kóngsindversk vörn.
1. d4 RfB 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. Be2 0-0 6. Rf3 e5 7. Be3 h6 8.
(W) Rg4 9. Bcl Rc6 10. d5 Re7 11. Rel
f5 12. Bxg4 fxg4 13. Be3 b6 14. Rd3
g5 15. b4 Rg6 16. a4 Rf4 17. a5 Hb8
18. Rb5 Ba6 19. axb6 Bxb5
Hugmynd Nunn er að eftir 20.
bxa7 Bxc4 21. axb8 Dxb8 22. Bxf4
exf4 hefur hann þokkaleg færi fyrir
skiptamuninn. Kortsnoj endurbæt-
ir þetta afbrigði skemmttiega:
20. Hxa7! Bxc4 21. bxc7 Df6 22.
cxb8=D Hxb8 23. Bxf4 exf4 24. Ha3
Borið saman við athugasemdina
að framan hefur Kortsnoj náð c-
peði svarts í kaupbæti! Nú tekst
Nunn ekki að skapa sér nægileg
gagnfæri þrátt fyrir góðan vtija.
24. - g3 25. hxg3 fxg3 26. fxg3 Dd4 +
27. Kh2 Dxe4 28. Df3 Bxd5 29. Dxe4
Bxe4 30. Hdl Hb6 31. Ha7 Hb7
Eöa 31. - Bxd3 32. Hxd3 Hxb4 33.
Hxd6 og vinnur auðveldlega.
32. Hxb7 Bxb7 33. b5 Bc3 34. Rc5!
dxc5 35. Hd8+ Kf7 36. Hd7+ Ke6 37.
Hxb7 Kd5 38. Hd7+ Ke6 39. Hh7 c4
40. Hxh6+ Kd5 41. b6 Be5 42. b7 c3
43. Hh8!
Og Nunn gafst upp.
Skákþing
Reykjavíkur
Að loknum átta umferðum af ell-
efu á Skákþingi Reykjavíkur var
Hannes Hlífar Stefánsson einn efst-
ur meö 7,5 v. Hafði aöeins gert jafn-
tefli við Þröst Þórhallsson sem var
í.2. sæti með 7 v. í 3.-4. sæti komu
Ami Á. Ámason og Þröstur Árna-
son með 6,5 v. og með 6 v. vom
Héðinn Steingrímsson, Ögmundur
Kristinsson, Láras Jóhannesson,
Snorri Karlsson og Steffen Lamm.
I gærkvöldi átti að tefla níundu
umferð, tíunda umferð verður tefld
á sunnudag og mótinu lýkur síðan
á miðvikudagskvöld. Teflt er í
Faxafeni 12, nýju heimili Taflfélags
Reykjavíkur.
-JLÁ