Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Qupperneq 17
<117
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Sviðsljós
Tom Crnise skilur
við eiginkonuna
Leikarinn góökunni, Tom Cruise,
sem aflað hefur sér töluverðrar
frægðar undanfarið ætlar að skilja
við eiginkonuna Mimi Rogers. Tom
Cruise, sem er 27 ára gamall, hefur
opinberað að þau hjónakornin, en
hún er sjö árum eldri, hafl ákveðið
að slíta hjónabandinu en aðeins eru
þrú ár síðan þau gengu í það heilaga.
Reyndar höfðu þau reynt ítrekað að
laga sambandið en þegar það ekki
gekk var ákveðið að skilja. Þetta var
fyrsta hjónaband leikarans en annað
hjónaband hennar.
Mimi Rogers og Tom Cruise hafa tilkynnt að hjónaband þeirra sé búiö.
Bruce Springsteen og bakradda-
söngkona hans eiga von á barni.
Fjölgun
hjá Bruce
Spring-
steen
Popparinn Bruce Springsteen,
sem er fertugur, og bakradda-
söngkona hans, Patti Scialfa, 3'6
ára, eiga von á fyrsta barni sínu
innan skamms. Það var hljóm-
plötuútgáfa Springsteen, Col-
umbia, sem flutti blaðamönnum
fréttirnar. En hvort hjónaband
væri fyrirhugað á næstunni hjá
parinu var ekkert sagt um. Þann-
ig er það nú hjá stórstjörnunum.
\
ÖLL LAUGARDAGSKVÖLD FRÁ OG MEÐ
27. JAN. TIL VORS
Þeim sem vilja skemmía sér ærlega er nú boðið í ógleymanlega
,,sjóferð“ með MS Sögú. Landgangurinn er opnaður kl. 19.
Kvöldsiglingin hefst með þríréttaðri veislumáltíð (vai á réttum). Síð-
an er stefnan tekin á stanslaust fjör og haldið suður til Horrimol-
inos. Skipstjórinn er grínfræðingurinn Halli og skemmtilegustu
menn landsins, Laddi og Ómar, bregða sér í allra sjókvikinda líki.
Meðal farþega eru gleðimennirnir Eddi og Elli, Leifur óheppni, hin
þokkafulla Elsa Lund, Marteinn Mosdal,, pokapresturinn fjöl-
þreifni, Magnús og Mundi, HLÓ-flokkurinn og magadansmær
sem iðar í yndislegu skinninu.
Stígum ölduna - stígum í vænginn á MS Sögu
laugardagskvöld!
Einsdæmi og Ragnar Bjarnason leika fyrir dansi
frá kl. 23.30 til 03. Miðaverð eftir kl. 23.30 750 kr.
Miðaverð (skemmtun + veislumatur) 3.900 kr.
Tilboð á gistingu.
Nánari upplýsingar í síma 91-29900.