Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990.
Er enginn fjöl-
miðlamaðnr
- segir Þorvarður Elíasson, nýr sjónvarpsstjóri á Stöð 2
Þorvarður og eiginkona hans, Inga Rós Sigursteinsdóttir, á heimili sínu við
Fjólugötu. Þorvarður segir að hann ætli sér ekki i spor Jóns Óttars, fyrir-
rennara síns, og hefur ekki hugsað sér að birtast á skjánum.
DV-myndir KAE
„Ég get ekki neitað að það kom
mér á óvart að ég yrði fyrir valinu í
starf sjónvarpsstjóra. En í raun hafa
öll störf, sem ég hef tekið aö mér,
komið þannig upp í hendur mínar,“
segir Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verslunarskólans, sem 1. febrúar
tekur við starfi sjónvarpsstjóra
Stöðvar 2 af Jóni Óttari Ragnarssyni.
Þorvarður hefur verið skólastjóri
Verslunarskólans frá árinu 1979.
„Það má segja að það hafi verið
óvænt að ég tók við því starfi. Doktor
Jón Gíslason, fyrrum skólastjóri, var
kominn á eftirlaunaaldur og verið
var að leita eftir nýjum skólastjóra.
Þeir fengu þá hugmynd að ráða mig
í starfið en ég hafði þá verið fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs íslands
í sjö ár. Mig langaði að breyta til á
þeim tíma en var þó ekki farinn að
ræða það. Mér leist því vel á að taka
starfið að mér enda hef ég aldrei
fengið að vinna við það sem ég
kann,“ heldur Þorvarður áfram og
brosir. „Ég hef alltaf frá því ég hætti
í námi lent í þeirri aðstöðu að taka
að mér starf sem ég hef ekki vitað
hvemig ætti að vinna.“
Þorvarður lauk námi frá viðskipta-
deild Háskóla íslands árið 1965. Hann
var gjaldkeri stúdentaráðs og í stjórn
félags viðskiptafræðincma og einnig
gjaldkeri. Þorvarður hefur verið við-
loöandi fjármál hvar sem hann hefur
komið að eigin sögn. „Ég virðist vera
vel til þess fallinn að passa peninga
fyrir aðra en eignast minna af þeim
sjálfur," segir hann. Með háskóla-
náminu starfaði hann hjá hagfræði-
deild Seðlabankans en eftir nám fór
hann að vinna hjá Kjararannsóknar-
nefnd en þá höfðu staðið yfir miklar
kjaradeilur. „Ég var skipaður af
Vinnuveitendasambandinu í Kjara-
rannsóknarnefnd og fékk það verk-
efni að setja á stofn launastatistik og
koma henni í tölvuúrvinnslu en það
voru mín fyrstu kynni af tölvum."
Vann að uppbyggingu
Eftir að hafa unnið hjá Kjararann-
sóknarnefnd í tvö ár stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Hagverk, sem var
ráðgjafarþjónusta, ásamt tveimur
verkfræðingum. Þar var Þorvarður
í tvö ár eöa þangað til honum bauðst
starf framkvæmdastjóra Verslunar-
ráðsins.
Þorvarður segir að það hafi ekki
verið svo erfitt að skipta úr því yfir
í skólastjórastarfið. „Það var í raun
ekki meiri breyting en þegar ég fór
úr ráðgjafarfyrirtækinu yfir til
Verslunarráðs. Ég tók við stöðunni
í Verslunarskólanum vitandi aö
meginverkefnið væri að koma skól-
anum í annað húsnæði og treysta
reksturinn á ýmsan hátt. Ég leit á
það sem mitt helsta verkefni í skól-
anum og held að hægt sé að segja að
því verki sé lokið.“
Verslunarskólinn hefur vaxið
nokkuð á þeim árum sem Þorvarður
hefur starfað þar sem skólastjóri.
Fyrir utan hversu húsnæðið hefur
stækkað hafa verið stofnaðar tvær
nýjar deildir viö skólann. Það er
stærðfræðideild og verslunarmennt-
unardeild. Þá hefur skóhnn verið
með ýmis námskeið í gangi auk þess
sem stofnaður hefur verið tölvuhá-
skóh og öldungadehd.
Evrópumál
áhugaverð
Þorvarður hafði ákveðið sl. haust
aö taka sér ársleyfi frá skólanum á
þessu ári og hugðist flytja til út-
landa. „Ég ætlaði að hafa það huggú-
legt og sinna því sem ég hef áhuga á
en ekki þýðir að hugsa frekar um þaö
núna. Til stóð að ég sinnti málefnum
sem ég hef hug á að kynna mér, sér-
staklega viðskiptamálum Evrópu
sem eru í mikilli þróun og breytingu,
og í víðara samhengi þær hræringar
ahar sem eru að gerast í Evrópu,
bæði á viöskiptasviðinu og í stjóm-
málum. Ég hafði þó ekki endanlega
ákveðið hvert ég myndi fara. Þetta
mál var komið nokkuð áleiðis í des-
ember þegar mér var fleygt inn í
málefni Stöðvar 2. Síöan hef ég vart
htið upp, þannig að ég hef ekki unn-
ið frekar í því máli. Ég hafði ákveðið
að fara í leyfið annaðhvort í byrjun
þessa árs eða í vor eftir skólaslit."
Þorvarður segir að málefni Stöðvar
2 séu ekki ný fyrir sér. Hann hefur
fylgst með þróun mála alllengi þar
sem hann situr í stjórn Verslunar-
banka íslands, sem er viðskiptabanki
Stöðvarinnar. „Þó ég hafi unnið í
þessum málum grunaði mig aldrei
að ég ætti eftir að verða sjónvarps-
stjóri. Þannig var ekki um málið
fjallað enda hefur bankinn aldrei
skipt sér af rekstri þessa félags, eða
ekki fyrr en menn voru komnir í þá
stöðu að annaðhvort yrði að ná sam-
komulagi við eigendur um fram-
haldið eða yfirtaka reksturinn. Sem
betur fer náðist samkomulag um
hvernig framhald skyldi verða.“
Verð ekki á skjánum
Þorvarður glottir þegar ýjað er að
sviðsljósi fyrirrennara hans, Jóns
Óttars Ragnarssonar. „Ég fer ekki í
spor Jóns Óttars," segir hann. „Þó
ég verði sjónvarpsstjóri er ekki þar
meö sagt að ég verði eins og einhver
annar maöur.“
Þorvarður segist ætla aö halda sig
frá sviðsljósinu og hann hefur ekki
hugsað sér að birtast á skjánum. „Ég
held að það sé ekki til góðs fyrir sjón-
varp að sjónvarpsstjóri setji jafnað-
armerki milh sín og Stöðvarinnar.
Það þarf að byggja upp góða ímynd
fyrir Stöð 2 en ímyndin má ekki vera
sjónvarpsstjórinn sjálfur,“ segir Þor-
varður. Hann segist vera búinn að
velta fyrir sér nýja starfinu en vill
sem minnst um hugmyndir sínar
tala. „Ég vil láta verkin tala,“ segir
hann og hætir við að hann hlakki til
að takast á við hið nýja starf og það
leggist vel í hann. „Ég hef alltaf ver-
ið tilbúinn að taka að mér það sem
mér hefur verið boðið. Þetta er tví-
mælalaust mikið og spennandi starf.
Ég geri mér hka fulla grein fyrir aö
þessu starfi fylgir umtal. Starfið
verður mjög erfitt tíl að byrja með
því það þarf virkilega aö taka til
hendinni."
Dæmdur fyrir klám?
Þorvarður segist hafa heimsótt
Stöð 2 og skoöað húsakynni og heils-
að upp á starfsfólk en hann ætlar að
bíða meö frekari afskipti þar til hann
hefur störf á fimmtudag.
Þorvarður vakti athygh er hann
vísaði stúlku úr Verslunarskólanum
vegna samskipta hennar við Pan-
hópinn svokahaða. Bláar myndir
hafa verið sýndar á Stöð 2 undan-
farna mánuði og eru reyndar kæru-
mál en margir telja að þar sem svo
siðavandur maður komi í sjónvarps-
stjórastóhnn verði þær allar á bak
og burt. Þorvarður segist lítið geta
sagt um þessar myndir þar sem hann
hafi ekki séð þær. Hann segist yfir-
höfuð ekki horfa mikið á sjónvarp
en hann fékk sér þó myndlykil fyrir
ári. „Það er kannski margt skoplegt
sem kemur upp,“ segir Þorvarður og
brosir. „Það væri kaldhæðnislegt í
þessu nýja starfi að ég fengi dóm fyr-
ir brot á klámlögunum. Eg held að
þaö væri varla fyrirgefanlegt," segir
hann.
Af útgerðarfólki
Þorvarður er fæddur í Hnífsdal 9.
júh 1940 og alinn upp þar til fimm
ára aldurs. Foreldrar hans voru Elías
Ingimarsson og Guöný Jónasdóttir.
„Faðir minn stofnaði frystihús og
kaupfélag í Hnífsdal. Við fluttum síð-
an til Skagastrandar þar sem hann
reisti Síldarverksmiðjuna. Faðir
minn starfaði sem verksmiðjustjóri
þar. Þaðan íluttum við til Akureyrar
þar sem hann tók við stöðu yfirfisk-
matsmanns. Síðar starfaði hann hjá
Útgerðarfélaginu og reisti t.d. frysti-
hús Útgerðarfélags Akureyringa og
var þar síðar verksmiðjustjóri. Loks
fluttum við til Reykjavíkur þar sem
hann vann hjá Sænsk/íslenska
frystihúsinu. Faðir minn lést fáum
árum eftir að við komum suður. Ég
kom hingað suður tveimur árum á
eftir foreldrum mínum, árið 1960, en
þá lauk ég stúdentsprófi við Mennta-
skólann á Akureyri.“
Þorvarður á fimm systkini, þijá
bræður og eina systur. Bræðurnir
fóru allir í Háskólann en systirin í
Myndlistarskólann og starfar nú sem
listamaður í Svíþjóð. Eiginkona Þor-
varðar er Inga Rósa Sigursteinsdóttir
og þau eiga fjögur böm, Einar, frí-
kirkjuprest í Hafnarfirði, Guðnýju
Rósu, sem starfar hjá Eimskipum í
Gautaborg, Bjama Kristján, raf-
magnsverkfræðing, en hann er við
framhaldsnám í Bandaríkjunum, og
Elías Þór, nemanda í Versló.
Öðruvísi fólk
Þau ellefu ár sem Þorvarður hefur
verið skólastjóri Verslunarskóla ís-