Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Page 21
LÁlÖÁkDKt/UR 27/ 'Mo:'1
21S
Söngvakeppni Sjónvarps í kvöld:
- sextíu manna dómnefnd fagfólks með alræðisvald
Æfingar hafa staðið yfir fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins í vikunni og hluta afrakstursins sjá menn í kvöld.
DV-mynd KAE
„Þetta er allt komið af stað og mikið
um að vera,“ sagði Egill Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri Söngvakeppni
Sjónvarpsins, í samtali við helgar-
blaðið en fyrstu sex lögin í keppninni
verða kynnt í kvöld. „Það var upp-
hafleg dómnefnd sem skipti lögunum
niður í tvo hópa með það fyrir augum
að velja sem líkust lög í hvorn þátt.
Með því móti hafa lögin tólf jafna
möguleika á að halda áfram. Sextíu
manna dómnefnd velur þau þijú lög
sem halda áfram keppni,“ sagði Egill.
Dómnefndin er skipuð jöfnum hóp-
um fagfólks, flytjendum tónlistar,
gagnrýnendum, útvarpsmönnum og
almenningi. „Við ákváðum að leita
til fólks sem hefur starfað við eða í
tengslum við tónlist undanfarna ára-
tugi. Við töldum best að dómurinn
yrði ekki eingöngu almennings-
dómur. Þetta er stór dómnefnd og
mjög almenn," sagði Egill.
Sama dómnefndin verður í báðum
þáttunum og hefur það vald að úti-
loka þijú lög úr hvorum. Úrslita-
keppnin fer fram 10. febrúar en þá
verður eitt lag valið af sex til að
keppa í Eurovision í Júgóslavíu í vor.
Breyting á
úrslitadómnefnd
Ekki verður sama dómnefnd að
störfum á úrslitakvöldinu. Að sögn
Egils tókst þó ekki að hafa það fyrir-
komulag sem menn höfðu áhuga á
að reyna. „Við vildum að áheyrendur
gætu hringt í sex mismunandi númer
og að tölva mældi hversu margir
hringdu í hvert númer. Þannig fyrir-
komulag var notað í söngvakeppn-
inni hjá BBC í fyrra og við fengum
okkar upplýsingar þaðan. Yfirmenn
Pósts og síma voru aflir af vilja gerð-
ir til að þetta yrði framkvæmanlegt
en því miður treystu þeir sér ekki til
þess þar sem búnaður hér á landi er
ekki nógu fullkominn. Það hefði ver-
ið spennandi að reyna þessa aðferð,"
segir Egill.
Hann sagði aö dómnefndin yrði þó
ekki alveg eins og áður hefur verið.
„Við viljum að allt landið taki þátt í
atkvæðagreiðslunni. Hingað til höf-
um við beðið um að í dómnefndir
væri valið fólk sem ekki hefur verið
tengt tónlist en því ætlum við að
breyta.
Nú óskum við eftir fólki sem er
þekkt í sinni heimabyggð sem áhuga-
fólk um tónlist, t.d. starfandi í hljóm-
sveitum, kórum eða einhverju slíku.
Þá verða sjö manna dómnefndir í
stað ellefu í átta kjördæmum.
Leitin að rétta laginu
Hvert kjördæmi vegur tíu prósent
en þau tuttugu sem eftir eru skipa
dómnefndarmenn sem Sjónvarpið
velur. Sú dómnefnd er einnig skipuð
sjö mönnum en ekki endilega af.höf-
uðborgarsvæðinu. Allt er það fólk
sem hefur starfað í tónlist. Þessi sér-
staka dómnefnd sem vegur tvöfalt á
við aðrar á að hjálpa landsmönnum
að finna rétta lagiö. Með þessari skip-
an vonum við að loksins flnnist rétta
lagið þó ekkert sé öruggt í þeim efn-
um,“ sagði Egill ennfremur. „Hér
reynum við þó nýtt fyrirkomulag
sem er á engan hátt hlutdrægt. Það
hlýtur að vera betra að hafa fagfólk
með í valinu þó líklegast eigi ein-
hverjar gagnrýnisraddir eftir að
heyrast vegna þess.“
í keppninni verða höfundar ekki
tengdir lögum sínum og ekkert gefið
upp fyrr en sigurlagið er komið í
höfn. Egill segir að það ætti aö gera
keppnina meira spennandi því þá
geta áheyrendur spáð í hverjir eiga
hvaða lög. Æflngar hafa verið strang-
ar undanfarið en hver höfundur fær
þijá tíma í stúdíóinu ásamt hljóm-
sveit keppninnar sem leikur undir í
öllum lögum keppninnar. Söngvarar
laganna eru Grétar Örvarsson, Björg-
vin Hafldórsson, Sigríður Beinteins-
dóttir, Eyjólfur Kristjánsson, Ingi
Gunnar Jóhannsson, Ari Jónsson,
Helga Möller, Ágúst Ragnarsson, Ell-
en Kristjánsdóttir, Bergþóra Árna-
dóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurösson
ogRutReginalds. -ELA
Fordkeppnin:
Mikill áhugi á fyrirsætustörfum
- skilafresturinn styttist
Mikill áhugi virðist fyrir Ford-
keppninni eins og undanfarin ár
og þegar er kominn mikill bunki
af myndum af fallegum stúlkum.
Skilafrestur er til 3. febrúar nk. en
þá verða aflar myndirnar sendar
til Ford Models í New York. Það
er Eileen Ford sem velur sex til tíu
stúlkur til að keppa til úrslita hér
.á landi. Sigurvegari keppninnar
tekur þátt í keppninni Supermodel
of he World, sem fram fer næsta
sumar. Þátttakendur verða þrjátíu,
hver frá sínu landinu.
Eftir að Eileen Ford hefur valið
þátttakendur í képpnina hér heima
verða þeir aflir kynntir í helgar-
blaði DV með myndum og við-
tölum. Sjálf úrslitastundin verður
11. mars en þá kemur til landsins
ein af eftirsóttustu fyrirsætum
heimsins á áttunda áratugnum,
Vibeke Knudsen, og velur sigur-
vegara keppninnar hér á landi.
-ELA
Fordkeppn i n - þátttökuseði II
Nafn:....................................
Fæðingardagur og ár.....................
Heimilisfang.............................
Sími.....................................
Staða....................................
Hæð......................................
Þyngd....................................
Skilafrestur er til 3. febrúar
Lillí Karen, sigurvegari Ford-keppninnar i fyrra. Nýr sigurvegari verður
valinn 11. mars en áður verða keppendur kynntir i DV.
Fínnland i febrúar - Ferðaskrifstofan
sími 652266
Einstök ferð til Helsinki dagana 25. febrúar tíl 2. mars nk.
HELSINKI
Gísting 5 nætur
frá kr. 28.200
STOKKHÓLMUR/HELSINKI
5 nætur (sigling)
frá kr. 42.500
LENINGRAD/HELSINKI
5 nætur
frá kr. 42.300
HELSINKI/FLUG OG BILL
frá kr. 22.500
Aðeíns þessi eína ferð
PANTIÐ STRAX
FERÐASKRIFSTOFA