Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1990, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 27. MNÚAR J990.
„Það væri kaldhæðnislegt í þessu nýja starfi að ég fengl dóm fyrir brot á klámlögunum. Ég held að það væri varla fyrirgefanlegt," segir Þorvarður
Elíasson meðal annars en hann tekur við sem sjónvarpsstjóri á Stöð 2 á fimmtudag.
lands telur hann mjög góö og segir
að vissulega verði viss eftirsjá í starf-
inu. „Það er mjög gefandi að starfa
með ungu fólki og nemendur Versl-
unarskólans eru ólíkir nemendum
annarra skóla. Þetta er líflegra og
skemmtilegra fólk en maður mætir
í öörum framhaldsskólum. Kannski
ánægt með sjálft sig en ég hef gaman
af fólki sem ekki er að farast úr
minnimáttarkennd. Ég hef haft mik-
ið samband við bæði núverandi nem-
endur og þá sem hafa lokið námi.“
Þorvarður fékk líka góðar móttök-
ur hjá nemendum sínum er ljóst var
aö hann væri orðinn sjónvarpsstjóri.
„Þegar ég mætti í skólann biðu nem-
endur eftir mér með rauðar rósir.“
Þorvarður er þó ekki hættur, hann
segist ákveðinn í að hefja störf að
nýju í skólanum að loknu ársleyfmu.
„Það er afbragðsfólk í Verslunar-
skólanum og engin afgerandi vanda-
mál hafa komið upp. Ef einhver
vandamál hafa komið upp hefur
maður reynt að gera mikið úr þeim
til að láta vita af því.að það sé skóla-
stjóri í skólanum."
Enginn
fjölmiðlamaður
í hinu nýja starfi, sem er mjög
ólíkt því gamla, eru mörg svið og þar
á meðal þarf dagskrárstefnu. Þor-
varður segist bera endanlega ábyrgð
á því sem fram fari á Stöð 2 og þurfi
því að fylgjast vel með. Hann segist
í raun vita lítið um starfsemi Stöðv-
arinnar, hvort sem um sé að ræða
innlenda dagskrárgerð eða erlent
efni. „Það er í raun hálfkúnstugt að
ég sé kominn inn í þennan fjölmiðla-
heim, jafnlítill fjölmiðlamaður og ég
er. Að vísu hef ég mikinn áhuga á
því sem er að gerast í þjóðfélaginu
og fyígist vel með fréttum. Þó ég hafi
mjög afgerandi skoðanir á málefnum
og í pólitík er ekki þar með sagt að
ég þurfi að koma skoðunum mínum
í framkvæmd £ar sem ég sit við
stjórnvölinn. Akvarðanir eiga að
koma neðan frá og ganga upp. Sann-
leikurinn er sá aö stjómendur gera
ekki annað í níutíu prósent tilvika
en samþykkja hugmyndir sem koma
frá öðrum."
Skemmtilegri fréttir
Þorvarður segir aö þó eigendum
hafi fjölgað og komi úr einni stétt
manna eigi það ekki að breyta neinu
um rekstur stöðvarinnar enda hafi
fyrri eigendur einnig verið í fyrir-
tækjarekstri. Þorvarður segir að eig-
endaskiptin komi ekki til með að
breyta neinu t.d. í sambandi við
fréttaflutning Stöðvar 2. „Ég myndi
vilja fá meira af skemmtilegum frétt-
um sem spanna vítt svið. Eg er mjög
ánægður með að fréttastofa Stöðvar
2 hefur gert minna að því en frétta-
stofa Ríkissjónvarpsins að elta miður
skemmtilegar fréttir. Mér finnst Stöð
2 hafa leitað meira út til fólksins og
verið með víðfeðmari fréttir. Þess
vegna hef ég frekar horft á fréttatíma
Stöðvar 2. Þó ég hafi pólitískan áhuga
hef ég engan áhuga á umræðum sem
eru eins dag eftir dag og í fæstum
tilfellum skipta máli. Ég hugsa að það
sé misskilningur að fólk hafi svo
mikinn áhuga á að fylgjast með
stjórnmálamönnum, eins og sagt er.
Þetta eru oft hæfileikamenn í sviðs-
framkomu og ná því athygli manna
en hafa oftast minna um að tala. Ég
vil að fréttir snúist meira um fólkið
í landinu og þess störf. Vitaskuld
verða fréttir að byggjast upp á því
sem fólk hefur áhuga á að heyra og
sjá. íslendingar eru þannig gerðir aö
þeir vilja fylgjast vel með.“
Vanbyggt húsnæði
Þorvarður segist vera sannfærð-
ur um að Stöð 2 eigi eftir að blómstra.
„Það þarf að koma öllu í betra horf
og styrkja stööu fyrirtækisins með
ýmsum hætti. Þegar það allt er kom-
ið í lag er ég viss um að starfsfólkið
mun reka öfluga og góða sjónvarps-
stöð. Öll niál verða skoðuð og bruðl
verður ekki leyft,“ segir nýi sjón-
varpsstjórinn. „Húsnæðið er van-
byggt. Astand þess er eðlileg afleið-
ing fjármálastöðu fyrirtækisins. Það
þarf að skipuleggja það betur og
koma hlutum þannig fyrir að þeir
þjóni rekstrinum betur. Þetta er mik-
ið' og flókiö fyrirtæki, mikill tækja-
búnaður og stórt húsnæði en það
má koma hlutum betur fyrir innan
þess. Það er greinilega mikið.af færu
starfsfólki hjá Stöðinni en það þarf
hins vegar að gíra saman starfsfólk
í dagskránni og íjármagnið. Ég veit
ekki ennþá hvort einhverra breyt-
inga verður þörf þegar það verður
gert.“ ■
Þorvarður segist ekki vita betur en
að fyrri eigendur verði áfram í störf-
um hjá fyrirtækinu. „Hvað þeir
munu gera hugsa ég ekki um fyrr en
ég hef tekið við starfinu," segir hann.
Vil skila árangri
Þorvarður hefur það orð á sér að
hann sé kröfumikill og vilji hafa aga
á hlutunum. Hann er ekki tilbúinn
að viðurkenna það. „Minn vinnustíll
hefur alltaf verið sá að skipta mér
af sem fæstu en ef ég gef fyrirmæli
krefst ég þess að eftir þeim sé farið.
Mönnum finnst það kannski mikill
agi þegar ég gef fyrirskipanir en þaö
er einu sinni minn stíll. Ég get þó
varla sagt að ég strái í kringum mig
skipunum. Ég hef aldrei heyrt bömin
mín kvarta undan aga. í starfi krefst
ég þess af sjálfum mér að skila ár-
angri. Þegar ég byrjaði hjá Verslun-
arráði var það í litlu húsnæði í mið-
bænum og það var á þeim tíma sem
Hús verslunarinnar var byggt. Ég fór
frá Verslunarráðinu um sama leyti
og það flutti í nýja húsið. Þegar ég
kom inn í Verslunarskólann var að
hefjast uppbygging og nú fer ég það-
an þegar henni er lokið. Ég vil sýna
svona árangur. Ég hef ekkert gaman
af silkihúfustarfi þar sem maður fær
ekki að gera neitt. En þótt ég sé orð-
inn sjónvarpsstjóri þá er ég ekki fyr-
ir ræðuhöld eða umtal,“ segir Þor-
varður Elíasson, hinn nýi sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2.
-ELA